Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 Aðeins tvær almennar sýn- ingar verða á mynd Ragnheið- ar Gestsdóttur um sýningu Ragnars Kjartanssonar á Fen- eyjatvíæringnum á síðasta ári. Ekki er um eiginlega heimild- armynd að ræða. Í þremur heimsóknum Ragnheiðar á sýninguna í Feneyjum tók hún upp portrett af Ragnari á 16 mm filmu og skapaði sitt eigið listaverk úr gjörningi Ragnars. Verkið vísar til nokkurra þekktra verka úr kvik- myndasögunni sem hafa verið tekin í þessari sökkvandi borg. Aðeins tvær almennar sýningar verða á myndinni, núna á þriðjudaginn og fimmtu- daginn. Kvikmyndalist Listrænt filmport- rett í Bíó Paradís Ragnar Kjartansson Kór Langholtskirkju heldur tónleika á degi heilagrar Sess- elju, verndara tólistarinnar, sunnudaginn 21. nóvember kl. 20 í Langholtskirkju. Megin- verk tónleikanna er eftir bandaríska tónskáldið Eric Whitacre (f. 1970) en kórverk hans hafa verið afar vinsæl meðal bestu kóra heimsins. Verkið sem kórinn flytur er When David heard og er við texta úr annarri Samúelsbók. Verkið er um fimm- tán mínútur og sungið án undirleiks og að sögn nokkuð áhrifamikið. Einnig verða flutt verk eftir nokkur höfuðtónskáld kirkjutónlistar á Norður- löndum og víðar. Tónlist Tónleikar kórs Langholtskirkju Kór Langholts- kirkju. Á degi íslenskrar tungu, þriðjudaginn 16. nóvember, heldur Íslenski sönglistahóp- urinn sína fyrstu tónleika í ís- lensku óperunni og flytur tón- list Jóns Þórarinssonar og Tryggva Baldvinssonar. Á tón- leikunum munu hljóma lög við ljóð eftir Halldór Laxness og Jóhann Sigurjónsson en kvæði hans Sofðu unga ástin mín, sem hann hafði í leikverki sínu um Fjalla Eyvind er enn sungið fyrir börn á leik- skólum þótt það sé hátt í hundrað ára gamalt. Einnig verða sungin ljóð eftir samtímaskáld eins og Þórarinn Eldjárn og Matthías Johannessen og fleiri. Sönglistahópurinn Lög við ljóð á degi íslenskrar tungu Þórarinn Eldjárn Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Þóra biskups og raunir íslenskrar embættis- mannastéttar er ævisaga Þóru Pétursdóttur eftir Sigrúnu Pálsdóttur. Þóra fæddist árið 1847 og lést árið 1917. Hún var dóttir Péturs Péturs- sonar biskups og eiginkona Þorvaldar Thorodd- sen náttúrufræðings, og skildi eftir sig gríðar- lega mikið af bréfum og dagbókarfærslum sem Sigrún nýtti sér vandlega við gerð ævisögunnar. Ekki hefðbundin kvenhetja „Þóra er ekki hin hefðbundna kvenhetja Ís- landssögunnar, hvorki skáld né baráttukona fyrir réttindum kvenna, en hún skrifaði hins vegar bréf og dagbækur, sem eru einstakar sögulegar heimildir,“ segir Sigrún. „Stíll hennar er hispurs- laus og Þóra lýsir aðstæðum og atburðum mjög nákvæmlega með sviðsetningum og samtölum. Þetta er að mínu viti hin raunverulega arfleifð Þóru og sérstaða í Íslandsögunni, ekki mynd- listin, hannyrðirnar eða félagsstörfin.“ Þóra var af góðum ættum og naut þeirra for- réttinda sem því fylgdu, en var hún á einhvern hátt læst inni í samtíma sínum? „Aðstæður henn- ar gerðu henni kleift að ferðast og mennta sig en samfélagið setti henni þó skorður að því leyti að hún varð að finna sér maka af sömu stétt og þar var framboðið minna en eftirspurnin því karl- menn gátu gifst „niður fyrir sig“, segir Sigrún. „Leið Þóru út úr þessari klemmu var að koma sér burt og reyna að finna sér útlendan mann.“ Þóra giftist seint en hamingjusamlega, Þor- valdi Thoroddsen. „Einhverjir karlar höfðu nú reyndar efasemdir um það en ég held að bókin sýni að þau hafi elskað hvort annað,“ segir Sig- rún. „Og þó að ég hafi nú meiri áhuga á Þóru og bréfum hennar áður en hún giftist Þorvaldi eru bréfaskipti þeirra mjög dýrmætar heimildir sem draga skýrt fram hvernig persónuleiki Þóru tek- ur breytingum og hvernig hún virðist hafa áhrif á hans eigin tjáningu í bréfum.“ Fræðileg opinberun En hvernig kynntist Sigrún Þóru fyrst? „Þeg- ar ég var tvítug á fyrsta ári í sagnfræði í Há- skóla Íslands fékk ég það verkefni að greina bréf, tímasetja það og staðsetja. Vísbendingar voru um að bréfið væri skrifað á 19. öld, en þó fannst mér sem stíllinn passaði ekki við þá mynd sem ég hafði af tímabilinu því orðalagið var kæruleysislegt og tóninn svolítið framhleypinn. Ég varð eiginlega fyrir fræðilegri opinberun að uppgötva þetta misræmi milli þess sem ég hafði haldið og þess sem var. Ég skrifaði síðan fræði- grein um þessa „upplifun“ mína, hvernig áhugi okkar á viðfangsefnum sögunnar kviknar og þróast. Mörgum árum síðar fór ég að rannsaka þetta stóra bréfasafn Þóru og komst að því að þetta bréf var bara toppurinn á ísjakanum. Ég vann í þessu bréfasafni í nokkur ár og í lok hvers vinnudags var ég alltaf jafn undrandi á því sem ég las. Líklega er efnið í öllum söfnunum samtals um 30.000 handritasíður og þar eru konur í aðal- hlutverki. Mikill fjársjóður og þar er margt sem á eftir að rannsaka.