Morgunblaðið - 20.11.2010, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Andri Karl
andri@mbl.is
Angistin var nánast áþreifanleg í sal I
í Héraðsdómi Reykjaness í gærdag
þegar þingfesting fór fram í máli
ákæruvaldsins gegn Gunnari Rúnari
Sigurþórssyni. Fullt var út úr dyrum
áður en þinghald hófst og ættingjar
og vinir Hannesar Þórs Helgasonar
biðu óþreyjufullir eftir að banamaður
hans gengi inn í salinn. Gunnar Rún-
ar sýndi fá svipbrigði meðan á þing-
haldi stóð og bar sig nokkuð manna-
lega. Inntur eftir afstöðu sinni til
sakarefnisins sagði hann skýrt: „Ég
játa.“ Með því fékkst játning Gunn-
ars Rúnars endanlega staðfest. Hann
gekkst við að hafa, samkvæmt
ákæruskjali, veist að Hannesi Þór á
hald yrði lokað á meðan Gunnar Rún-
ar gæfi skýrslu sem og geðlæknar
þeir sem kæmu fyrir dóminn. Ákæru-
valdið tók ekki afstöðu til kröfunnar
og er það dómari málsins sem hefur
lokaorðið.
Eftir þinghaldið gengu ættingjar á
fund réttargæslumanns og spurðu út
í kröfuna og um líkur þess að hún yrði
samþykkt. Sjáanlegt var að þeir voru
afar ósáttir við hana.
Tvær bótakröfur liggja frammi í
málinu. Gunnar Rúnar samþykkti
kröfu fjölskyldu Hannesar en fór
fram á að hún yrði lækkuð. Krafan
hljóðar upp á fimm milljóna kr.
miskabætur og tæplega 1.300 þús. kr.
í útfararkostnað. Gunnar Rúnar
hafnaði hins vegar kröfu unnustu
Hannesar upp á 2,5 milljónir króna.
vara að Gunnar Rúnar verði látinn
sæta öryggisgæslu á viðeigandi
stofnun. Þó svo að geðrannsókn hafi
farið fram er ljóst að gert verður yf-
irmat tveggja geðlækna. Eiga þeir að
skila matinu 20. desember nk. Dag-
inn eftir verður næsta fyrirtaka.
Farið fram á lokað þinghald
Á meðal þess sem tekið verður fyr-
ir við þinghald 21. desember er hvort
þinghaldið verði lokað almenningi og
fjölmiðlum. Guðrún Sesselja Arnar-
dóttir, verjandi Gunnars Rúnars, fór
fram á að þinghaldið yrði framvegis
og að fullu lokað til verndar Gunnari
Rúnari og ekki síður fjölskyldu hans.
Þegar hún bar fram kröfu sína mátti
heyra hljóðlátan klið meðal áhorf-
enda. Til vara fór hún fram á að þing-
lit, brjóst, bak, handleggi og hendur.
Hnífstungurnar gengu m.a. í hjarta,
lungu og nýra. Ákæruvaldið fer fram
á þyngstu mögulegu refsingu en til
heimili hans snemma morguns
sunnudaginn 15. ágúst sl. svo bani
hlaust af. Lagði hann til Hannesar
með hnífi og stakk hann ítrekað í and-
Játaði sekt sína fyrir dómara
Gunnar Rúnar Sigurþórsson sat hnarreistur fyrir framan ættingja Hannesar Þórs Helgasonar
Ættingjar ósáttir við kröfu verjanda Gunnars Rúnars um að þinghaldið verði framvegis lokað
Réttarhöld Gunnar Rúnar Sigurþórsson kemur í dómssalinn í gær.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Ragnar Axelsson (RAX), ljósmyndari Morgunblaðsins,
er á leiðinni til Suðurskautslandsins í boði fyrrverandi
forsætisráðherra Frakklands og tekur ferðin rúmlega
tvær vikur. „Þetta er einstakt tækifæri og það verður
spennandi að mynda þarna eftir að hafa farið víða um
norðurheimskautssvæðið,“ segir Raxi.
Í lok október opnaði hann tvær sýningar í Listasafni
Kópavogs – Gerðarsafni, Veiðimenn norðursins og hins
vegar Andlit aldanna. Þar gefur að líta magnaðar ljós-
myndir frá norðurheimskautssvæðinu, en ný bók eftir
Rax, Veiðimenn norðursins, sem Crymogea gefur út, er
þegar komin út í Bretlandi (Last Days of the Arctic),
Þýskalandi, Austurríki og Sviss (Die letzten Jäger der
Arktis). Henni verður dreift í Bandaríkjunum og Kanada
frá og með apríl á næsta ári og viðræður um útgáfu í
fleiri löndum, m.a. Frakklandi, eru í gangi.
Boð á milli rétta
Rax segir að þegar hann var búinn að setja verkin
upp í Gerðarsafni hafi franska sendiráðið haft samband
við sig og óskað eftir að Michel Rocard, fyrrverandi for-
sætisráðherra Frakklands, og aðstoðarmenn hans
fengju að skoða sýninguna. Það hafi verið auðsótt mál og
daginn eftir hafi hann farið út að borða með Frökkunum.
