Morgunblaðið - 20.11.2010, Qupperneq 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Hún var lágvaxin
og fíngerð en bjó
engu að síður yfir
ótrúlega miklum
styrk, það er því al-
veg óhætt að segja að mikil kona
sé farin yfir móðuna miklu. Þessi
kona, hún Jóa, gekk okkur systk-
inunum í móðurstað eftir að móðir
okkar dó. Við verðum henni eilíf-
lega þakklát fyrir að hafa haldið
systkinahópnum saman eftir að
mamma okkar dó því að á þessum
árum var sjaldgæft að feður væru
einir með börn sín og systkinum
var því gjarnan dreift út um allt ef
móðir dó frá börnum sínum.
Jóa var rétt rúmlega tvítug þeg-
ar hún tók við heimilinu og eins og
gefur að skilja hefur það ekki ver-
ið neitt áhlaupaverk að eignast
fimm stjúpbörn á einu bretti. Þau
pabbi eignuðust svo fimm börn
saman þannig að við systkinin vor-
um 10. Við vorum engin englabörn
og það er ekki lygi að segja að Jóa
hafi sýnt ótrúlega þolinmæði og
dugnað alla tíð. Við minnumst þess
heldur ekki að hún hafi komið
fram við okkur á annan hátt en sín
eigin börn á meðan við bjuggum
heima.
Ýmsar minningar koma upp í
hugann, t.d. gleði Sossu þegar Jóa
saumaði eins jólakjól og rúmföt
fyrir hana og dúkkuna hennar en
hún saumaði bæði náttföt, jólaföt
og rúmföt á öll systkinin fyrir hver
jól. Og þegar Svenni gat engan
veginn sofnað á kvöldin fyrr en
Jóa var búin að kveikja á þvotta-
vélinni.
Í gegn um árin höfum við systk-
inin oft talað um allt það sem þú
lagðir á þig fyrir okkur og allt sem
þú afrekaðir á lífsleiðinni og var
einhugur um það þú hefðir átt
fyllilega skilið að fá fálkaorðu! Að
lokum langar okkur að kveðja þig
með þessum orðum:
„Heppnismaður er sá sem hefur lif-
að vel, hlegið oft og elskað mikið,
öðlast virðingu skynsamra manna
og ást barna. Fyllt sinn sess og
staðið vel í stöðu sinni. Yfirgefur
heiminn eitthvað betri en hann kom
í hann, hvort heldur er með aukn-
um gróðri, fögru ljóði eða frelsaðri
sál. Gleymdi aldrei að gæta feg-
urðar jarðarinnar eða lét undir höf-
uð leggjast að lofa hana. Leitaði
þess besta í fari annara og gaf það
besta sem hann átti sjálfur.“
(A.L. Stevenson)
Soffía, Sveinn og fjölskyldur.
Hún var þarna. Þegar ég hugsa
um Jóu ömmu eru þetta orðin sem
koma alltaf upp í hugann. Svo
kann að virðast sem þetta séu fá-
tækleg einkunnarorð um líf heillar
manneskju en svo er samt ekki,
ekki þegar skoðað er hvað þau fela
í sér. Ég sé hana fyrir mér, með
sitt rólega yfirbragð og sposka
bros en ytra útlit hennar sagði lít-
ið um hve innri styrkur hennar var
mikill.
Hún var þarna, til að taka við 5
móðurlausum systkinum (sem
samkvæmt venjum þess tíma hefði
væntanlega verið stíað í sundur og
alin upp á fósturheimili þrátt fyrir
að faðirinn væri til staðar) og
ganga þeim í móðurstað. Hún var
þarna líka til að ala upp börnin
fimm sem þau afi eignuðust saman
og eftir því sem mér er sagt voru
flest þessara 10 barna í fjörugri
kantinum svo það hefur verið
meira en að segja það að vera hús-
freyja á heimilinu. Hún var þarna
Jórunn Guðrún
Rósmundsdóttir
✝ Jórunn GuðrúnRósmundsdóttir
fæddist 17.12. 1928 á
Eskifirði. Hún lést
fimmtudaginn 4.11.
2010.
Útför Jórunnar fór
fram frá Bústaða-
kirkju fimmtudaginn
18. nóv. 2010.
líka þegar barna-
börnin komu til sög-
unnar og veitti okkur
öryggi með því einu
að vera til staðar.
Hún var þarna og
hélt árlega stærðar
jólaboð þar sem gest-
irnir voru örugglega
ekki færri en 70.
Þetta jólaboð var að-
alviðburður ársins,
enda fannst vel fyrir
því þegar kom að því
að hætt var að halda
boðið. Það er alveg
óhætt að segja að Jóa amma hafi
verið sú sem hélt fjölskyldunni
saman, að hún hafi verið límið,
með því að vera þarna. Grund-
arlandið var alla vega mikill sam-
komustaður. Að vera þarna fól
sem sé í sér að heil fjölskylda fékk
að vera fjölskylda og það er að
mínu mati stórfenglegt ævistarf.
Jóa amma, hvíldu í friði.
Jórunn og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur
samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar, afa og langafa,
SÆMUNDAR KRISTINS KLEMENSSONAR,
Vatnsholti 7a,
Reykjanesbæ.
Guð blessi ykkur öll.
