Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 15.11.2010, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 319. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2218 1. Festust í lótusblóminu 2. Litli bróðir sló í gegn 3. Ók á 120 km hraða á felgunni 4. „Arnold Schwarzenegger kvenna“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Sigrún Pálsdóttir sem skrifaði ævi- sögu Þóru, sem var dóttir Péturs Pét- urssonar biskups, segir hana ekki hefðbundna kvenhetju. Hvorki skáld né baráttukonu fyrir réttindum kvenna. »24 Ekki hefðbundin kvenhetja  Íslenska dans- stuttmyndin Bet- ween eftir Maríu Þórdísi Ólafs- dóttur hefur verið valin á kvik- myndahátíðina Cinedans í Amst- erdam í Hollandi sem fer fram 9. til 12. desember. Hátíðin er ein sú stærsta í Evrópu sem sérhæfir sig í dansi. Myndin fjallar um þunn skil raunveru og óraunveru. Dansmynd Maríu val- in á kvikmyndahátíð  Mojito er nýtt íslenskt leikverk eftir leikskáldið Jón Atla Jónasson. Verkið fjallar um tvo menn sem hittast fyrir til- viljun og annar þeirra fer að rifja upp heimsókn sína á veitingastað í Reykjavík sem end- aði með ósköpum. Verkið verður frumsýnt í Tjarn- arbíói á miðviku- daginn þann 17. nóvember. Nýtt verk eftir Jón Atla Jónasson Á þriðjudag Gengur í suðaustan hvassviðri með slyddu eða rigningu fyrst sunnanlands. Hlýnandi veður. Á miðvikudag Norðaustanátt og slydda eða snjókoma á Vestfjörðum og hiti um frost- mark. Annars suðlæg átt og skúrir eða slydduél, einkum austanlands og hiti 0 til 7 stig. VEÐUR Ragna Ingólfsdóttir hélt áfram sigurgöngunni á Ice- land International, alþjóð- lega badmintonmótinu sem lauk í gær. Hún hefur unnið einliðaleik kvenna í öll fjög- ur skiptin sem það hefur verið haldið og tapaði ekki lotu á mótinu að þessu sinni. „Mér líður alltaf mjög vel á þessu móti,“ sagði Ragna við Morgunblaðið þegar sigurinn var í höfn. »3 Líður alltaf mjög vel á þessu móti Telma Rut Frímannsdóttir úr Aftur- eldingu varð tvöfaldur Íslandsmeist- ari í karate um helgina. Hún stundar líka handbolta og segir að íþrótt- irnar fari mjög vel saman. „Hand- boltinn hjálpar mér með þol og út- hald, og einnig með styrk í fótunum því maður þarf að hafa góðan stökk- kraft,“ sagði Telma Rut við Morg- unblaðið. Ingólfur Snorrason úr Fylki varð líka tvöfaldur Ís- landsmeistari. »2 Karate og handbolti fara mjög vel saman Kolbeinn Sigþórsson, landsliðsmað- urinn ungi, gerði það gott í gær þegar hann tryggði AZ Alkmaar sigur á stórveldinu Ajax í hollensku úrvals- deildinni í knattspyrnu. „Það var fá- ránlega mikil stemning á vellinum. Ajax er náttúrlega með frábært lið en við áttum mjög góðan leik og þeir áttu bara ekki séns í okkur,“ sagði Kolbeinn við Morgunblaðið. »1 Fáránlega mikil stemning á vellinum ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is „Það sem er kannski sérstakt við af- mæli Blóðbankans nú er að Blóð- gjafafélag Íslands hefur stofnað með sér ungliðadeild. Hún var formlega stofnuð í gær og mun einbeita sér að því að auka fræðslu og umræðu á meðal ungs fólks um blóðgjafir,“ segir Sveinn Guðmundsson, yfir- læknir Blóðbankans. Sveinn segir að í ljósi þess að ís- lenska þjóðin sé að verða eldri standi hún frammi fyrir vaxandi þörf á blóðgjöfum. Þetta þýði að á sama tíma og þeim fjölgi sem geta þurft blóð, sem séu einkum þeir sem eldri eru, fækki þeim að sama skapi hlut- fallslega sem geti gefið blóð, en Blóð- bankinn þarf að meðaltali um 70 blóðgjafa á hverjum virkum degi til starfsemi sinnar. Skrá yfir stofnfrumugjafa Sveinn segir að í tilefni af afmæli Blóðbankans verði einnig fagnað góðum árangri í verkefni sem farið var í fyrir um fimm árum með stofn- un sérstakrar stofnfrumugjafaskrár. Skráin inniheldur nú um eitt þúsund blóðgjafa bankans sem eru reiðu- búnir af gefa óskyldum einstaklingi, sem á því þarf að halda, stofnfrumur úr sér. Á síðustu árum hafi fimm ís- lenskir blóðgjafar farið til Noregs til þess að gefa stofnfrumur, en verk- efnið hefur verið unnið í samstarfi við Ríkissjúkrahúsið í Osló. Sveinn segir að stofnfrumugjafa- skrá Blóðbankans sé hluti af slíkri skrá á heimsvísu. Á henni séu nú um 15 milljónir blóðgjafa, en eftir því sem fleiri taki þátt í verkefninu auk- ist líkurnar á hentugum stofnfrumu- gjafa fyrir hvern sjúkling. „Á svona degi er Blóðbankanum auðvitað efst í huga þakklæti til okk- ar u.þ.b. tíu þúsund blóðgjafa. Okkar starf væri lítils virði ef þeirra nyti ekki við,“ segir Sveinn. Dagskrá í til- efni afmælisins verður í Blóðbank- anum frá kl. 16 til 19 og eru blóð- gjafar boðnir velkomnir. Vaxandi þörf á blóðgjöfum  Blóðbankinn fagnaði 57 ára afmæli í gær  Bankinn þarf að meðaltali á 70 blóð- gjöfum að halda á hverjum virkum degi ársins  Ungliðadeild blóðgjafa stofnuð Morgunblaðið/Ómar Blóð Sigríður Lárusdóttir, hjúkr- unarfræðingur, ásamt blóðgjafa. Eygló Ósk Gústafsdóttir, 15 ára gömul sundkona úr Ægi, setti tvö Íslands- met á Íslandsmótinu í sundi í 25 metra laug sem fram fór í Laugardalslaug- inni um helgina. Eygló Ósk, sem sést í 200 metra baksundi á myndinni, synti 100 metra bak á 1.02,18 og 200 metra bak á 2.12,38. Alls voru sett sex Íslandsmet á mótinu auk fjölda aldursflokkameta og til dæmis setti Krist- inn Þórarinsson, 14 ára Fjölnismaður, 9 Íslandsmet í sínum aldursflokki. Morgunblaðið/Kristinn Eygló Ósk setti tvö Íslandsmet í baksundi SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg átt og víða léttskýjað, en suðaustan 8-13 og þykknar upp með dálítilli slyddu sunnantil á landinu síðdegis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.