Eyjablaðið - 28.05.1970, Síða 3
Eyjablaðið
3
stjórn eða íhaldsstjóm
Vinstri
Vinstri stjórn og sósíalismi
í þætti, sem sjónvarpið
sýndi þ. 28. feb. frá Nes'kaup-
stað var viðtal við bæjar-
stjórann, Bjarna Þórðarson,
sem sagði, að menn mættu
ekki halda að þeir væru að
framkvæma hreinan sósíal-
isma þar á staðnum, það
væri tómur misskilningur;
þeir gerðu sér manna bezt
grein fyrir því. Aftur á móti
reyndu þeir að leysa ýmis
aðkallandi verkefni, svo sem
í atvinnumálum og fl., ó sós-
íaliskum grundvelli grund-
velli félagshyggjunnar. Það
væri ekki hægt í einu bæj-
arfélagi að framkvæma sósíal
isma í auðvaldsþjóðfélagi
sem í eðli sínu er andsnúið
öllu sem lýtur að jöfnuði.
Þetta, sem þessi ágæti mað-
ur sagði, kemur heim við
það sem einn okkar eldri s-
síalisti sagði nýlega, „það er
ekki hægt að framkvæma
telandi sósíalisma í bæjar-
| stjórn, því þeir eru eins og
bundnir á höndum og fót-
um af löggjafarvaldinu á
flestum sviðum, það mikils-
verðasta við að vinstri menn
hafa völdin er það, að þá
geta atvinnurekendur og aðr-
ir ekki ráðskast með málefni
bæjarins að vild, sér í hag.
Það er hægt að spyrna við
fæti, svo langt sem lög leyfa,
en í flestum tilvikum eru
þau einmitt þeim í hag, enda
samin flest af þeim.“
Hægristjórn og auðhyggja
Þeir, sem séð hafa fram-
boðslista íhaldsins fyrir
næstu kosningar til bæjar-
stjórnar og virt fyrir sér nið-
urröðun hans, sjá strax, að
þar hefur stöðvavaltíið meiri
hluta. Af fimm efstu, sem
íhaldið gerir sér vonir um að
koma inn, eru fjórir höfuð-
paurar stöðvavaldsins, salt-
fiskstöðvareigandi og svo
loks einn harðdrægur fram-
kvæmdastjóri fyrir frysti-
húsi. Aðeins einn tilheyrir
ekki þessari sterku klíku
stöðvanna; sá sem er í von-
litla sætinu, en hann er hinn
þægi vikapiltur, skoðana-
snældan G.Á.E. _ Þetta eru
mennirnir sem íhaldið ætlar
að láta „bjarga“ bænum.
Guðlugur segir í framboðs-
lista blaðinu að sú bæjar-
stjórn, sem við taki fái m. a.
strax 18 millj. 'kr. skuld við
að glima. Má vera að þeir
ætli að borga hana úr eigin
vasa. Fyndist verkafólki ekki
það hálfótrúlegt eftir fyrri
skipti sín við þá. (Raunar er
'skuldin ekki til).
Loforð og efndir.
íhaldið hefur haft stjórn
þessa bæjar margfalt lengur
en nokkrir aðrir frá því að
fyrst var kosið til bæjar-
stjórnar, fyrir rúmlega hálfri
öld; um tíu 'kjörtímabil af
þrettán, sem liðin eru- Öll
þessi ár hefu x’flest það skort í
þennan bæ, sem til menning
arauka mætti vera, allt nema
glæsileg loforð íhaldsins fyr-
ir hverjar kosningar, saman-
ber síðasta Fylki.
Meirihlutinn, sem nú er að
ljúka sínu fyrsta kjörtíma-
'bili, setji ekki fram langan
loforðslista, en hefur staðið
sig þeim mun betur. í áður-
nefndum Norðfjarðar-þætti
var minnzt á fullkomið fé-
lagsheimili, hver smábær úti
um land getur státað af því
sama og standa langt fram-
ar þessum 5000 manna bæ
með öll sín glæsifiskver og
bátaflota. Þau geta státað af
sundhöllum, félagsheimilum,
bókasöfnum í cigin húsi með
lestraraðstöðu, byggðasöfnum
og listigörðum. — íhaldið hér
hefur lofað þessu öllu um
kosningar, en minna orðið
um framkvæmdir. Þessi bæj-
arstjórn hefur þó komið fé-
lagsheimilinu það áfram, að
því er næstum lokið, byi’jað
er á safnahúsi, og vatnsveit"
unni að verða lokið. Hún
hefur dregið töluvert þrek
úr bænurn, sem von er með
svo stórt verkefni, að ekki
sé minnzt á þegar efnahags-
ástand þjóðfélagsins og ó-
stjórn þess er sem raun er á.
