Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 4
koma upp tilvik þar sem þörf er á
meiri háttar aðgerðum, eins og í eitt
skipti þegar kettlingafull læða í
umsjá félagsins þarfnaðist keis-
araskurðar og mikillar aðhlynn-
ingar,“ segir Valgerður. „Ef dýrin
eiga við hegðunarvanda að stríða
störfum við með nokkrum fórnfúsum
þjálfurum sem aðstoða við að vinna
með og leysa vandamálin svo dýrin
verði örugglega vel til þess fallin að
verða góð viðbót við fjölskylduna.“
Krúttleg kort og dagatöl
Um þessi jól fer fjáröflun Dýrahjálp-
ar fram meðal annars með sölu jóla-
korta og dagatala. „Á kortunum er
að finna fallegar og jólalegar myndir
af dýrum, og kemur fram að kortin
séu til styrktar félaginu. Á almanak-
inu er svo að finna ákaflega fallegar
stúdíómyndir af sumum þeirra dýra
sem félagið hefur hjálpað, með upp-
lýsingum um sögu hvers og eins.“
Þeir sem vilja kaupa þessa
skemmtilegu jólavöru og styðja um
leið gott málefni geta sent póst á
dyrahjalp@dyrahjalp.is, heimsótt
vefsíðu félagsins á www.dyrahjalp.is
eða aðdáendasíðu á Fésbók með
sama nafni. Einnig verður hægt að
finna vöruna til sölu í völdum versl-
unum. ai@mbl.is
Hundadagar Dagatal Dýrahjálpar Ís-
lands tryggir krúttskamtinn út árið,
eins og myndirnar bera með sér, og
styrkir gott málefni.
H
ugurinn skiptir marga
meira máli en sjálf gjöfin,
og um hátíðarnar er okk-
ur flestum sérstaklega
hugfast að hjálpa þeim
sem minna mega sín. Einföld leið til
að láta gott leiða af jólagjöf fyrirtæk-
isins er að kaupa jólakort frá ein-
hverju þeirra fjölmörgu góðgerð-
arfélaga sem vinna gott og ötult starf
hér á landi.
Eitt slíkt félag er Dýrahjálp Ís-
lands sem frá árinu 2008 hefur fund-
ið ótal gæludýrum góð heimili.
„Markmiðið með stofnun félagsins
var að setja á laggirnar athvarf fyrir
öll heimilislaus gæludýr, en fyrir ut-
an Kattholt – sem tekur eingöngu við
köttum – er ekkert slíkt athvarf að
finna á landinu,“ segir Valgerður
Valgeirsdóttir formaður. „Efnahags-
hrunið varð til þess að slá varð á
frest draumum um athvarf, en í stað-
inn hefur starfið einkum farið fram í
gegnum heimasíðuna og netverk
fjölda sjálfboðaliða sem bjóða fram
heimili sín og taka að sér dýr í heim-
ilisleit til skamms tíma.“
Rösklega þúsund
dýrum hjálpað
Félagið hefur áorkað miklu á tveim-
ur stuttum árum og fékk í apríl form-
lega aðild að virtu bresku dýravernd-
unarsamtökunum RSPCA. „Þegar
allt er talið höfum við frá stofnun að-
stoðað við að finna ný heimili fyrir
444 hunda, 533 ketti, 82 kanínur og
14 hamstra. Þetta eru dýr sem koma
úr ýmsum áttum: sum hafa þurft að
fara vegna ofnæmis, önnur vegna
flutninga eða erfiðra heimilis-
aðstæðna, og sum átt í hegðunarerf-
iðleikum,“ útskýrir Valgerður. „Í
mörgum tilvikum hefðu dýrin senni-
lega verið svæfð ef Dýrahjálpar hefði
ekki notið við.“
Söfnunarfé vel varið
Stór hópur dýravina hefur, eins og
áður var nefnt, boðið fram krafta
sína og heimili en starfið kostar samt
sitt og veitir félaginu ekki af styrkj-
um. „Stærsti útgjaldaliðurinn er
dýralæknakostnaður. Við látum eng-
in dýr frá okkur ógeld og stundum
Á tæplega tveimur árum
hefur Dýrahjálp fundið
ríflega þúsund dýrum
nýtt heimili. Félagið fékk
nýlega inngöngu í
RSPCA og aflar fjár til
að halda áfram að hlúa
að málleysingjunum
Jólaglaðningur sem fær
skottin til að dillast
Morgunblaðið/Kristinn
Björgun „Stærsti útgjaldaliðurinn er dýralæknakostnaður. Við látum engin dýr
frá okkur ógeld og stundum koma upp tilvik þar sem þörf er á meiri háttar að-
gerðum,“ segir Valgerður Valgeirsdóttir í jólaskapi með voffanum á heimilinu.
4 | MORGUNBLAÐIÐ