Morgunblaðið - 20.11.2010, Page 1
L A U G A R D A G U R 2 0. N Ó V E M B E R 2 0 1 0
Stofnað 1913 272. tölublað 98. árgangur
REIGÐI HRYGGINN
OG ÝLFRAÐI EINS
OG SLÁTTUVÉL
SKAPAR
ÓGLEYMANLEGAN
KARAKTER
NOTALEG JÓLAPLATA
FRÁ SIGURÐI OG
MEMFISMAFÍUNNI
SUNNUDAGSMOGGINN NÚ STENDUR MIKIÐ TIL 54PRUFUTÍMINN 10
„Þegar við fáum upp úr kössunum svona skemmti-
lega og óvænta gamla hluti þá höldum við upp á þá
til þess að boðið þá upp á uppboði sem þessu,“ segir
Halldóra Eldon, aðstoðarverslunarstjóri Góða hirð-
isins.
Í gær fór fram uppboð á sérstökum munum í hús-
næði hans sem stjórnað var af tónlistarmanninum
KK. Að sögn Halldóru seldust munir á því fyrir 380
þúsund krónur á þeim eina klukkutíma sem uppboðið
stóð yfir. Góði hirðirinn hefur áður staðið fyrir upp-
boðum sem þessu en ágóðanum af þeim er varið til
sérstakra verkefna á sviði góðgerðarmála. Að þessu
sinni rann hann til Bjarkaráss sem veitir fötluðu fólki
dagþjónustu, hæfingu og vinnu. Næsta uppboð Góða
hirðisins er fyrirhugað 10. desember næstkomandi.
hjorturjg@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Gamlir munir til góðra mála
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Gangi spá OECD um hagvöxt á þessu
og næsta ári eftir eru tekjur rík-
issjóðs ofmetnar í fjárlagafrumvarpi
næsta árs um 15 milljarða. Þetta seg-
ir Halldór Árnason, hagfræðingur
Samtaka atvinnulífsins. OECD birti í
fyrradag spá sem gerir ráð fyrir 1,5%
hagvexti á næsta ári, en í fjárlaga-
frumvarpinu er
byggt á þeirri
forsendu að hag-
vöxtur verði
3,2%.
„Þetta sýnir
að það er mjög
lítil fjárfesting í
gangi og það er að leiða til sam-
dráttar í efnahagslífinu. Samtök at-
vinnulífsins hafa margsinnis bent á að
ef það ætti að vera eitthvert áherslu-
mál sem taka á fram yfir önnur þá er
það að skapa skilyrði fyrir atvinnu-
lífið svo það geti farið að fjárfesta,“
segir Halldór.
Meira atvinnuleysi
Minni hagvöxtur en reiknað er
með í fjárlagafrumvarpinu þýðir
einnig að atvinnuleysi verður meira
sem leiða mun til meiri útgjalda fyrir
ríkissjóð. Von er á nýrri hagspá frá
Hagstofunni á næstu dögum, en verði
hún í takt við spár OECD, Alþýðu-
sambands Íslands og Seðlabankans,
sem allar gera ráð fyrir hagvexti á
bilinu 1,5-2,1%, þýðir það að skera
verður meira niður í útgjöldum eða
hækka skatta meira en gert er ráð
fyrir í frumvarpinu.
Ástæða þess að spáð er minni
hagvexti en áður er m.a. sú að ekki er
reiknað með að framkvæmdir við ál-
ver í Helguvík fari af stað af neinum
krafti á næsta ári. »16
Hafa
ofmetið
tekjur
OECD spáir minni
hagvexti á næsta ári
1,5%
spá OECD
um hagvöxt hér
á næsta ári
Dómsmála-
ráðuneytið áætl-
ar að kostnaður
við að kalla sam-
an landsdóm
verði 113 millj-
ónir ef máls-
meðferð tekur
fjóra mánuði en
dragist það í tvo
mánuði til viðbótar eykst kostn-
aðurinn um 43 milljónir. Kostn-
aður vegna saksóknara er hér
ekki meðtalinn þar sem Alþingi
greiðir hann. Er hann áætlaður
35,4 milljónir á þessu og næsta
ári. »25
Kostnaður vegna
landsdóms 150-200
milljónir kr.
Ef satt reynist að nýtt Icesave-
samkomulag við Breta og Hollend-
inga muni kosta ríkið um 60 millj-
arða króna mun gjaldeyririnn, sem
nota verður til afborgana, jafnast á
við um sjöfaldan árlegan innflutn-
ing Íslendinga á fólksbifreiðum,
miðað við tölur frá í fyrra.
Greiðslubyrði ríkisins af erlend-
um lánum er nú þegar mjög þung
og miðað við greiðsluáætlun verður
gjaldeyrisforðinn uppurinn árið
2015, árið sem greiðslur á Icesave-
skuldinni myndu hefjast samkvæmt
gamla samkomulaginu. »26
Um sjöfaldur inn-
flutningur á bílum
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Minna verður skorið niður á um-
dæmissjúkrahúsum en fjárlaga-
frumvarpið fyrir næsta ár gaf til
kynna og standa á vörð um heilsu-
gæsluþjónustu í landinu. Gera á um-
dæmissjúkrahúsin starfhæf til að
geta tekið við verkefnum frá minni
sjúkrahúsum og gætu framlögin í
einhverjum tilvikum aukist.
Þetta er samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins meðal tillagna sem
væntanlegar eru frá vinnuhópi heil-
brigðisráðuneytisins um hvernig út-
færa á niðurskurð á framlögum til
heilbrigðisstofnana í landinu. Sam-
kvæmt þessu munu sjúkrahúsin á
Akranesi, Ísafirði, Akureyri, Nes-
kaupstað, Selfossi og í Reykjanesbæ
þurfa að skera minna niður en fjár-
lagafrumvarpið gaf til kynna. Þá er
Heilbrigðisstofnunin í Vestmanna-
eyjum talin vera með sérstöðu þó að
hún sé ekki skilgreind sem umdæm-
issjúkrahús samkvæmt lögum. Því
gætu sjúkrahúsin á Sauðárkróki,
Siglufirði, Húsavík og Höfn vænst
þess að þurfa að skera töluvert nið-
ur, þó ekki í jafnmiklum mæli og
frumvarpið gerði ráð fyrir, t.d. allt að
40% á Húsavík. Hörð andstaða hefur
komið fram á landsbyggðinni við
niðurskurðaráform stjórnvalda. Ef
sjúkrahúsið á Akureyri er undan-
skilið starfa um 3.000 manns á heil-
brigðisstofnunum á landsbyggðinni
og þykir ljóst að fjöldamörg störf séu
í húfi. Efasemdir eru uppi um lög-
mæti niðurskurðarins og hvort jafn-
mikill ábati sé af flutningi verkefna
milli stofnana og af hefur verið látið.
Minna skorið af hinum stóru
Gera á umdæmissjúkrahús starfhæfari og verja heilsugæsluna Tillagna vinnu-
hóps að vænta til heilbrigðisráðherra Hundruð starfa á landsbyggðinni í húfi
Fjölþætt þjónusta
» Á landsbyggðinni eru starf-
andi tólf sjúkrahús, að Sjúkra-
húsinu á Akureyri undanskildu.
Innlagnir eru yfir 10 þúsund á
ári og aðgerðir um 9.500.
» Hátt í 100 þúsund manns
njóta þjónustu þessara stofn-
ana. Undir þær heyrir rekstur
um 50 heilsugæslustöðva.
MStofnanir sem berjast »20-21