Morgunblaðið - 08.11.2010, Blaðsíða 22
22 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
8
7 4 8
3 8 6 5 2
6 4 5 1
7 8
3 8 6 1 7
2 1
6 5
4 7
8 3 6
2 1
3 4 8 9
7 1
4 9
9 1 2 6 8
6 2 1 4 8
7 8
4 3
5 6
4 2 6 5
8
7 9
3 9 1
8 4 3
7 2 3
3 1 6
3 2 4
6 5 1 4 9 2 8 3 7
7 8 9 1 3 6 2 5 4
2 4 3 5 8 7 1 6 9
1 3 6 9 4 5 7 8 2
9 2 5 6 7 8 3 4 1
4 7 8 3 2 1 5 9 6
8 1 4 7 6 3 9 2 5
5 9 2 8 1 4 6 7 3
3 6 7 2 5 9 4 1 8
7 8 6 5 3 2 9 4 1
4 5 3 1 9 8 7 6 2
1 9 2 4 7 6 3 5 8
2 7 4 8 6 5 1 3 9
9 6 1 3 4 7 2 8 5
5 3 8 9 2 1 4 7 6
3 2 9 6 8 4 5 1 7
8 4 5 7 1 9 6 2 3
6 1 7 2 5 3 8 9 4
2 4 6 5 9 8 7 3 1
3 7 9 2 1 4 8 6 5
1 5 8 3 6 7 9 2 4
8 1 4 6 5 3 2 7 9
5 6 3 7 2 9 1 4 8
9 2 7 4 8 1 6 5 3
7 3 1 9 4 6 5 8 2
6 8 5 1 3 2 4 9 7
4 9 2 8 7 5 3 1 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er mánudagur 8. nóvember,
312. dagur ársins 2010
Orð dagsins: En sonurinn sagði við
hann: Faðir, ég hef syndgað móti
himninum og gegn þér. Ég er ekki
framar verður að heita sonur þinn.
(Lúk. 15, 21.)
Fimm ára dóttir Víkverja er mikillbókaormur, þótt hún kunni nú
reyndar ekki að lesa nema þá helst
nafnið sitt og nokkur önnur álíka
mikilvæg orð. Hún er engu að síður
áhugasöm um bækur og bóklestur
enda hafa foreldrarnir, þótt Víkverji
segir sjálfur frá, verið duglegir við að
halda að henni bókmenntum.
x x x
Fíasól er í miklu uppáhaldi þessastundina og bækurnar um
prinsessuna sem er ýmist að berjast
við dreka, bjarga prinsum eða tala til
galdramenn sömuleiðis. Lína lang-
sokkur skipar að sjálfsögðu heið-
ursess og upp á síðkastið hefur fátt
fengið að rúlla í DVD-spilaranum
nema myndin um Súsan, þ.e. teikni-
mynd sem heitir Skrímsli gegn geim-
verum, en kvenhetjan í myndinni
heitir sem sagt Súsan.
x x x
Það eru sem sagt til bækur ogmyndir þar sem stelpur eða kon-
ur eru hetjurnar. Og þær höfða eðli-
lega miklu fremur til stúlkna en bæk-
ur um stráka. Úrvalið af slíkum
stelpubókmenntum mætti þó vera
betra. Það athugist að hér er ekki átt
við að það vanti bækur um stelpur
sem eru alltaf góðar og líta út eins og
þær séu með farða og hárlakk. Nei,
stúlkur þurfa bækur og bíómyndir
sem sýna að stelpur geta slegist við
geimverur, barist við dreka og beitt
göldrum. Stelpur geti verið óþekkar
og uppátækjasamar, góðar í fótbolta
og fljótar að hlaupa.
x x x
Dóttir Víkverja hefur mikinnsmekk fyrir svoleiðis bókum.
Þegar hún í vikunni áttaði sig á því að
verið er að lesa fyrir hana bók þar
sem engin stelpa kom við sögu sagði
að þetta gengi ekki, ýtti frá sér bók-
inni og bað um að sér yrði sögð saga
af prinsessu sem þurfti að berjast við
dreka í turni með hjálp afturgengins
sjóræninga.
x x x
Svona gera prinsessur. víkverji@m-bl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 efasemdir eftir
á, 8 beygir, 9 brúkar, 10
starfsgrein, 11 fyrir inn-
an, 13 fífl, 15 brothætt,
18 ósléttur, 21 kyn, 22
sárið, 23 hinn, 24 gras-
flötinni.
