Morgunblaðið - 11.11.2010, Qupperneq 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Góðar gjafir býður
upp á falleg jólakort
sem Guðfinna Ýr hef-
ur hannað og segir
Linda þá þjónustu
einnig í boði að ann-
ast hönnun og send-
ingu jólakorta fyr-
irtækja. „Mörg
fyrirtæki og stofnanir
senda viðskiptavina-
hópnum jólakveðju,
og sumir velja að
senda kveðjuna með
tölvupósti en láta póstburðargjaldið sem sparast renna til góðs málefnis. Við
getum líka tekið þetta að okkur, og sérhönnum þá fallegt grafískt tölvu-
jólakort sérmerkt fyrirtækinu.“
Hjálpa líka til við jólakortin
Linda vill ráðleggja stjórnendum
að sjá hvort ekki megi setja eitt-
hvað fleira en mat með í jólapakk-
ann. „Góð íslensk matvara er auð-
vitað sígild gjöf, en það er alltaf
gaman að fá eitthvað með sem
má nota t.d. til að prýða heimilið.
Íslensk hönnun fellur alltaf vel i
kramið og þarf alls ekki að kosta
mikið.“
Gott að hafa meira en mat
L
inda Björg Stefánsdóttir og
Guðfinna Ýr Róbertsdóttir
eru æskuvinkonur og reka
saman jólagjafafyrirtækið
Góðar gjafir. „Hún er graf-
ískur hönnuður og hafði verið að
vinna hjá fyrirtæki sem var m.a. í
sambærilegum rekstri fyrir mörg-
um árum. Þegar ég var að ljúka
mastersnámi í Noregi og hún að
hugsa sér til hreyfings eftir að hafa
unnið sjálfstætt í um fimm ár kvikn-
aði þessi hugmynd,“ segir Linda.
Fjölnota rauður platti
Eins og sjá má á vefnum godargjaf-
ir.is bjóða þær vinkonur upp á fjöl-
breytilegt úrval af gjafakörfum sem
eru hreint tilvaldar sem fyrirtæk-
isgjöf. Þó er raunar ekki hægt að
tala um „körfur“ því hægt er að fá
gjafirnar annars vegar í öskju eða
viðarkassa og hins vegar á fallegum
rauðum platta sem Guðfinna hann-
aði. „Við veltum því fyrir okkur
hvort mætti ekki gera eitthvað
skemmtilegra við þennan sígilda
gjafapakka en að hafa matarúrvalið
í körfu. Fólk getur sjaldnast notað
körfurnar af nokkru viti heimafyrir
og lenda þær eflaust flestar í ruslinu
eða í geymslunni,“ útskýrir Linda
og segir markmiðið hafa verið að
bjóða upp á „smartari“ framsetn-
ingu. „Rauða plattann létum við
framleiða fyrir okkur hér á landi úr
plexígleri og nýtist hann t.d. sem
fallegur kökudiskur eða sem osta-
bakki.“
Vinsæl íslensk hönnunarvara
Góðar gjafir bjóða upp á alls kyns
samsetningar á gjöfum sem m.a.
geta innihaldið hangikjöt, konfekt,
kerti og servíettur. „Svo erum við
með úrval af spennandi vöru frá ís-
lenskum hönnuðum, eins og hita-
platta með vetrarlegu mynstri frá
Maríu Kristu, glasamottur lagaðar
eins og Ísland frá FærID, og ýmsar
vörur eins og kertastjakann vinsæla,
Frostrósina frá Arca design,“ út-
skýrir Linda. „Við höfum líka gætt
þess að velja vöru sem styrkir gott
málefni og bjóðum bleikt slauf-
unammi sem selt er til styrktar
Krabbameinsfélagi Íslands. Nánast
allt í pakkanum er íslenskt, nema þá
helst vínið, og því er um leið verið að
styðja vel við íslenska framleiðslu
með gjöfinni. Loks mun hluti af
söluhagnaði þessi jólin renna til
Fjölskylduhjálpar Íslands.“
Innblástur og sveigjanleiki
Á heimasíðunni má finna yfirlit yfir
þrettán mismunandi samsetningar
sem fengið hafa nöfn sín að láni frá
jólasveinunum. Er verðbilið á þeim
„Nánast allt í pakkanum er
Áherslan um þessar
mundir er á að velja ís-
lenskt í matarkörf-
urnar. Vinkonur hönn-
uðu skemmtilegan
rauðan platta sem
kemur í staðinn fyrir
bastkörfuna