Morgunblaðið - 20.11.2010, Síða 38
38 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
✝ Margrét JónínaJóhannsdóttir,
húsmóðir og
verslunarmaður,
fæddist á Siglufirði
10. ágúst 1928. Hún
lést á Heilbrigðis-
stofnun Fjallabyggð-
ar, Siglufirði, 9. nóv-
ember 2010.
Foreldrar hennar
voru Halldóra
Bjarnadóttir, f. 18.9.
1900, d. 20.4. 1979,
og Jóhann Ásgríms-
son, f. 5.7. 1889, d.
24.8. 1968. Þau skildu. Frá tveggja
ára aldri ólst Margrét upp hjá
föðursystur sinni, Sólveigu Ás-
grímsdóttur, og eiginmanni henn-
ar, Ásgrími Jónssyni, í Ólafsfirði.
Systkini Margrétar Jónínu voru: 1)
Ragna Jóhannsdóttir, f. 18.4. 1924
2) Bjarni Lenhard Jóhannsson, f.
17.6. 1926, d. 13.5. 2006.
Bróðir sammæðra: 3) Einar Her-
mannsson, f. 11.6. 1934.
Fyrri eiginmaður Margrétar
Jónínu var Sigmundur Sig-
urgeirsson, þau skildu.
Árið 1997 giftist Margrét Jónína
seinni eiginmanni sínum, Inga
Karli Jóhannessyni, dómtúlki og
löggiltum skjalaþýðanda, f. 11.9.
1928, d. 25.3. 2001.
Margrét Jónína
lauk fullnaðarprófi
frá barnaskóla Ólafs-
fjarðar 1. maí 1941.
Hún stundaði nám
við Húsmæðraskól-
ann að Laugalandi og
útskrifaðist þaðan 24.
apríl 1947. Þegar
Margrét Jónína var í
kringum tvítugt flutti
hún frá Ólafsfirði til
Reykjavíkur.
Hún starfaði lengst
af við verslunarstörf,
m.a. í JL-húsinu, Skóversluninni
Rímu og síðast hjá Agli Jacobsen.
Margrét Jónína tók virkan þátt í
ýmsum félagsstörfum, hún var
ævifélagi í Slysavarnafélagi Ís-
lands, Ólafsfirðingafélaginu í
Reykjavík og sat í fulltrúaráði í
Sjálfstæðisfélaginu í Reykjavík.
Eftir andlát eiginmanns síns flutti
Margrét Jónína til Akureyrar en
vorið 2004 flutti hún til Siglu-
fjarðar og bjó á Dvalarheimilinu
Skálahlíð.
Útför Margrétar Jónínu fer fram
frá Siglufjarðarkirkju í dag, 20.
nóvember 2010, og hefst athöfnin
kl. 14. Jarðsett verður í Ólafsfjarð-
arkirkjugarði.
Kæra systir og mágkona, okkur
langar til að þakka þér fyrir stund-
irnar okkar saman og þó sérstak-
lega nú síðari ár, okkar kynni urðu
mun meiri og nánari eftir að þú
fluttir hingað til Siglufjarðar og
tókst með okkur sérstök og innileg
vinátta og erum við sérstaklega
þakklát fyrir það.
Það var ávallt gott að heimsækja
þig og þitt notalega og fallega heim-
ili. Þín verður sárt saknað þegar
fjölskyldan okkar kemur saman en
við huggum okkur við það að eiga
góðar minningar um þig.
Elsku Lilla, far þú í friði, friður
Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Sofðu rótt, sofðu rótt,
nú er svartasta nótt.
Sjáðu sóleyjarvönd
geymdu’ hann sofandi í hönd.
Þú munt vakna með sól
Guð mun vitja um þitt ból.
(Jón Sigurðsson frá Kaldaðarnesi.)
Einar og Margrét.
Kær vinkona og fóstursystir hef-
ur kvatt þetta líf, þar fór vönduð
kona. 82 ár eru ekki langur tími í ei-
lífðinni en talsvert löng mannsævi.
Lillu kynntist ég árið 1947 þegar
Jón Halldórsson, fóstri hennar, og
móðir mín, Ástríður Hannesdóttir,
giftu sig. Ég tel að það hafi orðið
okkur öllum til gæfu og gleði. Lilla
var þá í kaupavinnu í Kaupangi í
Eyjafirði, nýkomin úr húsmæðra-
skólanum á Laugalandi, bústin, úti-
tekin, brosmild og ánægð. Samband
mömmu og Lillu var einstakt,
reyndist hún mömmu kærleiksrík
dóttir og er ég henni ævinlega
þakklát fyrir það. Börnum mínum
og barnabörnum var hún Frænka
með stórum staf.
Þegar Lilla kom svo til Reykja-
víkur bjó hún að sjálfsögðu hjá okk-
ur á Holtsgötunni. Hún fékk vinnu í
KRON enda vön afgreiðslustörfum
úr Kaupfélaginu í Ólafsfirði. Síðar
starfaði hún í skóversluninni Rínu í
JL-húsinu og hjá Jacobsen. Alls
staðar vann hún af vandvirkni og
samviskusemi, naut trausts sam-
starfsfólks og vinnuveitenda. Hún
var stundvís, reglusöm og skemmti-
legur vinnufélagi, kom auga á
spaugilegar hliðar varðandi menn
og málefni, en talaði aldrei illa um
nokkurn mann.
