Morgunblaðið - 20.11.2010, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Einar Örn Gíslason
einarorn@mbl.is
Ekki hefur verið gengið frá leigu
Landhelgisgæslunnar á þyrlu, til
viðbótar við þyrlurnar tvær sem
Gæslan hefur nú á að skipa. Auglýst
var eftir þyrlu í ágúst, og tilboð
opnuð 13. október síðastliðinn. Í
millitíðinni varð það ljóst að framlög
til Gæslunnar, samkvæmt fjárlögum
næsta árs, yrðu skert um 8%.
Forsendur gjörbreyttar
Gert hafði verið ráð fyrir 5%
niðurskurði, að sögn Georgs Lár-
ussonar, forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar, þannig að fjárhagslegar for-
sendur voru gjörbreyttar þegar
tilboð voru opnuð. Endanleg fjárlög
næsta árs liggja sem kunnugt er
ekki enn fyrir, og því óljóst hvort af
leigunni getur orðið. Ríkiskaup önn-
uðust útboðið fyrir hönd Landhelg-
isgæslunnar, en samkvæmt fundar-
gerð opnunarfundar bárust þrjú
tilboð. Lægsta tilboðið hljóðaði upp
á 85 þúsund dala mánaðarleigu. Sú
þyrla var hins vegar ekki í samræmi
við útboðslýsingu, var annarrar teg-
undar en auglýst var eftir, og taldist
tilboðið því ógilt. Hin tilboðin hljóð-
uðu upp á rúmlega 130 þúsund dala
mánaðarleigu, um 14 milljónir
króna. Þyrlur Landhelgisgæslunnar
eru af gerðinni Super Puma, og
auglýst var eftir annarri slíkri.
Frestur til að ganga að tilboði
gilti í mánuð frá opnunarfundi, og
rann því út um miðjan nóvember.
Hann hefur fengist framlengdur
þar til í fyrri hluta desembermán-
aðar.
Enn óvíst um þyrluleigu
Landhelgisgæslunnar
Tvö gild tilboð bárust sem óvíst er hvort hægt er að taka
TF-LÍF Gæslan vill leigja aðra þyrlu.
LÆKNIR Í
BLÍÐU OG
STRÍÐU
holar@simnet.is
Hér segir Páll Gíslason
frá ýmsum uppákomum á
löngum læknisferli sínum,
störfum innan skátahreyf-
ingarinnar og átökum innan
stjórnmálanna, jafnt á meðal
andstæðinga og samherja
BAKSVIÐ
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Eins og við var að búast hafa Evr-
ópumál verið fyrirferðarmikil á
flokksráðsþingi Vinstri grænna, sem
hófst í gær. Stuttu fyrir upphaf
þingsins sagðist Steingrímur J. Sig-
fússon, formaður Vinstri grænna,
vera bjartsýnn á að sátt næðist um
Evrópusambandsaðild. Hann sagð-
ist eiga von á að þingið myndi senda
frá sér ályktun um stöðu og framhald
Evrópumála í þinglok. „Annars verð-
ur margt annað en Evrópumálin
rætt á þinginu og margt af því er
ekki síður mikilvægt, þó að ég sé
ekki að gera lítið úr Evrópumálun-
um.“ Steingrímur sagði flokksmenn
VG vera sammála um Evrópumál í
grunnatriðum, ágreiningurinn sner-
ist einna helst um aðferðir.
Í upphafi ávarps síns sagði Stein-
grímur að landsmönnum væri hollt
að hafa í huga að fleiri þjóðir en Ís-
lendingar hefðu átt í erfiðleikum,
sumstaðar væru erfiðleikarnir að
dynja yfir fyrst núna. Í því sambandi
nefndi hann Írland, en búist er við að
fjárlagahalli þar verði um 30% í ár.
Minnkandi fjárlagahalli
Hann sagði fjárlagahalla stefna
niður fyrir 5% í ár og stefnt væri að
því að koma honum í um 3,5% á
næsta ári. „Það er langt síðan við
hurfum af listanum yfir þau tíu lönd
sem voru líklegust til að fara á haus-
inn. En það er ekki sjálfgefið að Ís-
land sé á þeim stað sem það er núna.“
Hann sagði enga launung á því að
um afar erfitt verkefni væri að ræða.
„Líklega er erfiðasta lotan einmitt
núna. Fjárlögin fyrir næsta ár eru
sársaukafull birtingarmynd hruns-
ins, sem nú fellur af fullum þunga á
landinu,“ sagði Steingrímur. „Sumir
kalla þetta hrunfjárlög og það er
rétt. En þetta eru á sama tíma end-
urreisnarfjárlög.“
Steingrímur sagði að verr hefði
gengið að draga úr atvinnuleysi en
vonir hefðu staðið til.
„Fáir veittu því athygli hvernig er-
lendar skuldir hlóðust upp hjá sveit-
arfélögunum á góðæristímum,“
sagði Steingrímur og sagði það mik-
ilvægt að ríki og sveitarfélög stæðu
saman að opinberum verkefnum.
Sveitarfélögin þyrftu á aðstoð ríkis-
ins að halda við að ná utan um er-
lendar skuldir sínar. Hann sagði úr-
vinnslu skulda heimilanna og
atvinnulífsins „auðvitað hafa gengið
allt of hægt“ og að mögulegt væri að
leysa þann vanda á næstu 5-6 mán-
uðum. Hann sagði allar hagspár gera
ráð fyrir hagvexti á komandi ári.
