Morgunblaðið - 20.11.2010, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Sú sérkennilega staða er kominupp að upplýsingagjöf ráð-
herra til Alþingis kallar ítrekað á
umræður, jafnt í þingsal, þar sem
framganga ráðherra hefur kallað á
sérstakan til-
löguflutning, sem á
öðrum vettvangi.
ÁEvrópuvakt-inni, wwv.evr-
opuvaktin.is, var í
gær fjallað um upp-
lýsingagjöf Stein-
gríms J. Sigfússonar til alþingis
vegna fyrirspurnar Sigurðar Kára
Kristjánssonar um að Ísland hefði
verið fellt inn í eftirlitskerfi Evrópu-
sambandsins með efnahagsmálum.
Bent var á að upplýsingagjöfinhefði ekki verið sannleikanum
samkvæm. Steingrímur hefði gert
lítið úr því eftirlitskerfi ESB sem Ís-
land væri nú komið inn í og líkt því
við upplýsingagjöf til OECD.
ÁEvrópuvaktinni er vitnað tilsvars utanríkisráðuneytisins
um þetta efni, þar sem segir: „Þegar
ríki er orðið að umsóknarríki ESB
(e. candidate country) hefst þátt-
taka þess í marghliða eftirlitskerfi
ESB með efnahagsmálum og hags-
tjórnarsamstarfi sem hefur það
markmið að undirbúa þátttöku um-
sóknarríkisins í Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu (EMU). Þetta fyr-
irkomulag ber heitið
„Pre-Accession Economic and Fis-
cal Surveillance“.“
Vakin er athygli á að markmiðþessa eftirlitskerfis er að und-
irbúa upptöku evrunnar, en eins og
formanni VG er sennilega kunnugt
um hefur ekki verið tekin ákvörðun
um aðild að Evrópusambandinu,
hvað þá um upptöku evrunnar, enda
dytti tæpast nokkrum manni í hug
að sækjast eftir evrunni við þær að-
stæður sem nú eru uppi á evrusvæð-
inu.
Steingrímur J.
Sigfússon
Upplýsingagjöf um
eftirlitskerfi ESB
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 19.11., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 3 skýjað
Akureyri 4 skýjað
Egilsstaðir 5 rigning
Kirkjubæjarkl. 6 alskýjað
Nuuk 1 skýjað
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló -7 léttskýjað
Kaupmannahöfn 2 skúrir
Stokkhólmur 0 léttskýjað
Helsinki -3 skýjað
Lúxemborg 6 skýjað
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 10 léttskýjað
París 7 skýjað
Amsterdam 7 þoka
Hamborg 6 skýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 6 skýjað
Moskva 3 alskýjað
Algarve 17 skýjað
Madríd 10 léttskýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 12 léttskýjað
Aþena 17 skýjað
Winnipeg -7 snjókoma
Montreal 0 skýjað
New York 6 heiðskírt
Chicago 3 alskýjað
Orlando 23 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
20. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:13 16:15
ÍSAFJÖRÐUR 10:40 15:57
SIGLUFJÖRÐUR 10:24 15:39
DJÚPIVOGUR 9:48 15:39
Lionsklúbburinn
Æsa í Njarðvík,
heldur markað
að Víkurbraut 6,
Reykjanesbæ, í
dag laugardag,
kl. 13 – 17. Þar
verður boðinn til
sölu ýmiskonar
varningur, bæði
nýr og notaður. Allur ágóði rennur
í líknarsjóð Æsu. Lionskonur hvetja
Suðurnesjamenn til að koma, gera
góð kaup og styðja í leiðinni gott
málefni. Þörfin sé mikil.
Lionskonur halda
markað í Njarðvík
Landssamband íslenskra frímerkja-
safnara heldur 42. ársþing sitt í
dag, laugardaginn 20. nóvember, í
húsakynnum samtakanna í Síðu-
múla 17 í Reykjavík.
Í tengslum við þingið verður
haldin frímerkjasýningin FRÍ-
MERKI 2010 á sama stað og stend-
ur hún yfir í dag og á morgun,
sunnudaginn 21. nóvember, og er
opin frá kl. 13.00 til 16.00 báða dag-
ana. Aðgangur er ókeypis.
Meðal sýningarefnis eru tvö söfn
sem bæði fengu gullverðlaun á al-
þjóðlegri frímerkjasýningu í Portú-
gal í októbermánuði síðastliðnum.
Frímerkjasýning
STUTT
Í dag, laugardaginn 20. nóvember
kl. 13-16, verður opið hús í MS setr-
inu, Sléttuvegi 5, Reykjavík.
Fallegir munir sem unnir eru á
vinnustofunni verða til sölu. Boðið
er upp á súkkulaði og rjómavöfflur
gegn vægu verði. Allur ágóði renn-
ur til félagsstarfsins.
Opið hús hjá MS
524 ltr · Kælir 345 ltr · Frystir 179 ltr
Hæð 179 cm · Breidd 91 cm · No frost
Orkuflokkur A · Twin Coling · Multi flow
Komdu í
heimsókn og
kynntu þér
málið!