Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 11
Fjölbreytt Hægt er að einblína á alla vöðvahópana í TRX.
á liði og liðamót. Þú færð ekki högg í
bakið eða hnén og það hefur mikið
að segja.“
Sveinbjörn segir æfingarnar
vera skemmtilegar en jafnframt
verulega krefjandi. „Þú ert alltaf að
vinna með óstöðugleika í böndunum.
Þú ert aldrei í fullkomnu jafnvægi
þannig að þú þarft að nota allan lík-
amann. Æfingarnar styrkja kjarn-
vöðvana en þú þarft að nota kvið og
bak þegar þú ert að gera flestar æf-
ingar. Þú þarft að finna stöðugleik-
ann í líkamanum og gera æfing-
arnar svo,“ segir Sveinbjörn en til
eru yfir 400 mismunandi æfingar
sem hægt er að gera í TRX. „Svo er
alltaf verið að búa til nýjar æfingar.
Fólk sendir inn myndbönd af sér
þar sem það kemur með hugmyndir
að nýjum æfingum.“
Fjölbreyttir tímar
Að sögn Sveinbjörns er hægt
að einblína á alla vöðvahópana í
TRX og styrkja æfingarnar sér-
staklega litlu vöðvana og auka þar
með jafnvægi. Aðspurður segir
hann hefðbundinn tíma vera 45 mín-
útur. „Það er byrjað á upphitun og
svo eru tekin sett í keyrslu. Tímarn-
ir eru mismunandi og einblína ýmist
á þol eða styrk. Svo í endann keyr-
um við okkur niður og teygjum.
Áherslurnar í tímunum geta verið á
fætur, efri part, kvið, bak eða jafn-
vægi. Svo einblína sumir á að æfa
sprengikraftinn. Við reynum að hafa
tímana sem fjölbreyttasta.“
Sveinbjörn kynntist TRX æf-
ingakerfinu þegar hann tók þátt í
Crossfit heimsleikunum í Banda-
ríkjunum árið 2009 ásamt Annie
Mist Þórisdóttur. „Við Anníe fórum
til San Francisco þar sem höf-
uðstöðvar Fitness Anywhere, sem á
TRX æfingakerfið, eru. Þar kynnt-
umst við þessu og prófuðum þetta.
Þegar við komum aftur heim sáum
við að Hreysti var að selja TRX
vörur og þeir voru einnig með nám-
skeið í kennsluréttindum,“ segir
hann og ákváðu þau að skella sér
ásamt Ástu Ósk Stefánsdóttur, eig-
inkonu Sveinbjörns, og Ómari Óm-
ari Ágústssyni. Í kjölfarið fóru þau
að kenna TRX í húsnæði Bootcamp
við Suðurlandsbraut. „Við erum líka
öll með Bootcamp þjálfararéttindi
og flest með margra ára reynslu í
kennslu.“
Sveinbjörn segir fólk láta vel af
TRX æfingunum. „Það hefur verið
mjög góð sókn í tímana og fólk hef-
ur verið virkilega ánægt. Fólk á öll-
um aldri og í öllu mögulegu lík-
amlegu ásigkomulagi kemur til
okkar og yfirleitt allir segja eftir
fyrsta tímann að þetta sé miklu erf-
iðara en þeir héldu.“
Morgunblaðið/Ernir
TRX „Með því að nota böndin geturðu stjórnað hve mikinn hluta af þinni lík-
amsþyngd þú notar,“ segir Sveinbjörn um æfingarnar.
Góð æfing Staðið á höndum.
trx.is
DAGLEGT LÍF 11Hreyfing og útivist
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011
Eftir allt konfektið, eftirréttina og
súkkulaðið yfir jólin er kannski kom-
inn tími til að draga dálítið úr syk-
urneyslunni. Þetta getur tekið dálít-
inn tíma þar sem sykurpúkinn getur
verið ótrúlega harður húsbóndi sem
minnir á sig reglulega. Best er að
skrifa niður það sem maður borðar
til að fylgjast með neyslunni en hér
eru nokkur góð ráð til að koma sér
af stað og hrekja sykurpúkann
smám saman út í horn.
1. Ef þú ert vön/vanur því að fá þér
oftast eitthvað sætt eftir kvöldmat-
inn er strax betra að leyfa sér slíkt
annað hvert kvöld eða sleppa í það
minnsta úr einu eða tveimur kvöld-
um. Þannig getur þú smám saman
vanið þig á að fá þér frekar ávexti
eða popp eða barasta ekki neitt og
látið kvöldmatinn duga.
2. Það getur þvælst ótrúlega fyrir
manni að hætta að drekka gos en yf-
irleitt eru fyrstu dagarnir erfiðastir.
Hér á það sama við um kvöldsnarlið,
best er að trappa sig smám saman
niður. Fá sér diet gos til jafns við
sykrað eða það sem best er, að
koma til móts við gosið með vatni
og skipta gosinu svo smám saman
út fyrir það.
3. Ef þú ert hrifin/n af sykruðu
morgunkorni getur verið ágætis ráð
að blanda því saman við gróft morg-
unkorn og trappa sig smám saman
niður í þessari neyslu eins og hinni
annari. Í morgunkorni getur leynst
ótrúlegt magn af sykri og því mik-
ilvægt að vera þar á varðbergi.
4. Loks er mikilvægt að halda blóð-
sykrinum stöðugum yfir daginn til
að maður falli ekki í sykurpyttinn. Til
þess er mikilvægt að borða vel á
morgnana og í hádeginu og fá sér
orkuríka hressingu inn á milli eins
og ávexti, hrökkbrauð, jógúrt og
annað slíkt. Þannig verður þú síður
svöng/svangur og blóðsykurinn
rokkar ekki upp og niður.
maria@mbl.is
Heilsa
Sælgæti Það eru margir komnir með nóg af því eftir jólin.
Dregið úr sykurneyslu
Veitt eru verðlaun fyrir frumleg-
ustu búningana og mættu margir
hlauparar í
skemmti-
legum bún-
ingum eins og
myndirnar
bera með
sér.
Teygjur Veðrið var gott
fyrir hálfbera hlaupara
sem og jólasveina.
Heilagur Þetta þótti besti bún-
ingurinn í karlaflokki.
©
20
10
Ot
ic
on
In
c.
Al
lR
ig
ht
sR
es
er
ve
d.
Pantaðu tíma í
heyrnarmælingu í síma
568 6880
og prófaðu Agil
G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s
Komdu út úr skelinni...
...og njóttu þess að heyra með Agil heyrnartækjum
Áttu í erfiðleikum með að heyra í fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir tala lágt eða óskýrt?
Tekur þú sjaldnar þátt í hópumræðum en áður? Allt þetta getur verið merki þess að heyrn
þín sé farin að versna.
Agil eru byltingarkennd ný heyrnartæki sem hjálpa þér að heyra betur með minni áreynslu.
Tölvuörflagan í Agil er helmingi öflugri en áður hefur þekkst en tækin eru samt um helmingi
minni en hefðbundin heyrnartæki og búa þar að auki yfir þráðlausri tækni.
Ekki draga þig í hlé vegna heyrnarskerðingar. Komdu út úr skelinni og njóttu þess að heyra
eins vel og mögulegt er með Agil heyrnartækjum.
„Að geta heyrt tónlistina sína aftur eins
og hún á að hljóma er lítið kraftaverk
- ég heyri aftur söng fuglanna“
Bubbi Morthens