Morgunblaðið - 20.11.2010, Side 51

Morgunblaðið - 20.11.2010, Side 51
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is „Ég sýni nokkrar klippimyndir en aðallega olíumálverk, af konum og landslagi,“ segir Hulda Vilhjálms- dóttir myndlistarkona en hún opnar í dag klukkan 15 sýningu í Gallerí Fold við Rauðarárstíg. Hulda hefur verið ötul við sýn- ingahald síðustu árin. Hún segir að á þessari sýningu birtist nokkuð „gamaldags og rómantískt þema“, eins og hún orðar það. „Þetta er eins konar ákall til náttúrunnar og feg- urðarinnar, í gegnum reynslu mína af því að horfa á landslagið. Ég hef alls ekki farið eftir ljósmyndum af landinu heldur því hvernig ég upplifi landið og náttúruna. Yfirnáttúrleg tengsl Þetta eru nokkuð massífar mynd- ir, en ég mála með penslum og reyni að láta pensilstrokurnar njóta sín. Þrátt fyrir að reynsla mín af nátt- úrunni og upplifanir hversdagsleik- ans birtist í verkunum, þá er alltaf þarna þessi góða gamaldags tenging við það hvernig málarar unnu með liti og málverk hér áður. Ég heillast þannig mikið af impressjónistunum, nálgun þeirra og upplifunum.“ verkfæri. Ég varð ástfangin af þess- um miðli. Ég einfaldlega steypti mér út í djúpu laug málverksins – og það var rétt fyrir mig . Þetta hefur geng- ið ágætlega og mér finnst ég vera að fara nokkurn veginn rétta leið.“ Aftur berst talið að sýningunni sem Hulda var að hengja upp. „Ég vil að fólk finni fyrir fegurð þegar það kemur. Mér finnst að sýn- ingin þurfi að vera upplifun, rétt eins og þegar fólk fer í leikhús eða á tón- leika. Mér finnst málverkið vera eins og söngur eða dans – þetta er allt hluti af sálinni,“ segir hún. sem ég umgengst og hafa áhrif á mig. Mér finnst ég þurfa að upplifa fólk til að geta túlkað það.“ Hulda hefur málað af krafti síð- ustu árin. Finnst henni málverkið alltaf jafnspennandi? „Já, svo sannarlega! Þegar ég fór í Listaháskólann voru nýlistadeild og grafísk hönnun aðaldeildirnar, mér var sagt að ef ég ætlaði að lifa af eða verða listamaður þyrfti ég að fara í aðra hvorra þeirra. En ég fór þessa gömlu leið og langaði að rannsaka málverkið. Ég vildi leyfa málverkinu að njóta sín og nota pensilinn sem Þegar Hulda er spurð um tilfinn- ingaleg tengsl við myndefnið segir hún að þau séu mikil, til að mynda heiti eitt verkið Fjallið inni í mér. Í verkunum notar hún náttúruna til að spegla tilfinningar en segir náttúr- una líka vera stolt sitt og öryggi. „Mér finnst ég vera örugg kring- um þessi fjöll. Þessi tengsl við nátt- úruna geta verið yfirnáttúrleg. Svo birtist líka í verkunum einhver draumaheimur, sem skín í gegnum raunveruleikann.“ Konur eru áberandi viðfangsefni. „Já, það er mikið ég sjálf og konur „Eins konar ákall til náttúr- unnar og fegurðarinnar“  Hulda Vil- hjálmsdóttir opn- ar sýningu á nýj- um verkum í dag Morgunblaðið/Eggert Listakonan „Mér finnst málverkið vera eins og söngur eða dans – þetta er allt hluti af sálinni,“ segir Hulda. MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 Kórar Hamrahlíðarskólans halda tónleika á morgun, sunnudag, klukkan 17, í Að- ventkirkjunni í Reykjavík, Ingólfsstræti 19. