Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 10
PRUFUTÍMINN
Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
Listaháskóli Íslands var með opinn dag um síðustu helgi, þar semhinar mismunandi deildir kynntu starfsemi sína. Leiklistar- ogdansdeild var þannig með opna tíma þar sem gestum og gang-andi bauðst að spreyta sig í nokkurs konar inntökuprófum og
fá innsýn í hvernig það ferli gengur fyrir sig.
Látið af höftum
„Inntökuprófið“ fór fram eftir hádegi á laugardegi. Ég var
spenntur en alls ekki kvíðinn. Forvitinn og glaður meira, í
þessu dásamlega kærulausa skapi sem fær mann til að láta af
höftum og kýla á það. Ég veit ekki hvað það var en ég var í
óvenjumiklu jafnvægi þennan daginn. Já, var bara bjart-
sýnn á daginn svei mér þá og í stuði eftir því. Dætur mínar
tvær, þær Ísold (5 ára) og Karólína (3 ára), voru með í för
og settust prúðar niður í salnum næst innganginum.
Ég var reyndar ekki algjört blávatn í þessum efn-
um, ég hafði eitt sinn farið á námskeið í talsetningu
teiknimynda og því kom það mér ekki á óvart þegar ég
gekk inn í salinn og sá þar fjölda fólks standa í hring,
hvað á móti öðru, að gera einhvers konar jafnvægis-
listir, marserandi í takt. Við gengum hvert á milli
annars og tókumst í hendur, brostum hvert til
annars eftir leiðbeiningum kennarans o.s.frv.
Þetta var ekki ósvipað því sem ég hafði upplifað í
teiknimyndanámskeiðinu góða.
Svona gekk þetta áfram. Þeir sem voru að
vonast eftir framsögu á Shakespeare eða að fá
að leika í grínflugu, hafa líklega orðið fyrir
vonbrigðum en mér var tjáð að í gegnum
svona ferli væri farið með alla fyrstu hóp-
ana sem eru teknir í leikprufur.
Æfingarnar allar voru því fremur
sértækar eða „afstrakt“. Hljóð voru reynd, hóp-
urinn sönglaði með sínu nefi og reyndi að ná sam-
tóni, m.a. með því að hver settist upp við bakið á öðr-
um og reigði hrygginn og ýlfraði eins og sláttuvél.
Ef væri ég leikari …
Morgunblaðið/hag
Ég er góður leikari. Ég á tiltölulega auðvelt með að bregða óforvarandis á leik,
fetta mig og bretta, herma eftir svipbrigðum og munda í mér röddina. Er kannski
kominn tími til að taka þessa hluti á næsta plan?
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
-hágæðaheimilistæki
Tilboð kr.: 24.900
Verðlistaverð kr.: 33.200
vi
lb
or
ga
@
ce
nt
ru
m
.is
Vinsælasta ryksugan frá Miele
Miele Tango Plus
Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar, með
stillanlegu röri og úrvali fylgihluta. Þær hafa hlotið
hæstu einkunn hjá neytendasamtökum í Þýskalandi.
AFSLÁTTUR
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Veturinn er árstími leikhúsanna, þá
er frumsýnd hver sýningin á fætur
annarri í atvinnumannaleikhúsunum
og áhugaleikfélög víða um land setja
upp sínar árlegu leiksýningar.
Leiklist.is er heimasíða Bandalags
íslenskra leikfélaga og þar er hægt
að fylgjast með því sem er að gerast í
áhugamannaleiklistinni víða um land.
Bandalag íslenskra leikfélaga er sam-
tök áhugaleikfélaga á Íslandi, stofn-
að árið 1950. Í samtökunum eru 62
leikfélög sem starfa vítt og breitt um
landið. Auk þess að þjóna áhugaleik-
félögum starfrækir bandalagið Leik-
listarskóla og heldur úti vefsíðunni.
Á Leiklist.is er hægt að sjá hvaða
leikrit áhugaleikfélögin eru að setja
upp og hvenær sýningar eru. Svo er
sett inn gagnrýni, einnig eru viðtöl,
umræða, fréttir og fleira.
Stundum er erfitt að finna út
hvaða sýningar eru í boði um landið
nema maður komist í héraðsfrétta-
blað landshlutans sem sýningin er
sett upp í. Því er tilvalið að kíkja inn á
Leiklist.is og sjá hvað er verið að
sýna. Fyrir þá sem eru á ferðalagi um
Snæfellsnes má sjá á síðunni að starf
Leikfélagsins Grímnis í Stykkishólmi
er mjög öflugt, þrjár sýningar verða
frumsýndar hjá því í mánuðinum; ein-
þáttungurinn Kvöldhúm, Litla hryll-
ingsbúðin og Karíus og Baktus.
Vefsíðan www.leiklist.is
Morgunblaðið/Eggert
Vínland Freyvangsleikhúsið í Eyjafjarðarsveit er öflugt áhugaleikfélag.
Sýningar áhugaleikfélaga
Það var handagangur í öskjunni í gær hjá þeim fjórtán
nemendum Menntaskólans í Kópavogi sem eru í
áfanga um sjálfboðið starf, en þau voru að setja upp
markað fyrir Kópavogsdeild Rauða krossins. Á mark-
aðinum verða seld handverk sjálfboðaliða deildarinnar,
sauma- og prjónavörur, bakkelsi sem nemendurnir
baka og annað föndur. Þá verða notuð föt til sölu og
skiptidótamarkaður einnig í gangi þar sem fólki gefst
tækifæri til að koma með dót og skipta út fyrir annað.
Einnig verður hægt að kaupa leikföng á vægu verði.
Auk þessa verður handverk frá Mósambík til sölu,
skartgripir, töskur, batikmyndir og fleira.
Vinnan við markaðinn er lokaverkefni nemendanna í
áfanganum en þeir hafa unnið ákveðin sjálfboðaliða-
verkefni yfir önnina, m.a. sjálfboðin störf í Rjóðrinu,
sem er athvarf fyrir langveik börn, með Eldhugum,
unglingastarfi fyrir íslensk og erlend ungmenni, með
Enter, ungum innflytjendum, og í Dvöl, athvarfi fyrir
fólk með geðraskanir. Þá tóku þau einnig þátt í lands-
söfnun Rauða krossins, Göngum til góðs.
Markaðurinn verður haldinn í Rauðakrosshúsinu
Hamraborg 11, 2. hæð, í dag kl. 11-16.
Allur ágóði rennur til styrktar verkefnum innan-
lands.
Nemendur í áfanga um sjálfboðið starf sjá um allan undirbúning
Morgunblaðið/Ernir
Gaman Krakkarnir voru í óðaönn í gær að raða upp prjónavörum og öðru sem verður á markaðnum í dag.
Markaður Rauða krossins í Kópavogi