Morgunblaðið - 11.12.2010, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 11.12.2010, Qupperneq 47
DAGBÓK 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. DESEMBER 2010 Sudoku Frumstig 5 4 6 3 5 3 2 8 4 7 8 6 8 2 4 3 8 9 5 6 4 3 7 9 7 2 2 1 3 8 4 9 6 1 2 3 5 8 4 5 1 4 4 8 2 1 3 6 9 5 6 1 8 3 5 6 5 4 8 9 6 3 7 6 5 7 1 4 9 8 7 5 1 8 6 6 5 1 3 8 6 5 4 2 7 9 2 4 5 9 7 1 8 6 3 9 7 6 2 8 3 4 1 5 5 9 7 3 1 8 6 4 2 3 8 1 4 2 6 5 9 7 6 2 4 5 9 7 1 3 8 8 6 9 1 3 5 7 2 4 7 1 3 8 4 2 9 5 6 4 5 2 7 6 9 3 8 1 3 1 4 2 6 5 7 8 9 6 9 7 8 1 3 4 5 2 5 8 2 9 7 4 1 3 6 7 2 9 6 3 8 5 1 4 4 3 8 5 9 1 6 2 7 1 5 6 7 4 2 8 9 3 8 6 3 1 2 7 9 4 5 9 4 1 3 5 6 2 7 8 2 7 5 4 8 9 3 6 1 6 2 5 4 3 7 8 1 9 8 1 7 5 2 9 4 6 3 3 4 9 8 1 6 7 2 5 2 9 4 7 8 1 3 5 6 5 7 3 9 6 2 1 8 4 1 8 6 3 4 5 2 9 7 9 5 2 1 7 4 6 3 8 7 3 1 6 9 8 5 4 2 4 6 8 2 5 3 9 7 1 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Í dag er laugardagur 11. desember, 345. dagur ársins 2010 Orð dagsins: Enginn er þinn líki, Drottinn! Mikill ert þú og mikið er nafn þitt sakir máttar þíns. (Jeramía 10, 6.) Stundum er ekki laust við að Vík-verja finnist sem allir séu haldn- ir þrálátum misskilningi um heim- inn, nema auðvitað hann sjálfur. Þessi tilfinning hellist til dæmis yfir Víkverja þegar allir í kringum hann fjargviðrast yfir því í miðjum desem- ber að það sé frost úti. Þetta er afar sérkennilegt í ljósi þeirra augljósu orsakatengsla í veðráttu á Íslandi, að þegar það er frost á þessum tíma árs, þá er jafnan líka heiðskírt og bjart úti. Þegar hitinn fer upp fyrir frostmark hellist hins vegar rigning og dumbungur yfir. x x x Í desember eru sólarstundirnar íhöfuðborginni teljandi á fingrum annarrar handar og norðanlands eru þær aðeins nokkrar mínútur. Því er vart á það bætandi að í ofanálag við skammdegið sé líka þoka og suddi þannig að í þennan örstutta tíma sem ætti með réttu að birta til úti sjáist ekkert nema drungaleg rign- ingarský. Víkverji trúir því ekki að fólki finnist dumbungurinn í alvöru betri en heiður og fallegur vetr- arhiminn, sem sleginn er bleikum roða vegna þess hve sólin er lágt á lofti. Það er því eðlilegt að álykta að allir séu bara að misskilja, nema Víkverji. Í raun og veru vill fólk frekar frostið en rigninguna, það bara veit það ekki sjálft. x x x Kannski er þetta þó bara hinninnri Skröggur Víkverja sem talar. Aðventan er nú hálfnuð og Víkverji hefur enn ekki fundið það í sér að gera nokkurn skapaðan hlut jólalegan. Ef allt væri með felldu ætti heimili Víkverja nú að vera und- irlagt jólaskreytingum og kerta- ljósum, jólalögum og ilmandi kökum. Því er ekki að heilsa í ár, heldur virðist sem jólabarnið í Víkverja sé lagst í varanlegt híði. Ástæðan er óljós, en Víkverji íhugar að grípa til einhvers konar þvingunaraðgerða til að freista þess að brjóta jólabarninu leið upp á yfirborðið. Víkverji svífst einskis í þessari baráttu og mun jafnvel grípa til þess að baka kökur og drekka súkkulaði um helgina, ef nauðsyn krefur. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 vafasöm, 4 urtan, 7 kvabbs, 8 glataði, 9 spil, 11 lesa, 13 elska, 14 sveðja, 15 rámi, 17 geð, 20 ílát, 22 meðulin, 23 sagt ósatt, 24 þvaðra, 25 víður. Lóðrétt | 1 með hornum, 2 örin, 3 tarfur, 4 hníf, 5 kvöl- in, 6 hafna, 10 dollu, 12 flýt- ir, 13 muldur, 15 þekur, 16 svefnhöfga, 18 afkvæmum, 19 vel liðinn, 20 sprota, 21 hestur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 gremjuleg, 8 fætur, 9 aldin, 10 jóð, 11 skata, 13 sárið, 15 svaðs, 18 hrönn, 21 ull, 22 gjall, 23 aldur, 24 gamansama. Lóðrétt: 2 rotna, 3 merja, 4 unaðs, 5 endur, 6 ofns, 7 anið, 12 tíð, 14 áar, 15 segg, 16 afana, 17 sulla, 18 hlass, 19 öndum, 20 nóra. