Morgunblaðið - 15.11.2010, Qupperneq 25
MENNING 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010
Fjölskyldan HHHH GB, Mbl
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Fólkið í kjallaranum (Nýja svið)
Þri 16/11 kl. 20:00 Ný auka Fim 25/11 kl. 20:00 21.k Mið 8/12 kl. 20:00 25.k
Lau 20/11 kl. 19:00 17.k Lau 27/11 kl. 19:00 22.k Fim 9/12 kl. 20:00 26.k
Lau 20/11 kl. 22:00 18.k Lau 27/11 kl. 22:00 Aukas Fös 10/12 kl. 19:00 27.k
Sun 21/11 kl. 20:00 19.k Mið 1/12 kl. 20:00 23.k
Þri 23/11 kl. 20:00 20.k Sun 5/12 kl. 20:00 24.k
Sýningum lýkur í desember
Gauragangur (Stóra svið)
Mið 17/11 kl. 20:00 aukas Sun 28/11 kl. 15:30 Aukas
Fim 18/11 kl. 20:00 14.k Sun 28/11 kl. 20:00 15.k
Sýningum lýkur í nóvember
Fjölskyldan (Stóra svið)
Fös 19/11 kl. 19:00 4.k Fös 3/12 kl. 19:00 7.k Fim 30/12 kl. 19:00
Mið 24/11 kl. 19:00 5.k Lau 4/12 kl. 19:00 8.k
Fös 26/11 kl. 19:00 6.k Lau 18/12 kl. 19:00 9.k
"Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is
Enron (Stóra svið)
Lau 20/11 kl. 20:00 15.k Fim 25/11 kl. 20:00 16.k Lau 27/11 kl. 20:00 17.k
Sýningum lýkur í nóvember
Jesús litli (Litla svið)
Fös 19/11 kl. 20:00 5.k Fim 2/12 kl. 20:00 11.k Mið 8/12 kl. 20:00 14.k
Sun 21/11 kl. 19:00 6.k Fös 3/12 kl. 19:00 8.k Fim 9/12 kl. 20:00 15.k
Mið 24/11 kl. 20:00 7.k Fös 3/12 kl. 21:00 9.k Sun 12/12 kl. 20:00 16.k
Fös 26/11 kl. 19:00 aukas Lau 4/12 kl. 19:00 12.k Fim 16/12 kl. 20:00
Mið 1/12 kl. 20:00 10.k Lau 4/12 kl. 21:00 13.k Lau 18/12 kl. 19:00
Fim 2/12 kl. 18:00 aukas Þri 7/12 kl. 20:00 aukas Lau 18/12 kl. 21:00
Sýningar 2/12 kl 18 og 7/12 kl 20 verða túlkaðar á táknmáli
Faust (Stóra svið)
Fim 6/1 kl. 20:00 Sun 16/1 kl. 20:00
Fös 14/1 kl. 22:00 Fim 20/1 kl. 20:00
Aukasýningar á Íslandi vegna fjölda áskorana
Harry og Heimir - leikferð (Samkomuhúsið Akureyri)
Fös 19/11 kl. 19:00 Lau 20/11 kl. 22:00 Fös 26/11 kl. 19:00 aukas
Fös 19/11 kl. 22:00 Sun 21/11 kl. 17:00 aukas Lau 27/11 kl. 19:00 aukas
Lau 20/11 kl. 19:00 Sun 21/11 kl. 20:00
Sýnt í Samkomuhúsinu hjá LA á Akureyri
Horn á höfði (Litla svið)
Lau 20/11 kl. 14:00 16.k Lau 27/11 kl. 14:00 18.k
Sun 21/11 kl. 14:00 17.k Sun 28/11 kl. 14:00 19.k
Gríman 2010: Barnasýning ársins
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
HÆNU
UNGARNIR
Mbl., GB
Fbl., EB
ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF ÞESSARI!
