Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 Amma okkar, langamma og langalangamma, HELGA SKAFTFELD frá Blómsturvöllum í Garði, lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð, Grindavík, miðvikudaginn 10. nóvember. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 19. nóvember kl.13.00. Agnar Sigurbjörnsson, Jórunn Valsdóttir, Páll Sigurbjörnsson, Helgi Þór Sigurbjörnsson, Árdís Hrönn Jónsdóttir, langömmubörn og langalangömmubörn. ✝ DraupnirHauksson fædd- ist í Vestmanna- eyjum 4. september 1963. Hann lést af slysförum 23. októ- ber síðastliðinn. Foreldrar hans voru Halldóra Ár- mannsdóttir, f. 8. desember 1935, og Haukur Þór Guð- mundsson, f. 5. júní 1926, d. 27. ágúst 1988. Þau skildu 1973. Seinni maður Halldóru er Snorri Snorrason, f. 10. september 1928. Systkini Draupnis eru 1)Guðmar Þór, f. 22. júní 1955, búsettur í Danmörku. 2) Ármann, f. 3. september 1956, búsettur í Reykjavík. 3) Elín, f. 2. f. 10. apríl 1987, hárgreiðslu- meistari, sonur hennar er Mikael Aron Hildarson, f. 28. apríl 2010. 2) Dagný Lind Draupnisdóttir, f. 9. júlí 1993, nemi í Fjölbrauta- skóla Suðurnesja. Draupnir fluttist með for- eldrum sínum frá Vestmanna- eyjum í kjölfar eldgossins 1973. Fluttust þau til Grindavíkur þar sem þau bjuggu um skamma hríð. Foreldrar hans slitu samvistum og fluttist hann með móður sinni á Selfoss en faðir hans fór aftur til Eyja. Draupnir fluttist til Sand- gerðis 1981 en síðustu 12 árin bjó hann í Keflavík. Hann vann ýmis störf, m.a. við fiskvinnslu. Þá var hann um tíma til sjós, hann starf- aði á Keflavíkurflugvelli og síðast hjá Braga Guðmundssyni við húsasmíðar. Síðustu 11 árin stundaði hann ekki vinnu sökum umferðarslyss sem hann lenti í. Útför Draupnis hefur farið fram í kyrrþey. júní 1958, búsett á Selfossi. Eig- inmaður hennar er Guðlaugur Að- alsteinn Stefánsson, f. 9. júlí 1951. Dóttir þeirra er Eydís Eva Guðlaugsdótir, f. 29. ágúst 1995. 4) Magni Freyr, f. 12. ágúst 1964, búsett- ur í Vestmanna- eyjum. Dóttir hans er Helga Dóra Magnadóttir, f. 8. maí 1984, og á hún eina dóttur. Draupnir kvæntist 27. júní 1987 Fanneyju Friðriksdóttur, f. 7. nóvember 1964. Þau skildu 1998 en saman eignuðust þau 2 dætur; 1) Hildur Mekkín Draupnisdóttir, Elsku pabbi minn, ég trúi því ekki enn að þú sért farinn frá mér. Engin orð fá því lýst hvað ég elska þig mikið. Ég veit að þú varst ekki fullkominn, en mér fannst það nánast. Þú hefur alltaf verið og munt alltaf vera hetjan mín. Ég man þegar ég var lítil og kom til þín, þá vildu vinkonur mínar yfirleitt koma með, það var aldrei leiðinlegt að vera í kringum þig, þú varst algjör brandarakarl, með mjög sérstakan húmor, og á hverjum degi fékk ég að heyra nýjan brandara eða velta fyrir mér nýrri gátu sem þú lagðir fyrir mig. Þú fórst stundum með mig og vin- konur mínar í smárúnt, þá tókum við nesti með okkur og landabréfabók, keyrðum svo alltaf á einhvern stað sem var hægt að setjast niður, borða og leika sér. Á meðan þú keyrðir bíl- inn á malarveginum fengum við stelp- urnar að sitja í skottinu, okkur fannst það alltaf ótrúlega gaman. Þú varst líka mjög oft úti í bílskúr að dunda þér eitthvað, þú varst rosa- lega flinkur í höndunum og bjóst til allskonar hluti eða lagaðir eitthvað sem var ónýtt, ég var oft með þér úti í bílskúr að hjálpa til, rétta þér hitt og þetta, og svo lagaði ég til fyrir þig þegar þú varst búinn að ata allt út. Þú varst