Lóðrétt | 2 skynfærin, 3
áræðir, 4 starfsvilji, 5 að
baki, 6 mestur hluti, 7 skjót-
ur, 12 umfram, 14 vatnajurt,
15 nagla, 16 bárur, 17 bát-
urinn, 18 saurgi, 19 út, 20
kropp.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 gjóta, 4 bætir, 7 flátt, 8 reist, 9 inn, 11 rætt, 13 anga,
14 ermar, 15 sekk, 17 flær, 20 ári, 22 óskar, 23 lítri, 24 lúsin,
25 torga.
Lóðrétt: 1 gæfur, 2 ósátt, 3 atti, 4 barn, 5 teinn, 6 rotta, 10
nemur, 12 tek, 13 arf, 15 stóll, 16 kokks, 18 lítur, 19 reisa, 20
árin, 21 illt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Rf6 4. e5
Rfd7 5. Bd3 c5 6. c3 Rc6 7. Re2
cxd4 8. cxd4 f6 9. exf6 Rxf6 10.
Rf3 Bd6 11. 0-0 0-0 12. Bf4 Bxf4
13. Rxf4 Re4 14. g3 Df6 15. h4 g5
16. Bxe4 gxf4 17. Bc2 Dg7 18.
Kh2 fxg3+ 19. fxg3 Bd7 20. Dd2
Hf6 21. Rg5 h6 22. Rh7 Hf5 23.
g4 Hf7 24. Hxf7 Dxf7 25. g5 hxg5
26. Rxg5 Dg7 27. Hg1 Rxd4 28.
Hg3 Kh8
Staðan kom upp í B-flokki
Haustmóts Taflfélags Reykjavíkur
sem lauk fyrir skömmu. Al-
þjóðlegi meistarinn Sævar
Bjarnason (2.148) hafði hvítt gegn
Erni Leó Jóhannssyni (1.820). 29.
Dxd4! og svartur gafst upp enda
yrði hann mát eftir 29. … Dxd4
30. Rf7#.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Gamaldags sagnir.
Norður
♠KDG
♥KG986
♦ÁG10
♣D6
Vestur Austur
♠752 ♠63
♥D73 ♥Á104
♦D98642 ♦K75
♣2 ♣98754
Suður
♠Á10984
♥52
♦3
♣ÁKG103
Suður spilar 6♠.
Í gamla daga var opnað á laufi með
5-5 í svörtu litunum og spaðinn tví-
sagður í kjölfarið. Slíkt er flott á
blaði, en mjög hægfara, og nú á okk-
ar pragmatísku tímum byrja menn
almennt á spaðanum. En annaðhvort
er spilið gamalt eða suður gam-
aldags, því hann vakti á 1♣. Norður
sagði 1♥, suður 1♠, norður krafði í
geim með 2♦ og suður kom skipting-
unni til skila með 2♠. Norður tók þá
völdin, spurði um ása og stökk í
slemmu.
Eftir þessi ósköp öll kemur vestur
út með lauf. Þó það nú væri – þannig
fer slemman niður ef austur á svart-
an ás. En svo er ekki. Sagnhafi af-
trompar vörnina, tekur laufin, spilar
loks hjarta að ♥KG. Lítið eða stórt?
Gosann, auðvitað. Með ♥Á hefði
vestur varla reynt að sækja stungu.
8. nóvember 1978
Friðrik Ólafsson var kjörinn
forseti Alþjóðaskáksambands-
ins. Hann hlaut 57 atkvæði en
Rabell-Mendez frá Puerto
Rico 34. Friðrik var forseti
sambandsins í fjögur ár.
8. nóvember 1979
Hjördís Björk Hákonardóttir
var skipuð sýslumaður í
Strandasýslu frá ársbyrjun
1980. Hún var fyrsta konan
sem skipuð var í slíkt embætti.
8. nóvember 1983
Rán, þyrla Landhelgisgæsl-
unnar, fórst í Jökulfjörðum og
með henni fjórir menn. Þyrlan
kom til landsins í október
1980.
8. nóvember 2008
Á fjórða þúsund manns tók
þátt í mótmælum gegn ríkis-
stjórninni á Austurvelli. Kast-
að var eggjum og tómötum í
Alþingishúsið og fáni versl-
unarinnar Bónuss dreginn að
húni.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
Jóhannes Geir Sigurgeirsson, starfsmaður fyr-
irtækjaráðgjafar Saga Fjárfestingarbanka og fyrr-
verandi þingmaður Framsóknarflokksins, er sex-
tugur í dag. Jóhannes sat á þingi á árunum 1991 til
1995 sem þingmaður Norðurlands eystra. Hann var
stjórnarformaður Landsvirkjunar á árunum 1997
til 2007, og hefur gegnt sama embætti hjá KEA og
Kaldbaki hf. Þar að auki hefur hann setið í stjórn-
um útgerðarfélaganna BGB-Snæfells, Útgerð-
arfélags Akureyrar og Samherja. Hann rak einnig
eigið ráðgjafarfyrirtæki í orku- og atvinnumálum.
