Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010
Nú bjóðum við allra síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 27. nóvember á frábæru
tilboði. Í boði er m.a. frábært sértilboð með "öllu inniföldu" á Dunas Mirador. Þetta
er gott hótel í Dunas hótelkeðjunni, sem er staðsett í Sonnenland í norðurhluta
Maspalomas. Stór og fallegur hótelgarður með tveimur sundlaugarsvæðum og
góðri sólbaðsaðstöðu. Aðeins örfá sæti í boði.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til
leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Kanarí
frá kr. 139.800
með „öllu inniföldu“
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Frá kr. 139.800 - með "öllu inniföldu"
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og eitt barn 2 -11 ára í herbergi í 14 nætur með "öllu inniföldu".
Netverð á mann í tvíbýli 149.900 með allt innifalið í 14 nætur.
Dunas Mirador - Ótrúlegt sértilboð!
FRÉTTASKÝRING
Jónas Margeir Ingólfsson
jonasmargeir@mbl.is
Umræður og tillögur um hagræð-
ingu bíða kirkjuþings sem sett var í
fertugasta og fjórða sinn á laugar-
dag. M.a. verður farið fram á að
þingið heimili kirkjunni að óska eftir
tilboðum í 26 eignir og verði jafn-
framt heimilt að selja þær ef viðun-
andi verð fæst fyrir.
Hlutfallsleg skerðing á tekjum
kirkjunnar miðað við árið 2010 nem-
ur 8,6% eða u.þ.b. 329 milljónum.
Þar af nemur skerðing á sóknar-
gjöldum 168 milljónum. Þá verður
kirkjan af þónokkrum tekjum vegna
samnings síns við ríkið um kirkju-
jarðasamkomulagið en tekjur vegna
þess skerðast um 7,5%.
Hagrætt á ýmsum sviðum
Sigríður Dögg Geirsdóttir, fjár-
málastjóri Biskupsstofu, segir kirkj-
una grípa til margvíslegra aðgerða
til að mæta þessari tekjuskerðingu.
Tveir prestar ljúka störfum á
næsta ári vegna aldurs. Þeir starfa
að Holti undir Eyjafjöllum og á
Kálfafellsstöðum. Kirkjan mun þá
leggja niður þau embætti. „Síðan
verður sagt upp sem samsvarar
þremur embættum. Það er búið að
ákveða hvar það verður. Það er bisk-
up Íslands sem ákveður það. Það er
ekki borið undir kirkjuþingið,“ segir
Sigríður Dögg en samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins verður emb-
ætti prests á sviði áfengis- og fíkni-
efnamála lagt niður.
„Þá verður lækkaður launakostn-
aður starfsmanna hjá biskupi Ís-
lands og Kirkjumálasjóði sem sam-
svarar um fimm stöðugildum. Í dag
starfa þar 30 en á næsta ári verða
þau 25,“ segir Sigríður.
Einnig verður námsleyfi presta
skert en núgildandi heimild gerir ráð
fyrir þrjátíu og sex mánuðum en árið
2010 voru sextán mánuðir nýttir.
„Það verða bara þrír mánuðir á
næsta ári. U.þ.b. 22 milljónir sparast
við það. Þetta er leið sem þótti ekki
vera eins sársaukafull og niðurlagn-
ing starfa.“
Þá er lagt til að sameina prófasts-
dæmi til að hagræða í rekstri. Sam-
einuð verða Eyjafjarðar- og Þingeyj-
arprófastsdæmi, Austfjarða- og
Múlaprófastsdæmi en Borgarfjarð-
arprófastsdæmi verður sameinað
Snæfellsnes- og Dalaprófastsdæmi.
