Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 21.10.2010, Blaðsíða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010 Hamid Karzai, forseti Afganistans, sagði í gær að hann vonaðist til þess að geta aukið öryggi verulega í landinu á næstu tveimur árum. Karzai setti fyrr í þessum mánuði á laggirnar friðarráð til að greiða fyrir áætlunum sínum um viðræður við talibana og aðra uppreisnarhópa. Félagar í ráðinu hafa sagt að talibanar hafi gefið til kynna „vilja“ til að finna pólitíska lausn. Talibönum var steypt af valdastóli fyrir tæpum tíu árum, en þeim tókst að ná vopnum sínum og hafa geisað við þá blóðug átök. Embættismenn í Kabúl, höfuðborg Afganist- ans, segja að foringjar úr innsta valdahring tal- ibana hafi tekið þátt í viðræðunum. Í The New York Times segir að þeir hafi yfirgefið griðastaði sína í Pakistan með leynd til að eiga viðræður við nánustu samstarfsmenn Karzais og hafi notið til þess aðstoðar herja Atlantshafsbandalagsins. Þeim hafi verið heitið að sveitir NATO myndu hvorki handtaka þá, né ráðast á þá. Í einu tilviki munu leiðtogar talibana hafa far- ið yfir landamæri Pakistans og Afganistans, far- ið um borð í flugvél á vegum NATO og flogið til Kabúl. Þá munu hermenn NATO hafa tryggt ör- yggi á vegum svo að foringjar talibana kæmust leiðar sinnar. Bandarískir embættismenn höfðu áður sagt að viðræður ættu sér stað milli talib- ana og stjórnarliða, en hvorki hafði komið fram hversu háttsettir talibanar ættu í hlut, né um- fang aðstoðar NATO. kbl@mbl.is Hamid Karzai viðrar vonir um frið  Herir Atlantshafsbandalagsins greiða götu talibanaforingja og heita að skerða ekki hár á höfði þeirra  Haldið fram að talibanar vilji binda enda á átökin í Afganistan með „pólitískri lausn“ Reuters Spjall Hamid Karzai (t.h.) ræðir við ættbálkahöfðingja eftir fund í Kabúl um þróunarmál. 20% atkvæða ógild » Landskjörstjórn í Afganistan hefur ógilt 1,3 milljónir at- kvæða í þingkosningum sem fram fóru í september. » Heildarfjöldi greiddra at- kvæða var 5,6 milljónir. Þar af voru gild atkvæði rösklega 4,2 milljónir en ógild 1,3 milljónir að sögn forseta kjörstjórnar. » Ógild atkvæði voru því yfir 20% af heildarfjölda atkvæða. » Talsmenn SÞ töldu í fyrstu að kosningarnar hefðu farið vel fram og ekkert benti til um- fangsmikils kosningasvindls. Kristján Jónsson kjon@mbl.is Breska stjórnin kynnti í gær fjár- lögin og er um að ræða harkaleg- asta niðurskurð á útgjöldum í manna minnum. Opinberum starfs- mönnum fækkar um nærri hálfa milljón á næstu árum, framlög til velferðarkerfisins minnka um sjö milljarða punda, kerfið verður ein- faldað og reynt að draga úr svindli. Eftirlaunaaldur hækkar í 66 ár fyrir árið 2020. Þetta kom fram í máli George Osborne fjármálaráðherra í þinginu í gær. „Þetta er dagurinn þegar Bretar sneru við á bjargbrúninni,“ sagði Osborne. „Þetta er erfið leið en hún liggur í áttina að betri framtíð.“ Skuldir ríkisins eru ógnvekjandi, bagginn hlutfalls- lega stærri en í langflestum þróuð- um ríkjum og hall- inn á fjárlögum þessa árs er 154,7 milljarðar punda eða liðlega 2650 milljarðar ísl. kr. Ráðuneyti þurfa að jafnaði að skera niður um 25% og alls á að spara 83 milljarða punda með þessum að- gerðum fyrir árið 2015. Segir breska ríkisútvarpið, BBC, að um sé að ræða mesta niðurskurð á opin- berum útgjöldum frá síðari heims- styrjöld. Gert er ráð fyrir að 2,5 milljarðar punda sparist með því að hætta að greiða foreldrum með háar tekjur barnabætur. Í fyrradag var boðað að fjárframlög til varnarmála yrðu skorin niður um 8% á næstu fjórum árum. Fækkað verður um alls 