Á árum áður var hann bóndi á Öngulsstöðum III í Eyjafjarðarsveit,
og kenndi við Hafralækjarskóla í Aðaldal. Jóhannes lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum á Akureyri. Þegar hann var 54 ára ákvað hann að
fara í frekara nám, og innritaði sig í nám í viðskiptafræðum á Bifröst.
Jóhannes verður ekki heima á afmælinu. Þegar blaðamaður náði tali
af honum var hann staddur í Norður-Svíþjóð. „Ég verð ekki heima á af-
mælinu, nei. Ég fer til Stokkhólms [í dag] og ætla að halda upp á það
með því að fara í Stokkhólmsóperuna í kvöld,“ sagði Jóhannes.
Jóhannes Geir Sigurgeirsson er sextugur í dag
Heldur upp á afmælið
í Stokkhólmsóperunni
Nýirborgarar
Helga María Við-
arsdóttir, Andrea
Sól Ármannsdóttir,
Lilja Björg Geirs-
dóttir og Anna
Marý Jónsdóttir
héldu tombólu við
Samkaup í Hrísa-
lundi á Akureyri og
söfnuðu 9.541 kr.
sem þær færðu
Rauða krossinum.
Flóðogfjara
8. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.06 0,3 7.22 4,3 13.39 0,3 19.42 3,9 9.34 16.50
Ísafjörður 3.11 0,2 9.19 2,4 15.50 0,2 21.32 2,1 9.55 16.39
Siglufjörður 5.27 0,2 11.39 1,4 17.55 0,1 9.38 16.22
Djúpivogur 4.30 2,5 10.51 0,4 16.43 2,1 22.50 0,4 9.07 16.16
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Nýjar aðstæður laða það besta fram
í þér, en magna upp viðkvæmni þína að sama
skapi. Njóttu þess að vinna að listsköpun.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Einhver leitar álits þíns á máli sem
tengist sameiginlegum vini. Reyndu að
hugsa samt ekki of mikið um hvort þú eigir
að sleppa eða halda.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Það er sama hversu mælskur þú
ert um þessar mundir, gjörðir þínar segja
meira en mörg orð. Njóttu þess að daðra,
leika þér og njóta lífsins.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú ert í varnarstöðu og það er skilj-
anlegt. Það er erfitt að horfa á stóru mynd-
ina – en samt nauðsynlegt.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Reyndu að sneiða hjá öllum öfgum sem
geta haft neikvæð áhrif á þig og frama þinn.
Að koma auga á björtu hliðarnar er lyk-
ilatriði.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú veist hverjir gera þér gott og hverj-
ir mergsjúga þig. Treystu tilboðum um fjár-
hagsaðstoð.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Spurðu þig hvort þú ætlir að halda
áfram í núverandi starfi eða skipta um
starfsvettvang. Röng ákvörðun getur verið
betri en engin.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Málin hafa þróast þannig að þú
ert með puttann í næstum hverju sem er á
þínum vinnustað. Hugsaðu þig vel um áður
en þú bregst við gagnrýni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það vantar ekki mikið upp á að
þér takist að klára það verkefni sem þér hef-
ur verið falið. Farðu varlega í dag, ekki er allt
sem sýnist.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú virðist bæði torskilin/n og
heillandi í augum vina þinna. Við höfum öll
þörf fyrir að flýja raunveruleikann svona ein-
stöku sinnum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Aðrir eru of hægir fyrir þig í dag.
Mundu að hlutirnir gerast ekki sjálfkrafa og
þú þarft að hafa fyrir þeim.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er eitt og annað sem þú hefur
látið sitja á hakanum, en nú skaltu bretta
upp ermarnar og hefjast handa. Kláraðu það
sem þú byrjar á.
Stjörnuspá
Óskar Ágústs-
son, íþróttakenn-
ari á Laugum í
Suður-Þingeyj-
arsýslu, er ní-
ræður í dag, 8.
nóvember. Hann
og kona hans, El-
ín Friðriksdóttir
hússtjórnarkennari, búa í Sunnu-
hlíð í Kópavogi. Óskar og Elín
verða í faðmi fjölskyldunnar á af-
mælisdaginn.
90 ára