„Þeir sögðust hafa áhuga á að fá sýninguna til Parísar og
við spjölluðum saman eins og gengur. Rocard spurði mig
meðal annars hvað væri helst á döfinni hjá mér og hvað
mig langaði mest til að gera. Ég sagði að þar sem ég
hefði farið vítt og breitt um norðurheimskautssvæðið
væri gaman að fara og mynda á Suðurskautslandinu. „Af
hverju kemurðu ekki með okkur í lok nóvember,“ svaraði
hann og ég gat ekki hafnað slíku boði.“
Leiðangurinn er tvískiptur. Rax flýgur frá París til
Argentínu, en þar hefst boðsferðin og þaðan heldur hóp-
urinn siglandi á svæðið. „Mér gefst einstakt tækifæri til
þess að mynda dýralífið á svæðinu og hugmyndin er að
birta árangurinn í jólablaði og áramótablaði sunnudags-
blaðs Moggans.“
Rax segist í sjálfu sér ekki vita hvað hann sé að fara
út í, en í því felist ákveðin ögrun. „Shackleton fór fjórum
sinnum á þetta svæði og missti aldrei mann,“ rifjar Rax
upp. „Eftir að Endurance, skipið hans, sökk í þriðju ferð-
inni björguðu leiðangursmenn sér með því að sigla langa
leið á litlum árabátum, en í fjórðu ferðinni lést hann úr
hjartaslagi 1922. Mér skilst að á siglingaleiðinni sé alltaf
vont veður og miklir straumar. Ég leitaði ráða hjá vini
mínum og hann sagði mér að hann hefði heyrt af mávi á
flugi sem hefði misreiknað ölduhæðina og flogið beint
inn í ölduna. En ég þarf ekki að reikna neitt út, læt vís-
indamennina um það.“
RAX boðið í ferð
á Suðurskautslandið
„Einstakt tækifæri og spennandi að mynda þarna“
Ljósmynd/Sveinn M. Sveinsson
Í Thule Rax hefur kynnt sér líf fólks á Grænlandi í meira en tvo áratugi og næst er það Suðurskautslandið.
Margir þekktir vísindamenn verða
með Rax í ferðinni. Þar fer einna
fremstur Bandaríkjamaðurinn Will
Steger, en auk þess verða m.a.
menn frá Noregi og Frakklandi
með í för. „Mér skilst að við förum
á slóðir Ernests Shackletons og
það verður ekki leiðinlegt,“ segir
Rax, en Bretinn er einn þekktasti
heimskautafari sögunnar.
Með vísindamönnum í
fótspor Shackletons
Í GÓÐRA MANNA HÓPI
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Komdu sæll. Þetta er vitlausa kerl-
ingin í Vesturbænum.“ Já, komdu
sæl. „Ég vildi bara láta þig vita að
málið er leyst.“
Svona hófst samtal okkar Guð-
laugar Hallbjörnsdóttur, þegar hún
hringdi í gær til þess að tilkynna að
botn væri kominn í „stóra kápu-
málið“.
Eins og fram kom í samtali við
Guðlaugu í Morgunblaðinu í gær
hefur kápa verið að þvælast fyrir
henni síðan í vor. Hún hefur reynt að
komast að því hvernig kápan komst í
fataskáp hennar en enginn hefur
þekkt kápuna, enginn hefur séð
hana fyrr og enginn hefur viljað hafa
neitt með hana að gera.
Þungu fargi létt af Guðlaugu
Guðlaug segir að fyrrverandi
samstarfskona sín hjá Skeljungi hafi
hringt í sig í gærmorgun og sagt sér
hvernig á kápunni stæði í skápnum.
„Hún sagði að hún hefði haft sam-
band við mig fyrir um þremur árum
og spurt hvort ég vildi ekki fá fata-
bunka til þess að gefa Rauðakross-
inum. Ég hefði sagt já, og það kemur
mér ekki á óvart því ég segi já við
öllu, en ég mundi bara ekkert eftir
kápunni. Ástæðan er sú að konan
kom með stóran, svartan plastpoka
fullan af fötum en hengdi kápuna
upp í fataskápinn þeim megin sem
ég opna nánast aldrei vegna þess að
hurðin er biluð. Því vissi ég ekkert af
kápunni fyrr en ég fór að taka til í
skápnum síðastliðið vor.“
Að sögn Guðlaugar er þungu
fargi af henni létt, þó hún sitji uppi
með vitleysuna. „Konan sagði að
kápan væri frá sér og ég mætti gera
við hana það sem ég vildi. Ég ætla að
taka hana á orðinu og gefa hana,“
segir Guðlaug.
Guðlaug leysir
kápumálið
Var hluti af söfnun
Guðlaugar fyrir
Rauða krossinn
Morgunblaðið/Kristinn
Málið leyst Guðlaug Hallbjörns-
dóttir hefur leyst ráðgátuna.
Heiðrún Villa, höfundur
bókarinnar „Gerðu
besta vininn betri“
hefur gefið út fyrsta
íslenska hundaþjálfun-
armynddiskinn.
Diskurinn hefur fengið
frábærar móttökur.
HUNDANÁMSKEIÐ HEIM Í STOFU
Jólagjöf hundaeigandans í ár!
Fæst í öllum helstu verslunum landsins og á www.hundatjalfun.is