Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 23

Morgunblaðið - 04.01.2011, Side 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. JANÚAR 2011 Nú er Unnur, yndisleg vinkona mín og svilkona, látin. Við vorum giftar bræðrunum frá Hall- dórsstöðum í Laxárdal. Ég var gift Magnúsi og Unnur Hjálmari. Hjálmar hafði verið hjá okkur þegar hann var í Handíða- skólanum svo það lá beint við, þegar við fluttum upp á loft í húsinu okkar, að þau flyttu í okkar íbúð. Kolfinna dóttir þeirra var þá tveggja ára, síðan bættust strákarnir við. Við vorum mikið saman og á öllum hátíðarstund- um vorum við saman. Fyrstu árin voru þau hjá okkur á aðfangadag og við hjá þeim einhvern jóladaganna og síðan vorum við saman á gamlárs- kvöld. Eftir að þau fluttu upp í Ból- staðarhlíð vorum við fjölskyldan alltaf hjá þeim á gamlárskvöld. Unnur var Ísfirðingur. Á Ísafirði bjó hún á Grænagarði hjá foreldrum sínum og bræðrum þeim Oddi og Gunnari. Unni þótti afar vænt um sitt fólk og dvöldu oft margir Ísfirðingar hjá þeim Hjálmari, í lengri eða skemmri tíma. Það var gaman fyrir okkur Magnús að fara í heimsókn til Ísafjarðar með Unni og Hjálmari og ganga um nágrenni Grænagarðs með Bertu mömmu Unnar og þegar við komum úr göngutúrnum var Pétur, pabbi Unnar, búinn að sjóða hangi- kjötið og beið eftir okkur. Unnur var falleg kona, dökkhærð og brúneygð, afar listfeng og fjölhæf sem kom fram á margan hátt eins og í fallega saumuðum sparikjólum, skemmtilega útprjónuðum peysum, glæsilegum veisluborðum og yndis- legu heimili. Það var alltaf gaman að koma í heimsókn og samgangurinn hélst áfram í gegnum tíðina milli fjöl- skyldnanna. Unnur og Hjálmar unnu í mörg ár saman á gullsmíðaverk- stæðinu og í verslun sinni á Lauga- vegi. Þar var alltaf gott að koma og gaman að fylgjast örlítið með. Þar voru börnin öll mikið svo það lá beint við að synirnir gerðust allir gullsmiðir og nú er Torfi Rafn, yngsti sonur þeirra, tekinn við verkstæðinu og búðinni. Við fjölskyldan frá Bergstaða- stræti 73 sendum þér, Hjálmar minn, börnum ykkar, þeim Kolfinnu, Pétri Tryggva, Hjálmari og Torfa Rafni og þeirra fjölskyldum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Elsku Unnur mín, Guð blessi þig og varðveiti. Sigríður Þórðardóttir. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Með þessum fátæklegu orðum langar mig til að minnast kærrar mágkonu, Unnar Pétursdóttur. Þegar við, í byrjun desember sl., hittumst hjá Unni og Hjálmari og kvöddum þau áður en við héldum ut- an til Bandaríkjanna datt okkur ekki í hug að þetta væri í hinsta sinn sem við sæjumst. Ljúfar minningar hrannast upp þegar litið er til baka. Minningar um ógleymanlegar samverustundir sem við munum geyma með okkur um ókomin ár. Það hefur verið erfitt að vera fjarri Íslandi þessa síðustu daga og hafa ekki tök á að styðja Hjálmar á þessum erfiðu tímum, en hugur okkar hefur verið heima með honum. Elsku Hjálmar og fjölskylda, megi guð styrkja ykkur og styðja. Guð blessi minningu Unnar Pét- ursdóttur. Guðrún (Dúnna) og Andrés. Við kölluðum hana alltaf Unnu frænku, hún hét fullu nafni Unnur ✝ Unnur Pétursdóttirfæddist í Braut- arholti á Ísafirði 8. febr- úar 1935. Hún lést á Landspítalanum, Foss- vogi, 21. desember 2010. Unnur var jarðsungin frá Háteigskirkju 3. jan- úar 2011. Pétursdóttir og var eina föðursystir okkar en hún átti tvo eldri bræður, þá Gunnar og Odd. Unna ólst upp við Skutulsfjörðinn, fyrst í Brautarholti en síðar á efri Græna- garði, við þann stað hafa þau systkinin oft verið kennd. Unna fór ung að heiman, hún fór í kaupavinnu í Mý- vatnssveitina og síðan í Reykjadalinn. Þarna fyrir norðan fann hún ástina sína hann Hjálmar og hafa þau fylgst í gegnum lífið síðan. Þau hófu búskap í Reykja- vík þar sem Hjálmar lærði gullsmíði en Unna var heimavinnandi í mörg ár eins og þá tíðkaðist. Hún frænka hafði alltaf í nógu að snúast, vegna þess að heimili hennar sem fyrst