Morgunblaðið - 15.11.2010, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Óraunhæfar hugmyndir
Forysta utanríkismálanefndar ósammála Ögmundi Jónassyni um ESB-viðræður
Árni Þór Sigurðsson segir ólýðræðislegt ef stjórnmálamenn taki ákveðin mál út úr
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þessar hugmyndir hafa heyrst áð-
ur. Þær eru algerlega óraunhæfar
og Ögmundur veit það,“ segir Árni
Þór Sigurðsson, þingmaður VG og
formaður utanríkismálanefndar Al-
þingis, um hugmyndir samflokks-
manns síns, Ögmundar Jónassonar
ráðherra, um að fá skjóta niður-
stöðu um tiltekin ágreiningsmál í
aðildarviðræðum við Evrópusam-
bandið og kjósa um málið.
Hugmyndirnar sem Ögmundur
kynnti í grein í Morgunblaðinu sl.
laugardag vekja heldur ekki hrifn-
ingu innan Samfylkingarinnar.
„Samningaviðræður ganga ekki
þannig fyrir sig að þú stillir fólki
upp við vegg og segir: Þetta vil ég
fá. Annaðhvort segið þið nei eða já,“
segir Valgerður Bjarnadóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar og vara-
formaður utanrík-
ismálanefndar.
Ögmundur
nefnir að aðlögun-
arferli og viðræð-
ur verði kostnað-
arsamar og
langvinnar. Val-
gerður hefur ekki
áhyggjur af því.
„Allir vita að það
tekur tíma að
semja um aðild að Evrópusamband-
inu. Enginn hefur sagt að það yrði
auðvelt og einfalt. Það þarf að fara í
hvern krók og kima. Ég veit vel að
það kostar en tel að í það sé pening-
unum vel varið,“ segir hún.
Árni Þór rifjar upp að margir hafi
lagt áherslu á að málið yrði í lýð-
ræðislegu ferli og þjóðin fengi að
ráða því til lykta. „Það kemur á
óvart ef hinir sömu vilja núna grípa
inn í þetta lýðræðislega ferli og vilja
útkljá ferlið á grunni samninga um
ákveðna kafla,“ segir Árni Þór.
Hann nefnir að misjafnt sé hvaða
mál fólk beri mest fyrir brjósti.
„Sumir láta afstöðu sína til sjávarút-
vegsmála ráða mestu, eða til land-
búnaðar og enn aðrir horfa á málið
út frá allt öðru sjónarhorni. Það
væri ólýðræðislegt ef stjórnmála-
menn tækju sér fyrir hendur að
ákveða hvaða kaflar ættu að ráða
úrslitum.“
Árni Þór
Sigurðsson
Valgerður
Bjarnadóttir
Ögmundur
Jónasson
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins (AGS), sem verið hefur
hér á landi síðustu vikur og rætt
við íslensk stjórnvöld í tengslum
við fjórðu endurskoðun á efnahags-
áætlun Íslands, hefur lokið störfum
sínum. Í tilkynningu frá AGS segir
að auk stjórnvalda hafi sendinefnd-
in meðal annars rætt við háttsetta
embættismenn, þingmenn, fræði-
menn og fulltrúa einkafyrirtækja
og verkalýðsfélaga.
Fram kemur í yfirlýsingu frá Ju-
lie Kozack, formanni sendinefndar
AGS, að sjóðurinn þurfi lengri tíma
til þess að leggja mat á áhrif þeirra
tillagna sem komið hafi fram vegna
skuldavanda fyrirtækja og heimila
hér á landi.
Hægari hagvöxtur
Segir Kozack, að íslenska hag-
kerfið þróist áfram í rétta átt eftir
hrunið og sú þróun sé studd af
efnahagsáætluninni. Áfram dragi
úr verðbólgu og afgangur sé af
vöruskiptum. Hagvöxtur aukist
hægum skrefum og búist sé við að
hann taki betur við sér á næsta ári
þótt vöxturinn sé heldur hægari en
áður var áætlað vegna tafa í fjár-
festingarverkefnum.
Niðurstaða fáist um skuldir
Þá kemur fram að miklu skipti
fyrir efnahagsbatann að niðurstaða
fáist í endurskipulagningu skulda
heimila og fyrirtækja innan þeirra
marka sem fjárhagur ríkissjóðs
leyfi. Áfram sé unnið að endur-
skipulagningu fjármálakerfisins en
svo virðist sem áhrif dóma Hæsta-
réttar um gengisbundin lán í júní
og september muni verða óveru-
leg.
