Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 27

Morgunblaðið - 15.11.2010, Síða 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2010 SÍMI 564 0000 FULLKOMIN GÆÐI 12 12 L L L 16 L 7 L L SÍMI 462 3500 12 L L L JACKASS3D kl.8-10 EASYA kl.6-8-10 ARTHÚR3 kl.6 SÍMI 530 1919 L L L L 16 12 UNSTOPPABLE kl.5.50-8-10.10 EASYA kl.5.50-8-10.10 ARTHÚR3 kl.5.50 YOU WILLMEET ATALLDARKSTRANGER kl.8-10.15 INHALE kl.8-10 BRIM kl.6 JACKASS 3D kl.3.40-5.50-8-10.10 JACKASS3DLÚXUS kl.3.40-5.50-8-10.10 UNSTOPPABLE kl.5.50-8-10.10 EASYA kl.5.50-8-10.10 ARTHÚR 3 kl.3.40 MACHETE kl.10.35 ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 kl.3.40 SOCIALNETWORK kl.8 EATPRAYLOVE kl.5.20 AULINN ÉG 3D kl. 3.40 .com/smarabio NÝTT Í BÍÓ! Sjáðu Jackass eins og þú hefur aldrei séð áður! Sýnd kl. 6Sýnd kl. 8 og 10:15 Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 6, 8 og 10:15 - Ótextuð Sýnd kl. 8 og 10:15 Artúr er mættur aftur í sinni þriðju mynd, þar sem ævintýrið er stærra en nokkru sinni fyrr! Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! FYNDNARI OG FÁRÁNLEGRI EN NOKKURN TÍMANN ÁÐUR, TEKIN Í FLOTTUSTU ÞRÍVÍDDARTÆKNI SEM VÖL ER Á! SJÁÐU JACKASS EINS OG ÞÚ HEFUR ALDREI SÉÐ ÁÐUR! 80% Fresh -Rotten Tomatoes HHH „This is a superb film” -Roger Ebert “Delivers all the goods mainstream action fans could want” -Variety MAGNÞRUNGIN SPENNA MEÐ LYGUM OG SVIKUM! -bara lúxus Sími 553 2075 www.laugarasbio.is Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum Alan Howell Parrot, fyrrumfálkafangari nú náttúruverndarsinni, er aðal-heimildarmaður Þorkels og Arnar Marinós, höfunda hinnar forvitnilegu heimildarmyndar Feat- hered Cocaine. Sem ungur maður var Parrot ofantekin af fálkaveiðum og -smygli, sem hann telur eitt það ábatasamasta í geiranum. Þessir glæsilegu og hraðfleygu ránfuglar eru sannkallaðar „konungs- gersemar“ sem fyrr, en nú eru það skeggjaðir olíufurstar í Austur- löndum nær sem eru sólgnastir í fálkana og tilbúnir að greiða eina milljón dala fyrir stykkið. Þar með er ekki öll sagan sögð. Alan Howell Parrot segir kvik- myndagerðarmönnunum lygilegar sögur um tengsl hryðjuverka- mannsins Osama Bin Laden og samtaka hans, Al Qaeda, við veiði- mennina, smyglarana og hvernig veiðifálkinn er mikilvægur þáttur í fjármögnun hryðjuverkahópsins. CIA-maður er annar heimildar- maður Íslendinganna, hann greinir frá ævintýralegri fjármögnun; hvernig olíufurstarnir komi klyfj- aðir milljónum dala til Íran, þar sem Bin Laden heldur sig – að hans sögn. Hann fær fúlgur fjár, þeir fið- urféð. Bandaríkjamenn þyrftu ekki að gera annað en að miða út merkta fálkana með GPS-staðsetning- artækjum og Bin Laden og árar hans fengju hávaðasama salíbunu til heljar. En, að sögn CIA- mannsins, telur leyniþjónustan sér meiri akk í að hafa skrímslin með lífsmarki. Parrot er forvitnilegur, auðheyri- lega greindur maður og trúverð- ugur, a.m.k. á ytra borðinu. Þorkell og Örn Marinó, sem áður gerðu Pönkið og Fræbblarnir, hafa næmt auga fyrir myndefninu sem er óvenju alþjóðlegt