Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Prófessor Erling Blöndal Bengtsson sellóleikari, eiginkona hans Merete og Hjálmar Ragnarsson, rektor Listaháskóla Íslands, líta á nótnasafn Er- lings sem hann gaf bókasafni skólans í gær. Þar með eru taldar nótur og handrit sem hann hefur notað við æfingar og kennslu á löngum og glæsi- legum ferli, alls fjórir stórir kassar af bókum. Að sögn Hjálmars er um að ræða afar per- sónulega gjöf og það sé mikill heiður að Erling treysti skólanum fyrir því sem hann kallar börn- in sín. „Þetta er fjöldi verka, bæði einleiksverk og konsertar. Þetta eru íslensk verk sem hann hefur frumflutt. Þarna eru allar helstu sellóbók- menntirnar.“ Nótnabækur sellómeistara Morgunblaðið/Golli Listaháskólinn fær helstu sellóbókmenntirnar Baldur Arnarson baldura@mbl.is Sú mikla athygli sem Icesave-deila Íslendinga við Hollendinga og Breta vakti um heim allan eftir synjun for- seta Íslands á Icesave-lögunum 5. janúar síðastliðinn, og sú athygli sem þjóðaratkvæðagreiðslan um samn- inginn 6. mars fékk í kjölfarið, var samningsstöðu Íslands í hag. Fór yfir samningaferlið Þetta er mat Lees Buchheits, for- manns samninganefndar Íslands í Icesave-deilunni, sem lýsti þessu yfir að loknum fyrirlestri í Öskju, húsi Háskóla Íslands, í gær. Gengur þetta þvert á það stöðu- mat Steingríms J. Sigfússonar dag- inn eftir synjun forsetans, 6. jan- úar sl., að sú um- ræða myndi reyn- ast dýrkeypt, en orðrétt sagði ráð- herrann við það tilefni: „Við höfum þurft að vinna mjög hratt til að róa ástandið svo ákvörðun forseta Íslands valdi sem minnstum skaða.“ Aðspurður hvað taki við ef nýi samningurinn verður líka felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu sagði Buch- heit að þá færi málið fyrir dómstól EFTA. Taldi hann sigurlíkur Íslands góðar, þótt ekki væru þær afgerandi. Greitt með krónum? Tapi Ísland hins vegar málinu kunni íslenska ríkið að þurfa að greiða bótakröfuna í einu lagi og kvaðst hann efast um að Bretar og Hollendingar myndu sýna nýrri samningsgerð áhuga. Þá myndi dómur gegn Íslandi þýða að lagalegri óvissu hefði ver- ið eytt sem kynni að verða Íslandi í óhag. Samninga- nefndinni hefði tekist að notfæra sér óvissuna í samningum. Umræðan reyndist Íslandi í hag  Formaður samninganefndar Íslands í Icesave-deilunni telur ytri þætti eftir þjóðaratkvæðagreiðslu hafa þróast Íslandi í vil Lee Buchheit Stöð 2 Sport sýnir um 30 leiki beint frá heimsmeistara- keppni karla í handbolta, sem verður í Svíþjóð 13. til 30. janúar 2011, og verða flestir þeirra í læstri dagskrá. Emilía Sighvatsdóttir dagskrárstjóri segir að allir leikir í riðli Íslands, B-riðli, verði sýndir í beinni útsend- ingu. Auk þess verði fyrsti leikur keppninnar sýndur beint og þeir leikir sem sérfræðingar stöðvarinnar telja að skipti máli með Ísland í huga. Ennfremur leikir í milli- riðli, undanúrslitaleikirnir og leikirnir um verðlauna- sæti. Að sögn Emilíu er stöðin ekki skuldbundin til þess að sýna leiki í opinni dagskrá, þar sem leikirnir séu keyptir fyrir læsta dagskrá, en samt verði einhverjir leikir öllum opnir. Hins vegar hafi ekki verið tekin ákvörðun um hvaða leikir það verði, en hún liggi væntanlega fyrir fljótlega. Þorsteinn Joð verður með upphitunarþætti fyrir leik- ina og síðan samantekt á misjöfnum tíma. steinthor@mbl.is Flestir leikirnir í læstri dagskrá  Stöð 2 Sport sýnir beint alla leikina í riðli Íslands á HM í handbolta  Einhverjir leikir verða í opinni dagskrá Morgunblaðið/Golli Landslið Ísland tekur þátt í HM í handbolta. Unglingspiltur á grunnskólaaldri var barinn, m.a. í höfuðið, með golf- kylfu við Arnarhól í liðinni viku. Hann meiddist nokkuð og var flutt- ur á slysadeild en ekki þurfti að leggja hann inn á spítala. Tveir réðust að honum og eru meintir árásarmenn á svipuðu reki og hann. Fram hefur komið við rannsóknina að árásin hafi verið vegna deilna um veggjakrot en til- drögin eru ekki að fullu ljós enda er málið enn í rannsókn, að sögn lög- reglu. Unglingur laminn með golfkylfu Samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðherra hefur enn framlengt starfstíma fjárhaldsstjórnar Álfta- ness, í þetta skipti til 1. febrúar. Er þetta þriðja framlengingin. Fjárhaldsstjórnin vinnur að því að greiða úr skuldaflækju sveitar- félagsins. Samkvæmt upplýsingum úr ráðuneytinu er von á að til tíð- inda dragi á allra næstu dögum. Sveitarfélög eiga að tilkynna breyt- ingar á útsvari fyrir 1. desember en ráðuneytið lítur svo á að í undan- tekningartilfellum sé hægt að gera breytingar á því eftir að sá frestur er runninn út. Snorri Finnlaugsson, forseti bæj- arstjórnar á Álftanesi, vonar að endurskipulagningu skulda með aðkomu lánardrottna og leigusala sveitarfélagsins ljúki fyrir þann tíma. baldura@mbl.is, runarp@mbl.is Fjárhaldsstjórn Álftaness fær enn eitt framhaldslíf Buchheit kom að samningaferlinu í febrúar eða áður en íslenska þjóðin felldi síðasta samning með mjög afgerandi hætti í þjóðaratkvæða- greiðslu. Hann sagði að sá samningur hefði verið meira í ætt við lána- samninga fyrirtækja en tvíhliða milliríkjasamning. Því hefði þurft að fella úr gildi ýmis ákvæði til að skapa skilyrði fyrir samningnum sem nú hefur verið kynntur. Þá hefði hann frá upphafi leitast við að tryggja sem víð- tækastan stuðning við samningaferlið á þingi. Buchheit vék að þætti fjármálaráðherra og hrósaði honum fyrir að hafa stuðlað að því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hætti að beita sér gegn Íslandi í deilunni. Athygli vakti hversu fáir sáu tilefni til að mæta og hlýða á skýringar lykilmanns í einni mestu milliríkjadeilu Íslands fyrr og síðar. Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðis- flokks, var eini fulltrúi stjórnmálaflokka og þekktir prófess- orar í hagfræði sem hafa tjáð sig um deiluna mættu ekki. Fella þurfti ákvæði brott FÁIR SÝNDU FYRIRLESTRINUM ÁHUGA Ólafur Ragnar Grímsson Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Þvottavél WM 10A163DN á hreint frábærum kjörum! Tekur mest 5 kg, vindur upp í 1000 sn./mín. Með íslensku stjórnborði. Orkuflokkur A. Jólaverð: 84.900 kr. stgr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.