Morgunblaðið - 04.01.2011, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011
568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is
Ofviðrið (Stóra sviðið)
Lau 8/1 kl. 20:00 3.k Mið 19/1 kl. 20:00 Fim 3/2 kl. 20:00 9.k
Sun 9/1 kl. 20:00 4.k Fös 21/1 kl. 20:00 7.k Fim 10/2 kl. 20:00 10.k
Mið 12/1 kl. 20:00 5.k Þri 25/1 kl. 20:00 Sun 20/2 kl. 20:00
Fim 13/1 kl. 20:00 6.k Mið 26/1 kl. 20:00
Þri 18/1 kl. 20:00 Sun 30/1 kl. 20:00 8.k
Ástir, átök og leiftrandi húmor
Fjölskyldan (Stóra svið)
Fös 7/1 kl. 19:00 Sun 23/1 kl. 19:00 Fös 4/2 kl. 19:00 auka
Lau 15/1 kl. 19:00 Lau 29/1 kl. 19:00 auka
"Stjörnuleikur sem endar með flugeldasýningu", BS, pressan.is
Jesús litli (Litla svið)
Fös 7/1 kl. 19:00 aukas Lau 8/1 kl. 19:00 aukas
Gríman 2010: Leiksýning ársins
Jesús litli - leikferð (Hof - Hamraborg)
Lau 15/1 kl. 16:00 Sun 16/1 kl. 20:00 Mið 19/1 kl. 21:00
Lau 15/1 kl. 20:00 Þri 18/1 kl. 21:00 Fim 20/1 kl. 19:00
Sun 16/1 kl. 16:00 Mið 19/1 kl. 19:00 Fim 20/1 kl. 21:00
Sýnt í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í samstarfi við LA
Faust (Stóra svið)
Fim 6/1 kl. 20:00 Fim 20/1 kl. 20:00 Fös 28/1 kl. 20:00 aukas
Fös 14/1 kl. 22:00 Lau 22/1 kl. 20:00 aukas
Sun 16/1 kl. 20:00 Fim 27/1 kl. 20:00 aukas
Aukasýningar vegna fjölda áskorana
Elsku Barn (Nýja Sviðið)
Fim 13/1 kl. 20:00 frums Mið 19/1 kl. 20:00 3.k Mið 26/1 kl. 20:00 5.k
Fös 14/1 kl. 19:00 2.k Fös 21/1 kl. 20:00 4.k Sun 30/1 kl. 20:00 6.k
Nístandi saga um sannleika og lygi
Afinn (Litla sviðið)
Mán 10/1 kl. 20:00 fors Mið 19/1 kl. 20:00 4.k Mið 26/1 kl. 20:00 9.k
Þri 11/1 kl. 20:00 fors Fim 20/1 kl. 20:00 5.k Fim 27/1 kl. 20:00 10.k
Mið 12/1 kl. 20:00 fors Fös 21/1 kl. 19:00 6.k Fös 28/1 kl. 19:00 11.k
Fim 13/1 kl. 20:00 fors Fös 21/1 kl. 22:00 aukas Fös 28/1 kl. 22:00 aukas
Fös 14/1 kl. 20:00 frums Lau 22/1 kl. 19:00 7.k Lau 29/1 kl. 19:00
Lau 15/1 kl. 20:00 2.k Lau 22/1 kl. 22:00 aukas Lau 29/1 kl. 22:00
Sun 16/1 kl. 20:00 3.k Sun 23/1 kl. 20:00 8.k Sun 30/1 kl. 20:00
Óumflýjanlegt framhald Pabbans
Ofviðrið – „Ógleymanleg stund,“ B.S pressan.is
Hátíðartilboð
Gjafakort Þjóðleikhússins
Miðasala Hverfisgötu I 551 1200 I leikhusid.is
Hallgrímspassía SigurðarSævarssonar var frum-flutt á föstudaginnlanga í apríl 2007.
Textinn er sóttur í Passíusálma
Hallgríms Péturssonar enda virð-
ast sálmarnir og inntak þeirra
hafa haft sterk áhrif á tónskáldið
strax á unga
aldri. Í texta-
bók geisla-
disksins segir
Sigurður frá
minningum
sínum af afa
sínum, Skúla
Oddleifssyni, sem hafði Pass-
íusálmana í hávegum og voru hinir
árlegu útvarpslestrar sveipaðir
helgum virðingarblæ í hans ranni.
