Morgunblaðið - 20.11.2010, Síða 49
DAGBÓK 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Sudoku
Frumstig
2
1 2 7
9 3
3 1 6 4 8
6 8 9
4 1 7
8 9 2 3
7 3 4 6
1 4 8
3 6
3 1 8
9 8 4
9 5 6
8 9
8 5 6 4
7 1 8
9 7 6
8 2
7 1 4
4
6 9 8
1 8 3 9
2 4 7
1 6 7
3 4 8 1
6 8 4 2 7 9 5 3 1
9 1 5 6 4 3 7 8 2
2 3 7 1 5 8 9 6 4
3 6 2 5 8 7 1 4 9
7 9 1 3 2 4 6 5 8
5 4 8 9 1 6 2 7 3
1 7 6 4 3 2 8 9 5
8 5 3 7 9 1 4 2 6
4 2 9 8 6 5 3 1 7
6 5 4 2 1 3 7 9 8
7 3 1 8 4 9 5 2 6
9 2 8 7 6 5 3 1 4
8 9 2 6 5 7 1 4 3
3 6 5 4 8 1 9 7 2
1 4 7 3 9 2 8 6 5
2 8 3 1 7 6 4 5 9
5 1 6 9 3 4 2 8 7
4 7 9 5 2 8 6 3 1
3 8 9 6 1 2 4 7 5
1 6 5 3 7 4 2 9 8
7 2 4 9 8 5 3 6 1
5 1 7 4 3 8 9 2 6
8 9 6 2 5 7 1 4 3
4 3 2 1 6 9 8 5 7
6 4 8 7 2 1 5 3 9
9 5 3 8 4 6 7 1 2
2 7 1 5 9 3 6 8 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 20. nóvember,
324. dagur ársins 2010
Orð dagsins: Nýtt boðorð gef ég yður,
að þér elskið hver annan. Eins og ég
hef elskað yður, skuluð þér einnig
elska hver annan. (Jóh. 13, 34.)
Víkverja þykir skemmtilegt aðgera sér dagamun og skella sér í
bíó. Hann er þó heldur nískur og fer
því iðulega aðeins á þriðjudögum,
þegar bíómiðinn er öllu ódýrari. Vík-
verji þykist vera búinn að finna út að
kvikmyndahúsin hljóta að græða vel
á þriðjudagskvöldunum, því þar sem
fólk borgar minna fyrir miðann leyfir
það sér að eyða þeim mun meira í
popp og kók og annars konar góð-
gæti.
x x x
Víkverji skellti sér sl. þriðjudag íSmárabíó og þegar hléið brast á
var hann fljótur að skjótast út úr
salnum til að sleppa við raðirnar í
nammisölunni. Víkverja brá því þeg-
ar hann kom fram og sá margar lang-
ar raðir við sjoppuna. Greinilega
hafði hlé byrjað nokkrum mínútum
áður í öðrum sal. Víkverji skildi ekk-
ert í þessari undarlegu skipulagn-
ingu en skellti sér þrátt fyrir það aft-
ast í eina röðina. Leið og beið og
löngu síðar, að því er virtist, fékk
Víkverji afgreiðslu og hélt því næst
pirraður inn í myrkvaðan salinn, þar
sem hléið var búið. Smárabíó mun
ekki græða mikið á þriðjudags-
kvöldum með þessu áframhaldi.
x x x
Vinur Víkverja spáir ekki síður ípeninga og bruðl en Víkverji
sjálfur. Hann er mikill skíðamaður og
finnst gaman að fara utan í skíðaferð-
ir en hans helsta umkvörtunarefni
um þessar mundir eru auglýsingar
ferðaskrifstofanna um skipulagðar
skíðaferðir. Verðið sem gefið er upp í
þeim felur yfirleitt aðeins í sér flug-
far og gistingu en einn stóran og
mikilvægan kostnaðarlið vantar:
Skíðapassann. Það eru kannski ekki
allir sem átta sig á því að verðið sem
gefið er upp í auglýsingunum er ekki
fyrir allan pakkann, því þeir sem ætla
í þessar ferðir ætla jú að vera á skíð-
um. Og verðið á skíðapössunum er
stór biti, vikupassi er sjaldnast undir
30 þúsund krónum. Það hlýtur að
vera pláss einhvers staðar í þessum
heilsíðuauglýsingum sem sjást í blöð-
unum til að koma þessum upplýs-
ingum að. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 borguðu, 4 kveif, 7
látnu, 8 útlimum, 9 tunga, 11
bráðum, 13 flanar, 14 at-
vinnugrein, 15 dreyri, 17
krafts, 20 burtu, 22 heið-
urinn, 23 gefa nafn, 24
bylgjan, 25 sefaði.
