Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég eldaði um 200 lítra afsúpu í fyrra, þannig aðþetta verður um eitt tonnaf kjötsúpu samtals frá
okkur öllum,“ segir Úlfar Eysteins-
son, vert á Þremur Frökkum, en
hann er einn þeirra sex matreiðslu-
manna sem hafa tekið að sér að mat-
reiða íslenska kjötsúpu ofan í þá sem
eiga leið um Skólavörðustíginn á
laugardaginn, en sauðfjárbændur og
garðyrkjubændur ætla að skaffa hrá-
efnið í súpuna.
Það er því ærið verkefni fram-
undan hjá þeim Úlfari á Þremur
Frökkum, Eiríki Inga Friðgeirssyni
og Friðgeiri Eiríkssyni á Holtinu,
Hrafnkeli Sigríðarsyni og Theódóri
Breka Árnasyni frá Óðinsvéum og
Dóru Svavarsdóttur frá Á næstu
grösum. Þau segja þetta viðamikla
verkefni vissulega krefjast góðrar
skipulagningar. Og þau ætla að byrja
að elda súpuna strax á morgun,
föstudag. Þau segja enga eina upp-
skrift til að íslenskri kjötsúpu, þær
séu allskonar. Vissulega sé lamba-
kjöt í þeim öllum en fólk noti svo alls-
konar grænmeti, sumir grjón, aðrir
haframjöl og enn aðrir sleppi því.
Dóra, sem kemur frá grænmet-
isstaðnum Á næstu grösum, ætlar að
vera bæði með grænmetissúpu og
kjötsúpu, en hún segir að vissulega
megi búast við að í kjötsúpunni henn-
ar verði óvenjumikið grænmeti.
Kjötsúpa með miklu græn-
meti frá Á næstu grösum
600 g lambakjöt af framparti
1 laukur
3 íslenskar kartöflur
3½ l vatn
3 gulrætur
1 seljurót
½ rófa
3 tómatar
½ dl bankabygg
salt og pipar
2 msk súpujurtir
2-3 tsk ferskar kryddjurtir
(steinselja, graslaukur)
Skerið kjötið í bita og bakið í
ofni við 200°c í u.þ.b. 10 mín.
Skerið laukinn í þunnar sneiðar
og svitið í potti með smáolíu, bætið
vatninu út í og skornu grænmetinu.
Bætið kjötinu út í ásamt þeim safa
sem kom af því í bakstrinum.
Skolið byggið og bætið því út í
ásamt súpujurtunum, látið sjóða við
vægan hita í a.m.k. 40 mín., saltið og
piprið eftir smekk. Fínt saxaðar
kryddjurtirnar koma út í í lokin.
Þessari súpu má auðveldlega
breyta í grænmetissúpu, sleppið
bara kjötinu og minnkið vatnið í upp-
skriftinni.
Verði ykkur að góðu.
Kjötsúpa fyrir u.þ.b.
12 frá Hótel Holti.
3,5 kg lambaframpartar eða ann-
að lambakjöt, ekki mjög feitt
4 laukar
Íslensk kjötsúpa,
besta sem ég fæ
Þannig er sungið í gömlu dægurlagi og ekki ólíklegt að svipaður söngur muni
hljóma í höfði þeirra sem leið eiga um Skólavörðustíginn næsta laugardag.
Þá verður mikil götuhátíð þegar hinn árlegi kjötsúpudagur verður þar haldinn í
tilefni af fyrsta vetrardegi. Nokkrir eðalkokkar munu standa úti við sína potta og
ausa heitri og ljúffengri súpu í skál fyrir gesti og gangandi.
Hressandi Þessir vösku víkingar gæddu sér á kjötsúpu á Skólavörðu-
stígnum fyrir tveimur árum og voru harla ánægðir.
Morgunblaðið/Frikki
Í framhaldi af því að fimm hundruð
manns hafa boðið sig fram til stjórn-
lagaþings hefur vefsíðan www.gotu-
domstollinn.wordpress.com verið
sett á laggirnar.
Götudómstóllinn er óháð upplýs-
ingaveita um frambjóðendurna til
stjórnlagaþings enda er fyrir-
sjáanlegt að fjölmiðlar muni ekki
geta fjallað ítarlega um þá rúmlega
500 frambjóðendur sem skiluðu inn
framboði sínu til kjörstjórnar.
Á síðunni verður að finna ýmsar
upplýsingar um frambjóðendur,
hagsmuni þeirra og hagsmunatengsl,
skoðanir þeirra á mikilvægum mál-
um, svo sem inngöngu í Evrópusam-
bandið og hvort þeir tilheyri eða hafi
tilheyrt stjórnmálaflokkum.
