Morgunblaðið - 11.11.2010, Blaðsíða 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
Etanól-eldstæði hafa notið þónokk-
urra vinsælda síðustu ár en um er að
ræða nýja lausn til að prýða heimilið
með fallegum loga á hagkvæman,
einfaldan, og öruggan hátt. „Etanól-
eldstæðin hvorki sóta né framkalla
reyk. Þau eru því tilvalin til notkunar
hvar sem er innanhúss en geta líka
hentað utandyra,“ segir Linda. „Ekki
er þörf á skorsteini eða útsogi af
neinu tagi og aðeins þarf að huga vel
að veggfestingum og gæta þess að
veggurinn sé hitaþolinn, en t.d. ekki
með viðarklæðningu eða veggfóðr-
aður.“
Rekstarkostnaður etanól-
eldstæða er sambærilegur við aðra
hefðbundna arna eða gaseldstæði,
nema hvað uppsetning og upphafs-
kostnaður er mun minni. „Eins þarf
ekki að hafa áhyggjur af sóti, þrifum
eða fljúgandi neistum,“ segir Linda
„Svo er ekkert mál að kippa stjak-
anum með upp í sumarbústað eða í
hjólhýsið, og jafnvel út á verönd ef
vel viðrar.“
Engir neistar og engin þrif
A
ð velja góða gjöf er vanda-
samt verk. Oftast reynir
gefandinn að velja gjöf
sem endist vel og mikið er
notuð. Góður matur hverf-
ur fljótt ofan í maga en „harðir
pakkar“ geta verið vandasamir því á
þótt allir kunni að meta góðan mat
er smekkur manna misjafn á bækur
og skrautmuni.
Ef fallegur hlutur fyrir heimilið
verður fyrir valinu er síðan allur
gangur á hversu vel hann passar við
innbúið og hætt við að hann fái ekki
þann heiðurssess í stofunni sem gef-
andinn hefði vonast til. En eitt er
það sem er alltaf í tísku og passar við
allar innréttingar: „Eldurinn er
klassískur og eilífur. Sama hvort
heimilið er nýtískulegt í hólf og gólf
eða rólegt og rómantískt, þá á fal-
legur logi eldsins alltaf við,“ segir
Linda Svanbergsdóttir hjá Secret
North.
Umgjörð um eldinn
Secret North er tæplega þriggja ára
fyrirtæki sem sérhæfir sig í hönnun
og framleiðslu á etanól-eldstæðum
og eld-umgjörðum. „Við lítum í raun
svo á að við séum að gera fallega um-
gjörð utan um eldinn og höfum við
hannað alls kyns útfærslur á slíkum
umgjörðum eins og bekki, borð og
vegg-stæði þar sem loginn fær að
njóta sín,“ segir Linda en hún á og
rekur fyrirtækið ásamt Valgerði
Einarsdóttur. „Við byrjuðum að
vinna með viðskiptahugmyndina ár-
ið 2007. Sumarið 2008 vorum við síð-
an klárar í slaginn og búnar að þróa
fyrstu vörurnar.“
Í eldumgjarðir Secret North er
m.a notað íslenskt hraun. „Hraunið
er fallegt, orkuríkt og náttúrulegt
efni sem hæfir vel til hönnunar og
framleiðslu á eldstæðum.“ segir
Linda.
Listrænn logi
Hraunstjakana frá Secret North
segir hún tilvalda gjöf fyrir þessi jól.
„Stærðin er á við voldugan kerta-
stjaka og skapar strax ákveðin fók-
uspunkt í herberginu. Í hraunstjak-
ana er notað umhverfisvænt
„Eldurinn er klassískur og
Hraunstjaki frá Secret North óvenjuleg en sniðug jólagöf. Etanól-eldur er
hreinn og hættulaus og má nota í stofunni, úti á verönd eða uppi í bústað