leikhusid.is / 551 1200
ASA-tríóið fór um víðan völlá Múla-tónleikunum ámiðvikudagskvöld og léksýnishorn af þeirri tónlist
sem verið hefur á efnisskrá þeirra
þau fimm ár sem tríóið hefur starf-
að. Það sem mér hefur þótt mest til
koma á ferli ASA-tríósins eru Monk-
útsetningar þeirra og þeir hófu
þessa tónleika á „Bemsa swing“ þar
sem hápunkturinn var dansandi fínt
samspil Agnars Más og Scott McLe-
more þar sem bakkaslögin réðu í
trommuleiknum. Annar Monk ópus
var á efnisskránni; útsetning Scotts
á „Straight no chaser“. „Er þetta
ekki í 7/4?“ spurði Andrés og
trommarinn kinkaði kolli. Það var
ekki algengt fyrir dag „Time Out“
Dave Brubecks að djassleikarar
léku í annarri taktegund en 4/4, en
nú má þakka fyrir hvert lag í þeim
takti þar sem klassísk sveifla ríkir.
ASA-tríóið er ekki mikið að flagga
klassískum djassi, en í gamla slag-
aranum „Bye, bye blackbird“ var sú
sveifla ríkjandi og aðaleinleikari
Scott, sem burstaði í upphafi í stað
þess að laglínan væri leikin og Andr-
és spann svo að hætti Armstrongs,
þannig að laglínan skein alltaf í gegn
og Agnar Már með sterka sveiflu í
vinstri hendinni. Það var fleira á
hefðbundnari djassnótum, svo sem
tíðindalaus útgáfa af „Giant steps“
eftir John Coltrane og feikifalleg
túlkun á „Time remembered“ eftir
Bill Evans, með snjöllum inngangi
Andrésar og tilfinningaríkum org-
elsólóum Agnars.
Svo var mikið stuð í „Manic de-
pression“ Jimi Hendricks og „I got a
woman“ Ray Charles ekki síður en
gömlum ópusi eftir Andrés Þór:
„Torka“. Það er flott að heyra tríó
einsog ASA-tríóið þenja sig rokk-
skotið en hafa alltaf á hreinu að
þarna höndla djassleikarar hljóð-
færin. Flott stöff; aftur á móti náði
flutningur þeirra á „Beautiful boy“
eftir John Lennon ekki eyrum mín-
um.
Þessir tónleikar voru skemmtileg
upprifjun á ýmsu því sem þeir ASA-
menn hafa tekið sér fyrir hendur síð-
ustu fimm árin, en heildarsvipinn
skorti og tónleikarnir urðu aldrei sú
upplifun sem vænta mátti þótt mörg
perlan hafi verið leikin.
Þeir félagar eru að vinna að
Monk-skífu, sem að líkum lætur
verður góður fengur. Múlinn verður
í Risinu hvert miðvikudagskvöld
fram í miðjan desember og á mánu-
dagskvöldið verður stórveisla í Ris-
inu. Ein af ferskustu hljómsveitum
New York hefur þar Evrópuför sína:
Endangered Blood, þar sem Chris
Speed og Oscar Noriega þenja saxó-
fónana, Trevor Dunn slær bassa og
sjálfur Jim Black trommur. Happa-
fengur fyrir alla unnendur framsæk-
innar tónlistar.
Múlinn í Risinu
ASA tríóbbbmn
Andrés Þór Gunnlaugsson gítar, Agnar
Már Magnússon orgel og Scott McLe-
more trommur.
Miðvikudagskvöldið 10.11.2010.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST
Djass Andrés Þór leikur á gítar í ASA-tríóinu, með honum eru Agnar Már á orgel og Scott McLemore á trommur.
Þverskurður fimm Asa-ára
Frá árinu 1989 hefur Erró færtListasafni Reykjavíkur á fimmtahundrað klippimyndir að gjöf. Ásýningunni „Erró – klippimyndir“
má nú skoða um 130 verk úr safninu og um
leið öðlast mikilvæga innsýn í þróun grund-
vallarþátta í myndsköpun listamannsins.