Lóðrétt | 1 hörkufrosts, 2
ráðning, 3 klaufdýrum, 4
endaveggur, 5 sparsöm, 6
sár, 10 óskar, 12 myrkur, 13
skel, 15 renna úr æð, 16 fýla,
18 halda á lofti, 19 geði, 20
hafði upp á, 21 spil.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 tjaldferð, 8 gerpi, 9 eggja, 10 tík, 11 spara, 13 tuska,
15 fálka, 18 ógnar, 21 róm, 22 rekja, 23 eyðan, 24 banamanns.
Lóðrétt: 2 jarða, 3 leita, 4 frekt, 5 regns, 6 eggs, 7 hala, 12 rok,
14 ugg, 15 fork, 16 lokka, 17 arana, 18 ómega, 19 náðin, 20
ræna.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6
5. O-O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 O-O 8. a4
Bb7 9. d3 d6 10. Rc3 Ra5 11. Ba2 b4 12.
Re2 c5 13. c3 bxc3 14. bxc3 c4 15. Rg3
Rd7 16. Ba3 He8 17. Rf5 Dc7 18. Rd2
cxd3 19. Dh5 g6
Staðan kom upp á Ólympíumótinu
skák sem fram fór í Novi Sad í gömlu
Júgóslavíu árið 1990. Íslenski stór-
meistarinn Jón L. Árnason hafði hvítt
gegn hinum kunna enska stórmeistara
John Nunn. 20. Bxf7+! Kxf7 21.
Dxh7+ Kf6 22. He3! Rf8 23. Dh8+ Kf7
24. Hf3 gxf5 25. Dh5+ Rg6 26. Dxf5+
og svartur gafst upp enda fátt til varn-
ar. Íslenska liðið í opnum flokki náði
góðum árangri í Novi Sad en Gunnar
Eyjólfsson, leikari, var sérlegur að-
stoðarmaður liðsins í fyrsta skipti.
Þetta var jafnframt síðasta Ólympíu-
mótið þar sem Sovétríkin tóku þátt og
vann lið þeirra mótið með yfirburðum.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tilþrifameiri leið.
Norður
♠D2
♥ÁK7
♦Á92
♣K10962
Vestur Austur
♠G96 ♠K1084
♥5 ♥DG8
♦KDG8754 ♦1063
♣85 ♣D74
Suður
♠Á753
♥1096432
♦--
♣ÁG2
Suður spilar 6♥.
Svíarnir Nyström og Bertheau
spila sterkt laufkerfi og geta því leyft
sér að opna létt á einum í hálit. Ny-
ström hélt á spilum suðurs á boðs-
mótinu í Kaupmannahöfn og vakti í
fyrstu hendi á 1♥. Vestur stökk í 3♦
og Bertheau í norður tók stefnuna
beint á slemmu. Útspilið var ♦K.
Nyström valdi einfalda leið. Hann
trompaði heima, tók ♥Á-K, spilaði
♣10 úr borði og lét hana rúlla yfir.
Þrír spaðar fóru síðan niður í frílauf
og ♦Á.
Ýmsum utanborðsmönnum þótti
spilaleið Nyströms tilþrifalaus og
bentu á aðra: Að stinga tvo tígla sam-
hliða tromptökunni, taka ♣Á-K,
henda laufi í ♦Á og fría lauflitinn
með trompun. Senda loks austur inn
á ♥D og láta hann spila frá ♠K. Þessi
leið er varla betri, en óneitanlega til-
þrifameiri.
20. nóvember 1934
Morgunblaðið birti ritdóm um
fyrstu bók Ólafs Jóhanns Sig-
urðssonar, Við Álftavatn, en
hann var þá aðeins 16 ára.
„Það má mikið vera ef þessi
piltur lætur sín ekki einhvern-
tíma að góðu getið síðar,“
sagði í dómnum. Ólafur Jó-
hann hlaut bókmenntaverð-
laun Norðurlandaráðs, fyrstur
Íslendinga.
20. nóvember 1961
Alþingi samþykkti verulega
lækkun aðflutningsgjalda til
að lækka vöruverð og draga
úr ólöglegum innflutningi. Til
dæmis lækkaði tollur á snyrti-
vörum úr 310% í 125%, á gólf-
teppum úr 214% í 100% og á
úrum úr 207% í 52%.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist
Sæunn Andrésdóttir, stjórnarformaður og jafn-
framt eigandi Loftorku, er áttræð í dag. „Jú, þeir
vilja halda því fram þegar maður er fæddur 1930,“
segir Sæunn glettin. „Mér finnst reyndar voða kost-
ur að hafa núll í endann því þá er þetta þægilegra
að reikna.“
Þrátt fyrir að árin séu farin að færast yfir hefur
Sæunn ekki í hyggju að setjast í helgan stein á næst-
unni. „Ég er með svo gott starfsfólk að þetta er nú
ekki svo mikil vinna,“ segir Sæunn.