42 þúsund störf í heraflanum og ráðu- neyti varnarmála. Fjárframlög til menningarmála, fjölmiðla og íþrótta munu lækka um helming fram til ársins 2015 og framlög til lögreglunnar lækka um 4% á ári fram til 2013. Konungs- fjölskyldan verður að skera niður útgjöld sín um 14% fyrir árið 2013. Ráðherrann boðaði einnig nýjan bankaskatt en útfærsla hans verður kynnt nánar síðar. Talsmenn Verkamannaflokksins segja að svo snöggur og harkalegur niðurskurður ríkisútgjalda muni koma í veg fyrir að efnahagurinn nái sér aftur fljótt á strik. Harkalegur niðurskurður  Ráðuneyti í Bretlandi verða að jafnaði að minnka útgjöld sín um 25%  Afnám barnabóta til hátekjuforeldra sparar ríkinu 2,5 milljarða punda George Osborne Þingmenn Evr- ópusambandsins veifuðu bláum og bleikum blöðrum í þingsalnum í gær þegar þeir samþykktu til- lögu um að mæðraorlof yrði lengt upp í 20 vikur á fullum launum og lög- bundið í öllum sambandslöndum. Tillagan hefur verið gagnrýnd og m.a. sagt að hún gæti kostað breskt viðskiptalífið 2,5 milljarða punda árlega. „Mæðraorlof verður að vera staðlað, þetta er félagsleg þjónusta en reglurnar eru mismunandi milli ríkjanna,“ sagði portúgalski sósíal- istinn Edite Estrela. Lágmarks- mæðraorlof í ESB er nú 14 vikur. Nýja samþykktin verður ekki að lögum nema þing landanna sam- þykki hana líka og núverandi sam- steypustjórn í Bretlandi er meðal þeirra sem barist hafa gegn henni. Danski Evrópuþingmaðurinn Britta Thomsen segir hins vegar að breytingin muni hvetja konur til að eignast fleiri börn en vaxandi áhyggjur eru nú af lágri fæðing- artíðni í Evrópu. Vilja samræmt mæðraorlof í ESB- ríkjunum Já! Atkvæði greidd í Strassborg. Vísindamenn við háskólann í Norður-Karólínu hafa uppgötvað genið sem veldur því að sumir finna fljótar á sér en aðrir, að sögn BBC. Þeir segj- ast halda að 10- 20% manna hafi þetta gen, CYP2E1, í genamengi sínu. Vísindamennirnir segja að ef til vill verði hægt að nota þessa upp- götvun í baráttunni gegn ofdrykkju vegna þess að þeir sem bregðist mjög hratt við áfengi verði síður alkóhólistar en annað fólk. Gefa megi fólki lyf er líkist umræddu geni, ekki til að það verði fullt fyrr en ella heldur til að fá það til að drekka ekki allt of mikið. Megnið af áfengi sem innbyrt er brotnar niður í lifrinni. En hluti þess tekur efnabreytingum í heil- anum af völdum ensíms sem CYP2E1 getur framleitt, genið kann formúluna. Þeir sem eru með genið, sem er á litningi númer 10, finna því fljótar á sér en aðrir. kjon@mbl.is Uppgötvuðu gen sem flýtir fyrir vímu Með réttu genin? Hvað vill Verkamanna- flokkurinn gera? Talsmenn hans vildu fyrir kosn- ingar einnig skera hratt niður en ekki var eining um leiðir. Nýr leiðtogi, Ed Miliband, segir að ekki megi fara of hratt í að lækka fjárlagahallann, það muni draga allan þrótt úr efnahagnum. Er fólk sátt við niðurskurðar- tillögur Osborne? Í könnunum hefur komið fram að meirihluti kjósenda virðist sam- mála því að harkalegar aðgerðir séu óhjákvæmilegar. Spurt&svarað Verkamaður í námu í Nancheng-sýslu í Jiangxi- héraði með afrakstur dagsins á bakinu í gær. Í námunni eru unnin sjaldgæf frumefni. Efnin eru einkum notuð í hátækniiðnaði, venjulega í mjög litlu magni, t.d. í farsímum. Kínverjar eru nær einráðir á heimsmarkaði fyrir umrædd efni sem fá ríki treysta sér til að vinna þannig að það borgi sig. En Kínverjar vísa á bug fréttum um að ætlunin sé nú að banna útflutning á efnunum. Kínverjar nær einráðir í framleiðslu margra sjaldgæfra frumefna Reuters Magnið er lítið en það er verðmætt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.