Elstu verkin eru frá öndverðum sjötta
áratug síðustu aldar, þegar Erró, eða Guð-
mundur Guðmundsson, er við nám í Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands. Skólaverkin
eru í sýningarborði, þau einkennast af lita-
og formtilraunum en þarna má strax sjá
áhuga Errós á hreyfingu og margbrotinni
frásögn í myndum sem fjalla um vélmenn-
ingu og stríð. Á vegg þar hjá sjást blek-
teikningar í bland við útklipptan texta og
ljósmyndir úr dagblöðum frá því í lok ára-
tugarins. Þessi verk lýsa tilvistarangist og
skírskota til súrrealisma. Úrklippur sáust
einmitt gjarnan í verkum eftir listamenn
sem unnu undir formerkjum súrrealisma,
dadaisma eða kúbisma á fyrri hluta 20. ald-
ar.
Við upphaf 7. áratugarins er Erró farinn
að móta myndstíl sinn í klippiverkum þar
sem hann blandar saman myndum af andlit-
um fyrirsætna og af vélum af ýmsu tagi sem
hann hefur klippt út úr tímaritum og blöð-
um. Verkið Alsæla frá 1959 er gott dæmi um
það hvernig fígúran umbreytist í eins konar
vélrænt skrímsli; þarna birtast hugmyndir
um hvernig manneskjan glatar mennsku
sinni á tímum hraðrar vél- og tæknivæð-
ingar. Erró fyllir ekki út í myndflötinn í
þessum verkum, þarna mótar hann sterk
form á einlitum bakgrunni.
Svo virðist sem ofgnóttin hafi leyst mik-
inn sköpunarkraft úr læðingi við komu
Errós til Bandaríkjanna: neyslumenningin,
flæði ímynda, mannhafið og kraumandi
listalíf stórborgarinnar New York. Þarna
stendur honum skyndilega til boða mikið
magn af alls kyns myndefni úr öllum kimum
menningarinnar, þ. á m. eftirprentanir af
listaverkum eftir þekkta nútímalistamenn á
borð við Picasso, Léger og Matisse, van
Gogh og Gauguin, en einnig fréttamyndir,
auglýsingar, og myndasögur. Tjáningarþörf
Errós tengist að miklu leyti straumum og
málefnum líðandi stundar. Um leið er hann
myndlistarmaður í samræðu við listasöguna
– rannsakandi í merkingarheimi málverks-
ins jafnt sem margs konar sjónrænna
ímynda. Klippiverkin frá þessum árum ein-
kennast af slíkri samræðu og viðleitni til að
ná utan um tíðarandann og þar með leggur
hann grunninn að samsettum myndheimi
sínum þar sem (afleiddar) ímyndir flæða um
myndflötinn.
Á vegg fyrir miðjum sal má bera saman
klippimyndir og svo málverk sem unnin
hafa verið út frá þeim; í Brúðu Medúsu-
flekans (1989) og Oswald (1978) má glöggva
sig á því hvernig Erró leggur til eigin túlk-
un í málaðri eftirmynd af ljósmyndum í
klippiverkunum, og hvernig hann þreifar
sig áfram með mismunandi málunar-
aðferðir. Og innar í salnum sést hvernig
hann mótar stóru veggmyndirnar Vís-
indamennirnir og Verkfræðingarnir miklu
(unnar 1986-89) með aðstoð klippi-
tækninnar. Sýningin varpar ljósi á ýmis
tímabil á ferli hans, þar kemur klippitæknin
alls staðar við sögu, og í völdum myndum
frá 1984 til 2010 má sjá að hún er honum
óþrjótandi uppspretta og sterkt mótunarafl
í myndsköpun.
Klippt og málað
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús
Erró – klippimyndir
bbbbn
Til 28. ágúst 2011. Opið alla daga kl. 10-17. Að-
gangur ókeypis. Sýningarstjóri: Danielle Kvaran.
ANNA JÓA
MYNDLIST
Klippt Á sýningunni „Erró – klippimyndir“ má nú skoða um 130 verk.