Til þess að halda upp á afmælisdaginn ætlar Sæ-
unn að bjóða heim til hádegisverðar um miðjan dag
í dag og á von á milli þrjátíu til fjörutíu manns í mat, fjölskyldu og systk-
inum. „Þegar maður er orðinn svona háaldraður þá fara að stækka fjöl-
skyldurnar,“ segir Sæunn kímin. Á matseðlinum verður það sem hún
kallar sparimat á heimilum, meðal annars humarsúpa, kökur og kaffi.
Sæunn vill ekki velja neinn einn ákveðinn afmælisdag eða afmæl-
isgjafir sem hún hafi fengið sem hafi verið sérstaklega eftirminnileg.
„Dagarnir hafa allir verið góðir eins og lífið yfir höfuð,“ segir Sæunn
glöð í bragði. kjartan@mbl.is
Sæunn Andrésdóttir er 80 ára í dag
Allir afmælisdagarnir góðir
Flóðogfjara
20. nóvember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 5.23 3,8 11.37 0,8 17.38 3,6 23.45 0,7 10.13 16.15
Ísafjörður 1.07 0,4 7.13 2,1 13.34 0,5 19.27 2,0 10.40 15.57
Siglufjörður 3.14 0,3 9.27 1,2 15.45 0,2 21.58 1,2 10.24 15.39
Djúpivogur 2.28 2,1 8.48 0,6 14.45 1,9 20.46 0,6 9.48 15.39
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Foreldrar beina athyglinni að börnum
sínum í dag. Semdu þar til þú færð bestu
kjörin. Tímabil uppgjörs er framundan.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Það tekur á taugarnar þegar þeir sem
manni eru kærir sýna þrjósku og afneita
staðreyndum. Þú átt á hættu að eyða mikl-
um tíma í einföld undirstöðuatriði.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Ástin er kannski flókinn leikur, en
reglurnar eru ansi einfaldar. Nú eru góðar að-
stæður til þess að leggja út í hagnýtt sam-
starf sem skilar árangri til langs tíma litið.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú getur ekki breytt heiminum þó þú
fegin/n vildir. Lifðu einn dag í einu og reyndu
að sofna sátt/ur.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Sumar persónulegar skoðanir starfs-
félaganna finnst þér út í hött. Einbeittu þér
að þeim verkefnum sem fyrir liggja.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú færð það sem þú vilt en ekki á
sama hátt og þú hélst. Láttu smá dekur endi-
lega eftir þér. Enginn virðist segja sannleik-
ann, hvort sem ástæðan er ótti eða spilling.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Flest fólk virðist of upptekið til að líta á
það sem þú hefur í boði. Láttu það ekki koma
þér í uppnám, þinn tími kemur.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hvernig ferðu með tímann þinn?
Það er hægt að vera kurteis og setja öðrum
mörk. Gættu þess hversu langt þú gengur til
þess að forðast þetta.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Spurðu ástvini þína um hvernig
þeir vilji hafa jólin þetta árið. Haltu áfram að
framkvæma þegar niðurstaðan liggur fyrir.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú hefur púlað og stritað um langt
skeið án nokkurs þakklætis. Svörin við
spurningum koma ekki á þeim augnablikum
sem þú vilt helst.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú hefur ákveðnar skoðanir á við-
kvæmu vandamáli. Ekki sýna dómhörku, tjá-
skipti eru ruglingsleg. Vertu bjartsýn/n og
horfðu fram á við, betri tímar eru fram-
undan.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú þarft að sýna sveigjanleika til þess
að allt fari ekki í bál og brand. Gott hjá þér að
leyfa þér að slappa af um stund.
Stjörnuspá
Úlfar Skær-
ingsson skíða-
maður sem bú-
settur hefur
verið í Aspen,
USA, til margra
ára varð átt-
ræður 29. októ-
ber síðastliðinn.
Úlfar ætlar að
taka á móti ættingjum og vinum á
morgun, sunnudaginn 21. nóv-
ember, kl. 16 í félagsheimili ÍR,
Skógarseli 12 og eru hans gömlu
skíðafélagar sérstaklega hvattir til
að mæta.
80 ára
Dagfinnur
Stefánsson flug-
stjóri verður
áttatíu og fimm
ára mánudaginn
22. nóvember. Af
því tilefnii býður
hann ættingjum
og vinum að sam-
gleðjast með sér
og fjölskyldu sinni í Víkingasal Hót-
el Loftleiða, á afmælisdaginn milli
kl. 16.30 og 18.30.
85 ára
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is