Þá mun kirkjan spara í rekstri og
reyna að selja eignir. „Þá skerum við
niður í almennum rekstri um 10%
með því að hagræða, spara og endur-
skoða eins og hægt er. Til að brúa
bilið, þar sem þessar uppsagnir
koma ekki að fullu til sparnaðar fyrr
en 2012, gerum við ráð fyrir að selja
eignir fyrir 120 milljónir,“ segir Sig-
ríður en listi með 26 eignum sem
kirkjan hyggst leita eftir tilboðum í
hefur verið lagður fyrir þingið. Sig-
ríður væntir þess að kirkjan selji þó
ekki fleiri eignir en sem nemur 120
milljónum. „Það er spurning hvort
því yrði svo ekki hætt þegar 120
milljónir hafa fengist.“
Kynferðisbrot rannsökuð
Í gær samþykkti kirkjuþing til-
lögu forsætisnefndar þingsins um að
stofna rannsóknarnefnd um við-
brögð og starfshætti þjóðkirkjunnar
vegna ásakana á hendur Ólafi Skúla-
syni vegna kynferðisbrota. Tillagan
var samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Pétur Kr. Hafstein, forseti Kirkju-
þings, segir þessa leið valda til að
undirstrika það að nefndin verði al-
gerlega sjálfstæð og óháð í störfum
sínum. „Hún mun með engum hætti
tengjast biskupsembættinu eða
kirkjuráði sem fer með fram-
kvæmdavald innan kirkjunnar.“
Pétur segir nefndina hafa alger-
lega óbundnar hendur um rannsókn
málsins. „Hún tekur ekki við neinum
fyrirmælum en starfar samkvæmt
þeim starfsreglum sem kirkjuþing
samþykkti,“ segir Pétur sem kveður
nefndina afmarka rannsóknarefnið
nánar. „Hún á jafnframt að kynna
niðurstöður sínar opinberlega. Það
er ekki kirkjunnar sjálfrar að kynna
það eða fjalla um það innan sinna vé-
banda án þess að það sé gert opin-
bert,“ segir Pétur en nefndinni ber
að skila niðurstöðum ekki seinna en
fyrsta júní.
Morgunblaðið/Kristinn
Kirkjuþing Ögmundur Jónasson mannréttinda- og dómsmálaráðherra og Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands við setningu kirkjuþings á laugardag.
Þingað um hagræðingu
Farið fram á heimild kirkjuþings til að óska eftir tilboðum í tuttugu og sex eignir
kirkjunnar Óháð og sjálfstæð nefnd stofnuð til að rannsaka meint kynferðisbrot
48,5% Íslendinga
bera mikið
traust til prests-
ins eða prest-
anna í sinni sókn
en 18,3% bera
lítið traust til
þeirra. Þetta
kemur fram í
niðurstöðum
könnunar sem
Capacent vann
fyrir Biskupsstofu. Biskup skýrði
frá niðurstöðunum í ræðu sinni við
setning kirkjuþings á laugardag.
Í niðurstöðum könnunarinnar
kemur fram að 43,7% þjóðarinnar
beri mikið traust til sóknarkirkju
sinnar en 21,3% beri lítið traust til
hennar.
Um fjórðungur aðspurðra sagð-
ist þrisvar til fimm sinnum hafa
sótt einhvern viðburð í kirkju á
síðasta ári. 21,9% sögðust aldrei
hafa sótt viðburð á síðasta ári,
11,4% sex til tíu sinnum en 5,7%
oftar en tíu sinnum. Samkvæmt
könnuninni fara Íslendingar að
meðaltali 4,3 sinnum í kirkju á
ári.
Traust landsmanna til kirkju og
presta er meira á landsbyggðinni
en í Reykjavík og þar er kirkju-
sókn einnig meiri.
Biskup sagði í ræðu sinni könn-
unina vera til marks um að Ís-
lendingar beri mikið traust til
sinnar sóknarkirkju og að þeir
treysti prestunum í sinni sókn.
Í fréttatilkynningu frá Bisk-
upsstofu segir að niðurstöður
könnunarinnar endurspegli já-
kvætt viðhorf almennings til
kirkjunnar og presta landsins.
Fjórar kirkjuferðir
á ári að meðaltali
Könnun gerð fyrir Biskupsstofu
Karl
Sigurbjörnsson
Kirkjuþing sam-
þykkti í gær til-
lögu forsætis-
nefndar um að
skipa rannsókn-
arnefnd um við-
brögð og starfs-
hætti þjóð-
kirkjunnar vegna
ásakana á hendur
Ólafi Skúlasyni
vegna kynferðis-
brota.