var á Bergstaðastræti og síðan í Bólstaðalíð varð miðstöð fyrir ættingja og vini að vestan og einnig fyrir fólk að norðan. Heimili hennar stóð öllum opið til gistingar og allrar þjónustu. Unna var á þeytingi út um allan bæ í reddingum fyrir lands- byggðarfólkið. Þetta taldi hún aldrei eftir sér og virtist alveg óþreytandi í allri þessari þjónustu. Við systurnar fórum ekki varhluta af hjálpsemi hennar frænku okkar, önnur dvaldi hjá henni öll menntaskólaárin og hin í langan tíma vegna læknisferða og til aðstoðar Unnu á heimilinu. Þegar við rifjum upp þennan tíma finnst okkur hún alltaf hafa verið á fullu, gefandi og þjónandi. Í mörg sumur kom Unna með krakkana í heimsókn vestur og var það alltaf mikið tilhlökkunarefni hjá frændfólkinu. Seinna fór Unna út á vinnumark- aðinn og kom þá vel í ljós hversu greind og dugleg hún var, seinustu ár- in stafaði hún í fyrirtæki Hjálmars og Torfa sonar síns. Núna í október sátum við systurnar í eldhúsinu hjá Unnu og Hjálmari og þau rifjuðu upp og sögðu okkur frá þegar þau hittust í fyrsta sinni, þegar unga stúlkan að vestan kom í Mý- vatnssveitina og allt tilhugalífið í fram- haldinu. Einnig var rifjuð upp fyrsta ferð Hjálmars vestur að heimsækja hennar fjölskyldu. Þetta hljómaði eins og ekta sveitarómantík og það leyndi sér ekki glampinn sem kom í augu þeirra beggja við þessa upprifjun. Við viljum þakka Unnu sem gaf okkur svo mikið og við mátum svo mikils, já við áttum glæsilega frænku í Reykjavík. Elsku Hjálmar og fjölskyldan öll, Guð veri ykkur styrkur við fráfall Unnu og megi minning hennar lifa með ykkur um ókomin ár. Sigurveig og Berta. Unni föðursystur mína kallaði ég alltaf Unnu frænku og það ekki að ástæðulausu. Hún var frænka eins og þær geta bestar orðið. Áhugasöm var hún og hlý í minn garð. Þá var gestrisnin, hjálpsemin og rausnin ekki neitt hér um bil frekar en annað hjá henni. Fallegt heimilið þeirra Hjálmars að Bólstaðarhlíð 60 stóð mér alltaf opið sem dreng og ungum manni er kom í bæinn frá Ísafirði. Gengið var að því sem vísum og sjálfsögðum hlut að fá að gista. Frænka mín var vel gefin og vel að sér um menn og málefni. Hún lá ekki á skoðunum sínum og talaði hreint út um hlutina um leið og hún virti skoð- anir annarra. Við tókumst oft á um dægurmál og pólitík og gat hún þá verið afar föst fyrir. Aldrei bar samt skugga á vináttuna, sama hverju á gekk. Þau hjónin áttu sumarbústað við Meðalfellsvatn í Kjós. Þar dvöldu þau langdvölum á sumrin með fjölskyld- unni. Ég kom þangað óteljandi sinn- um sem barn, unglingur og síðar full- orðinn maður með mína fjölskyldu, sem þaðan á afar góðar minningar. Það er eins og alltaf hafi verið sól við Meðalfellsvatn. Unnur skilur eftir sig góðar og bjartar minningar. Við Margrét vottum Hjálmari og fjölskyldunni okkar innilegustu sam- úð og minnumst yndislegrar frænku og konu sem bar höfuðið hátt og var sjálfri sér samkvæm. Haukur Oddsson. „Átt þú þessa rólu?“ Eitthvað á þessa leið hófust kynni okkar Unnar við netagálga norður á Siglufirði fyrir margt löngu. Ég vildi koma þessari þögulu ókunnu stelpu til að svara mér. Svarið las ég úr brúnu fallegu aug- unum hennar. Sumar eftir sumar mætti pabbi hennar – Pétur frá Grænagarði – á Ísafirði, með sveit ungra myndarlegra, netagerðar- manna, sem komnir voru til að gera við veiðarfæri síldveiðiflotans. Pétur kom að sjálfsögðu með eiginkonuna, Albertínu, og Unni einkadóttur þeirra. Þannig upphófst vinátta okkar sem varað hefur fram á þennan dag. Leiðir okkar skildi um tíma – hún fór ung sem kaupakona norður í Lax- árdal og kynntist þar öðlingnum Hjálmari Torfasyni frá Halldórsstöð- um, fræknasta spjótkastara Íslands á sínum tíma. Síðan hafa þau stigið saman lífsdansinn. Á heimili þeirra í Reykjavík var alltaf fjöldi manns utan af landi – í mat, kaffi, gistingu og jafnvel hárlagn- ingu auk allra snúninganna við að kaupa hitt og þetta fyrir kunningjana. Allt var þetta