Pínumoggamenn belgja sig
út af vandlætingu vegna
hárra útsvai’a. Þó ættu þeir
að vita, að aðeins hluti þeirra
fai'a til ráðstöfunar á vegum
bæjarstjórnar til verklegra
fi-amkvæmda, hitt allt í fasta
liði, sem vaxa óhjákvæmilega
með verðbólgunni. Félagsmál
er stæsti liðurinn, skólar,
sjúki-ahús .elliheimili, ti’ygg-
ingai', sjúki-asamlag og fl.
„Viðreisnin" sér fyi’ir
hækkun á þessum liðum
jafnt og þétt og reikna ég
ekki með að smábai’nakenn-
| urum finnist þeir fá of hátt
I
kaup eða að þeim finnist þöi’f
að halda því niðri svo að
félagsmálaliðurinn hækki
um of, ekki frekar en Guðl.
þótt neitt athugavert við
að vera hafður að leiksoppi
stjói-nvaldanna og notaður
til að mæla gengisfellingunni
bót, sem hækkaði vatnsveitu-
framkvæmdir Vestmannaey-
inga um helming.
Pínulitli mogginn í Eyjum
hefur nú haft uppi aðferðir
þæi’, er fyi’rverandi átrúnað-
argoð þeirra, Hitlei’, 'kenndi
í bók sinni „Mein Kampf“:
Ef lygin er endurtekin nógu
oft, þá trúa allir henni að
lokum.“
Lofoi’ðalisti Fylkis var svo
skrumkenndur, að allir bæj-
arbúar hlógu að, sjálfstæðis-
menn sem aðrir.
Nú ætla þeir að láta í það
skína, að um hugarfars- og
stefnubreytingu sé að ræða
hjá þeim. Allt þetta munum
við gera fyi’ir ykkur, ef þið
fallið frarn og kjósið ok'kur.
Það er sannai’lega vonandi
| að sem fæstir bæjarbúar
j láti blekkjast af þessu glamri.
Það er kannski hægt að
segja að það sé gamalt og úr-
elt slagorð, sem hér kemur á
eftir, en nú á það svo sann-
arlega við.
Allt betra en íhaldið!
*H§kHÍKHÍKHP04kHÍKH!i^^
Bæjarstjórnar-
kosningar
í Vcsmannaeyjuni fara fram smxnudaginn 31. maí 1970 og
liefjast klukkan 9 árdegis.
Bænum er skipt í tvær kjördeildir, og er kjör-
staður I. kjöi’deildar í Akógeshúsinu, en kjör-
staður II. í húsi K.F.U.M.&K..
í Akógeshúsinu I. kjördeild, greiða þeir at-
kvæði, sem eiga heimili við götur, sem byrja á
A - til og með Hólagötu.
X-G
J.T
Þarít' að ílytja!
Viitu íara!
Ertu að konta!
allavega gleymið ekki að tilkynna sérhverja
aðsetursbreytingu til bæjarritarans, Kirkju-
vegi 23, III. hæð.
BÆJARRITARINN
VESTMANNAEYJUM
í liúsi K.FU.M.&K. II. kjördeild, greiða þeir
atkvæði, sem eiga heim við götur frá og með
Hraunslóð og til og með Víðisvegi, svo og þeir,
sem búa í húsum sem ekki eru staðsett við göt-
ur (þar með taldir bæir) og ennfremur þeir. sem
kærðir hafa verið inn á kjörskrá.
Vestmanaeyjum 20. maí 1970
Yfirkjörstjórnin í Vestmannaeyjum,
Freymóöur Þorsteinsson.
Jón Hjaltason.
Einar II. Eiríksson.
Sérkennileg sannleiksást
í næst síðasta tölublaði
Fylkis mátti líta all furðuleg-
an samsetning, sem frá sjón-
armiði venjulegs fólks verð-
ur að teljast alveg frábær
hagræðing á því, sem við höf
um til þessa dags nefnt sann-
leik. Eg vil nú í fullri vin-
semd fara þess á leit „við
þann andans jöfur, sem skrif
ar hitt og þetta í Fylki, að
hann skýi’i frá því, hvað hann
á við þegar hann segir að
Eggert Þorsteinsson ráð-
herra hafi skipað mig í em-
bætti hér í Vestmannaeyj-
um. Mér er ljúft að upplýsa
manninn um það að Eggert
Þorsteinsson hefi ég aldi’ei
talað við, og tel rnjög líklegt
að hann viti hreint ekki að
ég sé til. Skipaskoðunai’stjóri
Hjálmar R. Báraðai’son sá
um þesa ráðningu. Það sem
ef til vill hefur ráðið úrslit-
urn að ég hlaut starfið, voru
mjög vel orðuð og vinsamleg
meðmæli frá formanni út-
vegsbændafélags Vestmanna-
eyja, Birni Guðmundssyni-
Harma ég mjög ,ef það hef
ur orðið til þess að honum
var skákað út af stöðvalist-
anum.
Hvort áðurnefnd grein nær
lengra í ósannindavaðli en
annað í Fylki, skal ekki full-
yrt. En hún er þó sönnun
þess, að hægt sé að skrifa
all langt mál án þess að kom.
ast í snertingu við sannleik-
ann. Hafsteinn Stefánsson.