Tafir í fjárfestingum
Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur lokið störfum
sínum hér á landi Segir hagkerfið að þróast í réttar áttir
Hvalaskoðun Reykjavíkur býður hvalaskoðun yf-
ir veturinn, þegar veður leyfir. Þegar kalt er í
veðri fá gestirnir lánaða kuldagalla og geta svo
keypt sér kaffi eða aðra heita drykki um borð.
Hvalaskoðun Reykjavíkur gerir út bátana
Hafsúluna og Eldingu frá Ægisgarði. Fyrir
tveimur árum var byrjað að bjóða þjónustuna yf-
ir vetrartímann. Yfir háveturinn eru ferðir um
helgar, þegar veður leyfir.
„Það er mikil eftirspurn eftir þessari þjónustu
hjá þeim ferðamönnum sem koma til landsins.
Þótt færri séu yfir kaldasta tímann hefur þeim
verið að fjölga. Við höfum séð sóknarfæri í því
og viljað nýta okkur þau,“ segir Eva María Þór-
arinsdóttir, markaðsstjóri fyrirtækisins.
Eva María segir að hvalir séu hér allan vet-
urinn. Alltaf sé hægt að skoða höfrunga, þegar
skyggni er gott, en stundum háhyrninga og jafn-
vel hnúfubaka sem gestirnir hafi mestan áhuga
á. Hrefnur eru enn á svæðinu en færa sig yfir-
leitt suður á bóginn á þessum árstíma.
Hún segir að ekki sé farið nema veður sé gott
og fólkið geti notið ferðarinnar. Mörgum ferðum
er því aflýst í svartasta skammdeginu.
Í gær fóru yfir fimmtíu manns með Hafsúl-
unni. Það var eina ferðin um helgina en um síð-
ustu helgi voru farnar þrjár ferðir. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Boðið upp á ferðir í hvalaskoðun allt árið Tilkynnt var um neyðarblys í ná-grenni Húsavíkur um sexleytið í
gærkvöldi. Björgunarsveitum á
svæðinu var gert viðvart og hófu
þær strax leit og var þyrla Land-
helgisgæslunnar einnig send norð-
ur. Gott skyggni var til leitar en
hún bar engu að síður ekki árang-
ur. Haft var samband við þau skip
sem vitað var um á svæðinu en ekk-
ert amaði að hjá þeim.
hjorturjg@mbl.is
Morgunblaðið/Kristján
Flug Þyrla Landhelgisgæslunnar.
Neyðarblys í ná-
grenni Húsavíkur
Eins og sést á þessari gervitunglamynd var Ísland snævi þakið að nær öllu
leyti um miðjan dag í gær. Gert er ráð fyrir hægri suðlægri átt í dag á land-
inu og stöku éljum vestast og við suðurströndina og talsverðu frosti.
Gervihnattamynd
Ísland í vetrarbúningi
Sveitarstjórn Mýrdalshrepps hefur
samþykkt að breyta tillögu að um-
deildu aðalskipulagi, í samræmi við
úrskurð umhverfisráðherra sem
hafnaði færslu hringvegarins. Fyrir
liggur að sveitarstjórn vill eigi að
síður flytja veginn.
Lengi hefur verið unnið að gerð
nýs aðalskipulags fyrir Mýrdals-
hrepp. Umhverfisráðuneytið synjaði
staðfestingu þess í síðasta mánuði
vegna formgalla við ákvörðun um
færslu hringvegarins frá núverandi
stað niður að sjó. Boðið var upp á
staðfestingu skipulagsins að öðru
leyti og því boði er sveitarstjórn að
taka. Jafnframt er ljóst að núver-
andi sveitarstjórn vill eigi að síður
færa veginn og hefur hún samþykkt
að hefja undirbúning að endur-
skoðun skipulagsins. helgi@mbl.is
Gefa eftir
veginn
um sinn
Skipulagi breytt
Lögreglunni var tilkynnt um tvö
innbrot aðfaranótt sunnudags.
Brotist var inn í íbúðarhúsnæði í
miðborg Reykjavíkur og þaðan
stálu þjófarnir skjá, reiðhjóli,
áfengi, tóbaki og nokkrum raf-
magnstækjum. Innbrotsþjófarnir
brutu rúðu til að komast inn.
Þá var brotist inn í bifreið í
Garðabæ. Farangursgeymsla bif-
reiðarinnar var spennt upp og
aukahlutum fyrir mótorhjól stolið
þaðan.
Bæði málin eru í rannsókn að
sögn lögreglu.
Tvö innbrot í Reykja-
vík tilkynnt lögreglu