og framandi dul- úðugt af íslenskri heimildarmynd að vera. Að ekki sé minnst á ævintýra- blæinn sem umlykur Feathered Co- caine, er hún skyggnist um í sól- skorpnum furðuheimum þessara 1001 nætur olíuauðs og ofstækis. Fálkasmygl, fíkniefni og hryðjuverk Bíó Paradís Fálkasaga – Feathered Cocaine bbbmn Íslensk heimildarmynd. Leikstjóar, handrit, klipping og framleiðsla: Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson. Kvikmyndataka: Halldór Gunnarsson. Hljóð: Bíóhljóð. Tónlist: Steingrímur Ey- fjörð Gudmundsson. Markell Produc- tions. Gerð með stuðningi Kvikmynda- miðstöðvar Íslands. 80 mín. Ísland 2010 . SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Fíkn Allan Howell Parrot stendur hér rólegur og bíður þess að fálkinn fljúgi til sín, hann lifir fyrir þessa fugla. Óvænt uppákoma varð á sýningu Leikfélags Akureyrar á Rocky Horror í menningarhúsinu Hofi um helgina þegar tölvubilun varð í ráar- kerfi á sviðinu. Þegar persónurnar Rocky og Janet áttu að síga niður á sviðið í lótusblómi gerðist ekkert og leikararnir sátu fastir í háloftunum. Að sögn áhorfenda í salnum hóf- ust vandræðin þegar tjaldið seig nið- ur á sviðið og tveir leikarar voru fyr- ir framan það en einn fyrir aftan. Eftir skamma stund lyftist tjaldið aftur að hluta. „Ég verð að viðurkenna að mér var ekki alveg rótt,“ sagði María Sigurðardóttir leikhússtjóri, sem var meðal áhorfenda í salnum. Hún segir, að þegar ljóst varð að tölvu- kerfið harðneitaði að virka hafi leik- arar gengið fram á sviðið og tilkynnt áhorfendum að gera yrði hlé á sýn- ingunni vegna tæknilegra örðug- leika. „Þeir Frank N Furter, Riff Raff, Dr. Scott og Brad voru á sviðinu og buðu áhorfendum að fara fram og fá sér hressingu á meðan,“ segir María. Hún segist hafa farið upp á svið og kannað hvort eitthvað væri í gangi með turtildúfurnar í lótus- blóminu en svo reyndist ekki vera og á endanum var útveguð lyfta til að ná leikurunum niður. María segir, að eðlilegt sé í nýjum húsum að einhverjar truflanir verði á tæknibúnaði í fyrstu. Hún segir að ráakerfið hafi ekki alltaf virkað sem skyldi á æfingum en þetta var fyrsta í fyrsta skiptið sem það brást í leik- sýningu. Sýningin tafðist um hálftíma en síðan komu áhorfendur inn í salinn „í enn meira stuði en áður,“ segir María. Hún segir að allir hafi tekið þessu vel og stemningin í húsinu verið afar góð. Sýningunni lauk síð- an um klukkan 1.30. Leikfélag Akureyrar hefur sýnt Rocky Horror fyrir fullu húsi frá því í byrjun september. Sýningin um helgina átti að vera sú síðasta í Hofi þar sem jól nálgast og húsið er bók- að fyrir tónleika og aðra viðburði þeim tengdum „og það er lítil Rocky-stemning um jólin,“ segir María. Hún segir hins vegar, að mjög sé lagt að leikhúsinu að halda sýning- unum áfram á nýju ári og verið sé að kanna möguleika á því. Festust í lótusblóminu í miðri sýningu  Sýningin kláraðist um nóttina Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Horror Magnús Jónsson aðalleikari.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.