Morgunblaðið - 04.01.2011, Síða 6

Morgunblaðið - 04.01.2011, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tvítugan karl- mann í 6 mánaða fangelsi fyrir ýmis brot en maðurinn rauf skil- yrði reynslulausnar. Maðurinn var meðal annnars dæmdur fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna, stela bjór úr bíl og kjúlk- ingalærum úr verslun. Fram kemur í dómnum, að maðurinn hafi sjö sinnum hlotið refsidóma frá því hann var 17 ára gamall. Þann síðasta hlaut hann í apríl, 10 mánaða óskilorðsbundinn dóm fyrir þjófnað og eigna- spjöll. Síbrotamaður dæmdur FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Gengið er út frá því sem gefnu að þingflokksfundur Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs á morgun verði mikill átakafundur. Þótt ágreiningur á milli stjórnar- flokkanna um nýtt atvinnuvega- og auðlindaráðuneyti, þar sem samein- uð verði sjávarútvegs-, landbúnaðar- og iðnaðarráðuneyti, hafi síðustu daga komið upp á yfirborðið og lýst sér best í ólíkum áherslum þeirra Jó- hönnu Sigurðardóttur forsætisráð- herra og Jóns Bjarnasonar, sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, eiga viðmælendur Morgunblaðsins, úr röðum VG ekki von á því að það mál verði neitt stórmál á þingflokks- fundinum á morgun. Aðlögunarferli gagnrýnt Allir VG-félagar sem rætt var við í gær töldu að ágreiningurinn um að- ildarumsóknina að Evrópusamband- inu og ekki síður það aðlögunarferli sem nú væri hafið væri orðinn svo djúpstæður og kostnaðarsamur fyrir flokkinn að óhjákvæmilegt væri að til einhvers konar uppgjörs kæmi í þeim efnum. Viðmælendur eiga ekki von á því að þetta mikla ágreiningsmál um ESB aðildarumsókn og aðlögunar- ferli verði leitt til lykta á þingflokks- fundinum en að sögn viðmælenda úr VG virðist hafa myndast nokkuð breið samstaða um það innan þing- flokksins og meðal almennra fé- lagsmanna að nauðsynlegt sé að breyta ESB-ferlinu með afgerandi hætti. Það sé í samræmi við þá umræðu sem hófst á flokksráðsfundi VG í lok nóvembermánaðar í fyrra og tíma- bært sé að halda henni nú áfram, ekki síst í ljósi þess hvernig Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra berjist af harðfylgi bæði fyrir aðild og alögun Íslands að regluverki ESB. Það liggi fyrir að engin sátt verði í flokknum nema tekið verði á því máli. Fullyrt er að Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, geri sér þetta ljóst. Stórskaðlegt fyrir fylgi VG „Þetta aðlögunarferli er orðið stór- skaðlegt fyrir fylgi VG. Bara vegna þess og að flokkurinn hefur svikið stefnu sína í Evrópusambandsmál- um, hafa nú þegar fjórir formenn svæðisfélaga VG sagt sig úr flokk- unum. Það segir sig sjálft að við svo búið má ekki standa,“ segir gamal- reyndur VG félagi af landsbyggðinni. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins eru þeir Atli Gíslason og Ás- mundur Einar Daðason harðastir í andstöðu sinni við það aðlögunarferli sem nú er hafið, en Lilja Mósesdóttir mun þó einnig fylgja þeim að málum þótt andstaða hennar sé ekki jafn- hörð. Þá mun Guðfríður Lilja Grét- arsdóttir, formaður þingflokks VG, vera jafn eindreginn andstæðingur ESB aðildar og þeir Atli og Ásmund- ur en hún er í barneignarfríi frá þing- störfunum og því ólíklegt að hún verði á fundinum. Ítrekað hefur komið fram hversu andvígir ESB-aðlögunarferlinu ráð- herrarnir Jón Bjarnason og Ög- mundur Jónasson eru, en óbreyttir liðsmenn VG sem rætt var við í gær töldu ólíklegt að þeir myndu beita sér af hörku á fundinum á morgun, ein- faldlega vegna þess að þeir sem ráðherrar væru í þrengri stöðu til að beita sér en óbreyttir þing- menn. Erfitt reyndist í gær að ná í þingmenn og ráðherra VG, en flokksmenn sem rætt var við og standa þingflokknum nærri, töldu að þótt flokks- forystan hefði verið ómyrk í máli í garð þeirra Atla, Ás- mundar Einars og Lilju, vegna hjásetu þeirra við atkvæða- greiðsluna um fjárlagafrumvarpið mundi vart koma til persónulegs uppgjörs á fundinum á morgun. Mun líklegra væri að tekist yrði á um mál- efni þar sem ágreiningurinn um ESB yrði ugglaust aðaldeilumálið, en önn- ur mál eins og samstarfið við Al- þjóðagjaldeyrissjóðinn, umræðan um Icesave og einnig Magma, mundi án vafa verða rædd einnig. „Þá á ég von á því að vinnubrögð flokksforystunnar verði rædd og gagnrýnd því það hefur verið mjög áberandi að þröng forystuklíka VG hefur