Soffía Guðjónína Ólafsdóttir,
Ólafur Gunnar Sæmundsson, Hjálmfríður Kristinsdóttir,
Klemenz Sæmundsson, Katrín Sigurðardóttir,
Hlíðar Sæmundsson,
Guðjónína Sæmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður og ömmu,
JÓHÖNNU KRISTÍNAR HLÖÐVERSDÓTTUR,
Dadýjar,
Leirutanga 43A,
Mosfellsbæ.
Guðmundur Ebbi Pétursson,
Pétur Heimir Guðmundsson, Heiðveig Andrésdóttir,
Magnús Snorri Guðmundsson, Sunna Mjöll Sigurðardóttir,
Guðmundur Atli Pétursson,
Kristín Þóra Pétursdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför okkar elsku-
legrar,
INGUNNAR S. INGVARSDÓTTUR,
Hofsstöðum,
Stafholtstungum.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á lyflækn-
ingadeild á 3. hæð Sjúkrahúsinu Akranesi fyrir um-
önnun, hlýju og elskulegheit í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Herdís Gróa Tómasdóttir, Gústaf Ívarsson,
Sigrún Ingibjörg Tómasdóttir, Kristberg Jónsson,
Jón Aðalsteinn Tómasson, Hlíf Hreinsdóttir,
Tómas Ingi Tómasson, Pálína Jörgensdóttir,
Ingvar Helgi Tómasson, Hrefna Sigurlaug Sigurðardóttir,
Helga Ingvarsdóttir, Þorvaldur Sigurjón Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR ÞÓRHILDAR
GUÐBRANDSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Karitas, dag-
deildarinnar í Kópavogi og líknardeildarinnar á
Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun og
nærgætni við Kristínu í veikindum hennar.
Arnór G. Jósefsson,
Sigursteinn Jósefsson, Ólöf Hilmarsdóttir,
Reynir Jósefsson, Unnur Bergþórsdóttir,
Ólafur G. Jósefsson, Anna María Markúsdóttir,
Arndís Jósefsdóttir, Jón Ragnarsson,
barnabörn og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför,
SIGURRÓSAR GUÐBJARGAR
ÞÓRÐARDÓTTUR
frá Klúku í Miðdal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar-
innar á Hólmavík fyrir góða umönnun og hlýhug.
Sverrir Guðbrandsson,
Guðbrandur Sverrisson, Lilja Þóra Jóhannsdóttir,
Þórður Sverrisson, Ingibjörg Elísa Fossdal,
Matthildur Guðbjörg Sverrisdóttir, Ingimundur Benediktsson,
Aðalbjörn Guðmundur Sverrisson, Ekaterina Mishchuk,
Björn Halldórs Sverrisson, Helga Berglind Gunnarsdóttir,
Ragnar Rúnar Sverrisson, Dýrfinna Petra Hansdóttir,
Heiðrún Rósa Sverrisdóttir, Ragnar Guðmundur Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
MAGNEU GUÐBJARGAR
SIGURJÓNSDÓTTUR
frá Norður-Eyvindarstöðum,
Álftanesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hrafnistu í Hafnar-
firði fyrir frábæra aðhlynningu.
Erla Kristín Gunnarsdóttir,
Svavar Gunnarsson, Stella S. Karlsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir færum við ykkur öllum, sem sýndu
okkur samúð, vinarhug og hjálpsemi við andlát og
útför hjartkærs eiginmanns, föður, afa og langafa,
JÓNS GEIRS ÁRNASONAR,
Skarphéðinsgötu 6.
Sérstakt þakklæti færum við öllu starfsfólki á deild
L-4 á Landakotsspítala fyrir frábæra umönnun og
hjálp við hann og okkur fjölskylduna.
Sigríður Einarsdóttir, Díana Vera Jónsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Kærar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og
útför ástvinar okkar,
BETÚELS BETÚELSSONAR,
Fjarðarseli 11.
Hrafnhildur Inga Guðjónsdóttir,
Stefán Örn Betúelsson, Ólöf Berglind Halldórsdóttir,
Guðjón Arnar Betúelsson, Hanna Kristjana Gunnarsdóttir,
Hildur Björk Betúelsdóttir, John Mar Erlingsson,
Ingibjörg Betúelsdóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför,
MARÍU SIGURÐARDÓTTUR,
Hvassaleiti 58,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 11-E Land-
spítala við Hringbraut.
Konráð Ó. Kristinsson,
Sigurður Konráðsson, Kristín Jóhanna Harðardóttir,
Halldór Konráðsson, Þóra Þórhallsdóttir,
Konráð Konráðsson, Bryndís Hinriksdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar endurgjaldslaust alla út-
gáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins.
Smellt á reitinn Senda inn efni á for-
síðu mbl.is og viðeigandi efnisliður
valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður grein-
in að hafa borist eigi síðar en á há-
degi tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánudegi eða
þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein ber-
ist áður en skilafrestur rennur út.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær sá
sem fjallað er um fæddist, hvar og
hvenær hann lést og loks hvaðan og
klukkan hvað útförin fer fram. Þar
mega einnig koma fram upplýsingar
um foreldra, systkini, maka og börn.
Ætlast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í minningargreinun-
um.
Minningargreinar