“ Nýtt ljós á Ísland 19. aldar Þegar Sigrún er spurð hvernig hún hafi unnið bókina segir hún: „Þegar ég fór að skoða bréfin sá ég strax að það var engin þörf fyrir sviðsetn- ingar eða uppspunnin samtöl eins og margir ævi- sagnaritarar hafa þurft að grípa til í þeim til- gangi að ná markmiðum sínum. Allt þetta var til staðar í heimildunum og ég áttaði mig á því að ég gæti skrifað bók sem hefði eiginleika skáld- skapar en væri þó kirfilega reist á heimildum frá upphafi til enda. Besta leiðin til að koma þessu andrúmslofti bréfanna til skila var að reyna að rjúfa ekki frásögnina með fræðilegum útlegg- ingum. Ég var líka staðráðin í að reyna ekki að koma öllu til skila heldur halda mig við einn vel afmarkaðan þráð. Að baki frekar þéttri og ein- faldri frásögninni býr því sterk fræðileg sann- færing. Og þó að einhverjum gæti virst að hér væri á ferðinni lítil og sæt saga um ástir og örlög þá segi ég hiklaust að þessi saga varpar nýju ljósi á Ísland á 19. öld, ekki bara hversdagslíf ís- lenskra embættismanna, heldur líka stærri þætti eins og sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, ímynd þjóðarinnar og sjálfsímynd. Það er mikil gæfa að hafa fengið tækifæri til að fara í gegnum þessi ótrúlegu gögn en ef fólk hefur gaman af þessari bók þá á Þóra þar líka stærsta heiðurinn.“ Morgunblaðið/RAX Sigrún „Og þó að einhverjum gæti virst að hér væri á ferðinni lítil og sæt saga um ástir og örlög þá segi ég hiklaust að þessi saga varpar nýju ljósi á Ísland á 19. öld, ekki bara hversdagslíf íslenskra embættismanna, heldur líka stærri þætti eins og sjálfstæðisbaráttu Íslendinga, ímynd þjóðarinnar og sjálfsímynd.“ Tjáning Þóru biskups  Sterk fræðileg sannfæring að baki frásögninni, segir höfundurinn Landsvirkjun, HS-veitur hf., Rio Tinto Alcan, Mosfellsbær og Sel- tjarnarnesbær hafa fjármagnað samanlagt 18 sýningar á Bláa gull- inu og bjóða nú 4. og 5. bekkingum frá höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi í leikhús að sjá Bláa gullið, en leikhópurinn Opið út setti það upp í samstarfi við Borg- arleikhúsið. Sýningin, sem Char- lotte Bøving leikstýrir, var frum- sýnd í fyrra og fékk mjög jákvæða gagnrýni í flestum fjölmiðlum og var þess sérstaklega getið hvað sýningin er upplýsandi fyrir krakkana. Um sýninguna segir í fréttatilkynningu; „Bláa gullið fjallar um margbreytileika vatns- ins. Sýningin hefur það að mark- miði að áhorfendur sjái vatn í nýju ljósi; upplifi margbreytileika, mik- ilvægi og töfra bláa gullsins. Þrír trúðar leiða áhorfendur um sögu- svið vatnsins sem hefur verið á stöðugu ferðalagi um jörðina í ár- þúsundir; undir og á yfirborði hennar, í öllu lífverum og um him- ingeiminn. Trúðarnir varpa fram ýmsum spurningum um eðli og uppruna vatnsins á fræðandi en trúðslegan hátt! Sýningin er fræð- andi og forvitnileg fyrir pælandi unglinga – en fyrst og fremst bráð- skemmtileg trúðasýning fyrir alla fjölskylduna.“ 3.600 börn streyma nú í Borgarleikhúsið en sýningum á verkinu lýkur á föstudaginn. 3.600 börn í Borgar- leikhúsið  Bláa gullið er aft- ur komið á fjalirnar Trúðarnir þrír fræða krakkana. Svo virðist sem of- gnóttin hafi leyst mikinn sköpunarkraft úr læðingi við komu Errós til Bandaríkjanna...25 » Bókasafn Kópa- vogs mun bjóða upp á fyrirlestur um Njálu á Degi íslenskrar tungu hinn 16. nóvem- ber. Bjarni E. Sigurðsson flytur erindið og nefnir hann það Gunnar Hámundarson, ástir hans og örlög. Sýning hefur verið opnuð á verkum Þórhildar Jónsdóttur í tengslum við fyrirlest- urinn. Þar eru sýndar andlitsmyndir af persónum úr Njálu sem hún hefur teiknað á tölvutengdu teikniborði. Erindið hefst klukkan 17.15 og með spurningum og umræðum mun það taka um eina klukkustund. Njála kemur í Kópavoginn Maður úr Njálu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.