Morgunblaðið - 21.10.2010, Page 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. OKTÓBER 2010
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA
„GEÐVEIKISLEGA
FYNDIN“
- SHAWN EDWARDS,
FOX-TV
Frábær
gamanmynd
frá þeim sömu
og færðu
okkur “40 Year
old Virgin” og
“Anchorman”
FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS
7
Steve Carrell og Paul Rudd
fara á kostum ásamt Zach
Galifianakis sem sló
eftirminnilega í gegn
í “The Hangover”
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
Dýrin eru
mætt....og
þau eru ekki
ánægð!
Bráð-
skemmtileg
grínmynd
fyrir alla
fjölskylduna
HHH
- D.H. EMPIRE
7
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA
DAGSKRÁ
Modest Mussorgsky
BORIS GODUNOV
nánari upplýsingar ásamt sýnishornum úr stykkjunum má finna á www.operubio.is og á www.metoperafamily.org
René Pape tekur að sér eitt merkasta bassahlutverk óperusögunnar í uppfærslu hins virta
leikhúss- og óperuleikstjóra Peters Stein. Valery Gergiev stjórnar hljómsveitinni í epísku sjónarspili
Mussorgskys sem fangar þjáningu og metnað heillar þjóðar. ,,Boris Godunov er meistaraverk,“ segir Stein.
,,Helsta áskorunin er að koma til skila gríðarlegri tilfinningadýpt verksins. Boris er
keisarinn en hann tjáir vandamál sem við könnumst öll við, afleiðingar mannlegra gjörða.“
Aleksandrs Antonenko, Vladimir Ognovenko og Ekaterina Semenchuk fara fyrir gríðarstórum hópi leikara.
SÝNT Í BEINNI ÚTSENDINGU
í Sambíóunum Kringlunni laugard. 23. okt. kl. 16
Endurflutt miðvikud. 27. okt. kl. 18
Miðasala í
Sambíóunum
Kringlunni
BESTA SKEMMTUNIN
ÓRÓI kl. 8 -10:20 10
EAT PRAY LOVE kl. 8 L
WALL STREET kl. 10:30 L
/ KEFLAVÍK
ÓRÓI kl. 8 - 10:20 10
DINNER FOR SCHMUCKS kl. 8 - 10:20 7
/ SELFOSSI
ÓRÓI kl. 8 -10 10
FURRY VENGEANCE kl. 6 L
ALGJÖR SVEPPI OG... kl. 6 L
THE TOWN kl. 8 -10:30 16
/ AKUREYRI
Ekki verður annað
sagt en að Antony
Hegarthy hafi ver-
ið vel iðinn síðasta
árið. Hann hefur
komið fram á plöt-
um fjölmargra
listamanna, tekið þátt í grúa list-
viðburða, sett saman bók með ljós-
myndum, málverkum, teikningum
og texta og lagt drög að þeirri breið-
skífu sem hér er tekin til kosta.
Síðasta breiðskífa Antonys, The
Crying Light, kom út fyrir hálfu
öðru ári og var ólík fyrri verkum,
lágstemmdari og hljóðfæraleikur
naumhyggjulegri, færri blásarar og
fleiri strengjaleikarar. Á Swanlights
heldur Antony áfram á þeirri braut,
röddin er í forgrunni sem aldrei fyrr,
yrkisefnin depurð og tregi og ást.
Samsöngur þeirra Antonys og
Bjarkar í Fléttu, þar sem hún stelur
senunni, er meðal hápunkta plöt-
unnar, en lokalagið, Christina’s
Farm, slær þó allt út, hálf áttunda
mínúta af Antony, píanói og strengj-
um; hvernig getur það orðið annað
en snilld?
Antony and the Johnsons –
Swanlights bbbbm
Allt fyrir
ástina
Árni Matthíasson
Fimmta plata
Kings of Leon er sú
rokkplata sem mest
hefur verið beðið
eftir í ár, bæði af al-
mennum rokkáhugamönnum og svo
hökustrjúkandi skríbentum eins og
mér. Kings of Leon hafa jafnt og þétt
verið að nálgast yfirráðasvæði
Coldplay/U2 með leikvangavænu og
ástríðufullu rokki sínu og þessi plata
felur í sér ákveðinn snúningspunkt.
Vonbrigðin yfir innihaldinu eru því að
sama skapi mikil. Hér er ekki að
finna reisn eða öryggi þess sem hand-
leikur heiminn, líkt og var að finna á
Joshua Tree U2 t.d., heldur öllu held-
ur útvötnun og málamiðlanir. Platan
er einfaldlega allt of flöt og fyrir-
sjáanleg, flest lögin eru Kings of
Leon í sjálfvirkum gír og stílleg upp-
brot („Mary“ og „Back down South“)
eru tilgerðarleg. Meðlimir eru enn
ungir og efnilegir, þrátt fyrir fimm
plötur, og kannski átta þeir sig. Slak-
ið á freyðivíninu og fylgið hjartanu,
strákar. Þannig sigrið þið heiminn,
ekki öðruvísi.
Hvað kom
fyrir?
Kings of Leon - Come around
Sundown
bbnnn
Arnar Eggert Thoroddsen
Hvað get ég sagt?
Ég er nánast orð-
laus yfir þeirri
hamingju sem ein
hljómsveit getur
veitt mér.
Íslandsvinirnir í Belle & Sebast-
ian sendu nýverið frá sér sína átt-
undu plötu sem ber heitið Write abo-
ut Love. Í fjögur ár hef ég beðið
þessarar plötu, hún er yndisleg en
ekki fullkomin, vantar hálfa stjörnu
upp á það.
