Morgunblaðið - 25.08.2010, Blaðsíða 14
14 FréttirVIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 2010
Bakkavör Group
Kynningarfundur fyrir lánveitendur
og hluthafa föstudaginn 27. ágúst nk.
Bakkavör Group ehf. býður lánveitendum og
hluthöfum til kynningar á afkomu fyrstu sex
mánaða 2010 föstudaginn 27. ágúst nk. kl. 10:00
á Hótel Sögu, Hagatorgi, 107 Reykjavík.
Vinsamlegast athugið að fundurinn er ætlaður
hluthöfum og lánveitendum félagsins.
HLUTHAFAFUNDUR
ICELANDAIR GROUP HF.
DAGSKRÁ
1. Kjör stjórnar og varastjórnar skv. 5. gr. samþykkta félagsins
2. Önnur mál
Stjórn Icelandair Group hf. boðar til hluthafafundar miðvikudaginn 15. september 2010, kl. 16:00,
á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
51
20
0
08
/1
0
FRAMBOÐ TIL STJÓRNAR
Þeir sem hyggjast gefa kost á sér til stjórnarkjörs skulu tilkynna félagsstjórn um framboð sitt skemmst 5 dögum fyrir
hluthafafund. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kennitölu og heimilisfangs,
upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um
hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut
í félaginu.
REGLUR UM ÞÁTTTÖKU HLUTHAFA OG ATKVÆÐAGREIÐSLU
Hluthafar eiga rétt á að fá mál tekin á dagskrá, leggja fram ályktunartillögur og spyrja spurninga, með skriflegum eða
rafrænum hætti, uns endanleg dagskrá verður lögð fram viku fyrir fundinn. Nánari upplýsingar um réttindi hluthafa
er að finna á vefsíðu félagsins: www.icelandairgroup.is
Hverjum hlut í félaginu fylgir eitt atkvæði, að frátöldum eigin hlutum sem ekki fylgir atkvæðisréttur.
Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað.
Hluthafar sem sækja ekki hluthafafundinn geta annaðhvort: a) kosið um dagskrármál með skriflegum eða rafrænum
hætti, eða b) veitt umboð.
Beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum eða rafrænum hætti þarf að berast félaginu eigi síðar en 5 dögum fyrir
aðalfundinn. Atkvæði þurfa að berast félaginu fyrir aðalfund. Hluthafar geta einnig greitt atkvæði í höfuðstöðvum
félagsins á skrifstofutíma alla virka daga fyrir aðalfundardag.
Hluthafar geta annaðhvort veitt skriflegt eða rafrænt umboð að uppfylltum ákveðnum formkröfum sem fram koma á
vefsíðu félagsins. Rafræn umboð þarf að senda í gegnum aðgangskerfi hluthafa hjá félaginu. Umboð þurfa að berast
félaginu fyrir aðalfund eða á fundarstað.
Upplýsingar um framboð til stjórnar verður kynnt á vef félagsins tveimur dögum fyrir fundinn.
Nánari upplýsingar um atkvæðareglur og notkun umboða er að finna á vefsíðu
félagsins: www.icelandairgroup.is
Reykjavík, 25. águst 2010,
stjórn Icelandair Group hf.
Þórður Gunnarsson
thg@mbl.is
Einn stærsti söluaðili skipulagðra
ferða til Íslands hefur hætt viðskipt-
um við Iceland Express. Ástæðan er
sögð hversu oft fyrirtækið aflýsir
áætlunarflugi.
Ferðaskrifstofan Discover The
World segir á heimasíðu sinni að
vegna ítrekaðra seinkana og breyt-
inga á áætlunarflugi Iceland Ex-
press treysti þeir sér ekki til að selja
áfram í vélar félagsins. Clive Stacey,
framkvæmdastjóri Discover The
World og aðaleigandi fyrirtækisins
segir að fyrirtæki sitt vinni með
stórum hópum sem kalli oft á flóknar
ferðaáætlanir. „Því miður lentum við
of oft í því að Iceland Express aflýsti
áætlunarflugi með mjög stuttum fyr-
irvara,“ segir Stacey í samtali við
Morgunblaðið.
„Við báðum þá að gefa okkur meiri
fyrirvara, en síðustu sex mánuði hafa
þeir aðeins gefið okkur tveggja vikna
fyrirvara, sem er lögbundinn lág-
marksfyrirvari hér,“ segir hann. „En
það er hægt að bíða bara fram að
þeim tímapunkti að tvær vikur eru í
brottför og vonast eftir að fluginu
verði ekki aflýst. Það virðist sem Ice-
land Express aflýsi öllum öðrum
flugferðum en þeim sem skila hagn-
aði án þess að hugsa út í afleiðing-
arnar,“ segir Stacey.
Aldrei áður hætt viðskiptum
Stacey segir að á endanum hafi
verið svo komið að sitt fyrirtæki hafi
ekki séð sér fært annað en hætta við-
skiptum nánast alfarið við Iceland
Express: „Þetta er í fyrsta skipti í 26
ára sögu fyrirtækisins sem við látum
af viðskiptum við flugfélag með þess-
um hætti. Yfir ansi langt tímabil hafa
að jafnaði 2-3 stöðugildi í mínu fyr-
irtæki þurft að leysa úr vandamálum
viðskiptavina okkar sem hafa lent í
vandræðum með flug sín hjá Iceland
Express,“ bætir Stacey við.
