Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 40

Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 40
FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 294. DAGUR ÁRSINS 2010 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218 1. Fáviti og hálfviti 2. Scholes afgreiddi Rooney á́ æfingu 3. Bauð upp 44 íbúðir við Vindakór… 4. Ung hjón létust í Tyrklandi »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Icelandair hefur, í samstarfi við Ton- list.is, gefið út geisladiskinn Hot Spring, vol. I. Þar er að finna tónlist með íslenskum tónlistarmönnum, t.d. Diktu, Lay Low og Hjálmum. Icelandair hefur um árabil leikið íslenska tónlist í vélum sínum en diskinn verður hægt að fá þar um borð, í helstu hljóm- plötuverslunum á Íslandi, auk þess sem hægt er að hlaða honum niður á vefsíðunni icelandicmusic.com. Icelandair styður við íslenska tónlist  Krabbameins- félagið stendur fyrir Bleika boðinu sem haldið verður í Háskólanum í Reykjavík í Naut- hólsvík á morgun, föstudag, ekki í kvöld eins og fram kom í blaði gærdagsins. Leiðréttist það hér með. Þar munu þúsund konur koma sam- an, deila sögum og skemmta sér. Að- gangur er ókeypis og er frekari upp- lýsingar um boðið að finna á vefsíðu þess, vefslóðin er bleikabodid.is. Ýmsir skemmtilegir dagskrárliðir verða í Bleika boðinu svo sem tónlist- aratriði, dans og tískusýning. Svo verður fjáröflun til styrktar Krabba- meinsfélaginu í formi happdrættis. Félagið safnar nú ennfremur Bleikum sögum – örsögum frá konum. Verk- efnið er unnið með Rás 2 og Press- unni. Fimm sögur verða dregnar út frá 22. október, þær lesnar upp og birtar á pressan.is og á vefjum Krabbameinsfélagsins. Allar sög- urnar verða síðan birtar hjá Krabba- meinsfélaginu á vefnum www.krabb- .is í lok bleika mánaðarins. Bleika boðið er á morgun, föstudag Á föstudag og laugardag Norðlæg átt, víða 5-10 m/s. Dálítil él um landið norðanvert og allra syðst á landinu, en annars staðar bjart veður. Hiti í kringum frostmark. Á sunnudag Ákveðin norðanátt með snjókomu eða éljum, einkum norðaustanlands, en þurrt að mestu sunnantil. Áfram kalt í veðri. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðanátt, víða 5-10 með éljum norðaustanlands en annars bjart- viðri. Hiti 1 til 5 stig en víða vægt frost fyrir norðan. VEÐUR Hólmfríður Magnúsdóttir hefur samið á ný við banda- ríska atvinnuliðið Phila- delphia Independence. Hólmfríður lék til úrslita um bandaríska meistaratitilinn en liðið tapaði gegn FC Gold Pride. Landsliðs- konan segir að hún hafi aldrei leikið betur en hún er sannfærð um að geta bætt sig enn frekar í fótbolta hjá frábæru liði. »1 Hólmfríður áfram í Bandaríkjunum Snorri Einarsson er 24 ára efnilegur skíðagöngumaður sem var fyrir nokkru valinn í skíðagöngulandslið Noregs, skipað göngumönnum 23 ára og yngri. Snorri segir í viðtali við Morgunblaðið að hann hafi íhugað það vandlega að keppa fyrir Íslands hönd. »3 Snorri vildi keppa fyrir Íslands hönd „Ég heyrði frá nokkrum félögum og íhugaði einhver tilboð. Þetta var nið- urstaðan og ég er bara mjög sáttur við það,“ sagði knattspyrnuþjálfarinn Gunnlaugur Jónsson, þegar Morg- unblaðið náði tali af honum í gær- kvöldi. Gunnlaugur hefur verið ráðinn þjálfari fyrstudeildarliðs KA til næstu tveggja ára en tilkynnt var um ráðn- inguna í gær. »1 Gunnlaugur tekur við KA á Akureyri ÍÞRÓTTIR Hugrún Halldórsdóttir hugrun@mbl.is Fjölmargir lögðu leið sína í fallega skreyttan Austurbæjarskóla í gær og fögnuðu því að liðin eru 80 ár frá stofnun hans. Stemningin var ein- stök, en þar voru samankomnir verðandi, núverandi og fyrrverandi nemendur, ásamt starfsmönnum og öðrum velunnurum skólans. Mikið var spjallað og hlegið yfir gömlum bekkjarmyndum sem hanga uppi á veggjum og gamlir tímar rifjaðir upp. Sérstök sýning var haldin í íþróttasal skólans á alls kyns göml- um munum, námsgögnum og fleiri gersemum. Af sýningunni að dæma er ljóst að skólinn gefur Þjóðminja- safninu ekkert eftir í þessum efnum. Gestir sem blaðamaður ræddi við voru himinlifandi með daginn, gömlu munirnir hreyfðu við mörg- um og voru einhverjir að hitta skólasystkini sín í fyrsta sinn í fjöl- mörg ár. Nemendur í skólastjórabolum Skólinn ilmaði vægast sagt dásamlega þar sem heimabakaðar kræsingar voru boðnar til sölu á hverju horni. Bókasafninu og líf- fræðistofunni var breytt í snotur kaffihús og til að kóróna daginn var framreidd kaka í formi Austurbæj- arskóla. Ágóðinn af sölunni rennur í ferðasjóð eldribekkinga. Bolir sem skörtuðu sjálfum skólastjóranum voru einnig til sölu. Spókuðu margir nemendur sig í þeim og setti það mjög svo skemmtilegan svip á há- tíðahöldin. Mikil vinna lá að baki afmælinu, og að sögn kennara voru nemendur mjög virkir í undirbúningnum, sem og á hátíðinni sjálfri. Ekki var gefið frí frá skólahaldi í gær, en búast má við að kennsla hafi verið með léttara móti. Það mátti allavega sjá kát- ínuna skína úr andlitum nemenda. Hlegið að bekkjarmyndum  Skólasystkin hittust í fyrsta sinn eftir mörg ár Morgunblaðið/Kristinn Bókaflóð Hjónin, og fyrrverandi nemendur Austurbæjarskólans, Þór Jakobsson veðurfræðingur og Jóhanna Jóhannesdóttir, voru afar ánægð með hátíðina og höfðu orð á því hversu mikið væri hægt að skoða. Glöð Nemendur úr 2.-GÞ litu inn á sýninguna í íþróttasaln- um og fengu innsýn í eldri kennsluhætti. Flott Melkorka bauð gestum að festa kaup á bolum prýddum Guðmundi Sighvatssyni skólastjóra. VEÐUR » 8 www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.