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4 e6 7. a3 Be7 8. 0-0 0-0 9. Ba2 b5 10. f4 Bb7 11. f5 e5 12. Rde2 Rbd7 13. Rg3 Hc8 14. Bg5 Rb6 15. Rh5 Hxc3 16. bxc3 Rxh5 17. Bxe7 Dxe7 18. Dxh5 Bxe4 19. Dg4 d5 20. f6 Dc5+ 21. Kh1 g6 22. Hae1 He8 23. Dh4 h5 24. Dg5 Rc4 25. Bxc4 bxc4 26. He3 Df8 27. Hb1 Hb8 28. Hee1 Hxb1 29. Hxb1 Bxc2 30. Hb7 Bf5 31. De3 Be6 32. Dxe5 Dxa3 33. h3 Dc1+ 34. Kh2 g5 35. Ha7 h4 36. Hxa6 Kh7 Staðan kom upp í áskorendakeppni heimsmeistaramóts í Júgóslavíu 1959. Friðrik Ólafsson hafði hvítt gegn undrabarninu Bobby Fischer. 37. Ha1! Df4+ hvítur hefði einnig unnið eftir 37. …Dxa1 38. Dxg5 og 37…Dd2 38. Hd1! 38. Dxf4 gxf4 39. Hf1 d4 40. cxd4 Kg6 41. Hxf4 Bf5 42. Hf3 Kxf6 43. He3 Kg5 44. g3 Bd3 45. d5 Bf5 og svartur gafst upp um leið. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Merkilegt spil. Norður ♠ÁG65 ♥ÁK7652 ♦G ♣Á6 Vestur Austur ♠2 ♠10743 ♥109 ♥DG843 ♦ÁD943 ♦872 ♣105432 ♣7 Suður ♠KD98 ♥-- ♦K1065 ♣KDG98 Suður spilar 6♠. „Merkilegt spil – vestur gefur tólfta slaginn á útkomunni, en sagnhafi fer niður ef hann þiggur slaginn.“ Er Ósk- ar ugla farinn að fylgjast með hjá BR? Nei, Óskar er sögupersóna, en hins vegar þarf góðan áhorfanda til að sjá kjarna málsins. Spilið kom upp í Cavendish- tvímenningi BR. Á einu borði sagði vestur frá láglitunum eftir upphaflegt pass. Spilaði svo út ♣2 gegn slemm- unni. Sagnhafi þáði greiðann, hleypti laufinu heim, en réð síðan ekki við 4-1 leguna í trompi.Slemman er greinilega óvinnandi með því að taka fyrsta slag- inn heima. En dugir að stinga upp ♣Á? Já. Sagnhafi trompar hjarta í öðrum slag og tekur fjórum sinnum tromp. Hirðir ♥Á-K og spilar laufi heim. Vest- ur verður loks sendur inn á blankan ♦Á til að spila upp í ♣G9. 11. desember 1917 Kvikmyndin Voðastökk var frumsýnd í Reykjavík. Það þótti tíðindum sæta að Nýja bíó hafði „látið setja íslenska texta í þessa ljómandi fögru og skemmtilegu mynd,“ eins og sagði í blaðaauglýsingu. 11. desember 1943 Hver braust skyndilega upp í gróðurhúsi í Ölfusi, fór í gegn- um þak hússins og hátt í loft upp. „Allt eyðilagðist sem þar var inni, nema fáeinar plöntur,“ sagði í Alþýðu- blaðinu. 11. desember 1975 Breski dráttarbáturinn Llo- ydsman sigldi tvívegis á varð- skipið Þór í mynni Seyð- isfjarðar, innan við tvær sjómílur frá landi. Þetta voru alvarlegustu átökin í land- helgisdeilunni og kærðu Ís- lendingar Breta til örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna. 11. desember 1993 Happdrættisvélar Happ- drættis Háskóla Íslands, Gull- náman, voru gangsettar á 26 stöðum á landinu. 11. desember 1998 Um 90 þúsund manns, eða þriðjungur þjóðarinnar, skráði sig fyrir hlut í Bún- aðarbankanum hf. Morg- unblaðið sagði þetta vera met- þátttöku í hlutafjárútboði. Viðskiptaráðherra sagði að ekki væri ólíklegt „að jólagjöf- in í ár verði hlutabréf í Bún- aðarbankanum“. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist… Hjálmar Björnsson, smiður á Akureyri, er 65 ára í dag. Hann er kvæntur Pálínu S. Jónsdóttur sjúkra- liða og eiga þau þrjá syni, Björn Fannar, Birki Fannar og Guðjón Unnar. Hjálmar segir fjölskylduna standa upp úr er það mikilvægasta í lífinu ber á góma. Hann kvartar ekki undan verkefnaskorti og kveðst hafa komið bæri- lega út úr kreppunni. Hjálmar er ári yngri en ís- lenska lýðveldið og segir hann siðleysi áhrifafólks sitja eftir þegar litið er til síðustu ára. Viðhorfið væri að allt mætti ef hægt væri að komast upp með það. Honum ofbjóði óheiðarleikinn. „Það er eins og viðkvæðið hjá toppunum í þjóðfélaginu sé að ef hægt sé að komast upp með eitthvað sé sjálfsagt mál að framkvæma það.