Morgunblaðið - 20.11.2010, Page 26

Morgunblaðið - 20.11.2010, Page 26
FRÉTTASKÝRING Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Ef marka má fréttir eru samningamenn Ís- lands, Bretlands og Hollands að leggja síðustu hönd á nýtt samkomulag um afgreiðslu á Ice- save-deilunni, sem mun fela í sér að íslenska ríkið tekur á sig ábyrgð vegna innstæðna á reikningum Landsbankans í hinum löndunum tveimur. Fréttir herma að kostnaður ríkisins muni samkvæmt þessu nýja samkomulagi verða um sextíu milljarðar. Ekkert hefur hins vegar komið fram um forsendur fyrir þessum út- reikningi, annað en að vextir á láni frá Bretum og Hollendingum verði þrjú prósent en ekki 5,55 prósent eins og gert var ráð fyrir í fyrra samkomulaginu, sem kjósendur höfnuðu í vor. Eins og Jón Daníelsson benti á í janúar þá skiptir það öllu máli þegar verið er að reikna út endanlegan kostnað fyrir ríkið hve hratt greitt er úr þrotabúi Landsbankans, hve langur tími er ætlaður til endurgreiðslu á lánum Breta og Hollendinga og gengisþróun. Benti hann á að miðað við 88 prósent endurheimtur úr þrota- búinu myndu um 500 milljarðar króna lenda á ríkinu og þar af væru um 380 milljarðar vegna vaxta, en aðeins um 120 væri höfuðstóll lánsins. Munurinn á 500 milljörðum og sextíu er vissulega mikill, en áður en meira er vitað um forsendurnar sem notaðar eru til að fá út sextíu milljarða töluna er ekki hægt að leggja mat á hversu raunhæf hún er. Þá er einnig ákveðin óvissa um hvort ís- lenska ríkið ræður við sextíu milljarða erlenda skuld til viðbótar við það sem nú þegar liggur á ríkissjóði og seðlabanka. Samkvæmt tölum frá seðlabankanum sjálfum nemur gjaldeyrisforð- inn, að lánalínum meðtöldum, um fjórum millj- örðum evra, eða um 600 milljörðum króna. Hann er að stærstum hluta fenginn að láni. Af- borganir af erlendum skuldum á næstu árum, þar á meðal lánum sem notuð voru til að byggja upp forðann, eru það miklar að árið 2015 verður forðinn uppurinn. Samkvæmt gamla Icesave- samkomulaginu áttu greiðslur af Icesave- skuldinni að hefjast á því ári, en það verður erf- itt ef enginn gjaldeyrir er til. Aðgengi að fjármagni Áætlanir Seðlabankans gera ráð fyrir því að fyrir þann tíma verði aðgengi Íslands að er- lendum lánsfjármörkuðum orðið betra og því verði hægt að endurfjármagna erlendar skuldir ríkisins. Ef það rætist er hins vegar alls óvíst um kjör á slíkri endurfjármögnun. Vextir erlendis eru vissulega lágir núna, en þeir geta ekki gert ann- að en hækkað á næstu fimm árum – ef stýri- vextir erlendis verða enn nærri núllinu eftir fimm ár mun það þýða að hagkerfi heimsins verða þá enn í alvarlegum vanda. Hvað sem öðru líður munu afborganir af sex- tíu milljarða króna erlendri skuld leggja enn meiri þrýsting á viðskiptajöfnuð við útlönd, þ.e. mismuninn á því fyrir hve mikið fé er flutt inn og út úr landinu. Til að greiða upp erlendar skuldir þarf erlendan gjaldeyri. Í ár og í fyrra var myndarlegur afgangur á vöruskiptum við útlönd, en gjaldeyrisþörf rík- isins á næstu árum vegna afborgana er mun meiri en sem nemur þessum afgangi. Undir eðlilegum kringumstæðum myndi þrýstingur sem þessi leiða til enn meiri veik- ingar krónu, það leiðir af mjög einföldum lög- málum um framboð og eftirspurn. Með gjald- eyrishöftin til staðar eru sveiflur á gengi krónunnar minni en ella og hefur hún styrkst töluvert undanfarna mánuði. Vegna lagaum- hverfisins skiptir gengi krónunnar miklu varð- andi Icesave, en krafa tryggingasjóðs inn- stæðueigenda í þrotabúið er í krónum. Veiking krónu getur því haft alvarleg áhrif. Af þessu er rökrétt að álykta að miðað við þessar for- sendur, og að nýr Icesave-samningur verði samþykktur, verði gjaldeyrishöft til staðar næstu árin á