Morgunblaðið - 11.12.2010, Blaðsíða 27
FRÉTTIR 27Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010
Þú færð e-kortið í Arion banka.
Farðu á arionbanki.is og kynntu þér kosti e-kortsins.
Alltaf í desember. Á hverju ári fá handhafar e-korta endurgreiðslu í beinhörðum
peningum. Sæktu um e-kort í næsta útibúi Arion banka eða á arionbanki.is
Viðskiptavinir e-kortsins fá samtals rúmlega
98 milljónir í endurgreiðslu í desember.
Hvernig greiðslu færð þú?
Hægt er að draga úr hungurtilfinn-
ingu með því að beita ímyndunar-
aflinu, að sögn vísindamanna við
Carnegie Mellon-háskóla í Penn-
sylvaníu. Þeir sem ímynda sér að
þeir séu að skófla í sig súkkulaði
eða öðru fitandi hnossgæti borða
minna af því sé það borið á borð eft-
ir sæludrauminn.
Fram kemur í frétt vefsíðu The
Guardian að könnuð hafi verið við-
brögð 300 sjálfboðaliða. Sumir
þeirra voru beðnir að ímynda sér
að þeir væru að borða frá þrjá og
upp í 30 gómsæta M&M-súkku-
laðimola eða litla bita af feitum og
heillandi cheddar-osti.
Annar hópur var látinn ímynda
sér að hann væri bara að ýta við
molunum en sleppti því alveg að
borða þá. Síðan fengu allir þátttak-
endur færi á að borða í raun sæl-
gætið. Í ljós kom að þeir sem höfðu
ímyndað sér át fengu sér 50%
minna en hinir sem bara þóttust
leika sér að molunum. kjon@mbl.is
Sýndarát
minnkar
matarlyst
Draumar um súkku-
laði slógu á hungur
Nammi Ímyndað súkkulaði er sagt
geta verið nokkuð saðsamt.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Breska lögreglan varði í gær
frammistöðu sína í miklum óeirðum
sem urðu á fimmtudagskvöld í Lond-
on í kjölfar þess að þingið samþykkti
naumlega heimild til háskóla um að
hækka mjög skólagjöld. Háttsettur
lögreglumaður segir að minnstu hafi
munað að hans menn gripu til skot-
vopna þegar ráðist var á bíl Karls
Bretaprins og Camillu, eiginkonu
hans, í Oxford Street, rúða brotin í
bílnum og slett á hann málningu.
Gagnrýnt var að lögreglan skyldi
ekki stöðva mótmælin áður en þau
fóru úr böndunum. 34 voru hand-
teknir og minnst 43 mótmælendur
og 12 lögreglumenn særðust. Mót-
mælendur voru mörg þúsund þegar
mest var, flestir úr röðum friðsamra
stúdenta en ljóst að ofbeldisseggir
höfðu slegist í hópinn. Brotnar voru
m.a. rúður í húsakynnum hæstarétt-
ar og fjármálaráðuneytisins í mið-
borginni, örskammt frá þinghúsinu
og kveiktir eldar. Einnig var stytta
af Winston Churchill skemmd.
Áform stjórnvalda um að hækka
skólagjöldin voru afar umdeild, ekki
síst vegna þess að annar stjórnar-
flokkurinn, Frjálslyndir, hét því fyr-
ir kosningar að berjast gegn hækk-
unum. Stjórnarliðar benda á að
brýnt sé að draga úr ríkisútgjöldum.
Réðust á bíl Karls
Reuters
Óeirðir Lögreglumenn kljást við stúdenta við þinghúsið á fimmtudag.
Breska lögreglan gagnrýnd fyrir sein viðbrögð í
óeirðum í London vegna mikilla hækkana á skólagjöldum
Sjónvarpsstöð í Íran segist hafa tek-
ið upp nýja játningu Sakineh Mo-
hammadi Ashtiani, konu sem dæmd
var til að verða grýtt til bana fyrir
hjúskaparbrot og aðild að morði.
Það er því ljóst að fregnir um að hún
hafi verið látin laus í fyrradag voru
rangar. Fyrirhugað var að sjón-
varpa játningu hennar í gær.
Á vefsíðu BBC kemur fram að
sjónvarpsstöðin Press TV, sem er
írönsk ríkisstöð fyrir enskumælandi
áhorfendur, hafi farið með Ashtiani
á heimili hennar þar sem hún bjó áð-
ur með eiginmanninum. Ashtiani er
sökuð um að hafa látið myrða hann.
Ljóst er að klerkastjórnin er í
vanda vegna málsins. Harðlínumenn
vilja að beitt sé grimmilegustu refs-
ingu sharia-laga íslams gegn Ashti-
ani en æðstu ráðamenn hafa forðast
að verja grýtingu beinum orðum.
Þeim finnst slæmt fyrir ímynd Írana
að hampa miðaldalegum refsingum
af þessu tagi. kjon@mbl.is
Segja Ashtiani
hafa játað aft-
ur sekt sína