Tillagan var samþykkt einróma en
jafnframt var sú tillaga samþykkt
með öllum greiddum atkvæðum að í
nefndina yrðu skipuð þau Róbert
Ragnar Spanó, prófessor og forseti
lagadeildar Háskóla Íslands, Berg-
lind Guðmundsdóttir sálfræðingur
og Þorgeir Ingi Njálsson, dómstjóri
Héraðsdóms Reykjaness.
Róbert verður formaður nefndar-
innar.
Nefndin
samþykkt
einróma
Róbert Ragnar
Spanó formaður.
Mikil endurnýjun á sér nú stað á
kirkjuþingi, en af tuttugu og níu
fulltrúum hafa átján aldrei setið
slíkt þing áður. Þrjátíu og sjö
mál eru á dagskrá þingsins, en
það er meiri málafjöldi en
nokkru sinni áður. „Það eru til
dæmis mál um hvernig kirkjan á
að bregðast við breyttum hjú-
skaparlögum. Það þarf að gera
breytingar á innri samþykktum
kirkjunnar og laga þær að þess-
ari breyttu löggjöf. Það mun
kirkjuþingið vafalaust gera með
reisn og sóma,“ segir Pétur Kr.
Hafstein sem kveðst þó ekki vita
hvort þær tillögur fari hnökra-
laust í gegnum þingið. „Um leið
og þetta er gert þá verður að
ganga út frá því að samvisku-
frelsi einstakra vígðra þjóna
verði virt. Það getur þjóðkirkjan
alveg séð um innan sinna vé-
banda.“
Þrjátíu og sjö mál á dagskrá
ENDURNÝJUN Á KIRKJUÞINGI
Suðurprófastsdæmi
1. Jörðin Kálfafellsstaður, sveitarfé-
laginu Hornafirði
2. Jörðin Ásar (Eystri-Ásar), Skaftár-
hreppi
3. Jörðin Holt undir Eyjafjöllum, Rang-
árþingi eystra
4. Bergþórshvoll – hluti jarðar, (sand-
ar) Rangárþingi eystra
5. Tröð, Skeiða- og Gnúpverjahreppi
6. Jörðin Mosfell í Grímsnesi, Gríms-
nes- og Grafningshreppi
7. Brattahlíð 5, Hveragerði, Hvera-
gerðisbæ
8. Túngata 20, Eyrarbakka, Árborg
9. Háaleiti, Þorlákshöfn, Ölfus
10. Jörðin Hraungerði, Flóahreppi
Kjalarnessprófastsdæmi
11. Ránargata 1, Grindavík
12. Keilisbraut 775 (Kapella ljóssins),
Reykjanesbæ
13. Breiðbraut 672 (raðhús b og c),
Reykjanesbæ
14. Skagabraut 30, sveitarfélaginu
Garði
15. Tvær lóðir úr Mosfelli (Dalsgarður
og Víðigerði) Mosfellsbæ
Borgarfjarðarprófastsdæmi
16. Laugarbraut 3, Akraneskaupstað
Snæfellsness- og
Dalaprófastsdæmi
17. Laufás 2, Hellissandi, Snæfellsbæ
Vestfjarðaprófastsdæmi
18. Bakkatún, Bíldudal, Vesturbyggð og
kaupa hentugt húsnæði þess í stað
í prestakallinu
19. Túngata 6, Suðureyri, Ísafjarðarbæ
20. Jörðin Árnes I, Árneshreppi
Húnavatns- og
Skagafjarðarprófastsdæmi
21. Jörðin Prestbakki, Bæjarhreppi
22. Jörðin Borgarhóll, Akrahreppi
Eyjafjarðarprófastsdæmi
23. Austurvegur 9, Hrísey, Akureyri
24. Lóð úr landi Syðra-Laugalands 1,43
ha.
Austfjarðaprófastsdæmi
25. Kolfreyjustaður
Reykjavík
26. Hjarðarhagi 30, 1.h.t.h. Reykjavík
Eignir sem boðn-
ar verða til sölu
Kapella ljóssins Keilisbraut Reykjanesbæ.