líka rosalega hjálpsamur, þú vildir hjálpa öllum, þótt það væri ekki alltaf hægt. Þú vildir allt fyrir mig gera. Seinustu mánuði kíkti ég oft til þín þegar þú varst edrú, og alltaf þegar mér leið illa var gott að leita til þín, ég gat talað við þig um allt, og sama hvað ég vældi og tautaði mikið í þér fékkstu aldrei leið á að hlusta á mig, ef ég átti erfitt þá ráðlagðir þú mér hvað ég ætti að gera. Þú dæmdir mig aldrei fyrir eitt- hvað sem ég gerði, eitt af seinustu skiptunum sem ég hitti þig varstu með viskíglas í hendinni og við sátum saman í þögninni, og sögðum ekki neitt, það var eins og við þyrftum þess ekki. Lífið var þér mjög erfitt seinustu árin og mér líka, og ég lifði í þeirri von að þú myndir finna réttu brautina og saman gætum við átt gott líf. Elsku pabbi minn, ég sakna þín svo óendanlega mikið, gæfi allt til að sjá þig aftur, vona að þú sért á betri stað núna. Þín dóttir, Dagný Lind. Ég drúpi höfði í bljúgri bæn. Sorg- in er svo sár og mikil og það er svo mikill þungi í hjarta mínu þegar ég hugsa til þín og minningarnar hellast yfir mig. Elsku Draupnir minn, þú fórst allt- of fljótt, þú varst yndislegur bróðir, alltaf hress, ljúfur, hægur, dulur og með þennan sérstaka húmor. Hér áður hafðirðu mikið gaman af ættfræði og grúskaðir mikið í henni. Ég fékk að njóta þess því í dag á ég dýrmætt safn um ættina hans pabba. Janúar 2000. Það dimmir yfir. Þú lendir í hræðilegu bílslysi á Reykja- nesbrautinni og þú varst aldrei samur eftir það. Þú varðst fyrir miklu höggi í framheila og fékkst oft miklar höf- uðkvalir sem engin meðul voru við því þær verkjatöflur sem þú fékkst linuðu ekki kvalir þínar. Þú kvaldist því oft miklu meira en við gerðum okkur grein fyrir. Enda varst þú ekki að kvarta yfir þessu, svona var þetta bara. Það er komið að leiðarlokum. Ég bið algóðan guð að leiða og styrkja dætur þínar, Hildi Mekkín og Dag- nýju Lind, í sorginni. Mömmu fyrir að vera búin að missa son sinn og okkur hina. Ég kveiki á kerti, loka augun- um, tárin falla og ég sendi þér kveðju í hljóði og segi: „I love you“ eins og þú sagðir svo oft við mig. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra Við hin sem lifum, lifum í trú að ljósið bjarta, skæra veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei skal ég þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens) Góða nótt og hvíl þú í friði, elsku Draupnir minn. Þín systir, Elín Hauks. Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðar kraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (S. Egilsson) Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson) Elsku bróðir. Það hvarflaði ekki að mér, þegar ég kvaddi þig í síma fyrir nokkru, að við myndum ekki heyrast aftur í þessu jarðlífi. Þitt sviplega andlát kom þó okkur sem stóðum þér næst engan veginn á óvart. Þú lentir í miklu bílslysi fyrir nokkrum árum og varst aldrei sami maður eftir. Þær urðu ekki margar samveru- stundirnar sem við áttum eftir að ég flutti til Danmerkur en því fleiri urðu símtölin á milli landanna. Í hvert sinn sem ég kom til lands- ins tókst þú á móti mér með bros á vör, tilbúinn að aka mér hingað og þangað. Við áttum alltaf góð sam- skipti enda varst þú ljúfur og góður drengur. Hin síðustu ár reyndust þér erfið vegna veikinda og það var sárt að fylgjast með þrautagöngu þinni en það besta sem þú áttir voru þínar yndislegu dætur, sem alla tíð fylgdust með þér. Ég