Morgunblaðið - 11.12.2010, Síða 4

Morgunblaðið - 11.12.2010, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 „Óvenjulegheit eru alla vega það mikil þessa dagana að veðurnördar gleðjast mjög,“ skrif- aði Trausti Jónsson veðurfræðingur á blogg- síðu sína um miðja vikuna. Dægurhitamet var slegið á veðurstöðinni á Kvískerjum í fyrrakvöld er hitinn fór þar í 17,3 stig og þar var einnig mjög hlýtt í gærmorgun. Einar Sveinbjörnsson skrifaði á veðurblogg sitt að þá hefði þurft að fara suður til Sikileyjar eða til Spánar við Gíbraltarsund til að finna áþekkan hita. „Það verður hlýtt á sunnudaginn en spurn- ing hvort það verður nógu hvasst til að hitinn nái sér á strik,“ segir Trausti Jónsson. „Það er mjög hlýtt í háloftunum en sjórinn og land- ið fyrir neðan er kalt og kælir miskunnar- laust þannig að það þarf vind til að hræra upp í þessu. Það sem af er desember er með- alhitinn í Reykjavík 1,4 stigum undir með- allagi. Hlýtt verður að mestu fram á þriðju- dag en síðan er gert ráð fyrir norðaustanþræsingi með eitthvað kaldara veðri. Spár sem komu í dag gera ráð fyrir slíku veðri nánast út árið, en þær sem komu á fimmtudag gerðu ekki ráð fyrir slíku nema fram á föstudag. Spárnar eru mjög breyti- legar, eiginlega skemmtilega breytilegar.“ Á meginlandi Evrópu er enn frekar kalt, en hins vegar var tiltölulega milt á Bretlands- eyjum í gær eins og á Íslandi. „Þó að það sé aðeins skárra veður í Evrópu í dag þá eru þeir ekki alveg búnir að bíta úr nálinni með kuldakastið,“ segir Trausti. „Þar er spáð mjög miklum kuldum upp úr helgi og alveg suður undir Miðjarðarhaf. Ef þessar tölur eru réttar verða einhver vandræði vegna snjó- komu á Ítalíu og jafnvel í Grikklandi, en kannski er fullsnemmt að fullyrða um það. Sömu sögu er að segja um Bandaríkin, en þar er spáð býsna miklum kuldum næstu daga. Búast má við mikilli snjókomu í norð- austurríkjunum og í miðausturríkjunum gætu einnig orðið einhver vandræði í sam- göngum.“ aij@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Skotland Þegar flogið var yfir Aberdeen um miðja vikuna var snjór yfir öllu og sögðu heima- menn að svo mikið hefði ekki snjóað í um 20 ár. Ekki sér fyrir endann á kuldakastinu. Morgunblaðið/Árni Sæberg Ísland Snjólétt var á sama tíma austan Mýrdalsjökuls og í Skaftártungum. Hér verður hlýtt áfram fram yfir helgi, en þá má búast við norðaustanþræsingi í einhverja daga a.m.k. Óvenjulegheit og veðurnördar gleðjast  Skemmtilega breytilegar spár, segir veðurfræðingur  Snjókoma í Evrópu og Bandaríkjunum Egill Ólafsson egol@mbl.is Ríkissjóður þarf að greiða 15-17 milljarða vegna Icesave-samnings- ins á næsta ári, auk þeirra 20 millj- arða sem eru í Tryggingasjóði inni- stæðueigenda. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir að það ráðist í viðræðum formanna flokkanna hversu langan tíma Al- þingi muni taka sér til að fjalla um samninginn. Samkvæmt samningnum felur fyrsta greiðsla í sér greiðslu vaxta frá október 2009 til næstu áramóta. Gert er ráð fyrir að hún sé 26-27 milljarðar króna. Um 20 milljarðar eru til í Tryggingasjóði innistæðu- eigenda og sex milljarðar koma því úr ríkissjóði. Til viðbótar þarf rík- issjóður að greiða ársfjórðungslegar greiðslur á næsta ári og samtals gætu þessar greiðslur numið 16-17 milljörðum. Steingrímur sagði að þrotabúið gæti vonandi farið að greiða út um mitt næsta ár. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra sagðist ekki telja að sam- anburður við fyrri samninga skipti meginmáli heldur hitt að samstaða tækist um þessa niðurstöðu. „Þetta hefur verið mikill þröskuldur fyrir endurreisninni sem við erum í og ef hann er frá og ef það næðist sam- staða um að ná þessu máli í gegn um þingið, þá er það mjög mikill áfangi í endurreisninni.