Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 2

Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 2
2 | MORGUNBLAÐIÐ A ndrúmsloftið hjá Brosi (áður Bros bolir) í að- draganda jólanna hlýtur að minna á vinnustofu jólasveinsins. Í fjölda ára hefur Bros boðið upp á vandaðar jólagjafalausnir fyrir stofnanir og fyrirtæki og Sturlaugur Þór Hall- dórsson segir Bros hafa á boð- stólum úrval gjafavöru. „Jóla- gjafaúrvalið spannar allt frá bókamerkjum og gjafakortum upp í svuntur, matarkörfur, hönnunar- vöru og útivistarfatnað,“ segir hann. „Við bjóðum m.a. fatnað frá Hummel sem hefur notið tölu- verðra vinsælda enda í fallegum sniðum og úr þunnu og teygjanlegu flísefni. Ekki má heldur gleyma skandinavísku heimilisvörunum frá hönnuðum eins og Stelton, Ros- endahl og Eva Solo, sem engum þykir leiðinlegt að fá í pakkann sinn.“ Möguleikarnir segir Sturlaugur að séu annars ótæmandi og hægt að mæta öllum sérþörfum. Það sem meira er; Bros getur merkt nánast allt milli himins og jarðar og léttur leikur að merkja stóra eða smáa vöru með lógói eða jólakveðju. „Við getum meira að segja merkt pipar- kökurnar, en það er reyndar sér- pöntun sem þarf að fá frá útlönd- um,“ bætir hann við. Svuntur eru vinsæl viðbót við matarkörfurnar og segir Sturlaug- ur tilvalið að prenta þar á hlýlega orðsendingu eða góða uppskrift. „Það þarf í sjálfu sér ekki að prenta einkennismerki fyrirtæk- isins á alla hluti, því fólk man alveg hvaðan það fékk gjöfina. Persónu- leg og viðkunnanleg skilaboð eða jólakveðja komast vel til skila og geta gert það sem gefið er mun sérstakara í augum þiggjandans.“ Með merkingum má líka gera gjöfina persónulegri. „Hægt er að merkja t.d. einhverja gjafavöruna eða pakkann sjálfan með nafni við- takandans, eða velja af natni í körf- una mat eða muni sem höfða sér- staklega til hvers og eins. Fyrir vikið er gjöfin orðin mun persónu- legri, og eflaust skemmtilegra að fá slíkan sérsniðinn jólaglaðning frek- ar en einfaldlega eina af nokkur hundruð einsleitum gjafakörfum.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Jólaval Sturlaugur bendir á að með því að gefa starfsmönnum t.d. útivistarfatnað megi oft gera góð kaup. Síðan má merkja fötin t.d. með merki fyrirtækisins. Útivistarfatnaður, með eða án merkis fyrir- tækis, er vinsæl gjöf. Falleg sérmerking getur gefið gjöfum aukið gildi. Hægt er að bregða á leik í jólamánuðinum með merktum svuntum eða jólabolum. Mjúkir pakkar svo fólk fari ekki í jólaköttinn Stjórnendur þurfa að sögn Sturlaugs ekki að vera hræddir við að gefa fatnað. Stílhreinn og fallegur fatnaður eins og Bros býður til sölu falli alltaf í kramið og stærðir og snið þannig að henti flest- um. „Við erum með mikla reynslu á þessu sviði og hjálpum til við að áætla t.d. hvaða stærðir henta fyrir samsetningu fyrirtækisins, og gerum ferlið allt áreynslu- og áhyggjulaust.“ Sturlaugur bendir einnig á að hægt sé að gera góð kaup þegar t.d. fatnaður er keyptur fyrir allt starfsfólk, og kostnaðurinn við gjöfina kannski mun lægri en það virði sem þiggjandinn upplifir. „Þegar um er að ræða magninnkaup beint frá framleiðanda eru verðin allt önnur en til neytenda út úr búð og þarf ekki að vera svo dýrt fyrir fyrirtækið að gefa öllum flík sem út úr búð væri kannski rándýr.“ Ekkert mál að gefa fatnað Prentaður varningur getur verið ódýr leið til að lífga upp á aðvent- una og stingur Sturlaugur t.d. upp á að gefa starfsmönnum sérmerkta jólabolla í byrjun desember til að skapa létt og skemmtilegt hátíðarandrúmsloft. „Ef aðstaða er til þess er svo kjörið ef starfsfólkið getur komið saman, tekið sér stutt frí frá störfum og t.d. bakað pip- arkökur eða útbúið konfekt. Þá mætti gefa öllum sérprentaða svuntu til minningar um uppá- komuna,“ segir hann. „Svo má gefa ýmsar smærri jólagjafir, eins og merktar jólakúlur eða árgangs- jólaskraut sem gaman er að safna.“ Merkingar sem minna á jólagleðina Jólagjafahandbók atvinnulífsins 2010 Umsjón og greinaskrif: Ásgeir Ingvarsson, ai@mbl.is Sala auglýsinga: Sigríður Hvönn Karlsdóttir, sigridurh@mbl.is Útgefandi: Árvakur Prentun: Landsprent Forsíðumynd er af jólapökkum frá Garðheimum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.