Morgunblaðið - 11.12.2010, Qupperneq 26
Reuters
Hylltur Formaður Nóbelsnefndarinnar, Thorbjørn Jagland, flytur ræðu sína í ráðhúsinu í Ósló. Varpað var upp stórri mynd af Liu Xiabao á vegg í salnum.
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Nóbelshátíðin í sal ráðhússins í Ósló
í gær var óvenjuleg að því leyti að
sjálfur friðarverðlaunahafinn, Liu
Xiabao frá Kína, var ekki viðstaddur
og enginn fulltrúi hans heldur, stóll
hans var því auður. Liu hefur barist
fyrir mannréttindum í landi sínu og
afplánar nú 11 ára fangelsisdóm fyr-
ir að brjóta gegn lögum landsins.
Eiginkona hans, Liu Xia, fékk ekki
að fara til Óslóar til að veita verð-
laununum viðtöku fyrir hönd hans.
Verðlaunahafinn fjarstaddi var
hylltur með löngu lófataki. Formað-
ur norsku nóbelsnefndarinnar,
Thorbjørn Jagland, hvatti til þess í
ræðu sinni að Liu yrði þegar í stað
látinn laus. „Hann hefur ekki gert
neitt af sér,“ sagði Jagland sem þótti
mælast vel. Hann hrósaði stjórn-
völdum í Peking fyrir að hafa með
stefnu sinni síðustu áratugi frelsað
milljónir manna úr greipum fátækt-
ar en stórveldið yrði að „líta gagn-
rýni jákvæðum augum“.
Kínversk stjórnvöld komu í veg
fyrir að fréttir erlendra fjölmiðla frá
athöfninni í Ósló bærust óritskoðað-
ar til almennings í Kína og höfðu
uppi mikinn öryggisviðbúnað við
heimili eiginkonu Liu. Einnig hafa
um 20 stjórnarandstæðingar verið
handteknir að undanförnu.
Verðlaunaafhendingin var í Kína
kölluð „pólitískur skrípaleikur“ og
stuðningsmenn Liu „trúðar“. Einnig
eru vestræn ríki og þá
einkum Bandaríkin sögð
vilja troða vestrænum
gildum upp á Kínverja
og skipta sér af innan-
landsmálum þeirra.
Ríki sem styddu
ákvörðun norsku
nóbelsnefndarinn-
ar með því að senda
fulltrúa sína til Ósló-
ar yrðu að „taka af-
leiðingunum“. Ekki
hefur verið útskýrt
nánar hvað átt sé við
en giskað er á að þau
verði ef til vill beitt
viðskiptalegum refs-
ingum. 16 ríki höfn-
uðu boði um að senda fulltrúa til
Óslóar.
Nasistar veittu ekki heldur
fararleyfi
Þetta er í annað sinn í 109 ára sögu
verðlaunanna sem ekki er hægt að
veita þau, síðast var það er Carl von
Ossietzky, rithöfundur er barðist
gegn harðstjórn nasista Adolfs Hitl-
ers, hreppti verðlaunin. Hann fékk
ekki fararleyfi.
Leikkonan Liv Ullman las í gær
yfirlýsingu frá Liu Xiaobo, var hún
rituð 23. desember í fyrra er réttað
var í máli hans í Kína. Hann segist
þar vera vonglaður og hlakka til þess
að Kína verði frjálst land. „Af því að
ekkert afl getur bundið enda á þrá
manna eftir frelsi og Kína mun að
lokum verða land réttarríkisins þar
sem mannréttindi eru í hásætinu.“
Liu segir 4. júní 1989 hafa verið
vendipunkt í lífi sínu en þá voru mót-
mæli námsmanna á Torgi hins himn-
eska friðar í Peking kæfð í blóði. Liu
tók þátt í andófinu gegn kommún-
istastjórninni, var dæmdur í fangelsi
og sviptur starfi sínu.