“ Hjálmar býður vini og vandamenn velkomna í afmæliskaffi. Hjónin séu með opið hús í dag. „Það fá allir kaffi sem koma,“ segir Hjálmar og bætir því við að nú standi til að hafa veisluna smærri í snið- um en á sextugsafmælinu, þegar hann og tveir elstu synirnir hafi farið á veiðar og boðið gestum upp á villibráð. Yngsti sonurinn, Guðjón Unnar, sé enn sem komið er meira fyrir tölv- ur en veiðiskap. Hjálmar Björnsson smiður er 65 ára í dag Ofbýður siðleysið Flóðogfjara 11. desember Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur Reykjavík 3.35 1,0 9.56 3,6 16.16 1,1 22.20 3,2 11.10 15.33 Ísafjörður 5.35 0,7 11.55 2,0 18.24 0,6 11.53 14.59 Siglufjörður 2.18 1,1 7.53 0,5 14.18 1,2 20.35 0,3 11.37 14.41 Djúpivogur 0.42 0,6 7.02 2,0 13.22 0,7 19.12 1,8 10.48 14.54 Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Það getur reynst mikil kúnst að segja nei, þegar það á við. Minniháttar viðræður á næstu vikum hafa margvísleg áhrif og leiða jafnvel til launahækkunar. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú ert ekki sú eina/eini sem veður í villu og svíma vegna mannlegs atferlis þessa dagana. Trúnaðarsamtal við vin reynist heilla- drjúgt og gefandi. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það er undravert, hversu miklu má afkasta, þegar menn eru ákveðnir í að ná ár- angri. Allt rugl flækir málin og er tímasóun. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú vilt blómstra, ekki bara lifa af. Samvinna er ekki á döfinni á morgun eða hinn. Hvað skiptir þig máli? (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Passaðu að samningar séu skriflegir og skuldbindingar opinberar. Draumar geta átt sín upptök í reynsluheimi þínum, gefðu þeim því meiri gaum. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Hvert sem þú kemur, færðu það á til- finninguna að þetta sé rétti staðurinn til að vera á. Finndu hæfileikunum farveg þar sem þeir fá notið sín. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Vertu þér trú/r og reyndu ekki að gera þér upp skoðanir á mönnum og málefnum. Allir þurfa einhvern tímann á hvíld að halda. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert að komast í gegnum erfitt tímabil sem varað hefur í nokkur ár og ert nánast hólpinn. Vinur er í vanda, getur þú rétt hjálparhönd? (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Það vantar ekki mikið upp á að þér takist að klára það verkefni sem þér hef- ur verið falið. Vertu á varðbergi. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú ert til í að taka á þig auknar skuldbindingar tengdar börnum. Ef þú hættir að vera frelsarinn, hættir fórnarlambið kannski að vera fórnarlamb. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Sígandi lukka er best svo vertu bara róleg/ur og taktu einn dag fyrir í einu og gerðu þitt besta. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Jafnvel þótt þú hafir mikið að gera í félagslífinu þarftu á hvíld að halda. Leitaðu ráða þér eldri og reyndari mönnum og þá áttu auðveldara með að taka af skarið. Stjörnuspá Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.