Tónskáldið segir einnig, að hann
hafi í upphafi viljað ná þessum
anda útvarpslestranna inn í tón-
listina en texti Hallgríms, reiði
hans og sorg hafi einfaldlega kraf-
ist dramatískari framvindu. Vissu-
lega má það til sanns vegar færa
að tónlistin er á köflum mjög
dramatísk en slíkum meðulum er
ávallt beitt í hófi og af smekkvísi.
Útkoman verður heilsteypt verk,
dramatíkin ólgar undir niðri en yf-
irborðið kyrrlátt og íhugult og
hæfir mjög vel því 17. aldar and-
rúmslofti, sem textinn var saminn
í.
Tónlistarflutningurinn í passí-
unni er allur óaðfinnanlegur. Jó-
hann Smári syngur burð-
arhlutverkið og hæfir hans breiða,
volduga bassarödd hans hlutverk-
inu ákaflega vel. Aðrir einsöngv-
arar eru meðlimir kórsins, sem
eykur enn á heildarsvip verksins
og standa þeir sig allir með ein-
stakri prýði, enda vel skólaðar
raddir. Caput-hópurinn er skip-
aður einvalaliði, sem hefur fyrir
löngu skipað sér í fremstu röð
flytjenda nýrrar kammertónlistar
og veldur ekki vonbrigðum að
þessu sinni, hver tónn á sínum
stað og flutningurinn úrvalsgóður.
Utan um allt heldur síðan Hörður
Áskelsson stjórnandi og er þessi
úrvalsútkoma væntanlega ekki síst
honum og hans vinnu að þakka.
Umslagið er fallegt og látlaust
en ríkt að innihaldi. Flytjendum
og öðrum aðstandendum eru gerð
góð skil og einnig fylgir ensk þýð-
ing á textum Passíusálmanna í
þýðingu Michael Fell. Hljóðritun
var í höndum Sveins Kjart-
anssonar og er með miklum ágæt-
um, skýrleiki mikill og gott jafn-
vægi milli hljóðfæra og söngs.
Það var haft á orði eftir frum-
flutning verksins árið 2007 að það
hefði alla burði til þess að verða
sígildur þáttur í íslenskri kirkju-
tónlistarhefð og er ég því, ekki
síst í ljósi þessarar afbragðs-
útgáfu, hjartanlega sammála.
Geisladiskur
Hallgrímspassíabbbbn
Sigurður Sævarsson: Hallgrímspassía.
Jóhann Smári Sævarsson B, Hafsteinn
Þórólfsson Bar., Benedikt Ingólfsson B,
Guðmundur Vignir Karlsson T, Örn Arn-
arson T, Guðrún Edda Gunnarsdóttir A,
Schola Cantorum og Caput. Stjórnandi:
Hörður Áskelsson.
SNORRI VALSSON
TÓNLIST
Töfrar hófseminnar
Morgunblaðið/Einar Falur
Tónskáld og einsöngvari Bræðurnir Sigurður og Jóhann Smári Sævars-
synir. Rýnir segir passíuna „heilsteypt verk“ og flutninginn „úrvalsgóðan.“
Freedom - Jonathan Franzen
Freedom var bók
ársins og um leið
umdeildasta bók
ársins. Í bókinni,
sem er frábær-
lega vel skrifuð,
segir Franzen
sögu fjölskyldu
undir lok nýlið-
innar aldar og
fram á þessa,
rekur örlög frjálslyndra hjóna og
barna þeirra tveggja, brestina í
hjónabandinu sem fara sífellt
stækkandi og það hvernig frelsið er
ekki alltaf frelsandi.
A Visit from the Goon Squad -
Jennifer Egan
Á yfirborðinu
er þetta bók um
gamlan pönkara
og plötuútgef-
anda og unga
konu sem vinnur
hjá honum. Þeg-
ar grannt er
skoða er þó mun meira undir, ekki
síst það hvernig vald og valdbeiting
tærir sálina, bylting verður að iðn-
aði og það hvernig maður eldist
ekki, heldur verður maður skyndi-
lega aldraður. Egan stekkur fram
og aftur í tíma til að gefa okkur
mynd af söguhetjunum og gefur
okkur færi á að greina flækjurnar í
samskiptum þeirra, en sjálf skilja
þau hvorki upp né ofan í hvað það
er sem knýr þau áfram.
