Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 14

Morgunblaðið - 11.11.2010, Síða 14
A llstór hópur fólks bíður spenntur eftir ákveðinni vöru sem kemur í Heilsuhúsið á þessu árs- tíma, og stingur kannski svolítið í stúf við alla bráðhollu matvöruna í hillunum. Margrét Kaldalóns segir suma byrja að hringja í búðina strax í októberlok til að athuga hvort jólakakan góða, Panettone, er komin til landsins. Barst með pestóinu „Þessi vara er arfleifð frá því þeg- ar Örn Svavarsson, stofnandi verslunarinnar, byrjaði að kynna Íslendingum ítalska matarhefð og flutti inn til landsins ítalska sæl- keravöru og olíur,“ segir Margrét. „Sumir hvá þegar þeir sjá kökuna til sölu hjá okkur, enda sykur- og hitaeiningainnihaldið meira en venjulega sést í búðinni, en Panet- tone á sér dyggan aðdáendahóp sem getur ekki hugsað sér jólin án þessarar ítölsku köku.“ Panettone er létt og ljúffeng kaka og má segja að áferðin sé miðja vegu milli brauðs og svamp- botns. Heilsuhúsið selur þrjár út- færslur af kökunni: með ávaxtabit- um, með súkkulaðiflögum og hreina. „Kökurnar eru svo fáan- legar í tveimur stærðum, og sú minni þykir góður skammtur fyrir tvo. Þær eru í fallegum pappírs- öskjum en einnig í eigulegum jóla- dósum.“ Ástfanginn bakarasveinn Panettone á rætur sínar að rekja tíl Mílanó og eru ýmsar sögur til um uppruna þessa eftirréttar sem Jólalegar Margrét Kaldalóns fékk á Ítalíu að kynnast þeim sið að dýfa Panettone í kampavín og þótti „alveg æðislegt“. Ljúf, létt og litrík jólahefð frá Mílanó Panettone er vinsæl fyrirtækjagjöf í Suður-Evrópu og Rómönsku- Ameríku. Sætabrauðið eignast fleiri aðdáendur með hverju árinu hér á landi. Bragðgott og léttara í maga en margur íslenskur jólamatur 14 | MORGUNBLAÐIÐ Gjafakort – þá fá allir eitthvað fallegt! Blue Lagoon gjafakort eru fáanleg í verslunum Bláa Lónsins á baðstað, að Laugavegi 15, Blue Lagoon spa og Hreyfingu í Glæsibæ. Gisting í Bláa L óninu – Lækningalind Blue Lagoon húðvörur Líkamsrækt Einkaþjálfun Aðgangur í Bláa Lónið Spa meðferðir Snyrtimeðferðir Nudd Veitingar á LAVA Gjafakort Hægt er að setja saman holla matarkörfu í Heilsu- húsinu en einnig er um að gera að lauma nokkrum hollustuvörum með í „óhollu“ gjafakörfuna. „Flaska af góðu balsam- ediki eða ólífuolíu fellur alltaf í kramið og hnetu- blanda er bæði heilsu- samlegur orkuskammtur og á vel við flestan jóla- mat. Svo er heldur ekkert sem segir að megi ekki bæta t.d. glasi af fjölví- tamíni með.“ Heilsukarfa undir tréð? Gott Kannski má lauma Panettone með.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.