Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Jólahlaðborð –– Meira fyrir lesendur S ÉR B LA Ð Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 25. október. MEÐAL EFNIS: Jólahlaðborð á helstu veit- ingahúsum. Hvað er annað í boði en jólahlaðborð. Jólahlaðborð heima skemmtilegar up- pskriftir. Fallega skreytt jólahlaðborð. Tónleikar og aðrar uppákomur. Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um jólahlaðborð, tónleika og uppákomur föstudaginn 29. október 2010 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Nokkur af öflugustu fyrirtækjum og stofnunum Bretlands á sviði frétta- flutnings, þ. á m. Guardian, Daily Telegraph og ríkisfyrirtækið BBC, hafa tekið saman höndum til að fá stjórnina til að koma í veg fyrir að Rupert Murdoch fái að eignast Sky- fyrirtækið að fullu. News Corp, fyr- irtæki Murdochs, á þar nú 39,1% hlut en vill fá að kaupa afganginn. Sky er stærsta sjónvarpsfyrir- tæki Bretlands í einkaeign. Aðeins tvö stór fjölmiðlafyriræki, ITV og Virgin Media, skrifuðu ekki undir bréfið en Financial Times hafði þegar lýst yfir andstöðu við ósk Murdochs. Hinn þekkti dálkahöfundur Financial Times, Martin Wolf, fjallaði um málið í vikunni og spyr hvort líta beri fjölmiðlamarkað sömu augum og t.d. markað fyrir bakaðar baunir. „Eða ættum við að líta svo á að [fjölmiðlamarkaður] sé ólíkur öll- um öðrum?“ spyr Wolf. Sé svo verði menn að íhuga eignarhaldið og hvað það skipti gríðarmiklu máli fyrir framtíð lýðræðisríkja. Hann minnir á ofurtök Silvios Berlusconis á fjölmiðlum Ítalíu og segist hafa kynnst fréttamennsku Fox-stöðvarinnar sem Murdoch á í Bandaríkjunum. Þar sé afþreyingu og hægri-lýðskrumi blandað saman, stöðin sýni viðskiptasnilld Mur- dochs. En Fox hafi með aðferðum sín- um tekið þátt í að gera út af við miðj- una í bandarískum stjórnmálum og því sé orðið nær útilokað að bjóða þar upp á nýja valkosti. Murdoch sé nú orðinn valdamesti einstaklingur í bæði Bandaríkjunum og Bretlandi vegna þess að fjölmiðlar flytji ekki bara upplýsingar heldur móti líka skoðanir og opinberar umræður. Ekki sé nóg að hindra yfirtöku Mur- dochs á Sky, ganga þurfi lengra. „Ég álít að það séu sterk rök fyrir miklu öflugra eftirliti með eign- arhaldi á fjölmiðlum,“ segir Wolf í greininni í FT. „Enginn maður í einkarekstri ætti að vera svo vold- ugur að stjórnmálamenn skjálfi frammi fyrir honum. Það er ekki lýð- ræði.“ Ofurtök Murdochs sögð ógna lýðræðinu  Nokkur af öflugustu fjölmiðlafyrirtækjum Bretlands vara við einokunartilburðunum  Reyna nú að fá stjórnvöld í London til að hindra að News Corp fái að eignast Sky að fullu Mega grípa inn » Sérstök ákvæði gilda í Bretlandi er veita stjórnvöldum heimild til að grípa inn í ef þau álíta að þróun eignarhalds fjöl- miðla sé farin að ógna fjölræði. » Fjölmiðlafyrirtækin áður- nefndu hafa sent Vince Cable, ráðherra viðskiptamála, bréf og benda þar á að Murdoch eigi fyrir mjög öflug dagblöð á borð við Sun og Times. Martin Wolf Kristján Jónsson kjon@mbl.is Þátttakendur í mótmælunum í Frakklandi hertu í gær enn umsátur sitt um eldsneytisbirgðastöðvar landsins aðeins nokkrum stundum eftir að öryggislögreglumönnum tókst að opna þrjár birgðastöðvar. Nicolas Sarkozy forseti skipaði lög- reglunni að rjúfa