gleymi ekki þegar þú hringdir í mig fyrr á þessu ári til að tilkynna mér þau gleðilegu tíðindi að þú varst orðinn afi, svo stoltur og gleðin leyndi sér ekki í röddinni. Elsku Draupnir minn. Þakka þér fyrir allt, þína tryggð og vináttu öll þessi ár. Guð geymi þig. Hvíl í friði. Guðmar Þór. Elsku frændi. Nú ert þú dáinn og lifir ekki lengur. En það er bara svona eins og gengur. Ég vona að allt gangi í haginn hjá þér. Og vona að þú munir eftir mér. Skilaðu kveðju til allra hinna. Góðu verkunum þarf að sinna. Vaktu yfir mér alla tíð, þín hönd yfir mér og röddin blíð. Ég býð þér góða nótt, sofðu þínum svefni rótt. Þín (litla) frænka, Eydís Eva Guðlaugsdóttir. Draupnir Hauksson HINSTA KVEÐJA Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðj- um þín veröld er björt á ný. (Þórunn Sigurðardóttir) Guðlaugur A. Stefánsson. Um miðjan níunda áratug síðustu aldar tók Háskóli Íslands í notkun nýja byggingu, sem hlaut nafnið Oddi. Byggingin hýsti félagsvísindamenn sem áður höfðu verið á mörgum stöðum; þar voru m.a. bókasafns- fræðingar, félagsfræðingar, hag- fræðingar, sálfræðingar, stjórn- málafræðingar, uppeldis- og menntunarfræðingar og viðskipta- fræðingar. Kaffistofan á 2. hæð í Odda varð strax einkar líflegur vett- vangur samræðna og skoðanaskipta. Menn voru svo sannarlega ekki allt- af á einu máli. Einn í þessum hópi var ekki fræð- ingur í þeim skilningi að hann hefði háskólapróf í vísindum. Á hann var samt alltaf hlustað af mikilli athygli og áhuga, þó aldrei brýndi hann róminn. Þessi maður var fyrsti hús- vörðurinn í Odda, Jón Kristjánsson, bóndi norðan úr Þingeyjarsýslu sem við vissum að var náskyldur Jónasi frá Hriflu – og var nú fluttur á möl- ina. Hófsemi, skynsemi, yfirvegun og hlýja einkenndi manninn, sem auk þess hafði mikla og fágaða kímnigáfu. Betra kompaní á kaffi- stofu er vandfundið. Að mörgu er að hyggja þegar menn úr ólíkum áttum koma sér fyr- ir í nýrri byggingu og ýmislegt getur orðið mönnum að ágreiningsefni. Jón Kristjánsson sinnti öllum með hægðinni – enda var hann fádæma vinsæll meðal Oddaverja. Kannski var það eini hluturinn sem þeir voru alveg sammála um; að betri félagi en Jón væri vandfundinn. Ég minnist samvistanna við Jón með miklu þakklæti – og man m.a. eftir fallegri tölu sem hann hélt yfir mér fertugum fyrir margt löngu. Hann gat kennt okkur fræðingunum margt. Ég veit að gamlir Oddaverjar minnast hans allir með virðingu og þökk. Blessuð sé minning hans. Ólafur Þ. Harðarson, forseti Félagsvísindasviðs Háskóla Íslands. Í ársbyrjun 1985 var glæsileg ný- bygging, sem hlaut nafnið Oddi, tilbúin til notkunar á lóð Háskóla Ís- lands. Þangað inn fluttust kennarar í félagsvísindum sem lengi höfðu ver- ið vistaðir í ýmsum húsakynnum á ólíkum stöðum í Vesturbænum. Nokkuð jafnsnemma og Oddi var tekinn í notkun birtist á göngum hússins grannvaxinn, dálítið veður- barinn maður, athugull á svip, stundum svolítið kíminn, fumlaus í öllum háttum og bar með sér ára- tuga reynslu af fjölbreyttum störf- um. Hann tók íbúa hússins tali að fyrra bragði, heilsaði með öruggu handtaki og kynnti sig: Jón Krist- jánsson frá Fremstafelli. Hér var kominn húsvörður þessa fallega húss og í minningunni verður hann Jón Kristjánsson ✝ Jón Kristjánssonfæddist 18. sept- ember 1921. Hann lést á Hjúkrunar- heimilinu Grund 5. nóvember 2010. Útför Jóns fór fram frá Þorgeirskirkju á Ljósavatni 13. nóv- ember sl. að eins konar