Síða eins og Götudómstóllinn mun
ekki virka sem skyldi án þátttöku les-
enda, fólksins í landinu en eins og
segir á vefsíðu dómstólsins: „Götu-
dómstóllinn er dómstóll fólksins og
eru lesendur síðunnar beðnir um að
taka þátt í efnisöflun enda er ansi
mikið verk að fjalla um ríflega 500
frambjóðendur. Ef þið hafið ein-
hverjar upplýsingar um frambjóð-
endur þá er ykkur skylt sem þegnum
þessa lands að senda Götudóm-
stólnum þessar upplýsingar.“
Vefsíðan www.gotudomstollinn.wordpress.com
Morgunblaðið/Júlíus
Fólkið Það þarf að kynna sér frambjóðendur til Stjórnlagaþings.
Kynning á frambjóðendunum
Næstkomandi laugardag, 23. október,
mun hópur listamanna undir forystu
Kristjáns Jóhannssonar óperu-
söngvara efna til tónleika í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði til styrktar MND fé-
laginu á Íslandi. Með Kristjáni verða
nokkrar skærustu söngstjörnur lands-
ins og munu þau flytja létt-klassísk
verk, einsöngslög og dúetta. Listafólk-
ið gefur vinnu sína og rennur allur
ágóði til íbúðasjóðs MND félagsins en
það vinnur nú að því að koma upp íbúð
sem mikið hreyfihamlað fólk af lands-
byggðinni á að geta fengið afnot af
þegar það kemur til læknismeðferðar í
höfuðborginni.
Tónleikarnir hefjast kl. 17 og forsala
aðgöngumiða er hafin á www.miði.is.
Endilega …
… styrkið
MND félagið
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Stjarna Kristján Jóhannsson kemur
fram á styrktartónleikunum.
Bónus
Gildir 21. - 24. október verð
nú
áður mælie. verð
Nv. ferskt nautahakk ................ 898 998 898 kr. kg
Nv. ferskt nautagúllas ..............1.398 1.798 1.398 kr. kg
Nv. ferskt nautasnitsel .............1.398 1.798 1.398 kr. kg
Nv. ferskt nautapiparsteik......... 1.798 1.998 1.798 kr. kg
Ali ferskar grísakótelettur ......... 898 998 898 kr. kg
Gk. suðusúkkulaði, 300 g ........ 259 279 863 kr. kg
Nicky wc pappír, 12 rúllur ........ 698 931 58 kr. stk.
My smalokubrauð, 770 g ......... 198 259 257 kr. kg
OS samlokuostur í sneiðum ......1.157 1.465 1.157 kr. kg
Lífrænar ísl. gulrætur, 500 g .... 298 345 596 kr. kg
Fjarðarkaup
Gildir 21. - 23. október verð
nú
áður mælie. verð
Svínakótelettur úr kjötborði ...... 998 1.398 998 kr. kg
Lambaprime úr kjötborði .......... 2.198 2.698 2.198 kr. kg
Lambahjörtu úr kjötborði.......... 255 325 255 kr. kg
Ali Lasagne, frosið, 900 g ........ 998 1.221 998 kr. pk.
Grillaður kjúklingur .................. 880 1.090 880 kr. stk.
Hamborgarar m/brauði, 4x80 g 496 596 496 kr. pk.
Hagkaup
Gildir 21. - 24. október verð
nú
áður mælie. verð
Íslandsnaut ungnauta ribeye .... 2.587 3.695 2.587 kr. kg
Íslandsnaut nautafile ............... 2.587 3.695 2.587 kr. kg
Ísl. Hamb. m/brauði, 2x120 g.. 599 776 599 kr. pk.
Goodfellas pitsur, 3 teg. .......... 384 549 384 kr. stk.
Holta ferskir kjúklingaleggir ...... 599 798 599 kr. kg
Holta ferskir kjúklingavængir .... 299 398 299 kr. kg
Ítalía grænt pestó .................... 439 559 439 kr. stk.
Myllu hvítlauksosta baguette .... 269 462 269 kr. stk.
Myllu Veronabrauð................... 199 561 199 kr. stk.
Kostur
Gildir 21. - 24. október verð
nú
áður mælie. verð
Goði lambafille m/fitu krydd. ... 2.799 3.998 2.799 kr. kg
Goði grísabógur....................... 483 879 483 kr. kg
Goði grísakótelettur ................. 974 1298 974 kr. kg
Goði grísasnitsel ..................... 974 1298 974 kr. kg
Perur ...................................... 139 239 139 kr. kg
OS kryddostar, 150 g, ............. 199 228 199 kr. stk.
Kea skyr bragðbætt, 500 g ...... 239 266 239 kr. stk.
Kea skyr bragðbætt, 200 g ...... 109 129 109 kr. stk.
