Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 15

Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 15
Morgunblaðið/Árni Sæberg spænskumælandi heim og birtast þar stórar og fagurbrúnar kök- urnar í verslunum eftir hrekkja- vöku. Er Panettone orðin svo fastur liður í jólagjöfum fyr- irtækja í sumum löndum að haft er á orði að vanti þetta brauð í pakkan gangi starfsmenn óðara á dyr. Panettone segir Margrét hægt að borða á ýmsa vegu. Sumir skera hana í fallegar sneiðar en aðrir velja að rífa sér bita og bita af hleifnum. „Sjálfri var mér boðið upp á Panettone í héraði á Ítalíu þar sem heimamenn kynntu mig fyrir þeim sið sínu að borða kök- una „hreina“ og dýfa henni í Lam- brusco kampavín. Vínið er þá haft í lágum og breiðum glösum og bit- inn vættur þar í,“ segir hún og bætir við: „Þetta var alveg æð- islegt.“ ai@mbl.is víða um heim er álitinn ómissandi hluti af jólahaldinu. „Sú saga sem okkur þykir skemmtilegust hér í Heilsuhúsinu er sagan af bakara- sveininum sem var yfir sig ást- fanginn af dóttur bakarameist- arans. Hann lagði sig því allan fram við að ganga í augun á dótt- urinni og föðurnum, og hug- kvæmdist á endanum uppskriftin að kökunni,“ segir Margrét. „Sló þessi nýi réttur í gegn og við- skiptavinir flykktust að hvaðan- æva til að kaupa sér köku. Bak- arameistarinn hét Tone og fljótt varð kakan kennd við hann, Pan di Tone.“ Afbragð með kampavíni Ekki aðeins Ítalir borða þetta sætabrauð heldur er það uppi á jólaborðum víða um hinn Hjá langflestum einkennist desem- bermánuður af því að borða mikið af af- skaplega góðum, en líka afskaplega feit- um og söltum mat, með þykkum og sætum sósum og skola honum niður með slurk af maltöli. Þegar öllum lát- unum lýkur situr fólk oft uppgefið uppi í sófa, sælt og jólalegt en hér um bil far- lama af áti. Í janúar tekur svo sam- viskubitið við, og margur óskar þess að hafa kannski farið færri ferðir upp að jólahlaðborðinu. Léttari leiðir Eins og Margrét bendir á er hægt að gera mataræðið um hátíðirnar heilsu- samlegra án þess að það komi niður á matarupplifuninni. „Það má til dæmis í mörgum verslunum fá hnetusteikur sem velja má í staðinn fyrir hefðbundna jóla- steik. Þessar steikur henta bæði græn- metisætum og þeim sem vilja hreinlega bæta hjá sér matarvalið, og má elda rétt eins og aðrar steikur og bera fram með góðu jólasósunum. Sólþurrkaðir tóm- atar og þistilhjörtu geta líka verið áhugavert meðlæti með jólasteikinni og hvað þá út í salatið,“ segir hún. „Svo fáum við um þetta leyti árs alls kyns skemmtilegan jólamat í búðina, t.d. líf- ræna jólateið frá Yogi í fallegum hátíð- arpakkningum að vanda.“ Ávextir með konfektinu Góð krukka af lífrænu hunangi getur verið skemmtileg viðbót við jólagjöf eða matarkörfu og vítamínsprauta í skamm- deginu. „Svo fer alltaf vel á því að hafa hnetur og þurrkaða ávexti uppi við og það getur komið í staðinn fyrir eða sem viðbót við jólakonfektið . Blanda má saman við fagurrauðum goja-berjum og grænum graskersfræjum ef fólk vill gera diskinn enn jólalegri.“ Heilsuhúsið dreifir ókeypis til við- skiptavina sinna skemmtilegum upp- skriftum að lífrænu og heilsusamlegu jólakonfekti og jólakökum. „Við seljum líka í versluninni heilsusamlegar jólasmákökur frá Bakaríi Grímsbæjar. Í baksturinn er notað fyrsta flokks lífrænt hráefni, uppskriftirnar hollar og góðar, og spelt notað sem uppistaða í stað hveitis.“ Jólamatur- inn þarf ekki að gera fólk farlama Úrval Finna má alls kyns jólalegan mat af hollari sortinni í Heilsuhúsinu. MORGUNBLAÐIÐ | 15 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ GEFÐU GÓÐAR STUNDIR Gjafakort í Þjóðleikhúsið hittir í mark - hjá öllum! LANGAR ÞIG AÐ GEFA EINSTAKA GJÖF SEM GLEÐUR ALLA? Gjafakort í Þjóðleikhúsið er gjöf sem fólkið þitt getur notið hvort sem það vill sjá óborganlegt gamanleikrit, íslenskt stórvirki, söngleik, meistaraverk leikbókmenntanna eða bráðfjöruga fjölskyldusýningu. Frábært úrval framúrskarandi leiksýninga! Sérstakur afsláttur ef keypt eru fleiri en 25 kort. Hringdu til okkar í síma 551 1200, komdu á Hverfisgötuna eða sendu okkur póst á dora@leikhusid.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.