með valdi herkvína sem andstæðingar fyrirhugaðra breytinga á eftirlaunalögum mynd- uðu um birgðastöðvarnar. Öldungadeild þingsins greiðir at- kvæði um tillögur ríkisstjórnarinnar síðar í vikunni en þar er kveðið á um hækkun eftirlaunaaldurs. Í könnun- um kemur fram að rúmlega 70% Frakka styðja mótmælin sem hafa snúist upp í mótmæli gegn Sarkozy sem er afar óvinsæll. Innanríkisráðuneytið sagði að liðlega milljón manna hefði tekið þátt í mótmælunum í gær; talsmenn verkalýðssambandsins CGT sögðu að rétta talan væri 3,5 milljónir. Grímu- klædd ungmenni slógust við lögreglu- menn í úthverfinu Nanterre í París og háskólanemar söfnuðust saman við húsakynni öldungadeildarinnar. Sums staðar var kveikt í bílum. Stjórnvöld vara við efnahagslegum afleiðingum Starfsmenn í flutningageiranum héldu áfram verkföllum og trufluðu samgöngur en gert var ráð fyrir að um tveir þriðju hlutar ríkishraðlest- anna myndu samt vera á áætlun. Um þriðjungur bensínstöðva er nú búinn með birgðir sínar. Ráðamenn segja að langvarandi verkföll geti haft alvarlegar efnahags- legar afleiðingar. „Ef ekki verður bundinn skjótur endi á þetta geta óspektirnar, sem hafa það markmið að lama þjóðina, haft áhrif á atvinnumál landsmanna með því að eyðileggja efnahagslífið,“ segir Sarkozy í yfirlýsingu. Ríkisstjórnin segir mikilvægt að draga úr fjárlagahallanum og ekki gangi fyrir ríkissjóð að taka stöðugt lán til að fjármagna eftirlaun, það endi með skelfingu. En stjórnarand- stæðingar og stéttarfélög segja að það sé verið að skerða réttindi al- mennings. Reuters „Hlustið“ Ungur maður með kröfuspjald í miðri orrahríðinni í einu af út- hverfum Parísar í gær. Á spjaldinu stendur: „Hlustið á reiði fólksins.“ Hart slegist við lögregluna  Ekkert lát á mótmælum í Frakklandi Áhyggjur unga fólksins » Stjórnin ætlar að hækka almennan eftirlaunaaldur úr 60 í 62 ár. Ennfremur vill hún að fólk fái ekki full opinber eft- irlaun fyrr en 65-67 ára. » Atvinnuleysi er mikið hjá ungu fólki og sumt af því er auk þess við nám fram undir þrítugt. » Fólk verður að hafa verið í starfi í 40 ár til að fá eftirlaun. En bent er á að margt ungt fólk muni ekki geta uppfyllt þetta skilyrði. Alls hafa 15 skotárásarmál komið til kasta lögreglunnar í Malmö í Svíþjóð á einu ári og á þriðjudag var skotið á þrjá dökka menn og særðust allir illa. Enginn þeirra mun þó vera í lífshættu. Karlmaður um þrítugt var skot- inn í bakið á þriðjudag þar sem hann beið eftir strætisvagni í skýli í hverfinu Nydala. Talið er að skotið hafi verið úr runna við skýl- ið. Og fyrir viku var annar maður, 47 ára og einnig þeldökkur, skot- inn í magann þegar hann beið eft- ir vagni í sama hverfi. Að sögn vefsíðu Dagens Nyheter álítur lögreglan að um sé að ræða geðsjúkan mann sem starfi einn. Fram kom á fréttamannafundi lög- reglunnar í gær að maðurinn not- aði ef til vill leysigeislamiðun og hann réðist eingöngu á fólk sem bæri með sér að vera af erlendum uppruna. Lögreglan handtók 19 ára gaml- an karlmann í fyrrinótt, grunaðan um að hafa skotið tvo aðra karl- menn á þrítugsaldri í borginni. Sú árás er þó ekki talin tengjast hin- um. kjon@mbl.is Skotið af handa- hófi Óþekktur maður að verki í Malmö

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.