Krónan
Gildir 21. - 24. október verð
nú
áður mælie. verð
Ungnauta Roast Beef............... 1.998 3.498 1.998 kr. kg
Kindalundir ............................. 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Kindainnanlærisvöðvi ............... 1.568 2.251 1.568 kr. kg
Lamba prime .......................... 1.998 2.998 1.998 kr. kg
Ísl.m. kjúklingur ferskur............ 698 798 698 kr. kg
Lambahjörtu ........................... 198 298 198 kr. kg
Lambalifur .............................. 198 298 198 kr. kg
Lambanýru.............................. 139 198 139 kr. kg
Goða kjötbúðingur ................... 499 779 499 kr. kg
Goða beikonbúðingur............... 499 779 499 kr. kg
Nóatún
Gildir 21. - 24. október verð
nú
áður mælie. verð
Grísalundir með sælkerafyllingu 2.398 2.998 2.398 kr. kg
Lambalærissneiðar .................. 1.499 1.998 1.499 kr. kg
Lambalæri útb., m/ villisv. ....... 1.679 2.398 1.679 kr. kg
Lambalæri heiðmerkurkryddað.. 1.398 1.498 1.398 kr. kg
Kálfasnitsel............................. 1.499 2.498 1.499 kr. kg
Ungnauta T-beinsteik ............... 3.395 4.398 3.395 kr. kg
Ungnautaborgari, 90 g............. 149 185 149 kr. stk.
Myllu djöflaterta, 1/2 .............. 399 639 399 kr. stk.
Toscana brauð ........................ 249 429 249 kr. stk.
Þín Verslun
Gildir 21. - 24. október verð
nú
áður mælie. verð
Ísfugls kjúklingur heill .............. 749 1072 749 kr. kg
Ísfugls kjúklingalæri og leggir ... 698 998 698 kr. kg
Egils kristall Lime, 0,5 ltr ......... 110 149 220 kr. ltr
Svali appelsínu, 3 x 250 ml ..... 145 189 49 kr. kg
Myllu brún rúlluterta ................ 849 1.139 849 kr. pk.
Blue Dragon kókosmj., 400 ml . 212 265 530 kr. ltr
Blue Drag. rautt karrím., 200 g 499 625 2.495 kr. kg
La Baguette snittubrauð, 4 stk. 398 559 100 kr. stk.
Daloon vorrúllur, 720 g............ 779 998 1.092 kr. kg
Helgartilboðin
Andarbringur eru frábær matur og
hægt að elda þær á margvíslega
vegu. Það er hægt að hafa sósurnar
sýrumiklar, sætar eða þykkar og
mjúkar. Hér leikum við okkur með
rifsberin sem nú eru orðin full-
þroska og því tilvalið að nota ein-
hver þeirra í sósur áður en við sult-
um þau.
Bringurnar, hvort sem þær eru
franskar eða íslenskar að uppruna,
eru alla jafna frosnar þegar maður
kaupir þær og ráðlegt er að gera
ráð fyrir einni bringu fyrir tvo, eða
tveimur bringum fyrir þrjá ef menn
eru svangir og með góða matarlyst.
Þíðið bringurnar í ísskáp yfir
nótt. Takið þær úr ísskápnum 2-3
klukkstundum áður en þið eldið
þær.
Það tekur ekki langan tíma að
elda bringurnar en við byrjum á því
að hita ofninn í 200 gráður. Skerið
síðan í bringurnar skinnmegin bæði
langsum og þversum í gegnum húð-
ina og fitulagið alveg niður að
vöðvanum. Saltið vel með Maldon-
salti og nuddið því ofan í rásirnar
sem þið eruð búin að skera.
Hitið pönnu án olíu eða smjörs.
Leggið bringurnar á pönnuna
með skinnhliðina niður og steikið
þar til puran er orðin stökk og fín.
Snúið þá bringunum við og steikið í
2-3 mínútur á hinni hliðinni. Takið
bringurnar af pönnunni, setjið í
ofnfast form og setjið inn í ofninn í
8-10 mínútur. Takið þær þá út og
leyfið þeim að jafna sig. Á meðan
bringurnar eru í ofninum gerum við
sósuna en í hana þurfum við þetta:
1 dl De Kuyper Triple Sec eða
Grand Marnier
2 dl rauðvín
1 appelsína, börkurinn rifinn og
safinn pressaður
1 skalottlaukur, fínt saxaður
3 dl rifsber
1 msk. smjör
(rifsberjahlaup)
Við gerum sósuna á sömu pönnu
og við steiktum bringurnar. Það
rennur mikil fita úr þeim við steik-
ingu og við hellum henni allri frá
að um það bil tveimur matskeiðum
undanskildum. Fyrst setjum við
saxaða skalottlaukinn á pönnuna
og brúnum hann í 2-3 mínútur. Þá
hellum við Triple Sec á pönnuna og
sjóðum alveg niður en það tekur
ekki margar sekúndur. Þá bætum
við út á rauðvíninu og safanum úr
Uppskriftin
Andarbringur
með rifsberjasósu