Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 16
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Spá um hagvöxt á næsta ári sem
fjárlagafrumvarpið byggist á gerir
ráð fyrir mun meiri hagvexti en
OECD, ASÍ og Seðlabankinn reikna
með. Halldór Árnason, hagfræðing-
ur Samtaka atvinnulífsins, segir að
rætist spá OECD um 1,5% hagvöxt
á næsta ári og spá um samdrátt á
þessu ári þá séu tekjur ríkissjóðs of-
metnar í fjárlagafrumvarpinu um 15
milljarða króna.
Venjan hefur verið sú að þegar
fjárlagafrumvarpið er lagt fram í
upphafi þings er samhliða lögð fram
þjóðhagsáætlun með upplýsingum
um hagvöxt, einkaneyslu, verð-
bólgu, atvinnuleysi og fleiri hag-
stærðir. Upphaflega vann Þjóðhags-
stofnun þessa áætlun, en eftir að
hún var lögð niður fór þessi vinna til
efnahagsskrifstofu fjármálaráðu-
neytisins. Í fyrra birti forsætisráðu-
neytið þjóðhagsáætlun, en að þessu
sinni studdist fjármálaráðuneytið
við hagspá sem Hagstofa Íslands
vann í júní.
Hagvöxtur vegna einkaneyslu
en ekki fjárfestingar
Samkvæmt þessari áætlun er
gert ráð fyrir 3,2% hagvexti á næsta
ári. Í fyrradag birti OECD spá um
1,5% hagvöxt og ekki er langt síðan
Seðlabankinn endurskoðaði sína spá
og gerir nú ráð fyrir minni hagvexti
en áður. ASÍ birti hagspá í síðasta
mánuði sem er á svipuðu róli og
OECD.
Ástæðan fyrir því að nú er spáð
minni hagvexti en áður er m.a. sú að
ekki er reiknað með að framkvæmd-
ir við álver í Helguvík fari af stað á
næsta ári að neinum krafti. ASÍ
reiknar hins vegar með fram-
kvæmdum við Búðarhálsvirkjun og
við álverið í Straumsvík. Í spá Seðla-
bankans er tekið fram að sá hag-
vöxtur sem verði á næsta ári sé fyrst
og fremst knúinn áfram af einka-
neyslu en ekki fjárfestingum.
„Ef spá OECD um hagvöxt á
næsta ári og horfur um áætlaðan
hagvöxt í ár eru bornar saman við
forsendur fjárlagafrumvarpsins þá
sýnist mér að tekjur ríkissjóðs séu
ofmetnar í fjárlagafrumvarpi um allt
að 15 milljörðum króna,“ segir Hall-
dór Árnason, hagfræðingur Sam-
taka atvinnulífsins.
„Þetta sýnir að það er mjög lítil
fjárfesting í gangi og það er að leiða
til samdráttar í efnahagslífinu. SA
hafa margsinnis bent á að ef það ætti
að vera eitthvert áherslumál sem
taka á fram yfir önnur þá er það að
skapa skilyrði fyrir atvinnulífið svo
það geti farið að fjárfesta,“ segir
Halldór og bendir á að atvinnuleysi
aukist takist ekki að skapa ný störf
með aukinni fjárfestingu.
Ný hagspá verður lögð fram við
aðra umræðum um fjárlög og flest
bendir til að sú spá færi þeim sem
eru að reyna að koma saman fjár-
lögum nein gleðitíðindi. Minni hag-
vöxtur þýðir að minni tekjur skila
sér í ríkiskassann vegna tekjuskatts,
virðisaukaskatts og annarra skatta.
Þetta þýðir líka að áætlun fjárlaga-
frumvarpsins um útgjöld vegna at-
vinnuleysisbóta mun ekki standast.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjármálaráðherra Ólíklegt að ný þjóðhagsspá færi Steingrími J. Sigfússyni nein gleiðitíðindi, en hann reynir að koma saman fjárlögum.
Byggist á of bjartsýnni spá
Gangi spá OECD eftir um að hagvöxtur á næsta ári verið 1,5% en ekki 3,2%
eins og fjárlagafrumvarpið byggist á lækka tekjur ríkissjóðs um 15 milljarða
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Halldór Árnason,
hagfræðingur
SA, segir fráleitt
af fjármálaráðu-
neytinu að taka
greiðslur á sér-
eignasparnaði
inn í útreikninga
á kaupmáttar-
rýrnun vegna að-
gerða stjórn-
valda í ríkisfjármálum. Hann segir
að aðgerðirnar rýri kaupmátt um
1% en ekki 0,5% eins og fjár-
málaráðuneytið heldur fram.
