Morgunblaðið - 11.11.2010, Qupperneq 24
24 | MORGUNBLAÐIÐ
Góðar gjafir sérhæfa sig í
jólagjöfum til starfsmanna
og viðskiptavina fyrirtækja.
Fyrirtækið leggur áherslu á
íslenskt góðgæti og íslenska
hönnun.
Við styðjum Fjölskylduhjálp Íslands.
Sjá nánar á godargjafir.is
Z
E
B
R
A
gjafir
góðar
Osta- og ljúfmetisverslun
Nóatúni 17 • Sími 551 8400 • www.burid.is
V
ín er óumdeilanlega sann-
kallaður hátíðardrykkur.
Að sögn Brands Sigfús-
sonar vínsérfræðings hjá
Karli K. Karlssyni er
það sjaldan sem vandlega valin
vínflaska er ekki vel þegin gjöf og
algengt að falleg flaska af góðu
víni fylgi með í jólagjöfum fyrir-
tækja. „Jólin eru tími góðra mál-
tíða í kærum félagsskap og þá er
það oft gott vín sem kórónar
máltíðina og gerir hana enn há-
tíðlegri.“
Léttu vínin besta valið
En ef gefa á vín er vissara að
skoða vel úrvalið og allrabest ef
hægt er að fá ráðgjöf sérfræð-
ings. „Oft er ekki sama hvern-
ig vín er gefið og yfirleitt
betri kostur að gefa t.d. létt-
ari vín en þau sterku. Koní-
ak og viskí er ekki endilega
besti drykkurinn með jóla-
körfunni,“ segir Brandur.
Ef hægt er, er auðvitað
best að vita hreinlega
hvernig vínsmekk þiggj-
andi gjafarinnar er með,
en annars er rétt að vín
sem fylgir t.d. með mat-
arkörfu taki mið af matn-
um og passi t.d. við ost-
ana eða kjötið. „Jafnvel
getur reynst auðveldara
að velja vínið fyrst, og
síðan matinn til að passa
við vínið,“ ráðleggur
Brandur. „Ef t.d. spænskt
vín verður fyrir valinu er
gaman að leyfa spænskum
skinkum og ostum að vera
ráðandi í körfunni enda er þar
á ferð samsetning sem smell-
passar.“
Rautt með rjúpunni?
Þó rauðvínið sé í jólalitnum
og upplagt með ostakörfu
er ekkert sem segir að
hvítvínið passi ekki vel
við hátíðamatinn. „Jafn-
vel má velja íslenskan
Ölvisholts-bjór í hátíð-
arumbúðum með mat-
argjöfinni,“ segir
Brandur. „Auðveldara
getur oft verið að velja
hvítvín með hamborg-
arhryggnum eins og til
dæmis Gewurztraminer
eða pinot gris frá Al-
sace“
Rétta hvítvínið getur
líka gengið vel með
hangikjötinu en rjúpan
er hins vegar ekki dæmigerður
hvítvínsfugl. „Hún er bæði við-
kvæm og bragðmikil og er þá gott
að skoða frekar kraftmeiri rauðvín
frá til dæmis Ribera del duero á
Spáni, eða þá jafnvel árgangs-
portvín sem geta oft hentað vel
með rjúpunni,“ útskýrir Brandur.
„Enn betra er síðan ef hægt er að
taka tillit til meðlætisins líka: hvað
fleira er á diskinum en kjötið og
hvernig sósa fylgir með. Sem
dæmi er rauðkál vinsælt með jóla-
matnum en sýran og sætleikinn í
því fer ekki jafnvel með öllum vín-
um.“
Vín þarf ekki að vera dýr gjöf,
og ef vandað er til við valið segir
Brandur hægt að finna mjög fram-
bærileg vín í öllum verðflokkum.
„Í körfurnar sem við útbúum höf-
um við það líka fyrir sið að láta
fylgja með til gamans og fræðslu
lítinn upplýsingabækling um vínið,
með texta um eiginleika þess,
samsetningu og uppruna.“
ai@mbl.is
Vínið verður að
fara vel með
matnum í körfunni
Ekki gengur að kasta til
hendinni þegar vínflaska
er valin í jólamatarkörf-
una. Hvítvín getur átt
vel við algenga jólarétti
og rjúpan kallar á alveg
sérstaklega vandaða
pörun.
Morgunblaðið/Kristinn
Þrúgnakrækir Brandur Sigurðsson segir vín ómissandi hluta af borðhaldinu um jólin á mörgum heimilum. Sumir jóla-
réttir kalla á mikla vandvirkni við vínvalið og þegar kemur að víni til gjafa þarf helst aðstoð fagmanns.
Pörun Vandasamt er að finna rétta vínið við suma jólarétti.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Í kringum vín er heilmikil
menning og margt
skemmtilegt víntengt
sem getur fylgt með í
gjöfinni. Mörg fyrirtæki
láta litla hönnunarmuni
t.d. fylgja með mat-
arkörfum og má þá
skoða valkosti eins og
vönduð vínglös, karöflur,
tappatogara og svokall-
aða vakúm-tappa sem
halda innihaldinu fersku
lengur eftir að korktapp-
inn hefur verið fjar-
lægður.
Fleira en
flöskur