Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Kreppt hefur að hjá mörgum sem byggt hafa útgerð að stórum hluta á leigu aflaheimilda. Leigu- markaður hefur nánast verið frosinn síðustu mánuði og þau litlu viðskipti, sem þó hafa orðið hafa að mestu byggst á skiptum á tegundum. Óli Björn Björgvinsson í Grindavík er einn þeirra útgerð- armanna, sem hafa treyst á leigukvóta. Í haust ákvað hann að selja bát og kvóta og fara að vinna fyrir aðra. „Maður þarf þá ekki að hafa áhyggjur af kvóta morgundagsins,“ segir Óli Björn. Hann segist hafa gert út frá Grindavík í um tíu ár og róið á 15 tonna krókabát með beiting- arvél síðustu þrjú árin. Kvótinn var 20 tonn af þorksi, 25 tonn af ýsu og rúmlega 40 tonn af ufsa. „Við afgreiddum þorskinn og ýs- una á 3-4 vikum í september, fyrsta mánuði fiskveiðiársins,“ segir Óli Björn. Þarf ekki sérfræðing til að sjá að slíkt gengur ekki „Þá var ómögulegt að fá nokkrar heimildir leigðar og eftir að hafa staðið í þessu útgerðar- brasi í tíu ár fannst mér þetta ekki ganga upp lengur. Ég er því hættur útgerð, í bili að minnsta kosti, og er að leita að plássi hjá öðrum. Ef einhver kvóti kemur inn á markaðinn þá er verðið svo rosa- lega hátt að það er eiginlega ekki smuga að standa í þessu. Þessar kvótalitlu útgerðir hafa aðallega sóst eftir ýsunni sem var til- tölulega hagstæð í leigunni og yf- irleitt á um 40 krónur kílóið þangað til fyrir tæpum tveimur árum. Þá rauk hún upp í um 210 krónur kílóið á leigumarkaði. Á fiskmarkaði fást síðan oft um 250 krónur fyrir kílóið þannig að það þarf ekki sérfræðing til að sjá að slík útgerð gengur ekki upp.“ Óli Björn segir marga í vandræðum vegna lítils kvóta og þeir séu að skoða sína stöðu. Hann nefndi dæmi um út- gerð sem reynt hefði fyrir sér á lúðuveiðum, en 15 tonna bátar væru tæpast nógu stórir til slíkra veiða yfir háveturinn. Völusteinn keypti bát og kvóta af Óla Birni, en báturinn var síð- an seldur til Nesfisks í Garði. Aðeins smáræði á uppsprengdu verði Á aðalfundi Samtaka fisk- framleiðenda og útflytjenda um miðjan nóvember var lýst áhyggjum af stöðunni á leigu- markaði aflaheimilda, sem var sagður frosinn og verðið gríð- arlega hátt. „SFÚ hvetur sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra til að leita úrræða sem allra fyrst til að leysa vandann og hvetur ráðherra til að beita þeim úrræð- um sem fyrir hendi eru í núver- andi lögum um stjórn fiskveiða,“ sagði í ályktuninni. Jón Steinn Elíasson, formaður SFÚ, segir að það hljóti að vera þröngt í búi hjá mörgum kvóta- litlum útgerðum þar sem enginn leigukvóti hafi verið falur „nema eitthvert smáræði á uppsprengdu verði“. Þeir aðilar sem gert hafi út á leigumarkað hafi verið meira og minna stopp síðustu mánuði. Viðskipti á þessum markaði hefðu verið blómleg mörg und- anfarin ár, en nú hefðu aflaheim- ildir dregist saman í mörgum tegundum og fyrirtæki sem hefðu verið stór á leigumarkaði leigðu ekkert frá sér. Margir eru að verða búnir með sínar heimildir „Þetta ár lítur illa út og margir eru að verða búnir með sínar heimildir,“ segir Jón Steinn. „Þetta snertir mjög marga og ekki er eingöngu um kvótalaus fyrirtæki ræða, held- ur einnig fyrirtæki sem eru kannski með aflaheimildir upp á 2-300 tonn og hafa síðan leigt annað eins til sín. Á þann hátt hafa þau getað gert út báta