tákni eða samnefnara þess góða anda og birtu sem ríkti í húsinu og hefur fylgt því æ síð- an. Jón Kristjánsson var ætíð nálægur þeg- ar hans þurfti við, yf- irvegaður og úrræða- góður. Hann vann hugi og hjörtu bæði karla og kvenna, hafði ævinlega skarplegar athugasemdir á tak- teinum enda hafði hann ríkan áhuga á málefnum lands og þjóðar svo sem hann átti kyn til. Skapmaður var Jón Kristjánsson, það duldist engum, en engum sögum fer af því að hann hafi skipt skapi þótt stundum hafi orðið einhver atvik í húsinu, sem tilefni gátu gefið til slíks. Jón átti að baki langa starfsævi á öðrum vettvangi þegar hann kom til okkar í Odda og var því kominn yfir miðjan aldur þegar hann tók við hús- vörslunni. Þennan tæpa áratug, sem hann starfaði með okkur nutum við samviskusemi hans og hlýs viðmóts ásamt umhyggju fyrir bæði fólki og dauðum hlutum. Andinn sem hann átti svo mikinn þátt í að skapa hefur fylgt eftirmönnum hans í húsvarð- arstarfinu og segir mér svo hugur að upprunalegir íbúar Odda, sem enn eru þar við störf, hafi borið þessa menn saman í huganum og hugsað með sér að það sé lán Oddaverja að þar taki einn öðlingur við af öðrum. Á góðum stundum var Jón Krist- jánsson hrókur alls fagnaðar, sannur gleðimaður; þess nutu Oddaverjar. Og þeir sem hafa verið svo lánsamir að lenda í gleðskap með honum og systkinum hans rifja þær stundir upp með fögnuði meðan vit og ævi endist. Eftir að Jón lét af störfum leit hann stundum við í kaffistofunni í Odda og varð ævinlega fagnaðar- fundur. Þessum heimsóknum fækk- aði þegar árin liðu og nú hefur þessi ljúfi Þingeyingur kvatt fyrir fullt og allt. Honum fylgja þakkir okkar allra. Hvíli hann í friði. Þorbjörn Broddason. Jón Kristjánsson var húsvörður í Odda þegar fundum okkar bar fyrst saman, þeirri byggingu Háskóla Ís- lands sem hýsti Viðskipta- og Hag- fræðideild auk Félagsvísindadeildar. Þar var til húsa rjóminn af hagspek- ingum þjóðarinnar. Einhverju sinni bar það við sem oftar, að landsmenn áttu í miklum fjárhagsörðugleikum svo stappaði nærri að lokaðist fyrir lántökur vor- ar erlendis. Urðu margir hagfróðir Oddaverjar til þess að tjá sig um þetta ástand í fjölmiðlum. Mér er minnisstætt þegar þetta stóð yfir, þá hitti ég Jón og hann sagði við mig: „Það ætla ég að vona, Guðmundur minn, að þetta verði til þess að þeir hætti að lána okkur og hafi þannig vit fyrir okkur“. Þá varð mér ljóst að hann var mestur hagfræðingur í húsinu. Þannig var Jón, á sinn ljúfa og hægláta hátt gat hann oft komist að dýpri rökum en blessaðir fræði- mennirnir í húsinu, sem hann þjón- aði. Það var oftast létt yfir honum, gamansöm tilsvör og sögur leystu oft upp þrútið andrúmsloft þegar hinir fúlustu fræðimenn deildu. Maður þurfti ekki annað en sjá Jón, þá létti heldur yfir. Það fór svo að við urðum mestu mátar, ekki síst vegna margra sem við þekktum báðir. Þar á meðal var Jónas á Hriflu, en Jón hafði oftlega verið bílstjóri hjá hon- um síðari ár Jónasar. Sagði hann mér margar sögur af Jónasi og öðr- um Þingeyingum, margar ákaflega gamansamar. Þegar hann nú kveður stendur eftir minningin um ljúfan öðling og þakklæti fyrir að hafa fengið að kynnast honum. Eiginkonu og að- standendum flyt ég samúðarkveðj- ur. Guðmundur Ólafsson. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5- 15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útför- in fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.