Íslandi. Óvissa um greiðslugetu  Rætt er um að nýr Icesave-samningur muni kosta um 60 milljarða króna  Erlendar skuldir ríkisins eru mjög miklar fyrir  Miðað við greiðsluáætlun næstu ára verður gjaldeyrisforðinn búinn árið 2015 Nýr Icesave samningur Innflutning á Kaffi í 40 ár Innflutning á tóbaki í 27 ár Innflutning á súráli í 1,1 ár Innflutning á bensíni í 5,7 ár Innflutning á timbri í 28 ár Innflutning á sjónvarpstækjum í 56 ár Innflutning á fólksbílum í 7 ár Innflutning á fiskiskipum í 16 ár Innflutning á korni til manneldis í 33 ár Innflutning á ávöxtum og grænmeti í 9 ár Á hvern Íslending: Mannfjöldi í janúar 2010 : 317.630 Skuld á mann: 188.899 krónur Á hvern vinnandi Íslending: Vinnandi á þriðja ársfjórðungi 2010: 170.200 Skuld á mann: 352.526 krónur 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 M ill jó ni r ev ra 2025 2024 2023 2022 2021 2020 2019 2018 2017 2016 2015 2014 2013 2012 2011 2010 Afborganir: Skuldabréf vegnaAvens Tvíhliðalánm.v. fullan ádrátt IMF lániðm.v. fullan ádrátt Lán tekin fyrir áætlunina með IMF (leiðrétt fyrir uppkaupum) Forðinn uppurinn 2015 Forðinn og afborganir Skuldin á mann Vöruskiptajöfnuður á ári Í milljónum króna Afborganir á erl. lánum ríkisins 2008 2009 2010* *janúar-september -6,665 90.280 88.583 Frá 2010-2015 Frá 2015-2021 4.000 milljónir evra 2.000 milljónir evra Andvirði 610 milljarða kr. Andvirði um305milljarða kr. Ef kostnaður vegna Icesave verður 60 milljarðar króna jafnast það á við: 26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010                                            !"# $% " &'( )* '$* +++,-- +-.,-- +/.,-0 1/,02. +3,-0- +2,4-0 ++4,++ +,4541 +-5,5 +04,42 ++1,/5 +3/,1+ ++/,/- 1/,21. +3,3+1 +2,514 ++4,54 +,45-+ +-5,.1 +04,-. 1/0,/.5+ ++1,4+ +3/,20 ++/,4. 1/,23. +3,32- +2,5-+ ++4,-0 +,40+ +-0,55 +05,11 Gjaldeyri sem fer í að greiða upp erlendar skuldir ríkissjóðs er ekki hægt að nota í annað, eins og inn- flutning á neyslu- eða fjárfesting- arvörum eða á þjónustu. Það er því áhugavert að skoða í hvað annað en afborganir á láni frá Bretum og Hollendingum mætti nota sextíu milljarða króna. Sextíu milljarðar jafnast á við fjörutíufaldan innflutning Íslend- inga á kaffi árið 2009, svo dæmi sé tekið. Sama fjárhæð kaupir tæp- lega sexfalt það af bensíni sem við fluttum inn í fyrra og 28-faldan inn- flutning okkar á timbri. Innflutt súrál, sem notað er til ál- framleiðslu, kostaði ríflega fimmtíu milljarða króna í fyrra, sem þýðir að kostnaður vegna hugsanlegs nýs Icesave-samkomulags yrði s.s. ríf- legur allur sá innflutningur. Kostnaður vegna slíks sam- komulags, þótt minni sé en upp- haflega átti að vera, mun því koma niður á lífsgæðum Íslendinga. Fjörutíufaldur árlegur innflutningur á kaffi Erlendar skuldir ríkissjóðs eru afar miklar og eins og greint hefur verið frá áður munu afborganir af þeim nema um fjórum milljörðum evra til ársins 2015, eða ríflega 600 millj- örðum króna á gengi dagsins í dag. Á hvert mannsbarn á Íslandi er þetta andvirði um 1,9 milljóna króna. Ef satt reynist að nýtt sam- komulag um greiðslur á innstæðum í Icesave muni kosta íslenska ríkið um 60 milljarða króna þýðir það að hlutur hvers Íslendings verður um 190.000 krónur. En til að afla fjár- ins verður að vinna fyrir honum. Það er því hugsanlega betri sam- anburður að reikna út hver hlutur hvers vinnandi manns er í skuldum ríkissjóðs, hvort heldur sem er vegna Icesave eða annars. Starfandi á íslenskum vinnu- markaði á þriðja ársfjórðungi í ár voru 170.200 menn og konur. Hlut- ur hvers í Icesave-skuldinni væri því um 350.000 krónur. Um 350.000 krónur á hvern vinnandi mann - nýr auglýsingamiðill 569-1100

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.