sína og jafnvel verið með verkun í landi. Svo voru vonir bundnar við hugmyndir sjávar- útvegsráðherra um að auka kvóta í þorski, ýsu og fleiri teg- undum um 15-20 þúsund tonn og setja inn á leigumarkaðinn. Þær tillögur hefðu breytt miklu en þær virðist hafa dagað uppi hjá stjórnvöldum,“ sagði Jón Steinn. Ljósmynd/Þorsteinn Gunnarsson Góður afli Óli Björn Björgvinsson og Haukur Einarsson á bryggjunni í Grindavík með myndarlega lúðu sem þeir veiddu sumarið 2009. Erfitt líf á leigumarkaði  Seldi bátinn og „þarf þá ekki að hafa áhyggjur af kvóta morgundagsins“  Þröngt í búi hjá mörgum kvótalitlum útgerðum, segir formaður SFÚ 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Alfreð Gíslason, þjálfari Þýska- landsmeistara Kílar í hand- knattleik og einn fremsti hand- boltaþjálfari heims, heldur er- indi á hádegis- verðarfundi Þýsk-íslenska viðskiptaráðsins á Hilton-hóteli föstudaginn 7. janúar nk. „Alfreð, sem sjálfur segist vera krónískur bjartsýnismaður, mun m.a. ræða hvernig hægt er að nýta aðferðafræði íþrótta við rekstur fyr- irtækja. Þá mun hann ræða um markmiðssetningu, uppbyggingu liðsanda, leiðina að árangri, hvatn- ingu í hóp og hvernig hægt er að halda sér á toppnum þrátt fyrir gríð- arlega harða samkeppni,“ segir í til- kynningu frá Þýsk-íslenska við- skiptaráðinu. Alfreð hefur þjálfað óslitið í Þýskalandi frá árinu 1997. Fundurinn hefst klukkan 12 og nánari upplýsingar er að finna á www.germany.is. sisi@mbl.is Alfreð mun messa á Hilton  Blæs keppnisanda í viðskiptalífið Alfreð Gíslason Alls komu 44.120 viðskiptavinir í vínbúðir ÁTVR föstudaginn 30. desember. Það eru fleiri en árin á undan, en 2009 voru þeir 43.659 þennan dag og 2008 voru þeir 41.998. Áfengis- salan í vínbúðum dagana 30. og 31. desember var 359 þúsund lítrar og dróst saman um 7,3% í magni frá fyrra ári þegar sal- an var 388 þúsund lítrar. Viðskipta- vinum fækkaði hins vegar einungis um 1,2%, voru nú 64.500 en 65.300 sömu daga fyrir ári. Alls var áfengis- sala í desember 4% minni en sama mánuð í fyrra. Sala á rauðvíni dróst saman um 4,8% og á hvítvíni um 2,6%. Sala á freyðivíni jókst hins vegar á milli ára um rúm 15% en sala á lagerbjór dróst saman um 3,8%. Keyptu 359 þúsund lítra af áfengi Vín Víða drukkið á gamlárskvöld. hefur staðið að miklum áróðri um notkun flugeldagleraugna og á annað hundrað þúsund gleraugum hefur ver- ið dreift til almennings. Það gilda mjög strangar reglugerðir um flugelda. Ég velti fyrir mér hvort setja þurfi það í reglugerð að vera með hlífðargler- augu.“ Óvíst er að maðurinn sem tilbúinn var að tjá Morgunblaðinu sögu sína haldi sjón á vinstra auga. Hann segist ekki hafa verið að reyna kveikja í ann- Andri Karl andri@mbl.is „Ég hef ákveðna tilfinningu fyrir því að kakan hafi verið gölluð. Ég var að bera eld að henni og þá fór eitt skot á undan öllum öðrum og í vinstra augað á mér,“ segir karlmaður á fimmtugs- aldri sem varð fyrir alvarlegum augnskaða á gamlárskvöld. Hann set- ur spurningarmerki við gæðaeftirlit með skoteldum. Framkvæmdastjóri Landsbjargar segir meira bera á rangri meðhöndlun og umgengni, og það veki athygli. Sjö þurftu á hjálp augnlækna að halda eftir flugeldaslys á gamlárskvöld eða nýársnótt, sex karlmenn og ein kona, á aldrinum 45-55 ára. Ekkert þeirra var með flugeldagleraugu, og það kemur Kristni Ólafssyni, fram- kvæmdastjóra Landsbjargar, á óvart. „Við skiljum þetta ekki. Landsbjörg að skipti eða skoða þráðinn þegar skotið hljóp af. „Ég var að bogra yfir henni til að kveikja en ekki til að skoða þráðinn eða vegna þess að ekki kviknaði. Þetta var bara fyrsta til- raun með eldspýtuna og þá skaut hún frá sér þessu skoti. Síðan leið einhver tími þar til kakan fór af stað.