Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 12

Morgunblaðið - 21.10.2010, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Rauði kross Íslands, Mennta- skólinn í Kópavogi og Klúbbur matreiðslumeistara hafa gert með sér samstarfssamning um starf- semi neyðarmötuneyta Rauða krossins. Samningurinn kveður á um samstarf faghóps sem getur verið Rauða krossinum til ráðgjafar um opnun og rekstur neyðarmötu- neyta. Í faghópnum verður fulltrúi frá hótel- og matvælasviði Mennta- skólans í Kópavogi sem veitir ráð- gjöf og hefur eftirlit með öruggri meðferð matvæla. Þá verður fulltrúi frá Klúbbi matreiðslu- meistara í faghópnum sem mun annast þróun uppskrifta og annast eftirlit með eldhúsum, birgjum og flutningsleiðum. Á myndinni eru Wilhelm Wessman, Ingvar Sig- urðsson, Kristján Sturluson og Helgi Kristjánsson. Neyðarmötuneyti Stjórnlaganefnd og Samtök sveit- arfélaga á höfuðborgarsvæðinu standa fyrir borgarafundi í dag, fimmtudag kl. 17:30-19:30, í Saln- um í Kópavogi. Fundurinn er kynningarfundur um stjórnlaga- þing og þjóðfund 2010 auk þess sem kallað verður eftir sjón- armiðum fundarmanna. Stjórnlaganefnd var kosin af Alþingi í sumar til þess að und- irbúa endurskoðun stjórnarskrár- innar. Nefndinni er ætlað að finna og leggja fram gögn fyrir stjórnlagaþing, standa fyrir þjóð- fundi um endurskoðun stjórn- arskrár, vinna úr upplýsingum frá fundinum og afhenda stjórn- lagaþingi og loks að leggja fram hugmyndir að breytingu á stjórn- arskránni. Borgarafundur um stjórnarskrána Á morgun, föstudag, stendur Al- þjóðamálastofnun Háskóla Íslands fyrir fundi um Evrópusambandið. Fundurinn fer fram á Há- skólatorgi 103 og stendur frá kl. 12-13. Á fundinum mun Þórólfur Matt- híasson, prófessor í hagfræði, halda erindi um rannsókn á sameiginlegum fiskveiðihags- munum Íslands og Noregs gagn- vart Evrópusambandinu og fjalla um sjávarútvegsþætti í hugs- anlegum aðildarviðræðum við sambandið. Allir eru velkomnir. Fiskveiðar og ESB Árleg ráðstefna menntavísinda- sviðs Háskóla Íslands um nýjustu rann- sóknir, ný- breytni og þró- un í menntavís- indum fer fram í dag, föstudag- inn 22. október. Ráðstefnunni er ætlað að kynna og miðla því sem efst er á baugi í rannsóknum í mennta- vísindum á Íslandi ár hvert. Rúm- lega 170 fræðimenn og sérfræð- ingar á sviði menntavísinda og tengdra fræða munu flytja erindi um fjölbreytt málefni sem tengjast uppeldi, menntun og þjálfun. Ráð- stefnan er opin öllum áhugamönn- um. Menntavísindi rædd á ráðstefnu STUTT ÚR BÆJARLÍFINU Skapti Hallgrímsson Akureyri Vél Flugfélags Íslands sem kemur frá Reykjavík lendir venjulega á Ak- ureyri kl. 10.15 að morgni en á sunnudegi fyrir tæpum tveimur vik- um, 10. október, gætti flugstjórinn þess vandlega að lenda klukkan ná- kvæmlega tíu mínútur yfir. Þetta er glæsileg runa: 10.10. 10.10.10.    Sagan er þó ekki öll. Þegar flug- stjórinn, Jónas Jónasson, gekk inn í flugstöðina benti hann starfs- mönnum á skemmtilega staðreynd; mælar sýndu að nákvæmlega 1.010 kíló bensíns voru á vélinni eftir að hún lenti! Toppið þetta!    Nú má fara að dusta rykið af skíðunum. Snjóframleiðsla hófst í Hlíðarfjalli í gær og mjöllin átti að spýtast úr byssunum í alla nótt. Lágt rakastig er á skíðasvæðinu og aðstæður til snjóframleiðslu því hin- ar ákjósanlegustu, skv. upplýsingum akureyrskra sérfræðinga.    