Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 4. J A N Ú A R 2 0 1 1
Stofnað 1913 2. tölublað 99. árgangur
WE MADE GOD MEÐ
FYRSTU PLÖTUNA
KARLARNIR
VILJA EKKI
HÆTTA
HANNA LÁRA
SYNGUR MEÐ
SINFÓNÍUNNI
SKÓLAR OG NÁMSKEIÐ 30 VÍNARTÓNLEIKAR 28
ERT ÞETTA
ÞÚ? 30
Skapti Hallgrímsson
skapti@mbl.is
„Sá sem vaknaði fyrstur segist hafa
rumskað í rúminu við hljóðið frá
reykskynjaranum en hann vaknaði
ekki almennilega fyrr en hann áttaði
sig á því að verið var að lemja húsið
að utan. Þá hljóp hann af stað, óð um
húsið og reyndi að vekja okkur hin.
Það er ekki séns að við hefðum vakn-
að sjálf,“ segir Hreggviður Harð-
arson, einn þeirra sem björguðust
naumlega úr húsi við Eiðsvallagötu á
Akureyri á sunnudagsmorgun eftir
að eldur kom upp í kjallara.
Hreggviður, sem er 21 árs, leigir
húsið ásamt fjórum vinum sínum.
Hann svaf einn á jarðhæðinni, tveir
íbúanna voru sofandi á efri hæð sem
og stúlka sem var gestkomandi. Íbú-
ar í kjallaranum voru hvorugur
heima. „Sem betur fer,“ segir Hregg-
viður í samtali við Morgunblaðið.
Eldurinn kviknaði í kjallaranum og
mikinn reyk lagði þaðan um húsið.
Talið var að annar íbúa kjallarans
væri þar sofandi og leituðu reykkaf-
arar þar, en sá hafði ákveðið um nótt-
ina að fara heim til móður sinnar og
sofa þar.
Sá sem vaknaði fyrstur, á efri hæð-
inni, komst út af sjálfsdáðum ásamt
Hreggviði en reykkafarar náðu að
vekja piltinn og stúlkuna, einnig á efri
hæðinni, og koma þeim út. »2
„Við hin hefðum ekki vaknað sjálf“
Rumskaði við reykskynjara en vaknaði við barsmíðarnar
Íbúi í kjallara ákvað síðla nætur að sofa annars staðar
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Heppinn Hreggviður segist varla
hafa áttað sig fyrr en í gær.
Tími hins hagsýna neytanda er runninn upp í verslunum landsins því eins
og jafnan eftir áramót eru útsölur nú hafnar af fullum krafti. Í Kringlunni
var opið til kl. 21 í gærkvöldi á fyrsta degi útsölunnar og þar jafnt sem í
Smáralind var talsvert annríki enda geta útsjónarsamir gert góð kaup því
dæmi eru um að vörur séu boðnar á 50% og allt upp í 90% afslætti.
Margir gera góð kaup
Morgunblaðið/Golli
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Allt bendir til þess að hart verði tekist
á um ýmis mál á þingflokksfundi
Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs á morgun.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins er ekki búist við því að til per-
sónulegs uppgjörs komi á fundinum á
milli flokksforystunnar og þeirra
þriggja þingmanna VG sem sátu hjá
við atkvæðagreiðsluna um fjárlaga-
frumvarp Steingríms J. Sigfússonar
fjármálaráðherra í desember.
Viðmælendur úr röðum VG telja að
sennilega verði hart tekist á um Evr-
ópusambandsmál, bæði aðildarum-
sókn Íslands og ekki síður um það að-
lögunarferli að regluverki
Evrópusambandsins, sem stór hluti
VG telur að sé þegar komið á fulla
ferð, þvert á það sem lagt var upp
með, þegar VG samþykkti með sem-
ingi að sækja um aðild að ESB.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur myndast nokkuð breið
samstaða um það innan VG, bæði í
þingflokknum og meðal hins almenna
félagsmanns, að nauðsynlegt sé að
ljúka þeirri umræðu um stefnu VG í
Evrópusambandsmálum, sem hófst
fyrir alvöru á flokksráðsfundi VG í
nóvember sl. og henni verði að ljúka
með því að breytt verði um kúrs. Það
verði aldrei nein samstaða um það
innan VG að halda áfram á sömu
braut.