“ Tryggð fyrir gölluðum vörum Maðurinn tekur fram að auðvitað hefði hann átt að vera með gleraugu „en maður spyr sig hvað hefði gerst ef skotið hefði farið í munninn á mér eða ennið. Þetta snýst um það hvort varan er gölluð eða ekki, hvort eitt- hvað er að gæðaeftirlitinu.“ Hann var með köku frá Landsbjörgu, svo- nefndan Örlygsstaðabardaga. „Kannski ætti að taka kaupandann einnig í smá kennslustund, því þetta er engin smávegis kaka. Þetta eru fimmtán kíló af sprengiefni sem sett eru í hendurnar á Jóa úti í bæ.“ Kristinn segist harma öll þau slys sem verða. Hann geti aðeins svarað fyrir sínar vörur og ekki hafi orðið vart við meira galla í þeim en áður. Hins vegar verði farið yfir öll slysin og reynt að finna orsökina, hvort það var galli í vörunni eða röng meðhöndlun. „Við erum með tryggingar og ef varan hefur verið gölluð og veldur slysi þá gilda okkar tryggingar. En ef menn ganga óvarlega um vöruna og eru að bogra yfir hana, þá veit ég ekki hvort menn fá það bætt, jafnvel þó varan sé gölluð. Ég þekki það ekki.“ Kristinn tekur fram að um sé að ræða sprengiefni og það þurfi að nálg- ast það með virðingu og varúð. „Þess vegna kemur okkur á óvart að þessir sjö einstaklingar sem koma á slysa- varðstofu skuli allir hafa meðhöndlað flugelda án þess að vera með gleraugu. Það þykir mér merkilegast.“ Nálgast þarf sprengiefni af varúð og virðingu  Karlmaður sem slasaðist í flugeldaslysi á gamlárskvöld telur vöruna sem hann keypti gallaða  Framkvæmdastjóri Landsbjargar segir að farið verði yfir öll slysin og reynt að komast að orsök Morgunblaðið/Eggert Villuljós Flottir en varasamir. Björn Jónsson hjá Kvótamiðlun LÍÚ segir leigumarkað varla hafa verið virkan undanfarna mánuði. „Það er ekkert framboð og alla vantar meiri heimildir,“ segir Björn. „Viðskiptin undan- farið hafa að mestu verið skipti á tegundum, fiskur fyrir fisk, það er ekkert flóknara. Ef það kæmi eitthvað til leigu þá myndu heimildir í flestöllum tegundum leigjast eins og skot. Flotinn er of stór til að veiða það sem er úthlutað, það eru of mörg skip að veiða allt of fáa fiska. Ég held að það sé ekki grundvöllur fyrir útgerð kvótalausra skipa og það kemur mér ekki á óvart að þessir kvótalausu bátar gefist upp,“ segir Björn Jónsson. Að mestu skipti á tegundum OF MÖRG SKIP AÐ VEIÐA ALLT OF FÁA FISKA Í bæklingi Landsbjargar um bar- dagaterturnar segir að ef menn ætli að vera flugeldasérfræð- ingar þá þurfi þeir að vita hvernig bera á sig að. „Kveik- urinn er oftast límdur ofan á tertuna. Mjög mikilvægt er að losa hann og færa hann út fyrir áður en kveikt er í. Það má alls ekki kveikja í kveiknum þegar hann liggur ofan á tertunni! [...] Verið eins langt frá tertunni og hægt er þegar kveikt er í og tilbúin að víkja vel frá. Berið eld að kveiknum og víkið strax frá í örugga fjarlægð.“ Losa kveikinn LEIÐBEININGAR MEÐ TERTU

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.