Skortur á útskýringum
Steingrímur sagði ríkið greiða um
200 milljónir á dag í vexti. Hann
sagði ríkisstjórnina hafa gert mistök
að einu leyti hvað varðaði ríkisfjár-
málin. „Við þurfum að standa okkur
miklu betur í því að útskýra hvers
vegna við gerum það sem við erum
að gera.“
Hann sagði margar af þeim
ákvörðunum, sem teknar hefðu verið
varðandi niðurskurð, hafa verið mjög
erfiðar. „Við erum ekki að gera þetta
að gamni okkar og sumar þessarar
ákvarðana hafa verið gríðarlega erf-
iðar að taka. En ef við gerum þetta
ekki sköpum við langtímavandamál,“
sagði hann.
Undir lok ræðunnar spurði Stein-
grímur fundarmenn hvort hann hefði
stuðning og umboð frá flokknum til
að halda þessari baráttu áfram. Því
var svarað með dynjandi lófaklappi.
Er VG sammála eða ekki
sammála um Evrópumál?
Morgunblaðið/Eggert
Flokksráðsþing Fundarmenn voru íbyggnir á svip í upphafi þings, enda mörg mál sem brenna á Vinstri grænum.
Steingrímur J. segir Evrópuágreining í VG snúast fyrst og fremst um aðferðir
Ný skýrsla Capacent um raunveru-
legan sparnað af áætluðum nið-
urskurði á starfsemi Heilbrigð-
isstofnunar Austurlands (HSA) var
kynnt íbúum í Fjarðabyggð á íbúa-
fundi í Egilsbúð í Neskaupstað síð-
degis í gær.
Í skýrslunni kemur m.a. fram að
sparnaður ríkisins af 466 milljóna
niðurskurði verði í reynd einungis
um 68 milljónir króna. Var það
samdóma álit að í skýrslunni væri
nokkuð varlega farið. Þar er ekki
tekið tillit til þeirra þjóðhagslegu
áhrifa og kostnaðar sem af hinum
ætlaða sparnaði hlýst. Ekki heldur
þeirra tekna sem t.d. sveitarfélögin
á Austurlandi verða af komi til
þeirra uppsagna sem við blasa.
Eftir því var tekið að engir þing-
menn kjördæmisins létu sjá sig í
Egilsbúð, né heldur ráðherrar eða
fulltrúar úr heilbrigðisráðuneytinu.
Það olli sumum fundargestum von-
brigðum, en þannig þóttust menn
geta lesið úr því að ekki væru kosn-
ingar á næsta leiti.
„Við vinnum alveg fyrir því að
hér sé rekin sómasamleg heilbrigð-
isþjónusta,“ sagði Gunnþór Ingva-
son, framkvæmdastjóri Síldar-
vinnslunnar, á fundinum og vísaði
þar í það háa hlutfall útflutnings-
tekna sem til verður í Fjarðabyggð.
200 Austfirðingar á
íbúafundi um mál-
efni sjúkrahússins
Íbúafundur Fundurinn í Egilsbúð í
Neskaupstað var fjölsóttur í gær.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Lögreglunni á Húsavík hafa borist
tilkynningar um sex innbrot, að-
allega í Reykjadal, á undanförnum
tveimur vikum. Brotist var inn í
eina verslun og fimm hús sem flest
eru notuð sem sumarhús. Eigendur
húsanna sakna aðallega áfengis eft-
ir innbrotin.
Innbrotsþjófarnir hafa unnið
nokkrar skemmdir á húsunum til
að komast inn í þau. Að öðru leyti
hafa þeir gengið vel um, að sögn
lögreglunnar, og ekki allt lagt í
rúst eins og stundum gerist. Málin
eru nú í rannsókn, samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar á Húsavík.
Vínþyrstir þjófar á
ferð í Reykjadal
Ekki taka flokksmenn Vinstri
grænna undir þá skoðun að sátt
ríki um Evrópumál. Rúmlega sjö-
tíu manns stóðu að ályktun í
gærkvöldi um að flokksráðið
krefðist þess skilyrðislaust að
aðlögunarferlið yrði stöðvað og
að hafnar yrðu eiginlegar samn-
ingaviðræður. „Aðlögunarferlið
er mjög kostnaðarsamt og við
sjáum engan tilgang í því að
leggjast í rýnivinnu og setja upp
stofnanir með tilheyrandi kostn-
aði og ferðum til Brussel,“ segir
Ásmundur Einar Daðason, þing-
maður og einn flutningsmanna
tillögunnar. „Við lögðum þetta
til sem sáttatillögu í Evrópu-
málum, en það hefur verið mikill
urgur í flokksmönnum vegna
þeirra.“Ásmundur bendir á að nú
þegar hafi ESB samþykkt að
leggja fjóra milljarða í aðlög-
unarferlið. Á móti því komi háir
fjármunir frá íslenska ríkinu.
„Þetta eru miklir peningar, sér í
lagi í ljósi þess niðurskurðar
sem blasir við okkur, “ segir Ás-
mundur. Hann segir að tillagan
sé ekki einungis lögð fram í
þeim tilgangi að sætta ólík sjón-
armið innan VG, hún eigi erindi
við þjóðina alla.
Aðlögunarferlið peningasóun
VILJA HEFJA AÐILDARVIÐRÆÐUR STRAX
Ásmundur Einar Daðason