Viðmælendur Morgunblaðsins úr
röðum VG gagnrýna vinnubrögð Öss-
urar Skarphéðinssonar utanríkisráð-
herra fyrir harðfylgi í aðlögunarferl-
inu og þeir eru jafnframt gagnrýnir á
eigin forystu sem þeir segja taka allar
helstu ákvarðanir án þess að hafa
samráð við þingflokk og aðrar stofn-
anir flokksins.
Átökin verða
mest um ESB-
stefnu VG
Búist við hörðum deilum um mörg
ólík mál á þingflokksfundi VG á morgun
MMikill átakafundur »6
Skilanefnd
Glitnis keypti
um 3,3% af
nýju hlutafé
Icelandair sem
selt var milli
jóla og nýárs.
Þetta staðfestir
Árni Tómas-
son, formaður
skilanefnd-
arinnar, í samtali við Morgun-
blaðið. Glitnir á rúmlega 4,6% í
Icelandair, en eftir fjárhagslega
endurskipulagningu félagsins
eignaðist skilanefndin forkaups-
rétt í fyrirhuguðu hlutafjár-
útboði. „Okkur bárust engin við-
unandi tilboð í þennan
forkaupsrétt. Því mátum við
stöðuna þannig að við værum að
verja eignir kröfuhafa Glitnis
með því að taka þátt í hlutafjár-
útboðinu, án þess þó að fara út í
nýjar fjárfestingar,“ segir Árni.
thg@mbl.is » 14
Skilanefnd keypti
í hlutafjárútboði
Viðvörunarljós kviknaði í flug-
stjórnarklefa vélar frá Flugfélagi
Íslands á leið til Bergen í Noregi
vegna reyks í farangursklefa. Um
falska viðvörun reyndist vera að
ræða en hæsta viðbúnaðarstig
var þó á flugvellinum í Bergen
við lendingu.
Árni Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Flugfélags Íslands,
segir að flugmennirnir hafi
brugðist hárrétt við en þegar
opnað var inn í hólfið við lend-
ingu kom í ljós að þar var enginn
eldur. Vélin hafði viðkomu á Eg-
ilsstöðum frá Reykjavík og að
sögn eins farþega var ausandi
rigning þar. Kenning farþegans
var sú að kviknað hefði á rof-
anum vegna raka í farang-
ursrýminu í kjölfarið en Árni
segir ótímabært að segja til um
orsökina. Flugvirkjar munu yfir-
fara vélina á morgun. una@mbl.is
Viðvörunarljós
kviknaði um borð
Flugvél Ekki reyndist vera eldur um borð.
Tillaga um að samninganefnd Íslands sæki um
styrki til ESB vegna samninga og aðlögunar Ís-
lands að ESB hefur ekki verið afgreidd í rík-
isstjórn. Málið er viðkvæmt innan VG. „Það er
alveg skýrt að við munum ekki taka við
aðlögunarstyrkjum frá ESB, sem er greinilega
mjög áfram um að smyrja samningaferlið með fégjöfum. Hins vegar
hefur verið rætt um að báðir aðilar leggi eitthvað af mörkum til að
þýða gögn og skjöl, enda er það eðlilegur hluti af þessu samningaferli,“
segir Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra. Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra tekur undir þetta og segir málið enn í mótun.
Báðir aðilar leggi fé til þýðinga
STYRKIR VEGNA UMSÓKNAR ERU VIÐKVÆMT MÁL
Frumvarp um
breytingu á
vörugjöldum sem
lögð eru á bíla
breyttist nokkuð
í meðförum Al-
þingis. Við loka-
afgreiðslu máls-
ins var ákveðið
að fara hægar í
gjaldtöku en ráðgert var í upphafi.
Innheimta vörugjalda af eyðslu-
frekari bílum hefst því ekki af full-
um þunga fyrr en árið 2013. Vöru-
gjöld af eyðsluminni bílum lækka
við breytingarnar. »12
Farið hægar í breyt-
ingar á vörugjöldum