Morgunblaðið - 20.11.2010, Side 45

Morgunblaðið - 20.11.2010, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 Ríkisjörðin Arnhólsstaðir í Skriðdal er laus til ábúðar. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið auglýsir til ábúðar ríkisjörðina Arnhólsstaði í Skriðdal, sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði. Um er að ræða lífstíðarábúð. Arnhólsstaðir eru í austanverðum Skriðdal, utan við ána Jóku. Þetta er landstór jörð (ca. 2500 ha.), jörðinni tilheyrir m.a. Þórudalur norðaustan ár og ágætt ræktunarland er á láglendinu. Greiðslumark jarðarinnar er u.þ.b. 250 ærgildi. Umsóknarfrestur er til 7. desember 2010. Áformað er að nýr ábúandi taki við jörðinni sem fyrst, samkvæmt nánara samkomulagi við landeiganda og fráfarandi ábúanda. Frekari upplýsingar birtast á heimasíðu ráðu- neytisins, http://www.sjavarutvegsraduneyti.is /jarðeignir/auglýsingar. Umsóknareyðublöð eru á heimasíðu ráðuneytisins og liggja frammi í afgreiðslu á 5. hæð, Skúlagötu 4, Reykjavík. Fyrirspurnir sendist á netfangið postur@slr.stjr.is, upplýsingar eru einnig veitt- ar í síma 545 8300. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim sjálfum, sem hér segir: Lerkibyggð 1-3, 207-357, Mosfellsbæ, þingl. eig. JGK VERK ehf., gerðarbeiðandi Mosfellsbær, fimmtudaginn 25. nóvember 2010 kl. 13:30. Lerkibyggð 4, 208-4873, Mosfellsbæ, þingl. eig. JGK VERK ehf., gerðarbeiðendur Mosfellsbær og Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, fimmtudaginn 25. nóvember 2010 kl. 13:45. Lerkibyggð 6, 204-493, Mosfellsbæ, þingl. eig. JGK VERK ehf., gerðarbeiðandi Mosfellsbær, fimmtudaginn 25. nóvember 2010 kl. 14:00. Stórikriki 6, 229-7260, Mosfellsbæ, þingl. eig. Breki ehf. eignarhalds- félag, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Mosfellsbær og Vörður tryggingar hf., fimmtudaginn 25. nóvember 2010 kl. 14:30. Þrastarhöfði 53, 229-9406, Mosfellsbæ, þingl. eig. Fasteignafélagið Styrkur ehf., gerðarbeiðendur Íslenskir aðalverktakar hf. og Vörður tryggingar hf., fimmtudaginn 25. nóvember 2010 kl. 15:00. Sýslumaðurinn í Reykjavík, 19. nóvember 2010. Frímerki - Mynt - Seðlar: Uppboðsaðili kaupir frímerki, umslög, mynt, seðla, póstkort, minnispeninga, orður, gömul skjöl og margt fleira. Staðgreiðsla í boði. Sími 561 58 71 og 694 58 71. Húsnæði íboði Styrkir úr þróunarsjóði innflytjendamála 2010 Innflytjendaráð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr þróunarsjóði innflytjenda- mála. Tilgangur sjóðsins er að efla rannsóknir og þróunarverkefni á sviði inn- flytjendamála með það að markmiði að auðvelda gagnkvæma aðlögun innflytjenda og íslensks samfélags. Að þessu sinni verður sérstök áhersla lögð á eftirfarandi viðfangsefni:  Verkefni og rannsóknir sem vinna gegn fordómum og auka fjölmenningarlega færni.  Verkefni og rannsóknir sem vinna að félagslegri virkni meðal innflytjenda.  Verkefni og rannsóknir sem stuðla að bættri stöðu innflytjenda á vinnumarkaði. Önnur verkefni koma einnig til álita. Styrkir verða almennt veittir félögum, samtökum og opinberum aðilum. Grasrótar- og hagsmunafélög innflytjenda eru sérstaklega hvött til þess að sækja um í sjóðinn. Einstaklingum verða að jafnaði einungis veittir styrkir til rannsókna. Til ráðstöfunar eru 12 milljónir króna. Styrkir geta verið að hámarki 75% af heildarkostnaði verkefnis. Unnt er að sækja um á íslensku og ensku. Umsóknarfrestur er til 20. desember 2010. Sótt skal um styrk á sérstöku umsóknareyðublaði sem er aðgengilegt á heimasíðu félags- og trygginga- málaráðuneytis, (www.felagsmalaraduneyti.is). Þar er einnig að finna stefnu ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda, framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda og reglur þróunarsjóðs innflytjendamála með nánari upplýsingum um skilyrði styrkveitinga. Trúnaðar er gætt við meðferð umsókna. Nánari upplýsingar fást í félags- og tryggingamálaráðuneyti í síma 545 8100 og með tölvupósti á netfangið linda.ros.alfredsdottir@fel.stjr.is. Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á eignunum sjálfum, sem hér segir: Egilsbraut 1, Fjarðabyggð (222-2487), þingl. eig. Steinhús ehf., gerðarbeiðandi Sparisjóður Norðfjarðar, föstudaginn 26. nóvember 2010 kl. 09:30. Miðgarður 4, Fjarðabyggð (216-9315), þingl. eig. Gestur Janus Ragnarsson, gerðarbeiðandi Fjarðabyggð, föstudaginn 26. nóvember 2010 kl. 09:45. Hafnarbraut 34, Fjarðabyggð (216-9139 ), þingl. eig. Ásólfur Bjartmar Gunnarsson, gerðarbeiðandi BYR hf., föstudaginn 26. nóvember 2010 kl. 10:00. Hvammur 1, Fjarðabyggð fnr. 216-9942, þingl. eig. Þorsteinn Erlings- son og Heiður Hreinsdóttir, gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., föstudaginn 26. nóvember 2010 kl. 11:00. Heiðarvegur 1 (01-0201), Fjarðabyggð 231-5589, þingl. eig. Fjölnismenn ehf., gerðarbeiðendur Fjarðabyggð, Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf., föstudaginn 26. nóvember 2010 kl. 12:00. Heiðarvegur 1 (01-0101), Fjarðabyggð (217-7140), þingl. eig. Fjölnismenn ehf., gerðarbeiðendur Fjarðabyggð, Íbúðalánasjóður og Tryggingamiðstöðin hf., föstudaginn 26. nóvember 2010 kl. 12:15. Melgerði 9, Fjarðabyggð, íbúð 03-04, (229-1980), þingl. eig. FFM9 ehf., gerðarbeiðandi Vörður tryggingar hf., föstudaginn 26. nóvember 2010 kl. 12:30. Búland 8, Djúpavogshreppi, eignahlutur 16,67% (217-9466), þingl. eig. Þorsteinn Ásbjörnsson, gerðarbeiðandi Sýslumaðurinn á Blönduósi, föstudaginn 26. nóvember 2010 kl. 15:30. Sýslumaðurinn á Eskifirði, 19. nóvember 2010. Íbúð til leigu Til leigu 2ja herb./ 70 ferm. íbúð í húsi fyrir eldri borgara á svæði 103 Reykjavík. Öll aðstaða í húsinu er til fyrirmyndar. Skilyrði, að leigukaupi sé 55 ára eða eldri. Gerðar verða strangar kröfur til reglusemi og góðrar umgengni, t.d. meðmæli frá fyrri leigusala eða annarra sem til þekkja. Íbúðin er laus 1. janúar 2011. Tilboð, (handskrifað) með helstu upplýsingum, sendist til auglýsingadeildar Morgunblaðsins, Hádegismóum 2, 110 Reykja- vík, fyrir 6. des. 2010 merkt: „Sólarmegin.“ Óska eftir Styrkir Umsóknarfrestur er til 10. desember 2010. Styrkur úr Jólagjafasjóði Guðmundar Andréssonar gullsmiðs Ákveðið hefur verið að auglýsa til umsóknar styrki úr ofangreindum sjóði. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins er tilgangur hans að veita styrki til þeirra verkefna sem stofnað er til í því augnamiði að bæta um- önnun barna og aldraðra, sem langtímum dvelja á stofnunum hér á landi, svo sem að: a. Styrkja samtök eða stofnanir sem annast aðhlynningu barna og aldraðra. b. Veita námsstyrki til heilbrigðisstétta er gegna þessu hlutverki. c. Veita rannsóknarstyrki til viðfangsefna sem þjóna þessum tilgangi. Umsóknum, ásamt ítarlegri greinargerð, skal skila til Landlæknisembættisins, Austurströnd 5, 170 Seltjarnarnesi, eigi síðar en föstudaginn 10. desember 2010. Umsóknir er einnig hægt að senda á netfangið thorarinn@landlaeknir.is. Stjórn Jólagjafasjóðs Guðmundar Andréssonar gullsmiðs. Tilkynningar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.