Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23
einstakt
eitthvað alveg
einstakar gjafir fyrir
einstök tækifæri
handa einstöku fólki
Skipholt 50A • sími: 581 4020
www.gallerilist.is
Sveitasæla Úti er kuldi, myrkur og brim en inni hum ar sem slær öllu við að margra mati. Allir réttir á matseðlinum eru gerðir frá grunni í eldhúsinu úr besta fáanlega sunnlenska hráefni.
M
örgum þykir hreinlega
gott að koma hingað
yfir hátíðirnar til að fá
tilbreytingu frá hinu
hefðbundna þunga og
saltaða jólaketi. Oft er fólk að fara í
mörg jólahlaðborð á aðventunni og
fagnar því, ef vinnuhópurinn fer t.d.
út að borða, að skipta hamborg-
arhryggnum og villibráðinni út fyr-
ir ljúffengan humar og hum-
arsúpu,“ segir Róbert Ólafsson á
veitingastaðnum Fjöruborðinu,
Stokkseyri.
Þessi jólin býður Fjöruborðið að
vanda upp á sín vinsælu gjafakort.
„Hægt er að velja um fjórar út-
færslur: við seljum gjafabréf upp á
5.000 og 10.000 kr og svo eru líka til
bréf sem nota má til að greiða fyrir
300 gr. humarveislu annars vegar
og hins vegar þriggja rétta matseð-
ilinn okkar.“
Kjörið fyrir bíltúrinn
Róbert segir um að gera að lauma
einu slíku gjafabréfi með í jóla-
gjafakörfur til starfsmanna og við-
skiptavina. „Margir velja að nota
kortin með vorinu, þegar þeir eiga
leið í sumarbústaðinn eða fara
Gullna hringinn. Svo er líka upp-
lifun út af fyrir sig að koma hingað
yfir vetrarmánuðina og skoða Suð-
urland í skammdegisrökkrinu,“ seg-
ir hann. „Það er annar blær yfir
staðnum á veturna en á sumrin.
Þessi notalega og heimilislega
stemning heldur sér, en kertaljósin
lýsa upp staðinn á meðan myrkrið
ríkir fyrir utan. Það er samt sama
hver árstíminn er, það er alltaf
gaman að koma hingað, með mak-
anum, fjölskyldunni, vinahópnum
eða vinnufélögunum.“
Bæði einstaklingar og hópar eru
velkomnir yfir hátíðirnar. „Við lát-
um samt alveg í friði að halda ein-
hvers konar sérstaka jóladagskrá
eða setja saman jólamatseðil. Frek-
ar lítum við svo á að Fjöruborðið
geti verið smá athvarf frá öllum
jólalátunum.“
ai@mbl.is
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Tilbreyting „Oft er fólk að fara í mörg jólahlaðborð og fagnar því að skipta
hamborgarhryggnum og villibráðinni út fyrir ljúffengan humar,“ segir Róbert.
Landsfrægur humarinn í Fjöruborðinu tilbreyting
frá jólahlaðborðunum. Upplifun er að heimsækja
Suðurland í vetrarmyrkrinu og margt um að vera.
Humar og
huggulegheit í
skammdeginu
Gaman er að heimsækja Suður-
land yfir hátíðarnar og margt
um að vera, hvort sem farinn er
menningarbíltúr um helgi eða
litið í messur á helgum dögum.
„Í kirkjunum fer fram mikið
kórastarf og tónlistardagskrá,
mörg söfnin og sýningarnar á
svæðinu eru opin og ýmislegt
hægt að gera sér til afþrey-
ingar,“ segir Róbert. „Síðan má
kaupa sunnlenskar kræsingar
og handverk t.d. í galleríinu við
hliðina á okkur og í sveitabúð-
inni Sóley hér rétt fyrir utan
Stokkseyri. Við kaupum sjálf
allt okkar hráafni af svæðinu,
frá kartöflunum í pottinum til
mjólkurvaranna sem við notum í
eftirréttabaksturinn.“
Menning-
arlíf og
kræsingar