Ég hef lengi verið aðdáandi þess-
arar skosku sveitar og eins og með
allt sem gott er hef ég haft áhyggjur
af því að þeirra blómaskeiði færi nú
að ljúka eftir fjórtán ára farsælt
starf en svo er nú aldeilis ekki. Nýja
afurðin er snilldarsmíði, batnar við
hverja hlustun, eins og góðar plötur
gera, og á einn risastóran slagara
sem á eftir að lifa lengi með jarðar-
búum.
„I didn’t see it coming“ er fyrsta
lag plötunnar og setur hamingjutón-
inn. Hápunkturinn er „I want the
world to stop“, mjög grípandi og
dansvænt, „Ím not living in the real
world“ verður líka að teljast mjög
gott með frábærum kórsöng og
„úúú-i“. Belle & Sebastian fá gesti til
sín á þessari plötu, Norah Jones
syngur í laginu „Little Lou, Ugly
Jack, Prophet John“. Afskaplega
fallegt og rómantískt lag og vel
sungið en mér fannst það of væmið
og venjulegt fyrir þessa plötu, á
samt eflaust eftir að heyrast oft í
Rólegt og rómantískt. Leikkonan
Carrey Mulligan syngur í „Write
about love“ sem er mjög B&S-legt
sólskinspopp sem fínt hefði verið að
dansa við úti í móa í sumar. Mulligan
er fín söngkona og á betur við Belle
& Sebastian en Norah Jones.
Write about Love er líklega að-
gengilegasta plata Belle & Sebast-
ian hingað til. Þeir sem hafa verið að
vonast eftir einhverju nýju og til-
raunakenndu fá ekki sitt, þetta er
öruggt hjá þeim, auðvelt og afslapp-
að. Það er eins og sveitin þurfi ekki
að hafa fyrir neinu, tónlistin rennur
frá þeim inn í eyru hlustenda og mal-
lar þar fyrirhafnarlaust og vekur
allskonar hughrif. Það er enginn
eins og Belle & Sebastian.
Hamingjan í hljómplötulíki
Belle & Sebastian -
Write about Love
bbbbm
Ingveldur Geirsdóttir
Belle & Sebastian Áttunda plata sveitarinnar er líklega sú aðgengilegasta.
Erlendar plötur
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Í dag hefst hátíðin Kvikar myndir í
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi,
en hátíðin er á vegum Kinoklúbbsins
og stendur til 24. október. Á hátíð
þessari verður farið yfir sögu fram-
úrstefnunnar í kvikmyndagerð frá
því um 1960 til dagsins í dag og segir
um höfunda þeirra kvikmynda sem
sýndar verða að þeir hafi vakið var-
anlegan áhuga á vinnu með 16 mm
filmu, mótað hefðir og skapað vett-
vang til að endurmeta möguleika
kvikmyndaformsins. Þeir séu hand-
hafar virtra verðlauna og myndir
þeirra hafi verið sýndar á kvik-
myndahátíðum og listasöfnum um
allan heim. Í Kinoklúbbnum eru al-
mennt sýndar kvikmyndir sem ná
yfir vítt svið listgreinarinnar, stutt-
myndir og myndir í fullri lengd,
heimildarmyndir, hreyfimyndir,
kvikmyndadagbækur, framúr-
stefnumyndir og listrænar. Oftar en
ekki er ákveðið þema tekið fyrir á
kvöldum Kinoklúbbsins eða ákveð-
inn listamaður.
Ekki hefðbundin frásögn
Kvikmyndagerðarkonurnar Þór-
anna Dögg Björnsdóttir og Rebecca
Erin Moran standa að klúbbnum og
hefur hann verið starfræktur í rúmt
ár í Reykjavík. „Þetta eru svona
framúrstefnukvikmyndir og listræn-
ar kvikmyndir,“ segir Þóranna um
klúbbstarfið. Hér séu ekki hefð-
bundnar kvikmyndafrásagnir á ferð.
„Svo eru þetta yfirleitt kvikmynda-
gerðarmenn sem hafa notað ýmsa
tækni við gerð myndanna, oft fundið
efni og myndbrot sett saman,“ út-
skýrir Þóranna. Margir þeirra hafi
unnið beint með filmuna, gert til-
raunir í framköllun t.d. þannig að
filman verði hálfgert myndverk, á
mörkum myndlistar og kvikmynda.
Kinoklúbburinn stendur einnig
fyrir sk. Kinosmiðju en markmiðið
með henni er að auka fjölbreytni í
listsköpun á Íslandi og innleiða nýj-
ar aðferðir við myndsköpun. Lista-
menn hvers konar fá í smiðjunni að-
stöðu og búnað til að fullgera súper8
og 16 mm kvikmyndir og vinna kvik-
myndir með blandaðri tækni. „Laug-
ardaginn sl. vorum við með nám-
skeið fyrir 8-15 ára börn í
Hafnarhúsinu, þar voru þau að prófa
sig áfram með svona aðferðir. Það er
engin kvikmyndatökuvél heldur
vinna þau beint á filmuna. Afrakstur
þess námskeiðs verður sýndur núna
á sunnudaginn og einnig verður
haldið námskeið fyrir fullorðna á
laugardaginn og afrakstur þess
sýndur einnig,“ segir Þóranna.
„Þetta er okkur metnaðarmál, að
það verði svona aðstaða til á Ís-
landi.“
Framúrstefna og
tilraunamennska
Kvikar myndir í Hafnarhúsi
Bílablæti Kvikmynd Kenneth Anger frá árinu 1965, Kustom Kar Komm-
andos. Ungir menn láta vel að forláta bifreið við lagið „Dream Lover“.
Kinoklúbbinn má finna á fésbók og
þar má einnig finna dagskrá
Kvikra mynda. Kinosmiðjan er
með vefsíðu, www.kinosmidja.com.