“ Ísland í annarri stöðu nú Steingrímur sagði að þetta sam- komulag væri mjög hagstætt. „Við erum í allt annarri stöðu til að gera þessa samninga núna. Ein ástæða þess að þeir eru jafnhagstæðir og raun ber vitni er sú staðreynd að núna getum við ráðið við samtíma- greiðslur á vöxtum, sem auðvitað var lykilatriði í því að ná vaxtakjörunum niður. Vorið 2009 vorum við ekki í þeirri aðstöðu að geta tryggt slíkt. Við vorum þá enn í mjög veikri stöðu, höfðum enga endurskoðun fengið í gegn á áætlun Alþjóðagjald- eyrissjóðsins og höfðum ekkert í gjaldeyrisvaraforðanum nema upp- hafslán frá AGS. Við fengum ekki að- gang að hinum lánunum vegna þess að samstarfið var stoppað út af Ice- save. Landið var því ekki í stöðu til að tryggja samtímagreiðslur á vöxt- um. Það þýðir ákveðin útgjöld núna, en til lengri tíma er ég ekki í vafa um að það er hagstætt fyrir landið.“ Steingrímur sagði að ef það væri hægt að treysta því að góðar líkur væru á að Ísland þyrfti ekki að greiða nema 47-50 milljarða væri það miklu lægri upphæð en menn hefðu reiknað með. „Þetta mun hafa geysi- lega góð áhrif út á við á mat manna á stöðu Íslands. Auðvitað er viss áhætta í þessu ennþá, en hún hefur minnkað verulega. Það er ævintýra- legt að sjá æfingar í fjölmiðlum um að það geti verið mörg hundruð milljarða óvissa í þessu máli. Það er afar ólíklegt að nokkuð slíkt geti gerst einfaldlega vegna þess að nú er búið komið með miklu meira laust fé og horfurnar hafa batnað jafnt og þétt. Að teknu tilliti til verðmætustu eignarinnar, sem er bréf frá nýja Landsbankanum yfir í gamla Lands- bankann að viðbættum 340 milljörð- um í lausu fé, þá liggur þegar fyrir að endurheimturnar verða umtalsverð- ar og líkurnar á verulegu fráviki eru minnkandi og minnkandi.“ Ríkið greiðir 15-17 milljarða á næsta ári  Afgreiðsla Icesave á þingi ræðst af vilja formanna flokkanna Morgunblaðið/Ernir Ríksstjórnarfundur Steingrímur J. Sigfússon og Jóhanna Sigurðardóttir ræddu við blaðamenn að loknum ríkisstjórnarfundi í gær. Dýrir sérfræðingar » Fram kom á blaðamanna- fundi í gær að ríkið þyrfti að greiða nokkur hundruð millj- ónir til sérfræðinga sem komið hafa að samningum fyrir hönd Íslands. » Jóhanna Sigurðardóttir sagðist vera hlynnt þjóðar- atkvæðagreiðslum, en teldi að fjárlög og milliríkjasamningar væru mál sem ekki hentuðu í þjóðaratkvæðagreiðslur. Ríkisstjórnin ætlar að óska eftir að Alþingi samþykki sex milljarða heimild til framkvæmda í vega- málum á næsta ári. Fyrstu útboðin gætu farið fram innan tveggja mán- aða. Þetta var ákveðið eftir að slitn- aði upp úr samningum við lífeyris- sjóðina um fjármögnun vega- framkvæmdanna vegna ágreinings um vaxtaprósentu. Viðræður um aðkomu lífeyrissjóð- anna að fjármögnun vegafram- kvæmda hafa staðið í níu mánuði. Í júní voru samþykkt lög á Alþingi þar sem gert var ráð fyrir að farið yrði í vegagerð á næstu fjórum árum fyrir 38 milljarða með sérstakri verkefna- fjármögnun. Kristján L. Möller, fyrrverandi samgönguráðherra, hef- ur leitt þessar viðræður við lífeyris- sjóðina. Síðustu tvo mánuði hafa rík- ið og lífeyrissjóðirnir tekist á um vaxtakjör og lauk þeim viðræðum í fyrradag án þess að menn næðu saman. Steingrímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sagðist vera arg- ur yfir þeim tíma sem hefði farið í þetta en nú væri ákveðið að farið yrði út í hefðbundið skuldabréfaút- boð á vegum ríkisins. Hann sagðist hafa trú á að í því fengjust hagstæð- ari vextir en lífeyrissjóðirnir kröfð- ust í viðræðum við ríkið. Þeir hefðu farið fram á fasta vexti og hlutdeild í hagnaði ef umferð yrði meiri en um- ferðarspá gerði ráð fyrir. Hann sagðist telja áhættu af framkvæmd- unum litla. egol@mbl.is Fara í vegagerð fyrir sex milljarða  Slitu viðræðum við lífeyrissjóðina Kristján Möller Ljóðabók í sérflokki salka.is „Segja má að hér hafi skáldkonan náð að helga sér sitt eigið land.“ Úlfhildur Dagsdóttir, Bókmenntir.is eftir Guðrúnu Hannesdóttur

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.