Það var gaman að heyra Lillu
segja frá uppvaxtarárunum í Ólafs-
firði, allt á kafi í snjó á veturna og
gaman að renna sér á sleða eða
skíðum. Síðsumars heilluðu brekk-
urnar fyrir ofan bæinn með sínum
ljúffengu aðalbláberjum. Alltaf var
gleði og væntumþykja þegar hún
minntist á æskuvinina að norðan,
hélst vinátta við marga þeirra alla
tíð.
Heimili Lillu var mjög fallegt
hvar sem hún bjó enda mikill fag-
urkeri.
Lilla og Ingi Karl Jóhannesson
hófu sambúð 1981 og áttu þau sam-
an 20 góð ár. Í veikindum Inga
sýndi hún einstakan dugnað og
ósérhlífni er hún annaðist hann
heima til hinstu stundar.
Það verða margir sem munu
sakna þessarar lífsglöðu og bjart-
sýnu konu, sem aldrei gafst upp í
sínum erfiðu veikindum en talaði
alltaf um að komast heim af sjúkra-
húsinu og fara í Héðinsfjarðargöng-
in.
Að eiga trausta vini í lífinu er eitt
af því mikilvægasta, það finnur
maður best þegar aldurinn færist
yfir og manni bregður þegar þeir
kveðja.
Einari, Maggý og börnum þeirra
þakka ég innilega fyrir alla þá ást
og umhyggju sem þau sýndu Lillu
alla tíð og bið þeim blessunar. Einn-
ig þakka ég starfsfólki Sjúkrahúss
Siglufjarðar góða umönnun.
Systkinum Lillu, þeim Rögnu,
Einari og fjölskyldum þeirra votta
ég samúð.
Hennar tími var kominn. Blessuð
sé minning Lillu minnar.
Helga Guðmarsdóttir.
Elsku Lilla frænka.
Takk fyrir hvað þú varst góð við
mig og Týru, þú varst alltaf svo góð
við alla, alveg sama hver það var.
Takk fyrir litlu bænabókina sem
þú gafst mér, ég bið fyrir þér með
bænum upp úr henni.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
Láttu nú ljósið þitt
lýsa upp rúmið mitt,
hafðu þar sess og sæti
signaður Jesús mæti.
(Hallgrímur Pétursson)
Þín frænka,
Franzisca Dóra Úlfsdóttir,
Siglufirði.
Það er kominn vetur, fjöllin í firð-
inum okkar klædd í hvíta vetrar-
kápu, það er kyrrð og friður yfir
öllu, einnig yfir þér elsku Lilla
frænka. Þannig upplifði ég síðasta
augnablikið með þér kvöldið sem þú
kvaddir og síðar þetta sama kvöld
sáum við, ég og yngri dóttir mín,
hún Franzisca Dóra, stjörnuna þína
fallegu skína svo skært á himninum
og þá vorum við alveg vissar um að
núna liði þér örugglega vel, já svo
miklu betur en undanfarnar vikur
því við vitum að þær voru þér erf-
iðar þó að þú hafir aldrei nokkurn
tíma kvartað yfir veikindum þínum,
nei aldrei, enda sagðir þú oft „það
lagast ekkert við það að kvarta“. Þú
varst svo sjálfstæð, viljasterk og
ótrúlega dugleg manneskja, barst
virðingu fyrir sjálfri þér og öðrum,
ef þér leið eitthvað illa þá settirðu
góða músík í spilarann þinn, lokaðir
augunum og hlustaðir, enda mikil
músíkmanneskja, ef maður spurði
hvernig þú hefðir það þá var við-
kvæðið alltaf þetta „það er ekkert
að mér“ eða „þetta lagast allt sam-
an“. Lífsgæði þín voru orðin ansi
takmörkuð og þér hafði hrakað mik-
ið á þessu ári þó að þú hafir með
þrjósku þinni og baráttuvilja komist
upp úr ítrekuðum veikindum þínum
og komst okkur öllum á óvart hvað
þú náðir þér á strik, það hlýtur að
hafa verið erfitt fyrir þig að takast á
við allt það mótlæti sem fylgdi
heilsubresti þínum en alltaf varstu
jafn jákvæð, kappsöm og ákveðin í
því að komast heim í fallegu íbúðina
þína sem þú varst svo ánægð með
og okkur þótti mikil synd að þú
skyldir ekki fá tækifæri til að njóta
hennar lengur en raun varð. Er við
hugsum um þig sjáum við glæsilega,
hnarreista og vel til hafða konu sem
gengur ótrúlega rösklega þangað
sem ferð hennar er heitið í það og
það skiptið. Þú varst virkilega góð
manneskja með hlýtt hjarta, trúuð
með eindæmum og barst ætíð hag
þinna nánustu fyrir brjósti sem lýsir
sér best í því að ef einhver úr fjöl-
skyldunni eða annar sem þú þekktir
var á faraldsfæti þá baðstu sérstak-
lega fyrir viðkomandi og last ferða-
bænina upp úr litlu bænabókinni en
það var bók sem þú skildir aldrei við
þig. Þær voru ófáar samverustund-
irnar sem við áttum með þér, þú
varst viðstödd alla stóru atburðina í
lífi okkar Úlfs og dætra okkar og
komst fram við okkur eins og við
værum þín eigin börn. Nú er tími
jólanna framundan og það verður
skrítið að hafa þig ekki á meðal okk-
ar, en við trúum því að þú heiðrir
okkur með nærveru þinni þó svo að
hún verði öðruvísi en áður og fyrr.