Kemur mismikið niður á fólki
Samkvæmt frumvarpi fjármála-
ráðherra um ráðstafanir í ríkisfjár-
málum rýrna ráðstöfunartekjur
heimilanna um 8,7 milljarða á
næsta ári vegna hækkunar skatta
og lækkunar bóta eins og vaxtabóta
og barnabóta. Ráðuneytið dregur
síðan sex milljarða, sem það reikn-
ar með að fari út af
séreignasparnaðarreikningum, frá
þessari upphæð. Halldór segir út í
hött að setja þetta fram með þess-
um hætti því að með útgreiðslu á
séreignasparnaði sé fólk að ganga á
eign sína en ekki auka tekjur sínar.
Halldór segir að þó að kaupmátt-
arrýrnun sé um 1% komi þessar
aðgerðir misjafnlega niður og
kaupmáttur sumra rýrni meira.
Hann bendir líka á að bætur al-
mannatrygginga hækki ekki, en
það er talið spara ríkissjóði 2,7
milljarða.
Kaupmátt-
ur rýrnar
um 1%
Gagnrýnir spá fjár-
málaráðuneytisins
Halldór Árnason
Steingrímur J.
Sigfússon fjár-
málaráðherra var
spurður út í for-
sendur frum-
varpsins á Al-
þingi í fyrradag.
Hann sagði rétt
að Seðlabankinn
hefði lækkað sína
spá, en bætti við
að vísbendingar
væru um að þró-
unin á síðari hluta ársins væri held-
ur betri en á fyrri hlutanum. „Ég tel
ágætar líkur á að frávikið sé innan
skekkjumarka, verði það sem kemur
frá Hagstofunni á svipuðum slóðum
og spá Seðlabankans.“
Vonar að frá-
vikið verði
innan marka
Steingrímur J.
Sigfússon
Vegna lækkunar á fast-
eignamati ættu að óbreyttum
reglum mun fleiri rétt á vaxta-
bótum á næsta ári. Fjár-
málaráðherra leggur til að
vaxtabætur verði skertar um
2,2 milljarða, en vegna lækk-
unar á fasteignamati lætur
nærri að skerðingin sé allt að 4
milljarðar, samkvæmt heim-
ildum Morgunblaðsins.
Samkvæmt lögum taka
vaxtabætur m.a. mið af eign-
arhlut í fasteign. Þegar fast-
eignamat lækkar minnkar bók-
færð eign í húsnæði og þar
með aukast útgjöld vegna
vaxtabóta.
Hópurinn sem á rétt á húsa-
leigubótum fer líka stækkandi
því fleiri eru á leigumarkaði og
fleiri eru í hópi tekjulágra en
áður. Það þyrfti því meira fjár-
magn í þennan málaflokk til að
viðhalda óbreyttu kerfi. Stjórn-
völd hafa hins vegar lagt fram
tillögur um að skerða framlög
til húsaleigubóta.
Húsaleigubætur eru greiddar
út af sveitarfélögunum, en ríkið
greiðir hluta bótanna. Ef sveit-
arfélögin drægju jafnmikið úr
framlögum til húsaleigubóta og
ríkið þýddi það skerðingu upp
á einn milljarð. Engar breyt-
ingar hafa verið tilkynntar á
þessum áformum, en málið
verður væntanlega rætt milli
ríkis og sveitarfélaga á næstu
vikum.
Fram kom á Alþingi í gær að
um 80% af þeim sem fá húsa-
leigubætur er fólk með minna
en 2 milljónir króna í árslaun.
Fleiri eiga rétt á vaxtabótum
HÚSLEIGUBÆTUR OG VAXTABÆTUR SKERTAR Spá um hagvöxt
árið 2011
Fjárlagafrumvarpið 3,2%
Seðlabanki 2,1%
ASÍ 1,7%
OECD 1,5%
470,8
milljarðar miðað við 3,2% hagvaxt-
arspá í fjárlagafrumvarpinu 2011
455,8
milljarðar miðað við 1,5% hagvaxt-
arspá OECD á næsta ári
‹ TEKJUR RÍKISSJÓÐS ›
»
S k e i f u n n i 3 j · S í m i 5 5 3 8 2 8 2 · w w w . h e i l s u d r e k i n n . i s
• Vasar
• Diskar
• Lampar
• Pottar
• Myndir
o.m.fl .
Frábært verð, mik
ið úrval
gefðu
Gjafabréf
heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi
Jafnvægi fyrir líkama og sál
veittu vellíðan
gefðu
gjafabréf
Kínversk
handgerð list
Frábær jólagjöf
á gamla genginu!