hið sjálfsagðasta mál í augum þeirra hjóna. Eftir á má spyrja, hvernig þetta var hægt – þar sem fyrirvinnan var aðeins ein? Ég er meðal þeirra sem á þessum frábæru hjónum margt að þakka. Eft- ir námsdvöl í Frakklandi leigði ég herbergi hjá þeim og varð vitni að glaðværð þeirra, hlýju og greiðasemi í garð vina og vandamanna. Hjálmar og börn, meðtakið þakk- læti mitt fyrir horfnar góðar stundir. Fágæt manneskja hefur nú kvatt. Jóhanna D. Skaftadóttir. Elsku Unnur mín, það er með trega að ég kveð þig, móður besta vinar míns, Torfa. Er ég hugsa til baka, þá eru rétt um fjörutíu ár síðan ég kynntist þér og margar skemmtilegar minningar koma í hugann. En ég er fyrst og fremst þakklátur fyrir að hafa þekkt þig. Takk fyrir klessukökuna frægu sem þú gerðir oft á kvöldin, takk fyrir nestið sem þú sendir okkur með á skíði, takk fyrir að skutla mér heim eftir músikskólann eða sundið og takk fyrir öll heilræðin sem þú varst ekki spör á að láta yngra fólkið heyra. Það var alltaf gaman að sjá hvernig þú gerðir alla hluti af einstakri natni, nákvæmni og umfram allt þá var alltaf reisn yfir þér og öllu sem þú gerðir. Ég votta Hjálmari og fjölskyldu, mína innilegustu samúð. Tómas Eyjólfsson. Unnur Pétursdóttir ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SKARPHÉÐINN ÁRNASON, Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, lést mánudaginn 27. desember. Jarðarförin fer fram frá Akraneskirkju föstudaginn 7. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á Dvalarheimilið Höfða, Akranesi. Sigurbjörn Skarphéðinsson, María Karlsdóttir, Sigrún Birna Skarphéðinsdóttir, Pétur Örn Jónsson, Aðalheiður Skarphéðinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og dóttir, ÞÓREY ÞORKELSDÓTTIR, Hörðukór 1, Kópavogi, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 31. desember, verður jarðsungin frá Digraneskirkju föstudaginn 7. janúar kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Kertasjóð Soffíu J. Claessen, bn. 0115-05-070164, kt. 440490-1079. Ögmundur H. Runólfsson, Sigurður Þorkell Ögmundsson, Erna Gunnarsdóttir, Þorbjörg Hanna Ögmundsdóttir, Hafþór Hannesson, Þorkell Sigurðsson, Þorbjörg Guðmundsdóttir. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, KARIN WAAG HJÁLMARSDÓTTIR, Gullsmára 10, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Mörkinni miðvikudaginn 29. desember. Útför hennar fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 5. janúar kl. 13.00. Hjálmar W. Hannesson, Anna Birgis, María Inga Hannesdóttir, Ólafur Georgsson, Guðrún Andrésdóttir, Jakob Bragi Hannesson, Kristín Hanna Hannesdóttir, Páll Torfi Önundarson, Glódís Karin E. Hannesdóttir, Guðmundur Hannes Hannesson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓN LAXDAL ARNALDS, Fjólugötu 11A, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 2. janúar. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni laugardaginn 8. janúar kl. 14.00. Ellen Júlíusdóttir, Eyþór Arnalds, Dagmar Una Ólafsdóttir, Bergljót Arnalds, Páll Ásgeir Davíðsson, Anna Stella Karlsdóttir, Arne Tronsen og barnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, JÓHANNA JÓHANNESDÓTTIR, Kópavogsbraut 85, lést á dvalarheimilinu Grund á nýársdag. Jarðarförin verður auglýst síðar. Gréta Pálsdóttir, Páll Pálsson, Margrét Yngvadóttir, Jóhannes H. Pálsson, Kristín Gunnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær sonur minn, bróðir okkar, mágur og frændi, SIGURBJÖRN KRISTJÁN HÁKONARSON, lést á heimili sínu þriðjudaginn 14. desember. Útför fer fram frá Seltjarnarneskirkju fimmtudaginn 6. janúar og hefst athöfnin kl. 13.00. Jarðsett verður í Húsavíkurkirkjugarði. Guðbjörg Sigurðardóttir, Ingibjörg Hákonardóttir, Gunnar J. Magnússon, Sigurður Hákonarson, Ruth Jónsdóttir, Aðalheiður Hákonardóttir, Valur B. Sigurðsson, Halldór Hákonarson, Zofía Wasiewic og frændsystkini.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.