Hitch-22 - Christopher Hitc-
hens
Christopher
Hitchens er bráð-
skemmtilegur
penni, fróður og
fær, og greinar
hans og bækur
skemmtun hvort
sem maður er
sammála honum
eða ekki. Hann
skautar reyndar
yfir margt í bókinni, segir lítið
af sínum nánustu og er mjög
upptekinn af því hvað hann hafi
alltaf haft rétt fyrir sér, en hann
er bara svo skemmtilega leið-
inlegur að það er alveg frábært.
Ilustrado -
Miguel Syjuco
Sagan hefst
með því að lík
filippseyska rit-
höfundarins Cri-
spins Salvadors
er veitt upp úr
Hudson-á í New
York. Smám
saman kemur í
ljós að þetta er þó enginn venju-
legur reyfari heldur er sögu-
maður, Miguel, sem er læri-
sveinn Salvadors, að leita að
handriti að síðustu bók átrún-
aðargoðs sín og lýsir um leið fil-
ippseysku samfélagi síðustu ára-
tuga með öllum sínum
mótsetningum.
Life - Keith Richards
Að mínu viti er
Keith Richards
það eina sem
skiptir máli þeg-
ar Rolling Stones
eru annars veg-
ar, tónlistarheil-
inn á bak við allt
saman. Víst má
halda því fram að
hann sé alltaf að
semja sama lag-
ið, en það verður ekki af honum
tekið að Richards er erkitýpa rokk-
arans, svalastur allra. Frásögnin
rennur vel þó fátt komi á óvart í
bókinni, en sjálfsagt hafa einhverjir
gaman af því að velta því fyrir sé
hvernig svo miklir kjánar, sem þeir
félagar óneitanlega voru (og eru
sumir enn), gátu búið til svo fína
músík.
Parrott and Olivier in America -
Peter Carey
Þessi pík-
areska frásögn
segir frá því er
þeir John Larrit,
írskur æv-
intýramaður, og
Olivier-Jean-
Baptiste de Cla-
rel de Barfleur
de Garmont,
snobbaður franskur aðalsmaður,
halda til Ameríku að kynna sér
fangelsismál. Bókin er þó ekki eig-
inleg ferðasaga, heldur þroskasaga
og hugleiðing um vináttu og lýð-
ræði.
Room - Emma Donoghue
Á yfirborðinu
er þetta ekki
skemmtileg
saga; fimm ára
drengur býr með
móður sinni í níu
fermetra her-
bergi og hafa bú-
ið þar alla ævi,
fangelsuð af
óþokkanum Nick
sem kemur í
heimsókn á nótt-
unni. Vissulega óhugnarlegt, en
bókin er þó ekki um óhugnað
heldur um það hvernig finna má
gleði og fegurð hvarvetna.
The Emperor of All Maladies -
Siddhartha Mukherjee
Þó þeim sjúk-
dómum sem
draga menn til
dauða hafi fækk-
að á und-
anförnum öldum
er krabbameinið
það sem erfiðast
er að glíma við
og það sem vek-
ur mestan ugg.
Siddhartha Muk-
herjee, sem er meinasérfræð-
ingur, rekur 4.000 ára sögu
krabbameins, segir sjúkrasögur
og af þeim sem glíma við sjúk-
dóminn.
The Passage - Justin Cronin
Mér þykir lík-
legt að fólk sé al-
mennt búið að fá
ógeð á vamp-
írubókum og eins
á heimsenda-
bókum, en
kannski er ein-
hver stemmning
fyrir bókum sem
sameina þetta, vampírur sem valda
heimsendi, eða í það minnsta enda-
lokum siðmenningar okkar. Þannig
bók er The Passage, hnausþykkur
vampíruvísindaskáldskaparreyfari
(um 800 síður) sem er einkar
skemmtileg lesning.
The Thousand Autumns of Jacob
De Zoet - David Mitchell
Mitchell nýtir
sem sögusvið
sérkennilega
skipan á sam-
skiptum Japana
við umheiminn á
átjándu öld, á
tímum Edo-
ríkisins, þegar
Japan var lokað
land og evr-
ópskir kaupmenn þurftu að hafast
við í Dejima, tilbúinni eyju í Naga-
saki-flóa. Dvöl á tilbúinni eyju und-
irstrikar forboðna ást sem er burð-
arás sögunnar, en í henni er líka
hellings hamagangur.
(Bókum er skipað í stafrófsröð,
nema bók ársins.)
Bestu erlendu bækur ársins 2010
Árni Matthíasson