Morgunblaðið - 08.11.2010, Qupperneq 11
DAGLEGT LÍF 11
Sápa úr lýsi Ólafur Árni Halldórsson prófaði nýja sáputegund með áhugasömum íbúum í Ólafsvík fyrir skömmu.
hvönn og nota í sápurnar. Einnig hef ég notað bláber og
krækiber, bæði hrat og safa, þannig að það er ýmislegt
hægt að nota.“
Auk þess að framleiða sápu fyrir innlendan markað
heldur Ólafur Árni námskeið í sápugerð. Hvert námskeið
miðast við það að fólkið geti farið heim og búið til sápur úr
því sem það á. „Grunnurinn að öllum sápum er vökvi, fita
og basi í réttum hlutföllum. Basinn myndar efnahvörfin og
fer því ekki yfir í sápuna. Síðan er hægt að nota alls kyns
jurtir, kaffikorg og annað sem hugurinn girnist. Ég nota
ýmist ilm- eða litarefni í sápurnar en ég sel þær einnig án
þessara efna. Þær sápur hafa verið vinsælar hjá þeim sem
eru með viðkvæma húð, húðsjúkdóma eða ofnæmi.“
Tólgarsápan selst vel
Talandi um vinsældir, hvaða sápur eru vinsælastar?
„Það er yfirburðasala á þremur tegundum. Í fyrsta
sæti er Hallgerður, hún gnæfir yfir allt, þá Gunnar og
þriðja söluhæsta sápan er Tólgarsápa,“ sagði Ólafur Árni
og hlær, því Tólgarsápa er nafn sem fólk réð honum frá að
nota, því enginn myndi kaupa sápu með þessu nafni. Annað
kom á daginn.
Samkvæmt upplýsingum frá seljendum sápunnar eru
yfir 99% viðskiptavinanna erlendir ferðamenn. Það er
kannski ekki að undra þegar maður leiðir hugann að sölu-
stöðunum og einnig tengingu við víkinga og galdra.
Íslendingarnir eru hins vegar hrifnir af námskeið-
unum og nýliðinn mánuð hefur Ólafur Árni
verið á ferð og flugi um landið til að kynna
landanum sápugerð. Það lítur út fyrir að
nóvember verði álíka annasamur og sam-
hliða námskeiðshaldi hefur Ólafur Árni ver-
ið að þróa nýja sápu fyrir jólaverslunina, m.a.
Kembrusápu sem hulin er kembru fá Álafossi.
Sápa hulin
kembru Meðal
nýjust afurða
Sápunnar er
sápa umlukin
marglitri
kembru frá
Álafossi.
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2010
Börn sem koma í heiminn í erfiðri
fæðingu, og þurfa aðstoð frá sog-
klukku eða töng, eru líklegri til að
verða erfiðari er þau eldast en þau
börn sem fæðast átakalaust með
keisaraskurði. Þetta leiðir ný kín-
versk rannsókn í ljós.
Vísindamennirnir telja að hegð-
unarvandamálin megi rekja til mik-
ils kortisóls í blóðinu, en kortisól
er streituhormón sem líkaminn
framleiðir þegar fæðing er stress-
andi og erfið.
Eldri rannsóknir hafa sýnt að
kortisól í blóði úr naflastreng er
minnst hjá börnum sem fæðast
með keisaraskurði og börnum sem
fæðast í skyndilegum og hröðum
leggangafæðingum. Mest af kort-
isóli fannst í blóði úr naflastreng
barna sem þurfti að aðstoða við að
koma í heiminn í leggangafæðingu,
í fæðingum þar sem þurfti að nota
sogklukku eða töng til að ná þeim
út.
„Kortisólmagn hefur verið tengt
við sálræn vandræði hjá börnum en
það þarf að rannsaka þetta betur,“
segir dr. Jianmeng Liu.
4190 börn tóku þátt í rannsókn-
inni, þau voru öll fædd í Suður-
Kína og voru skoðuð á aldrinum 4
til 6 ára til að athuga með vanda-
mál eins og kvíða, þunglyndi, at-
hyglisbrest og árásargjarna hegð-
un. Slík vandamál voru minnst hjá
börnum sem voru tekin með keis-
araskurði og mest hjá þeim sem
var hjálpað út með sogklukku eða
töng.
Keisaraskurðum hefur fjölgað í
Kína, sérstaklega í suðausturhluta
landsins þar sem efnaðra fólk býr.
Þar var tíðni keisaraskurða 22%
árið 1994 en hafði aukist í 56% ár-
ið 2006. Keisaraskurðir að ósk
móður hafa aukist mikið í suðaust-
urhluta Kína. Þeir voru 3,6 % af
öllum keisaraskurðum 1994 en
36% árið 2006.
Börn
Frá Kína Fæðing barna getur haft með hegðun þeirra að segja.
Erfið fæðing = erfið börn?Þrátt fyrir ímynd hins skítuga, úfna víkings sagðistÓlafur Árni hafa rekist á grein í Wikipediu sem sann-
ar hið gagnstæða. Það er e.t.v. nóg að hugsa um all-
ar laugarnar og tækin til notkunar við hreinlætið
sem hafa fundist víðsvegar um landið við forn-
uppgröft. Ólafur Árni er sannfærður um að víking-
arnir hafi búið til sína eigin sápu og nefnir þrjár teg-
undir eftir þeim; Hallgerði, Gunnar og Gretti. Um
Hallgerði segir á sápukassa: „Hallgerður Langbrók,
ein fallegasta kona á víkingaöld, hefur örugglega
gert góða sápu. Við getum ímyndað okkur hvaða efni
hún gæti hafa notað og hvernig hún gerði sápuna
sína. Uppskrift Hallgerðar höfum við lagað að þörf-
um húðarinnar okkar og bætt í rómantískri ilmolíu.
Hallgerður hefur örugglega viljað að húðin væri
sterk og falleg. Góð sápa í baðið og sturtuna.“ (af
sapan.is)
Hreinlæti víkinga
HALLGERÐUR LANGBRÓK
Viðskiptavinum með íbúða- og fasteignalán hjá Landsbankanum
stendur til boða 110% aðlögun eða 25% höfuðstólslækkun lána í
erlendri mynt og lækka þannig höfuðstól lána sinna.
LAUSNIR FYRIR HEIMILI | landsbankinn.is | 410 4000
Við tökum vel á móti þér um land allt.
110% aðlögun
· Höfuðstóll íbúða- eða fasteignalána er færður niður í 110%
af virði eignar
· Fyrir þá sem eru með íbúða- og fasteignalán með höfuðstól
umfram virði eignar
25% höfuðstólslækkun lána í erlendri mynt
· Höfuðstóll lána í erlendri mynt færður niður um 25% samhliða
breytingu í verðtryggt eða óverðtryggt íbúðalán í íslenskum
krónum
· Fyrir þá sem eru með lán í erlendri mynt
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t
.
4
7
1
0
0
8
-
0
2
8
0
.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
4
2
8
3
Lægri
höfuðstóll