Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 26

Morgunblaðið - 11.11.2010, Page 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ RABARBÍA Rabarbarakaramellur og tvær tegundir af sultum sem henta vel í körfur til gjafa. rabarbia@rabarbia.is - Sími. 893-5518 Skemmtileg gjöf sem gaman er að gefa Hreyfing er góð en langbest ef líkams- rækt helst í hendur við bætt mataræði og heilbrigðari lífsstíl. Sigrún leggur á það áherslu að vönduð fræðsla sé hluti af hvers kyns heilsuátaki og m.a. að farið sé vandlega í saumana á mat- aræðinu. „Í mörgum tilvikum skortir fólk einfaldlega þekkinguna á hvernig líkaminn vinnur úr matnum, og hvernig matarvenjur geta haft áhrif á hvort lík- aminn safnar fitu eður ei. Rétt leiðsögn og stuðningur er ómetanlegur ef mark- miðið er að komast á rétta braut í átt að auknu heilbrigði.“ Huga þarf að öllum þáttum Morgunblaðið/Golli Þegar vinnufélagar sameinast um heilsuátak getur það aukið aðhaldið og þar með árangurinn með mjög jákvæð- um hætti, og um leið bætt andann í starfsmannahópnum. Þó má ekki gleyma að líkamlegt ástand fólks er oft mjög misjafnt og áherslur og markmið innan starfsmannahópsins geta verið ólík. „Ef farið er af stað með hópátak er gott að byrja á að þjálfari eigi persónu- legt viðtal við hvern og einn og geri með honum áætlun. Í framhaldinu má t.d mynda minni hópa starfsmanna sem fást við ólíka hluti þjálfunarlega séð. Stundum þarf jafnvel ekki nema að fá þjálfara í heimsókn til að virða fyrir sér vinnustaðinn til að hann fái nokkuð glögga mynd af heilsufari starfsmanna og geti útbúið æfingaráætlanir sem höfða ættu til sem flestra.“ Fólk hefur ólíkar þarfir É g held að atburðir síðustu ára hafi orðið til að marg- ir áttuðu sig á hvað heils- an er verðmæt eign. Það má jú taka af okkur bíl- inn, húsið og aðrar veraldlegar eignir en heilsan skiptir mestu máli og verður ekki svo auðveld- lega af okkur tekin ef við hugsum vel um hana,“ segir Sigrún Kjart- ansdóttir framkvæmdastjóri Nor- dica Spa. Hópurinn tekur á því Að gefa betri heilsu er góð gjöf og hjá Nordica Spa eru ýmsar áhuga- verðar leiðir í boði. „Við vorum t.d. að ljúka 4 vikna sameiginlegu átaki þriggja vinnustaða í eigu sömu aðila. Í kringum 30-40 manns tóku þátt og átti sér stað bæði mæling, fræðsla og aðhald til viðbótar við sérsniðna æfingaáætl- un. Að meðaltali missti hópurinn um 4,5 kíló og 1,5% af fitu, en sá sem náði mestum árangri léttist um 12 kíló í átakinu,“ segir Sigrún en í umræddu tilviki greiddi vinnuveitandinn þátttökuna að fullu ef starfsmenn stunduðu átak- ið samviskusamlega og náðu sett- um markmiðum, en annars hlut- fallslega minna. „ Það var ótrúlega gaman að fylgjast með því hvernig liðsandinn í hópnum jókst sam- hliða aukinni vellíðan og árangri.“ Sigrún segir að hægt sé að fara margar ólíkar leiðir þegar gefa á heilsubót sem gjöf. Hægt er að gefa ýmiskonar aðgangskort, allt frá mánaðarkortum og upp í árs- kort. Einnig er hægt að greiða fyrir ákveðin námskeið og fyrir þjónustu einkaþjálfara. „Sniðug útfærsla getur verið að bjóða starfsmönnunum að koma í hóp- þjálfun til einkaþjálfara t.d. tvö til þrjú skipti í viku í ákveðinn tíma. Þetta er bæði hagkvæmari kostur en einkatímar og hefur einnig mjög hvetjandi áhrif ef starfs- menn stunda líkamsræktina sam- an. Svo eru í boði fjöldamörg nám- skeið sem henta mismunandi þörfum, t.d. ZUMBA fitness dans- leikfimi sem flestar konur hafa al- veg sérstaklega gaman af, spinn- ing, jóga, pilates og þrekhringir sem henta báðum kynjum en leggja meiri áherslu á þol og styrk.“ Áhrifin sjást Regluleg hreyfing hefur mikið að segja bæði fyrir líðan og afköst, og hvað þá ef einnig er tekið á mataræðinu. „Með því að hreyfa sig regulega og borða rétt breytist andleg og líkamleg líðan mikið til batnaðar, og margir held ég að vilji brjótast út úr vítahring slæms mataræðis og slens,“ áréttar Sig- rún og minnir á að allt geti þetta skilað sér inn á vinnustaðinn í bættum afköstum og starfsgleði. „Hreyfingin skapar vellíðan í kroppnum, hjálpar til við að vinna bug á streitu og getur jafnvel bægt frá ýmsum lífsstíls- sjúkdómum sem tengjast hreyf- ingarleysi og ofþyngd.“ Gjöf sem hvetur til hreyfingar og betri lífsstíls segir Sigrún mun betri kost en t.d. stóran konfekt- kassa eða matarkörfu og skilji líka miklu meira eftir sig. „Stóran hóp fólks held ég að vanti ekki nema þessa litlu hjálp til að komast yfir fyrsta hjallann og byrja. Það er svo auðvelt að slá því á frest að taka á heilsunni en það að fá heilsuátak að gjöf kemur fólki af stað, að ég tali nú ekki um ef vinnufélagarnir eru með.“ ai@mbl.is „Betri kostur en stór konfektkassi“ Það getur hjálpað fólki að komast af stað að fá líkamsræktarkort að gjöf eða einkaþjálfun. Ef starfsmannahópurinn þjálfar saman veitir það jákvætt aðhald. Bætt heilsa og betri líðan skil- ar sér inn á vinnustaðinn Morgunblaðið/Ernir Lífsstíll Sigrún Kjartansdóttir segir að með því að hreyfa sig regulega og borða rétt breytist andleg og líkamleg líðan mikið til batnaða. „Margir held ég að vilji brjótast út úr vítahring slæms mataræðis og slens.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.