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð var stofnaður árið 1967 og hefur Þorgerður Ing- ólfsdóttir stjórnað honum frá upphafi. Haustið 1982 var stofnaður framhaldskór, einn- ig undir stjórn Þorgerðar, skipaður söngfólki sem áður hafði verið í Kór Menntaskólans við Hamrahlíð. Var þessi nýi kór nefndur Hamrahlíðarkórinn. Þessir kórar vinna oft að sameiginlegum verkefnum, eins og heyrist á tónleikunum á morgun. Tónlist Kórar Hamrahlíð- arskólans syngja Kórarnir syngja í Aðventkirkjunni Á morgun, sunnudag kl. 17, stendur kirkjukór Lágafells- sóknar fyrir styrktartónleikum fyrir Rebekku Allwood sem lenti í bílslysi á Vesturlands- veginum árið 2002 og hefur síð- an staðið í erfiðri og kostn- aðarsamri endurhæfingu. Listamennirnir sem koma fram á tónleikunum gefa allir vinnu sína. Meðal listamann- anna eru Diddú, Egill Ólafs- son, Jógvan Hansen, Birgir Haraldsson söngvari Gildrunnar, Hanna Björk Guðjónsdóttir og Björg Birgisdóttir, kirkjukórar Lágafellssóknar og Frí- kirkjunnar í Hafnarfirði og Arnhildur Valgarðs- dóttir organisti. Tónlist Styrktartónleikar í Guðríðarkirkju Sigrún Hjálmtýs- dóttir - Diddú Kór Langholtskirkju heldur tónleika á degi heilagrar Sess- elju, verndara tónlistarinnar, á morgun, sunnudag kl. 20 í Langholtskirkju. Flutt verða verk eftir nokk- ur höfuðtónskáld kirkju- tónlistar á Norðurlöndum og víðar, m.a. Knut Nystedt, Egil Howland og Trond Kverno. Einnig koma við sögu eng- ilsaxnesku tónskáldin Bob Chilcott og Samuel S. Wesley. Verk sem Þóra Marteinsdóttir samdi fyrir kórinn í fyrra verður flutt og í miningu Marteins H. Friðrikssonar verður flutt lag eftir hann. Meginverk tónleikanna er eftir Eric Whitacre, When David Heard. Tónlist Kór Langholts- kirkju með tónleika Jón Stefánsson stjórnar kórnum Íslenski saxófón- kvartettinn held- ur tónleika í Nor- ræna húsinu á morgun, sunnu- dag, kl. 15.15. Tónleikarnir eru liður í tónleika- röðinni 15:15. Að þessu sinni flytur kvartettinn verk eftir tvö frönsk tónskáld, Florent Schmitt og Pierre- Max Dubois, nýtt verk eftir Þórð Magnússon sem var sérstaklega samið fyrir Íslenska saxófón- kvartettinn, og verkið Songs for Tony eftir breska tónskáldið Mich- ael Nyman. Verk Þórðar er fyrsta verkið sem samið hefur verið fyrir hópinn. Verkið var frumflutt í lok ágúst á Hólum í Hjaltadal og heyrist nú í fyrsta sinn á höfuðborgarsvæðinu. Hópurinn var stofnaður árið 2006, hefur komið víða fram, m.a. á ýms- um tónlistarhátíðum, og flutt fjölda tónverka eftir tónskáld ólíkra stíla frá ýmsum löndum. Íslenski saxó- fónkvartettinn er fyrsti og eini starf- andi klassíski saxófónkvartettinn á Íslandi en hann skipa Vigdís Klara Aradóttir, Sigurður Flosason, Peter Tompkins og Guido Bäumer. Saxófónar á 15:15 tónleikum Íslenski saxófón- kvartettinn leikur Þórður Magnússon tónskáld Jón Axel Björns- son myndlistar- maður opnar í dag, laugardag kl. 15, sýningu á nýjum verkum í Studio Stafni, Ingólfsstræti 6. Á sýningunni eru verk unnin með olíu á striga og pappírsverk. Jón er nú aftur að kveðja sér hljóðs eftir að hafa hvílt pensla og teiknitól um skeið. Jón Axel í Stafni Jón Axel Björnsson Við erum greinilega orðnir svona naskir á þetta, vanir kóperingum.54 » Sinfóníutónleikarnir áfimmtudag báru yfirskrift-ina Eftirlætis klassík. Tilsamræmis voru á boð- stólum þrjár sinfóníur hver eftir sinn Vínarstórmeistarann frá 1768, 1785 og 1800. Eftirlætið átti vel við vinsæl verk Mozarts og Beethovens. Kannski síður við sinfóníu Haydns, enda varla meðal kunnustu 104 hljóm- kviða frumherjans. En þó að und- irritaður héldi persónulega meir upp á ýmsar aðrar úr þeim gersemasjóði, þá er „Passione“ alltjent forvitnileg fyrir að vera ein fyrstu svokallaðra Sturm und Drang sinfónía frá 8. ára- tug hárkollualdar, fyrirboða róm- antíkur. Þótt ástríðunafngiftin sé umdeild og ekki frá höfundi komin, hygldi ítalski stjórnandinn skynjanlega adrenalínflæði Haydns. Nærri bar- okklega þrepaskipt styrkbrigðin (án teljandi crescendóa og dímínúendóa) komu eldhvasst fram úr stílhreint fáliðaðri 28 manna sveitinni, og túlk- unin var jafnt fáguð sem blóðheit. Að vísu ekki 100% samtaka í sneggstu upptaktsinnkomum – en á móti gegnsýrð af smitandi spilagleði. K466 í d-moll, einn þekktasti 27 píanókonserta Mozarts, bar auka- svip af upphafshyggjustefnu síðari áratuga. Meðal helztu merkisbera hennar í vínarklassík er píanistinn Robert Levin, er tók upp ýmsa frumþræði frá tilurðartíma. Þannig lék hann óhikað með hljómsveitinni í túttíköflum þar sem píanóparturinn stendur annars alauður í partít- úrnum. Var það ný reynsla hér nyrðra, jafnvel þótt talin hafi verið venja Mozarts við frumflutning þeg- ar hann stjórnaði sjálfur frá píanó- inu. Áhrifameiri voru þó einleiks- kadenzur Levins í I. og II. þætti, er ku spunnir á staðnum að fyrri tíma hefð. Vissulega til ómælds spennu- auka, líkt og ÁHI ýjaði að í tónleika- skrá, enda ekki að hætti sólista okk- ar tíma er reiða sig oftast á skrifaðar kadenzur frumhöfunda eða annarra. Hér var Levin greinilega á heima- velli höfundar. Hann beinlínis „átti“ verkið, og orkuþrungnar en samt sannfærandi hugleiðingarnar af fingrum fram um stef konsertsins mynduðu óvæntan hápunkt sem hingað til hefur látið sig vanta í klassísku tónleikasamhengi. Hvað svo sem síðar kann að verða. Jafnóvænt var að upplifa einleik Levins í aukalagi hans, Adagio mið- þættinum úr A-dúr píanósónötu Mozarts K576, er tjaldaði undra- mjúkri syngjandi – og svo ólíkri stundum nærri groddafengnum tök- um píanistans á konsertinum að glenna þurfti upp augu til að stað- festa að sami maður væri þar á ferð. Jókst með því tjáningarvídd sólist- ans á augabragði, og undirtektir voru að vonum heitar. 1. sinfónía Beethovens þaut um fellingaloft Háskólabíós eftir hlé. Dásamlegt æskuverk, þrungið húm- or og rytmískum frumleika, er myndaði það bráðskemmtilegan lokapunkt undir sprækri stjórn Giovannis Antoninis að 210 ára ferðalag aftur í tíma varð leikur einn. Á heimavelli höfundar Morgunblaðið/Kristinn Einleikarinn Robert Levin var á heimavelli og beinlínis „átti“ verkið. Háskólabíó Sinfóníutónleikarbbbmn Haydn: Sinfónía nr. 49, „Passione“. Mozart: Píanókonsert í d-moll K466. Beethoven: Sinfónía nr. 1. Robert Levin píanó; Sinfóníuhljómsveit Íslands. Stjórnandi: Giovanni Antonini. Fimmtu- daginn 18. nóvember kl. 19:30. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.