Auður stóll í Óslóborg
Kínverski andófsmaðurinn Liu Xiabao fyllti salinn með fjarveru sinni
Stjórnin í Peking segir Vesturlönd vilja troða sínum gildum upp á Kínverja
26 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010
Nokkrir fyrrver-
andi lykilmenn á
bak við upp-
ljóstrarasíðuna
WikiLeaks
hyggjast nú
hleypa af stokk-
unum nýrri síðu
sem nefnd verð-
ur Openleaks, að
sögn vefsíðu Da-
gens Nyheter í Svíþjóð. Ástæðan
er sögð óánægja með Julian Ass-
ange, hinn ástralska stofnanda
WikiLeaks.
Aðstandendur Openleaks vildu
ekki koma fram undir nafni í sam-
talinu við Dagens Nyheter. Lang-
tímamarkmiðið með nýja vefnum er
m.a. sagt vera að „byggja upp öfl-
ugan, gegnsæjan vettvang til að að-
stoða uppljóstrara, bæði tæknilega
og á pólitískan hátt“.
Assange er nú í gæsluvarðhaldi í
Bretlandi meðan fjallað er um
framsalskröfu frá Svíþjóð, Assange
er sakaður um kynferðisafbrot þar
í landi. Margir liðsmenn hans hafa
gegnum tíðina yfirgefið hann og
sakað hann um einræðistilburði.
Talsmenn Openleaks segja að koma
verði í veg fyrir að einstaklingar og
persónuleg vandamál þeirra trufli
starf nýju síðunnar.
Rússneskir ráðamenn hafa lýst
yfir aðdáun sinni á Assange. Náinn
starfsmaður Dímítrís Medvedevs
Rússlandsforseta sagði í gær að til-
nefna ætti Assange til friðar-
verðlauna Nóbels. kjon@mbl.is
Openleaks
til höfuðs
Assange
Julian Assange
Samstarfsmenn
ósáttir við Ástralann
Fram kemur í skjölum WikiLeaks
að sendimenn Bandaríkjastjórnar í
Búrma óttist að herforingjastjórnin
sé að koma sér upp kjarnorkuvopn-
um í frumskógi í Magway-héraði
með aðstoð Norður-Kóreumanna.
Um sé að ræða orðróm en talið að
markmið Búrmamanna sé að reisa
kjarnakljúf. Einnig er sagt að þar sé
eldflaugaverksmiðja og þar starfi
um 300 Norður-Kóreumenn, segir í
frétt Aftenposten í Noregi. Vitað sé
að stöðugt sé verið að senda margs
konar efnivið á staðinn.
Sendiráðsmennirnir hvetja þó til
þess að menn fullyrði ekki of mikið
um málið en segja að það komi á
óvart hvað sögusagnirnar um
kjarnakljúfinn séu sjálfum sér sam-
kvæmar. kjon@mbl.is
Búrma með
kjarnakljúf?
Sumir furða sig á því hve hörð
viðbrögð ráðamanna í
Peking hafa verið vegna
friðarverðlaunanna. Sér-
fræðingar í málefnum
Kína segja margir að
viðbrögðin sýni að nób-
elsnefndin hafi hitt í
mark. Aðrir benda
einnig á að valdabar-
átta fari nú fram bak
við tjöldin í komm-
únistaflokknum, manna-
skipti séu framundan.
Allir vilji nú sýna að
þeir séu ákafir ættjarð-
arsinnar og láti ekki
einhverja útlendinga
segja sér fyrir verkum.
Barist um
völd í Peking
ÞJÓÐREMBAN VEL METIN
Heilsa & hreyfing
Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um
Heilsu og hreyfingumánudaginn 3. janúar.
–– Meira fyrir lesendur
S
ÉR
B
LA
Ð
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, þriðjudaginn 21. desember.
Í þessu blaði verða kynntir fullt af þeimmöguleikum sem í boði eru fyrir
þá sem stefna á heilsuátak og bættan lífstíl í byrjun ársins 2011.
Meðal efnis verður:
• Hreyfing og líkamsrækt
• Vinsælar æfingar
• Bætt mataræði
• Heilsusamlegar uppskriftir
• Andleg vellíðan
• Bætt heilsa
• Ráð næringarráðgjafa
• Hugmyndir að hreyfingu
• Jurtir og heilsa
• Hollir safar
• Ný og spennandi námskeið
• Bækur um heilsurækt
• Skaðsemi reykinga
• Ásamt fullt af fróðleiksmolum
og spennandi viðtölum