Morgunblaðið - 11.11.2010, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ | 17
A
ð sögn Thelmu Jónsdóttur
hjá Endurmenntun Há-
skóla Íslands er gjafabréf
á námskeið jólagjöf sem
hentar mjög mörgum.
„Það finnst örugglega flestum gam-
an að læra eitthvað nýtt og fá mikið
út úr því að sitja áhugaverð og
spennandi námskeið. Oft hættir
fólki samt til að slá því á frest að
skrá sig á námskeið og gjafabréf
frá Endurmenntun getur verið það
sem þarf til að stíga fyrsta skrefið.“
Námsúrvalið hjá Endurmenntun
HÍ er með fjölbreyttasta móti og á
hverju misseri má velja úr um 100
námskeiðum. „Allir geta fundið eitt-
hvað við sitt hæfi, og rétt að árétta
að langflest námskeiðin eru öllum
opin og gera engar sérstakar kröf-
ur um fyrra nám og reynslu. Mig
grunar að sumir haldi ranglega að
þar sem við störfum undir merkjum
HÍ séu námskeiðin bara fyrir há-
skólamenntaða, en það er mikill
miskilningur. Námskeiðin okkar
henta öllum, óháð aldri og bak-
grunni,“ útskýrir Thelma.
Leikhús eða launamál
Meðal námskeiða er að finna úrval
tungumálanáms á ólíkum stigum,
lengri og styttri námskeið um
menningu, sögu og listir, sjálfs-
ræktarnámskeið og svo eru auðvit-
að starfstengdu námskeiðin á sínum
stað fyrir þá sem vilja standa betur
að vígi í starfi s.s. í rekstri,starfs-
mannahaldi eða öðrum fagtengdum
sviðum. „Eins og undanfarin miss-
eri verða hin vinsælu leik-
húsnámskeið á dagskrá á vormiss-
eri, en þau eru haldin í samstarfi
við Þjóðleikhúsið og Borgarleik-
húsið og rýnt í valdar leiksýningar.
Þátttakendur sitja þá fyrirlestra og
kíkja á æfingu þar sem leikstjóri,
höfundur eða fræðimaður fjallar um
verkið. Síðan er haldið á sýningu og
námskeiðinu lokið með umræðum,“
nefnir Thelma. „Í janúar höldum
við svo árvisst jólabókanámskeið og
að þessu sinni er það Yndislestur
með Einari Kárasyni, þar sem farið
er yfir valdar bækur úr jóla-
bókaflóðinu, þær lesnar og ræddar
fram og til baka. Að láta gjafabréf
á slíkt námskeið fylgja með góðri
bók held ég að sé afbragðsgóð jóla-
gjöf.“
Ráða valinu
Þeir sem gefa gjafabréf frá EHÍ
þurfa ekki að hafa af því áhyggjur
að verið sé að gera þiggjandanum
bjarnargreiða. Eðlilega stendur
misvel á hjá fólki og ekki hafa allir
tíma á öllum árstímum til að bregða
sér á fræðandi námskeið. „Gjafa-
bréfin þurfa ekki að vera bundin
við ákveðin námskeið heldur getur
gefandi gefið ákveðna upphæð og
gildir bréfið í eitt ár frá útgáfudegi.
Þiggjandinn getur þannig notað
gjöfina þegar hann vill og valið sér
nám sem hentar hans tíma og
áhugasviði.“
Algengt verð á styttri nám-
skeiðum er um 10.000 krónur en
verðið fer þó ávallt eftir lengd nám-
skeiðs. Gjafabréfið er síðan hægt að
nota rétt eins og reiðufé og þeir
sem eiga kost á endurgreiðslu hluta
námskeiðagjalda frá stéttarfélagi
geta nýtt þann styrk þó greitt sé
með gjafabréfi og fyrir vikið fengið
enn meira út úr gjöfinni.
ai@mbl.is
Gjöf sem gleður fróðleiksfúsa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framboð „Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Námskeiðin okkar henta öllum, óháð aldri og bakgrunni,“ segir Thelma.
Af hverju ekki að gefa
þekkingu í jólagjöf?
Thelma hjá Endur-
menntun HÍ segir gjafa-
bréf á námskeið vera
gjöf sem vit er í.
Námskeið hjá Endurmenntun get-
ur verið ómetanleg gjöf ef vel
tekst til, og opnað augu fyrir nýj-
um tækifærum og nýjum heimum.
„Við bjóðum m.a. upp á fjölda
sjálfsræktarnámskeiða sem
styrkja fólk á ýmsum sviðum. Síð-
asta ár eða svo hafa námskeiðin
Úr neista í nýja bók og Leikritun
t.d. verið ákaflega vinsæl en þar
eru á ferð námskeið sem draga
fram rithöfundinn í þátttakendum.
Það hefur sýnt sig að margir hafa
hugmynd að rit- eða leikverki í
kollinum, og nota námskeiðin til
að koma hugmyndum sínum á
blað og taka fyrstu skrefin í höf-
undarvinnunni.“
Fólk getur
blómstrað
Gaman getur verið fyrir starfs-
mannahópinn að fara saman á
námskeið og segir Thelma auðvelt
að koma til móts við séróskir og
skipuleggja t.d. stutt námskeið
sem tengst geta óvissuferð eða
árshátíð. „Ef leiðin liggur í sögu-
fræga sveit eða jafnvel til alda-
gamallar borgar í Evrópu er hægt
að nota þetta sem leið til að fræða
og skemmta, og um leið byggja
upp stemningu fyrir ferðina.“
Saman á
námskeið?