Stefnt er að því að opna skíða- svæðið í síðasta lagi í lok nóvember. Hitastig ræður mestu um hvort sá draumur rætist. Frost þarf að vera að lágmarki fjórar gráður til að hægt sé að framleiða snjó.    Miklar breytingar hafa staðið yf- ir við Þingvallastræti neðanvert undanfarna mánuði. Skipt hefur ver- ið um allar lagnir í götunni, gang- stéttar lagfærðar og girðingin norð- an við andapollinn. Áætluð verklok voru um miðjan mánuðinn en nú er gert ráð fyrir því að gatan verði opn- uð á ný fyrir umferð í nóvember.    Áhugaverðir tónleikar eru á dagskrá í Hofi í kvöld; Konur fyrir konur, þar sem listakonur búsettar í Eyjafirði flytja verk eftir konur. Aðrir tónleikar verða í menningar- húsinu Bergi á Dalvík annað kvöld. Vert er að geta þess að allur að- gangseyrir rennur til Bleiku slauf- unnar, átaks Krabbameinsfélags Ís- lands. Miðaverð er 2.500 kr.    Hönnuðurinn Joja sýnir og Arna Valsdóttir málar mynd á með- an á tónleikum stendur. Það, ásamt hönnun frá Joja, verður boðið upp og þeir peningar renna líka í söfnunina.    Heimir Bjarni Ingimarsson fer fyrir hljómsveitinni HBI sem heldur tónleika á Græna hattinum í kvöld. Á morgun verður Rokkabillýband Reykjavíkur með tónleika á hatt- inum og á laugardagskvöld hljóm- sveitirnar Moses Hightower og Jón- as Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar, en báðar sveitir hafa nýverið sent frá sér plötur og lög þeirra notið mikilla vinsælda.    Hætt er við því að gaman verði í Hofi á laugardag. Boðið verður upp á kórsöng frá kl. 10 fram að kvöld- mat; á þriðja tug kóra úr Eyjafirði og Þingeyjarsýslum og hver syngur í 20 mínútur. Allir flytja svo saman eitt lag í lokin. Ókeypis er inn og fólk getur komið og farið að vild. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Hungur? Íbúar við andapollinn hafa mátt þola töluvert rask vegna fram- kvæmda í sumar. Þessir þustu að blaðamanni í gær og virtust svangir. 10.10.10 kl. 10.10 og 1010 kg bensíns! Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það var bara ótti og örvænting á þeirri stundu en ég hugsaði líka um að gera allt sem kraftar mínir leyfðu til að breyta þessu,“ segir Kjartan Reynisson, útgerðarstjóri Loðnu- vinnslunnar hf. á Fáskrúðsfirði. Hann tók þátt í björgun tveggja manna sem misstu meðvitund vegna súrefnisskorts þegar þeir voru að landa gulldeplu úr Hoffelli aðfara- nótt 14. febrúar sl. og lýsir hugs- unum sínum þegar hann kom á stað- inn. Mennirnir tveir, Páll S. Rún- arsson, stýrimaður á Hoffelli, og Rimantas Mitkus úr löndunargengi Loðnuvinnslunnar, voru hætt komn- ir og var haldið sofandi á spítala fyrst eftir slysið. Þeir náðu sér þó fljótt og starfa báðir hjá fyrirtækinu. Páll er þessa dagana skipstjóri á Hoffellinu. Þrjátíu og þrír tóku þátt í björguninni, menn úr áhöfn Hoffells, starfsfólk Loðnuvinnslunnar, björg- unarsveitarmenn, lögreglumenn, sjúkraflutningamenn og læknar. Fólkið var heiðrað við messu í Fá- skrúðsfjarðarkirkju og því þakkað. Friðrik Guðmundsson stjórnar- formaður og Gísli Jónatansson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnsl- unnar, afhentu þeim viðurkenning- arskjöl og starfsfólk Loðnuvinnsl- unnar færði Páli