Náðu ekki samkomulagi um
kostnað og markaðsátak
Matthías Imsland, forstjóri Ice-
land Express, gefur lítið fyrir um-
mæli Stacey. Hann segir að Iceland
Express hafi ekki átt í formlegu
samstarfi við Discover The World.
Að sama skapi hafi ekki náðst sam-
komulag við bresku ferðaskrifstof-
una um verð á flugsætum. Einnig
hafi Iceland Express ekki viljað taka
þátt í sameiginlegu markaðsátaki
með Discover The World: „Þetta fyr-
irtæki hefur í gegnum tíðina verið
samstarfsaðili Icelandair. Viðskipti
okkar við þá í gegnum tíðina hafa
verið mjög lítil. Við höfðum ekki
áhuga á að fara í markaðssamstarf
með þeim þar sem það hefði kostað
of mikið, bæði fjárhagslega og
ímyndarlega. Við lítum á þetta fyr-
irtæki sem aðila sem höfum ekki sér-
staklega mikinn áhuga á að versla
við,“ segir Matthías.
Ferðaskrifstofa segir flug-
seinkanir Express of tíðar
Ferðalög til Íslands
» Einn stærsti söluaðili skipu-
lagðra ferða til Íslands segir
frestanir hjá Iceland Express
of tíðar. Fyrirtækið hefur selt
ferðir til Íslands í yfir tvo ára-
tugi og er að eigin sögn um-
svifamest á þeim markaði.
» Forstjóri Iceland Express
segir að ágreiningur um verð
og kostnaðarþátttöku í mark-
aðsátaki hafi bundið enda á
viðræður fyrirtækjanna. Lítill
áhugi sé á samstarfi við Disco-
ver The World.Morgunblaðið/Ernir
Flugsamgöngur Ein flugvéla Iceland Express á Reykjavíkurflugvelli.
● Ekki hafa selst jafn fáar fasteignir í
einum mánuði í Bandaríkjunum í ellefu
ár. Um er að ræða eldra húsnæði og er
samdrátturinn í júlí 27,2% frá júní. Þyk-
ir þetta enn ein vísbendingin um
hversu alvarlegt efnahagsástandið er
þar í landi.
Alls seldust 3,83 milljónir íbúða en
alls seldust 5,26 milljónir íbúða í júní.
Er þetta mun meiri samdráttur en
spáð hafði verið en að meðaltali var því
spáð að samdrátturinn yrði rúm 12%.
Ekki hafa jafn fáar íbúðir selst í einum
mánuði frá því í maí 1995.
Sáralítil fasteignasala
í Bandaríkjunum
Stuttar fréttir ...
● Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI
hækkaði um 0,3% í gær, í viðskiptum
upp á 12,2 milljarða króna. Verð-
tryggða vísitalan, GAMMAi: Verðtryggt,
hækkaði um 0,4% í 6,2 milljarða króna
veltu og sú óverðtryggða, GAMMAxi:
Óverðtryggt, hækkaði lítillega í 6 millj-
arða króna viðskiptum.
Hækkun í nokkurri veltu
Lagt verður til á skiptafundi þrota-
bús BGE í dag að skuldir vegna
hlutabréfakaupa starfsmanna
Baugs Group verði innheimtar, líkt
og greint var frá í Morgunblaðinu í
gær. Lánin voru veitt til kaupa á
hlutabréfum í Baugi.
Bjarni S. Ásgeirsson, skiptastjóri
BGE, hefur ekki viljað staðfesta
þær upphæðir sem um ræðir, en
staðfestir að þær hlaupi á hundr-
uðum milljóna króna. Skilanefnd
Kaupþings vill ekki tjá sig um málið
fyrr en að loknum skiptafundi.
Kaupþing fjármagnaði hlutabréfa-
kaupin, en skiptastjóri BGE segir
það dómstóla að ákveða hvort bréf-
in sjálf séu lögð til grundvallar sem
veð, eða hvort lánþegarnir beri
persónulega ábyrgð á endur-
greiðslu lánanna. Þar sem Baugur
Group er gjaldþrota eru hlutabréf-
in verðlaus í dag. einarorn@mbl.is
Vilja lánin innheimt
Morgunblaðið/Kristinn
Gjaldþrota Deilt er um hvort starfs-
menn eigi að endurgreiða lán
!"# $% " &'( )* '$*
+,-./0
+/1.++
++2.-+
,-.232
+4.+/4
+1.+4+
++3.1/
+.25++
+/+.42
+3,.50
+,+.+1
+/1.31
++2.52
,-.3+2
+4.,21
+1.,5/
++1
+.2535
+/,.2/
+3,./
,-0./+2/
+,+.23
+/0.-+
++2.10
,-.302
+4.5-5
+1.,/3
++1.5,
+.2543
+/5.-,
+35.,5