Elsku Lilla, þú varst einstök mann-
eskja og það var heiður fyrir okkur
að fá að kynnast þér, litla fjölskyld-
an, Kristín, Úlfur og dætur, Hávegi
4, Siglufirði, þakkar þér innilega
fyrir allar yndislegu og góðu sam-
verustundirnar sem við áttum með
þér og reynum að ylja okkur við
minningarnar sem við eigum um þig
þegar þú varst frísk og hraust og
huggum okkur við að nú líði þér
miklu betur á þeim stað þar sem þú
ert núna. Við sjáum fallegu skæru
stjörnuna þína á himninum, hún
skín skært til okkar.
Kristín, Úlfur og dætur.
Elsku Lilla frænka, mig langar að
þakka þér innilega fyrir hvað þú
varst alltaf góð við mig og hvað þú
fylgdist alltaf vel með hvernig mér
gekk í náminu mínu og vinnunni. Þú
átt ákveðinn stað í hjarta mínu.
Á kertinu mínu ég kveiki í dag
við krossmarkið helgi og friðar
því tíminn mér virðist nú standa
í stað
en stöðugt þó fram honum miðar.
Ég finn það og veit að við erum
ei ein
að almættið vakir oss yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
Við flöktandi logana falla nú tár,
það flýr enginn sorgina lengi.
Hún braut allar vonir, hún braut allar
þrár,
hún brýtur þá viðkvæmu strengi,
er blunda í hjarta og í brjósti hvers
manns.
Nú birtir, og friður er yfir,
því ljósið á kertinu lifir.
(Kristján Stefánsson frá Gilhaga.)
Þín frænka,
Ágústa Margrét
Úlfsdóttir (Maggý).
Margrét Jónína
Jóhannsdóttir
✝
Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við
andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
VILBORGAR SIGURJÓNSDÓTTUR
frá Hvassafelli,
Austur-Eyjafjöllum.
Okkar innilegustu þakkir til starfsfólks Heilsugæslu
Rangárþings eystra og Sjúkrahúss Suðurlands,
Selfossi, fyrir góða umönnun og hlýhug.
Guðlaug Pálsdóttir, Sigurður Guðnason,
Bergur Pálsson, Agnes Antonsdóttir,
Elín Pálsdóttir, Ásbjörn S. Þorleifsson,
Rútur Pálsson, Guðbjörg Albertsdóttir,
Sigurjón Pálsson,
Jón Þormar Pálsson, Hulda Karólína Harðardóttir,
Páll Magnús Pálsson, Heiða Björg Scheving,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum sem sýndu okkur
samúð, hlýhug og vináttu í veikindum og við andlát
ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa,
langafa og langalangafa,
ÞORLEIFS HALLBERTSSONAR,
áður Suðureyri Súgandafirði,
Lautasmára 5,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Karitas hjúkrunar-
þjónustu og starfsfólk Landspítalans, deild 11 E,
fyrir umönnun og hlýhug.
Sigríður Kristjánsdóttir,
Kristján Þorleifsson, Kristín Kristjánsdóttir,
Ingunn M. Þorleifsdóttir, Leó Pálsson,
Sigurbjörg Þorleifsdóttir, Sölvi Bragason,
Sigþór Þorleifsson, Aðalheiður Gylfadóttir,
Hrafnhildur Þorleifsdóttir, Davíð Þór Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
PÁLMARS ÞÓRARINS EYJÓLFSSONAR
organista,
Skipagerði,
Stokkseyri.
Guðrún Loftsdóttir,
Andrés Pálmarsson,
Helga Pálmarsdóttir,
Eyjólfur Pálmarsson, Svanhildur Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Hjartans þakkir eru færðar öllum þeim sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát ástkærs eiginmanns
míns,
BJARNA FRIÐRIKSSONAR,
Aðalgötu 5
í Keflavík.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki í dagdvöl
Reykjanesbæjar og Garðvangs í Garði.
Fyrir hönd fjölskyldu,
Anney Guðjónsdóttir.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför
ástkærrar eiginkonu, móður, stjúp- og tengdamóð-
ur, systur og mágkonu,
INGER R. JESSEN.
Jóhann Axelsson,
Viggó K. Jóhannsson, Guðrún H. Sigurðardóttir,
Axel Jóhannsson, Eleanor Jóhannsson,
Kristján R. Jessen, Rhona Pearson
og fjölskyldur.