tekið allar ákvarðanir í stóru málunum og síðan hefur þingflokk- urinn bara setið uppi með gerðan hlut,“ segir VG félagi úr Reykjavík. Mikill átakafundur hjá VG  Deilur um aðlögun að Evrópusambandinu verða líklega aðalágreiningsmálið  Samstarfið við AGS, umræður um Icesave og Magma örugglega einnig rædd  Vinnubrögð forystu sögð verða gagnrýnd Morgunblaðið/Eggert Flokksráð Tekist var á um aðildarumsókn Íslands að ESB þegar flokksráð VG hittist í Hagaskóla í lok nóvember. Almennir VG-félagar hafa mikinn áhuga á þingflokksfundi VG á morgun og sterkar skoðanir á því hvað þar eigi að ræða. Við mestum átökum er búist um ESB-aðlög- unarferlið, sem Össur Skarphéðinsson er sagður keyra áfram af miklu harðfylgi, í andstöðu við hluta þingflokks VG og stóran hluta hinna almennu félagsmanna. Viðmælendur telja ekki að til persónulegs uppgjörs við ein- staka þingmenn komi á þessum fundi. Þá lýsa félagsmenn eftir niðurstöðu í Magma-málinu, þar sem því hafi verið lýst yfir á liðnu sumri, að vinda ætti ofan af málinu. Langur og strangur fundur PERSÓNULEGT UPPGJÖR MUN BÍÐA Össur Skarphéðinsson Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tillaga utanríkisráðherra um að samninganefnd Íslands sæki um styrki til ESB vegna samninga og aðlögunar Íslands að Evrópusam- bandinu er óafgreidd í ríkisstjórn. Málið er viðkvæmt innan VG og gerðu tveir ráðherrar flokksins at- hugasemd við fyrirkomulagið. Nokkrir ráðherrar VG í ríkis- stjórninni hafa ekki viljað taka þátt í aðlögun stjórnkerfisins að ESB, á meðan ekki hefur verið ákveðið að ganga í bandalagið. Það á við um Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og land- búnaðarráðherra, Steingrím J. Sig- fússon fjármálaráðherra og Ögmund Jónasson innanríkisráðherra. Vilja leggja fram 4 milljarða Í minnisblaði sem Össur Skarp- héðinsson utanríkisráðherra lagði fram á fundi ríkisstjórnarinnar 21. desember sl. er gert ráð fyrir þeim möguleika að samninganefnd Ís- lands sæki um styrki fyrir einstök verkefni í stað ráðuneyta eða und- irstofnana þeirra. Tveir ráðherrar VG gerðu athugasemdir við það, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Málið var ekki afgreitt. Telja eindregnir andstæðingar ESB-aðildar innan VG að hugmynd- in sé augljóslega sett fram til að komast áfram með málið þrátt fyrir pólitíska andstöðu innan stjórnar. Í minnisblaðinu kemur fram, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins, að framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins vill leggja fram rúma 4 milljarða króna í styrki og sérfræði- aðstoð á þremur árum vegna samn- inga og aðlögunar Íslands að ESB. Málið er viðkvæmt innan VG, eins og staðan er þar. Gert er ráð fyrir því í nefndaráliti meirihluta utanrík- ismálanefndar við þingsályktunartil- lögu um umsókn að ESB að sótt verði til ESB um stuðning vegna þýðingarvinnu. Á flokksráðsfundi VG í nóvember var samþykkt álykt- un þar sem fram kemur að ekki verði gerðar neinar breytingar á stjórn- sýslunni eða íslenskum lögum í þeim eina tilgangi að laga íslenskt stjórn- kerfi fyrirfram að reglum ESB. Ekki verði heldur tekið við styrkjum sem beinlínis eigi að undirbúa aðild. Þessi ályktun átti að vera málamiðlun og felld var tillaga þar sem bann við að- lögunarferli var orðað á afdráttar- lausari hátt. Tillaga um ESB- styrki óafgreidd  Ráðherrar VG gera athugasemdir „Það er alveg skýrt að við mun- um ekki taka við aðlögunar- styrkjum frá ESB, sem greini- lega er mjög áfram um að reyna að smyrja samningaferlið með fégjöfum. Hins vegar hefur ver- ið rætt um að báðir aðilar leggi eitthvað af mörkum til að þýða gögn og skjöl, enda er það eðli- legur hluti af þessu samninga- ferli,“ segir Ögmundur Jón- asson innanríkisráðherra. Undir þetta tekur Stein- grímur J. Sigfússon fjár- málaráðherra sem segir málið enn í mótun. „Það er verið að fara yfir það hvernig best er að standa að þessu, ekki síst regl- ur varðandi það í hvaða við- fangsefni við notum eitthvað af þessum peningum og í hver ekki. Það er ljóst að við styðjum ekki að tekið verði við fjár- munum í einhverja fyrirfram að- lögun. Hins vegar er ekki deilt um önnur viðfangsefni, s.s. að við þurfum að hafa bolmagn til að þýða skjöl o.þ.h.“ Taka ekki þátt ÞÝÐINGAR STYRKTAR ódýrt alla daga Gríms plokkfiskur, 400 g 399kr.pk.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.