og Rimantas táknræna gjöf við sama tækifæri. Vonaði að ég þyrfti aldrei að nýta þekkinguna „Það var hringt í mig um miðja nótt og maðurinn öskraði í símann að það væri stórslys um borð. Ég rauk af stað,“ segir Kjartan. Þegar hann kom að skipshlið var hópur manna að endurlífga stýrimanninn og aðrir voru að byrja að hífa lönd- unarmanninn upp. „Ég ákvað að hlaupa undir bagga með þeim og hóf lífgunartilraunir um leið og hann náðist upp,“ segir Kjartan. Rimantas var búinn að vera lengi meðvitundarlaus í lestinni, 15 til 20 mínútur, en Kjartani og tveim- ur félögunum hans tókst, með því að blása í hann og hnoða, að koma önd- uninni af stað. „Þegar læknirinn var búinn að sinna stýrimanninum kom hann og tók við af okkur ásamt sjúkraflutningamönnum. Þá vorum við búnir að ná upp öndun og púlsi,“ segir Kjartan. Slæmur kokteill „Þetta leit afar illa út. Í lestinni var slæmur kokteill, gulldeplan er skítfiskur og mennirnir voru eins og dregnir upp úr svaði og erfitt að hnoða og blása,“ segir Kjartan og bætir við að björgunin hafi tekist með ólíkindum vel. Kjartan var vel undir þessar að- stæður búinn. Hann hafði verið í slökkviliðinu á Fáskrúðsfirði í fjór- tán ár og farið á mörg námskeið í fyrstu hjálp. „Svo tók ég Slysa- varnaskóla sjómanna sumarið áður í þeirri von að ég þyrfti aldrei að nota þekkinguna en hafði afar gott af því.“ Það var mikil gleðistund þegar hópurinn hittist í kaffisamsæti sem Loðnuvinnslan hf. bauð til í félags- heimilinu Skrúði eftir messu á sunnudag. „Það var góð tilfinning að hitta mennina,“ segir Kjartan Reyn- isson. „Þetta leit afar illa út“  Loðnuvinnslan heiðrar 33 menn sem komu að björgun tveggja manna sem misstu meðvitund í lest Hoffells  Gleðidagur þegar hópurinn kom saman Ljósmynd/Jónína G. Óskarsdóttir Þakkir Björgunarmenn voru heiðraðir við messu í Fáskrúðsfjarðarkirkju. Þeir stilltu sér upp til myndatöku að at- höfn lokinni ásamt stjórnendum fyrirtækisins og sóknarpresti. Rimantas Mitkus og Páll Rúnarsson sitja fyrir miðju. „Við vorum með strangar reglur um þessa vinnu og höfum styrkt þær enn frekar,“ segir Gísli Jóna- tansson, framkvæmdastjóri Loðnuvinnslunnar. Keypt hafa ver- ið fleiri björgunartæki og allir verkferlar yfirfarnir. Nú á að vera tryggt að enginn fari niður í lest nema í líflínu og með súrefn- ismettunarmæli. Slysið varð þegar vinnu við löndun gulldeplu úr Hoffelli var að ljúka. Aðeins voru dreggjar eftir í einum tanki. Menn voru að flýta sér að klára því annað skip beið löndunar. „Það var svo lítið eftir að menn töldu að engin hætta væri á ferðum en þetta er lúmskt,“ segir Kjartan Reynisson útgerðarstjóri. Löndunarmaðurinn fór ofan í lestina án þess að hafa súrefn- ismettunarmæli. Þegar hann fann fyrir súrefnisskorti reyndi hann að koma sér upp úr lestinni og var komin langleiðina þegar hann hneig niður og féll niður stigann og á botn tanksins. Stýrimaður varð þess áskynja að eitthvað hafði gerst og fór niður í lestina með súrefnisgrímu. Hann náði að koma löndunarmanninum upp úr mestu eðjunni en missti sjálfur meðvitund. Hættan getur verið lúmsk ÖRYGGISREGLUR HERTAR HJÁ LOÐNUVINNSLUNNI Friðrik Guðmundsson, Páll S. Rúnarsson, Rimantas Mitkus og Gísli Jónatansson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.